Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1993, Síða 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1983
Afmæli
Hundrað ára:
Stefanía Einarsdóttir
Stefanía Einarsdóttir, Suöurgötu
85, Hafnarfirði, er hundrað ára í
dag.
Fjölskylda
Stefanía er fædd að Skammbeins-
stöðum í Holtahreppi. Hún giftist 22
ára Hinriki Einarssyni frá Ölvers-
holti í Holtum. Þau hófu búskap að
Ölversholti og bjuggu þar í 19 ár.
Stefanía og Hinrik fluttust til Hafn-
arfjarðar 1934 þar sem Hinrik gerð-
ist verkamaður en hann lést 1968.
Stefanía hefur haldið heimili fyrir
sjálfa sig og son sinn, Einar, síðan.
Stefanía og Hinrik eignuðust átta
börn en tvö dóu ung. Þrjú eru enn
á lífi, þau Einar, Sigríður og Jó-
hanna. Sigríður er gift Guðlaugi
Ketilssyni trésmíðameistara, þau
eru búsett í Reykjavík. Jóhanna er
gifl Sigurði Gíslasyni, fyrrv.
slökkviliðsstjóra, þau eru búsett í
Hafnarfirði.
Foreldrar Stefaníu voru Einar
Einarsson og Jóhanna Örnólfsdóttir
en fósturforeldrar hennar voru Páll
Finnsson, bóndi og smiður í Saurbæ
í Holtahreppi, og kona hans, Hall-
dóra Halldórsdóttir ljósmóðir.
Stefanía, sem er sérstaklega ern
og grípur í prjóna, les blöð og bækur
og fylgist vel með öllu sem í kring-
um hana gerist, ekki síst þjóðmála-
umræðunni, fagnar hundrað ára
afmæli sínu með börnum, barna-
börnum, barnabarnabörnum, vin-
um og öðrum vandamönnum á af-
mælisdaginn í Gaflinum í Hafnar-
firðifrákl. 15-18.
Stefanía Einarsdóttir.
Páll Baldvin Baldvinsson
Páll Baldvin Baldvinsson, listrænn
ráðunautur hjá Leikfélagi Reykja-
víkur, Bergstaðastræti 9, Reykjavík,
erfertugurídag.
Starfsferill
Páll fæddist í Reykjavík og ólst þar
upp. Hann lauk stúdentspróíi frá
MR1973, BA-prófi í íslenskum bók-
menntum og almennri bókmennta-
sögu frá HÍ1980, stundaði cand.
mag.-nám í íslenskum bókmenntum
við HÍ1981 og stundaði nám í leik-
húsfræðum við Goldsmith College í
London 1982-83.
Páll var starfsmaður Bóksölu
stúdenta 1974-75, ristjóri Stúdenta-
blaðsins 1975-77, leikgagnrýnandi
hjá Helgarpóstinum, RUV og DV
1983-84, leikhússtjóri og leikstjóri
hjá Hinu leikhúsinu 1985-86, inn-
kaupastjóri erlends efnis hjá Stöð 2
1987-90, leikgagnrýnandi hjá Þjóð-
viljanum 1987-89, dagskrárstjóri hjá
Sýn 1990 og hefur verið listrænn
ráðunautur hjá LR frá 1991.
Páll stundaði þýðingarstörf fyrir
Iðunni, RÚV, Þjóðleikhúsið, Stöð 2,
og fleiri aðila á árunum 1981-91.
Hann var varaformaður Stúdenta-
ráðs HÍ1976-77 og stofnandi Hins
leikhússins 1984.
Fjölskylda
Kona Páls er Ragna Ólafsdóttir, f.
27.2.1954, námsráðgjafi. Hún er dótt-
ir Ólafs Þolákssonar lögfræðings og
Erlu Magnúsdóttur húsmóður.
Börn Páls og Rögnu eru Vigdís
Hrefna, f. 5.10.1977; Solveig, f. 15.1.
1985, og PáU Zophanías, f. 26.7.1986.
Systur Páls eru Inga Lára, f. 16.2.
1956, deUdarstjóri hjá Þjóðminja-
safni íslands, og Guðrún Jarþrúður,
f. 25.11.1960, hljóðmaður hjá RÚV.
Foreldrar Páls eru Baldvin HaU-
dórsson, f. 23.3.1923, leikari í
Reykjavík, og kona hans, Vigdís
Pálsdóttir, f. 13.1.1924, handmennta-
kennari.
Ætt
Meðal systkina Baldvins er Erl-
ingur Ebenezer rithöfundur. Bald-
vin er sonur HaUdórs, b. á Amgerð-
areyri á Langadalsströnd, Jónsson-
ar, tómthúsmanns í Grasi á Þing-
eyri, Helgasonar, verkamanns á
Bíldudal, Jónssonar, b. í Hrísdal,
Jónassonar Brandssonar. Móðir
Baldvins var Steinunn Guðrún
Jónsdóttir.
