Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1993, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1993, Qupperneq 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1993 Utlönd Stuttarfréttir Georgíuforseti berst fyrir pólitísku lífi sínu og embætti á vígvellinum: Þrisvar verið gestur íslendinga á 8 árum - Shevardnadze slapp heill á húíi frá átakasvæðinu í Abkhasíu í morgun „Forsetinn fer ekki af átakasvæðinu fyrr en hann hefur fengið staðfest- ingu þess að fólkið í Sukhumi sé óhult og þar verði ekki framið þjóð- armorð," sagði þingforseti á georg- íska þinginu eftir að Eduard She- vardnadze forseti hafnaði í gær öll- um tilboðum um að fara heim eftir að borgin féll í hendur uppreisnar- mönnum. Shevardnadze tekur sjálfur ábyrgð á hvernig farið hefur fyrir stjórnar- hernum í baráttunni við uppreisnar- menn í Abkhasíuhéraði. Herinn laut þar yfirstjórn forsetans en fór hall- oka fyrir aðskilnaðarsinnum og varð að játa sig sigraðan í gær eftir óvenju iilvíga bardaga í borginni. í morgun kom Shevardnadze til höfuðborgarinnar Tbhsi eftir að óvissa ríkti um örlög hans í gær. Um tíma hélt hann þó til skammt utan Sukhumi. Hann segir að um 20 þús- und manns séu í lífshættu í Sukhumi þótt flöldi fólks hafi náð aö flýja stað- inn síðustu daga með hjálp Rússa. Aðskilnaðarsinnar bjóða vopnahlé á fostudag en forsetinn hefur ekki tekið afstöðu tii boðsins enn. Þrívegis. komið til íslands Shevardnadze hefur aðeins setið rúmt ár á forsetastóli í Georgíu. Á þeim tíma hefur ríkið verið að líðast í sundur. Nú síðla sumars hefur at- burðarásin verið hröð og forsetinn misst þau htlu tök sem hann hafði á andstæðingum sínum. Hann var kallaður til valda eftir að landsmenn höfðu risið upp gegn Zviad Gamsakhurdia sem sækir nú Tværásjónur Eduard Shevardnadze var i mikl- um ham þegar hann sagði af sér embætti utanrikisréðherra Sov- étríkjanna og sagði harðlínuöfl- unum í landinu til syndanna um leið. Það er sjaldgæft að sjá hann svo léttan á brún. Hann fór helm tli Georgíu eftir þjónustu víð Sovét- rikin og var kjörinn forseti. Simamyndir Regter Eduard Shevardnadze Georgíuforseti kom til íslands fyrir réttu ári og hitti þá Jón Baldvin Hannibalsson utanríkis- ráðherra og Davíð Oddsson forsætisráðherra í Leifsstöð. Forsetinn var á leið til Bandarikjanna. Á þessum tíma þótti hann traustur í sessi þrátt fyrir mörg erfið vandamál heima í Georgíu. að Shevardnadze og vill í forsetastól- inn á ný. Framtíð Shevardnadzes er því ótrygg þótt hann hafi komist lif- andi af vígvellinum. Aðeins eru átta ár liðin frá því Shevardnadze kom óvænt fram á svið heimsmálanna. Mikhaíl Gorb- atsjov gerði hann að utanríkisráð- herra Sovétríkjanna, óreyndan með öllu í alþjóðastjórnmálum. Á ferh sínu hefur Shevardnadze þrívegis verið gestur á íslandi, fyrst árið 1985, skpmmu eftir að hann tók við embætti. Mest bar þó á honum hér þegar Roriald Reagan og Gorb- atsjov héldu fund sinn í Reykjavík. Þá veittu menn þessum hvíthærða alvörugefna manni fyrst verulega athygli. Enn kom Shevardnadze hér við í fyrra á leið vestur um haf. Hann var þá tahnn traustur í sessi í Georg- íu. Vopnin hafa heldur betur snúist í höndum hans á þessu eina ári. Gamall flokks- leiötogi I Georgíu Shevardnadze var ekki með öllu ókunnugur málum Georgíu þegar hann tók viö forsetaembættinu. Hann hafði á árunum 1972 