Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1993, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1993, Side 9
ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1993 9 Christelli Roelandts, ungfrú Belgía, var valin besta fyrirsætan á kynningar- samkomu vegna keppni fegurstu stúlkna heims um titilinn ungfrú Heimur sem haldin verður í Tokyo í næsta mánuði. Stúlkur hvaðanæva úr heimin- um taka þátt í keppninni. Símamynd Reuter Paul McCartney sendir Norðmönnum tónlnn í Ósló: H valveiðarnar eru eins og þrælahald Bítillinn Paul McCartney líkti hvalveiðum Norðmanna við þræla- hald á fundi með fréttamönnum í Ósló í gær. Hann sagði aö hvoru tveggja væri gamaldags hugmyndir sem hann kærði sig ekkert um. „Mér þykir vænt um dýr og ég er þeirrar skoðunar að þau eigi að fá að lifa. Það á ekki bara viö um hváh en mér finnst sérstaklega sorglegt að horfa upp á svo stór dýr drepin á jafn kvalafullan máta,“ sagði rokkar- inn. Hann var þeirrar skoðunar að Norðmenn ættu miklu fremur að þéna peninga á því að sýna hvalina. „Margt fólk hefur sagt viö mig að það langi til að sjá hval áður en það deyr, svo að þetta ætti að vera eitt- hvað sem þið ættuð að stefna að,“ sagði hann. Og bætti svo við: „Þetta er skoðun mín en þið búið jú í frjálsu landi.“ Utandyra voru ungliðar i Fram- faraflokknum samankomnir til að mótmæla skoðunum McCartneys og dreifðu miðum þar sem stóð á ensku að varðveita ætti hvalina og hafa þá svo í matinn (Save the whales - for Paul McCartney vill að Norðmenn sýni hvali en veiði þá ekki. dinner). „Við óttumst að fólk láti afstööu Pauls McCartney til hvalveiða hafa áhrif á sig. Þess vegna erum við hér til að dreifa málefnalegum upplýs- ingum," sagði einn mótmælenda. Paul McCartney er í Noregi til tón- leikahalds og verða hinir fyrri af tveimur haldnir á mánudagskvöld. NTB __________Útlönd Solo fær frið í Smugunm Norska strandgæslan mun ekki skipta sér af hugsanlegum árekstr- um íslenskra togarasjómanna í Smugunni og grænfriðunga um borð í skipinu Solo þar sem Smugan er á alþjóðlegu hafsvæði. „Grænfriðungar mega gera það sem þeir vilja í Smugunni. Norsku strandgæslunni kemur það ekkert við,“ sagði talsmaður hersins í Norð- ur-Noregi, John Espen Lien yfirlaut- inant. Solo sigldi úr höfn í Tromsö í gær áleiðis í Smuguna þar sem reyna á að ná sambandi við íslensku sjó- mennina sem þar eru að veiöum. „Við ætlum bara að sjá til hvemig mál þróast. Við höfum engin áform um að fara í strandgæsluleik. Við viljum fyrst og fremst reyna að ná sambandi viö íslensku sjómennina til að segja þeim frá því tjóni sem ofveiðin veldur á þorskstofninum,“ sagði leiðangursstjórinn, Sjolle Niel- sen áður en Solo leysti landfestar. Skiptar skoðanir eru um aðgerðir Grænfriðunga meðal sjómanna í Noregi. Káre Ludvigsen, formaður samtaka sjómanna í Troms, hefur lýst yfir ánægju sinni með ætlunar- verk umhverfisvemdarsinnanna. Aðrir vilja aftur á móti hvergi koma nálægt. „Grænfriðungar em fulltrúar lífs- skoðunar og pólitíkur sem eru and- stæðar norsknm sjómönnum og veiðimönnum," segir Audun Marák, aðalritari samtaka smábátaeigenda. „Það yrði mjög óheppilegt ef græn- friðungar fengju að hafa áhrif á nýt- ingu endurnýjanlegra auðlinda okk- ar.“ Norges Fiskarlag, heildarsamtök norks sjávarútvegs, telja hættu á að grænfriðungar geti í máh þessu beitt baráttuaðferðum sínum til að efla langtímamarkmið sín. NTB Tilboðsréttir Lamba-Shawarna kebab, franskar og Zi 1 Coke Fyrir 1 kr. 660 Fyrir 2 kr. 1.200 Fyrir 4 kr. 1.950 FRÍ HEIMSENDINGARÞJÓNUSTA Opið alla virka daga og um helgar frá kl. 10-22. Sahara Suðurlandsbraut 12 s. 684955 VINNINGAR fjOldi VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 0 2.151.644 2. ^SSt ílilS 2 187.087 3. 4al5 95 6.794 4. 3al5 3.243 464 Heildarvinningsupphæö þessaviku: . 4.676.000 kr. i m W 1 | upplýsingar:Símsvari91-681511 lukkul!na991002 { I Aukablað um tísku Aukablað um nýjungar í tískuheiminum fylg- ir DV á morgun. Fjallað verður um tísku i viðum skilningi. Föt, snyrtivörur og fylgi- hlutir eru í brennidepli. Stiklað verður á stóru í fréttum úr tísku- heiminum. Auk þess verða birtar stuttar greinar um tiskutengt efni og ýmsar hagnýtar leiðbeiningar. - Tíska - - Á morgun Suzuki Sidekick '93, 5 dyra, ek. 1.900 km, álfelgur, dökkgrænsans. V. 2.290.000. Toyota 4Runner '91, ek. 43.000 þús. km, toppl., "32 dekk, 5 g., álfelgur, grás./tvílitur. V. 2.290.000. Nissan Patrol Turbo Diesel, árg. 1992, ek. 59.000 km, 33" dekk, ál- felgur o.fl. V. 3.190.000 kr. stgr. Honda Prelude EXi 16 v., 2 d„ ek. 79.000, svartur, topplúga., álfelgur. V. 690.000. Mercedes Benz 260E 4 matic (4x4), álfelgur, rafdr. rúður, ABS, blá- sans., ek. 84.000 km. Einn eigandi. V. 2.950.000. B I L A S S K E I -F U N N i A L A M S K l I l 0 8 REYKJAVÍK E l F A N S í M i :6 8 9 5 5 5

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.