Meðal systkina Vigdísar má nefna
Zóphónías, skipulagsstjóra ríkisins,
föður Páls, tæknifræðings í Vest-
mannaeyjum; Pál Agnar yfirdýra-
lækni; Hjalta, fyrrv. framkvæmda-
stjóra hjá SÍS, og Hannes banka-
stjóra. Vigdís er dóttir Páls, alþing-
ismanns og búnaðarmálastjóra,
Zóphóníassonar, prófasts í Viðvík,
Halldórssonar, b. á Brekku í Svarf-
aðardal, Rögnvaldssonar. Móðir
Halldórs var Sophía Þorsteinsdóttir,
systir Hallgríms, fóður Jónasar
skálds. Móðir Zóphóníasar var Guð-
rún Björnsdóttir, systir Guðnýjar,
langömmu Hermanns Jónassonar
forsætisráðherra, fóður Steingríms,
fyrrv. forsætisráðherra. Móðir Páls
var Jóhanna Sofia, systir Jarþrúð-
ar, konu dr. Hannesar Þorsteinsson-
ar, ritstjóra ogþjóðskjalayarðar, en
hálfsystur hennar voru Þóra, kona
Jóns Magnússonar forsætisráð-
herra, og Elínborg, kona Geirs
vígslubiskups Sæmundssonar. Jó-
hanna var dóttir Jóns, háyfirdóm-
ara og alþingismanns, bróður Pét-
urs biskups og Brynjólfs Fjölnis-
manns. Jón var sonur Péturs, próf-
asts á Víðivöllum, Péturssonar og
konu hans, Þóru Brynjólfsdóttur
guUsmiðs, HaUdórssonar, biskups á
Hólum, Brynjólfssonar. Móðir Jó-
hönnu var Jóhanna Soffía Bogadótt-
ur, b. og fræðimanns á StaðarfeUi,
Benediktssonar, ættföður Staðar-
fellsættarinnar og konu hans, Jar-
þrúðar Jónsdóttur, prests í Holti í
Ónundarfirði, Sigurðssonar. Móðir
Jarþrúöar var Solveig Ólafsdóttir,
lögsagnara á Eyri í Seyðisfirði,
Jónssonar, ættfóður Eyrarættar-
innar, langafa Jóns forseta.'
Móðir Vigdísar var Guðrún, dóttir
Hannesar, hreppstjóra í Defldar-
Páll Baldvin Baldvinsson.
tungu, Magnússonar, hreppstjóra á
VUmundarstöðum, Jónssonar.
Móðir Guðrúnar var Vigdís, systir
Þuríðar, ömmu Jóns Helgasonar,
prófessors og skálds í Kaupmanna-
höfn. Vigdís var dóttir Jóns, b. í
DeUdartungu, Jónssonar, dbrm. í
DeUdartungu, Þorvaldssonar, ætt-
föður DeUdartunguættarinnar,
bróðurMargrétar.
PáU dvelur í London þessa dagana.
Ingveldur Gísladóttir
Ingveldur Gísladóttir húsmóðir,
Tjamarbraut 29, Hafnarflrði, er átt-
ræð í dag.
Starfsferill
Ingveldur fæddist í Þormóðsdal í
MosfeUssveit en ólst upp hjá ein-
stæðri móður sinni í Reykjavík til
tíu ára aldurs og síðan í Hafnar-
firði. Hún naut bamaskólakennslu
en aðstæður leyföu ekki frekari
menntun þó hugurinn stæði til
náms. Síðar á ævinni lærði Ingveld-
ur bókband tvo vetur hjá Helga
Tryggvasyni í MHÍ auk þess sem
hún lærði málun hjá Sigríði Björns-
dóttur í MyndUstaskólanum.
Myndir Ingveldar hafa verið sýnd-
ar á Kjarvalsstöðum og í HoUandi.
Þá hafa komið út eftir hana þrjár
bækur, Lækningin, útg. 1951, Mynd-
ir og minningarbrot, útg. 1973 og
Refskákir og réttvísi, útg. 1973, auk
þess sem hún er nú aö leggja síð-
ustu hönd á handrit fjórðu bókar-
innar: í flötmm fátæktar.
Fjölskylda
Ingveldur giftist 16.12.1933 Guð-
mundi Gissurarsyni, f. 12.5.1902, d.
6.6.1958, forstjóra Sólvangs og bæj-
arfúUtrúa í Hafnarflrði um árabU.
Hann var sonur Gissurar Guð-
mundssonar, b. í Gljúfurárholti í
Ölfusi, og Margrétar Jónínu Hin-
riksdóttur húsfreyju.
Dætur Ingveldar og Guðmundar
em Guðrún Ágústa, f. 10.10.1934,
gift Emi Forberg, en þau eru bæði
íslenskukennarar í Lundi og Malmö
í Svíþjóð; Margrét Jónína, f. 2.9.
1936, innanhússarkitekt og grafík-
Ustamaður, en maki hennar er GísU
Engilbertsson, j árnsmí ðameistari
og meöhjálpari í Hafnarfjarðar-
kirkju.
Barnaböm Ingveldar em sjö, ell-
efu langömmubörn og eitt langa-
langömmubarn.