itl 1985 verið flokksleiðtogi kommúnista í lýðveldinu sem þá var hluti af Sovét- ríkjunum. Á þessu fyrra valdaskeiði sínu þótti hann óvæginn og lét hik- laust taka menn af lífi fyrir andstöðu við stjórnvöld. Enn eimir eftir af orðfæri og hugs- unarhætti kommúnismans hjá She- vardiiadze. í gær lýsti hann því yfir að „heimsvaldasinnuð öfl stæðu að baki ófriðnum í Abkhasíuhéraði." Orðalagið er kunnuglegt en nú skeh- ir hann skuldinni á Rússa og segir að þeir hefðu getað forðað Sukhumi frá fahi ef þeir hefðu kært sig um. Shevardnadze segist hafa treyst á hðsstyrk Rússa þegar hann lagði upp í fórina tíl Sukhumi. Rússar segjast hafa gert aht sem í þeirra valdi stóð til að stöðva sókn aðskilnaðarsinna enekkihafterindisemerfiði. Reuter Shevardnadse á blaðamannafundi i Háskólabíói með Mikhail Gorbatsjov, síðasta forseta Sovétríkjanna, eftir leiðtogafundinn í Reykjavik haustið 1986. Shevardnadse hafði á ferli sínum sem utanríkisráðherra Sovétrikjanna veruleg áhrif á sambúð stórveldanna. i Reykjavík árið 1985 með Geir Hallgrímssyni, þá utanrikisráðherra. She- vardnadze var á þessum tíma óreyndur á sviði utanrikismála. Hann hafði ríkt sem héraðshöfðingi í Georgiu i 13 ár. Gorbatsjov Sovétforseti gerði hann að bandamanni sinum og treysti honum fyrir mikilvægum málaflokki. Hersveitir rússneska inn- anríkisráðu- irieýligirisiliúriri;:; kringdu þing- húsiðí Moskvu í morgun til að halda uppi lögum og reglu. Mönn- um er heimilt að yfirgefa húsiö en almenningur er varaður við að koma þar nálægt. Jeltsínfasturfyrár Borís Jeltsín Rússlandsforseti er staðráöinn í að láta ekki undan kröfum um að halda forseta- og þingkosningar á sama tima. Hópur þekktra rússneskra stjórnmálaroanna hefur boðisf til aö miðla tnálum milli Jeltsíns forseta og íhaldssatnra andstæð- inga hans á þingi. Herskáir nnislímar gerðu uppreisn gegn Izet- begovic Bos- níuforseta gær með því að lýsa yfir sjálfsjórn i Bihac-héraði í norðvesturhluta landsins þar sem íbúar er flestir islamstrúar. Uppreisn fordæmd ítalskir stjórnmálamenn og Páfagarður fordæmdu ákall Bandalags norðanmanna um skattauppreisn og sögðu það til- ræði við þjóðareiningu, Heitmannversig Steffen Heítmann, frambjóð- andi Koltls Þýskalandskanslara í forsetaembættið, sagði að hann ætlaði ekki að draga sig í hlé þrátt fyrir árásir á hann vegna íhalds- samra skoðana hans. Stríöogfriður írski lýðveld- isherinn, IRA, sprengdi tvær sprengjur í Belfast eftir að hafa áður rétt fram sátta- hönd. Norður-írlandsmálaráö- herra Bretlands kallaði IRA- menn hræsnara. Einn róttækasti þingmaður breska Verkamannaflokksins, Tony Benn, náði ekki endurkjöri i framkvæmdanefnd flokksíns þar sem hann haföi setiö í 34 ár. SAS>sfjórinn rekinn Jan Carlzon, forstjóri SAS, hef- ur hætt störfum. Við starfi hans tekur Norðmaðurinn Jan Reinás. Sögur herma að Carlzon haft ver- iö rekinn. Hvalurinn fjarri Clinton Gro Harlem Brundtland, forsætisráð- herra Noregs, nefndi hvala- máhö ekki á fundi sínum með Bih Clinton Battdaríkafor- seta i gær. Grænlendingar ráðgera að reisa vírkjun fyrir 8 mihjarða króna til að sjá höfuðstaðnum Nuuk fyrir rafmagni. Eitur í Eystrasalti Finnar segja að 210 þúsund tonnum af efnavopnum hafið ver- iö kastaö í Eystrasalt eftir síðari heimsstytjöldina. Reuter, NTB, Ritseau og ENB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.