Ingveldur átti þrjá albræður sem
nú eru alUr látnir. Auk þess á hún
fimm hálfsystkin, samfeðra, á Ufi en
þrír hálfbræöur, samfeðra, em látn-
ir.
Foreldrar Ingveldar vom GísU
Jónsson, f. 4.9.1874, d. 9.11.1944, Ust-
málari, og Guðrún Þorleifsdóttir, f.
10.10.1873, d. 26.1.1961, en húnlærði
karlmannafatasaum hjá Reinhold.
Ætt
Meðal systkina Gísla vom Guðjón,
kaupmaður á Hverfisgötunni, faðir
Péturs stórkaupmanns, og Bjarni,
afi Skúla Jóhannessonar í Tékk-
kristal. GísU var sonur Jóns, b. í
BúrfeUskoti í Grímsnesi, Bjama-
sonar, b. í Borgarkoti í Ölfusi, Þor-
lákssonar. Móðir Jóns í BúrfeUskoti
var Guðrún Ólafsdóttir, b. á Net-
hömmm, Loftssonar og Helgu, syst-
ur Vigdísar, langömmu Kristins í
Geysi, afa Kristins Bjömssonar, for-
stjóra Skeljungs. Helga var dóttir
Steindórs, b. í Auðsholti og ættföður
Auðsholtsættarinnar, Sæmunds-
sonar og Amfríðar, systur Guðnýj-
ar, langömmu Guðmundar á
Gamla-Hrauni, afa dr. Guðna Jóns-
sonar, fóður Bjarna prófessors.
Móðir Gísla var Ingveldur Gísla-
dóttir, hreppstjóra á Kröggólfsstöð-
um, Eyjólfssonar, ættfóður Krögg-
ólfsstaðaættarinnar, Jónssonar.
Móðir Ingveldar var Sólveig, systir
Ólafar, ömmu Péturs, b. í Engey, afa
Bjama Benediktssonar forsætisráð-
herra, föður Bjöms alþingismanns.
Sólveig var dóttir Snorra, ríka í
Engey, Sigurðssonar og Guðrúnar
Oddsdóttur.
Guðrún var dóttir Þorleifs, b. í
Vatnsholti í Flóa, Jónssonar, b. í
Hrútastaðahjáleigu, Bjamasonar, b.
á Syðra-Velli í Flóa, Þorgrímssonar,
b. í Ranakoti, Bergssonar, ættföður
Bergsættarinnar, Sturlaugssonar.
Móðir Jóns var Ragnheiður Orms-
dóttir, b. á Hamri í Flóa, Amþórs-
sonar. Móðir Þorleifs var Guðrún
yngri Felixdóttir, b. á Haugi í Flóa,
Hafliðasonar, b. á Langholti, Niku-
Ingveldur Gisladóttir.
lássonar, b. í Hróarsholti, Hafliða-
sonar. Móðir Guðrúnar var Ólöf
Jónsdóttir, b. á Litlu-Reykjum í
Flóa, Þorsteinssonar, b. í Hjálms-
holtskoti, Jónssonar.
Móðir Guðrúnar Þorleifsdóttur
var Margrét Eyjólfsdóttir, formanns
í Garðhúsum í Flóa, Jónssonar, b. á
Borg hjá Villingaholti, Guðmunds-
sonar, ættföður Kópsvatnsættar-
innar, Þorsteinssonar. Móðir
Margrétar var Guðrún eldri, systir
Guðrúnaryngri.
Ingveldur verður að heiman í dag.
tímarit fyrir alla
á næsta sölustað c<] nn
eða í áskrift í síma DJ~Z/~UU
Til hamingju
meö afinæl-
ember
90 ára
Guöbjörg Jónsdóttir,
Hrafnistu við Kleppsveg, Reykja-
vík.
80 ára
Ragna Jónsdóttir,
Bólstaöarhlíð 41, Reykjavík.
Eiginmaður Rögnu var Ágúst Sæ-
mundssonar framkvæmdastjóri
semlést 1992.
Ragna tekur á móti gestum í þjón-
ustumiðstöðinni Bólstaðarhlíö 43
kl. 16.00-19.00.
60 ára
GuðmundurS.
Ottesen,
bóndi
að Syðri-Brú,
Grímsnes-
hreppi.
50 ára
örn Johnson,
Selbraut 2, Seltjamamesi.
Ólafur Jóhannsson,
Leifsgötu26, Reykjavík.
Auður Brynja Sigurðardóttir,
Breiðvangi 6, Hafnarfirði.
Valgerður Eiriksdóttir,
Dalseli 29, Reykjavik.
Ágústa Olsen,
Heiðarseli 15, Reykjavik.
Guðfinna Sigurðardóttir,
Fífuseli 6, Reykjavík.
Guðfinna er að heiman.
Edda M. Hjaltested,
Hraunbrún 51, Hafhar firði.
Hrefna Jónsdóttir,
Garðarsbraut 67, Húsavík.
Hrefna tekur á móti gestum að
Garðarsbraut 44, laugardagskvöld-
ið2.10.
40 ára
Agnar Þórarinsson,
Bergstaðastræti 74 A, Reykjavík.
HilmarEIíasson,
Barmahlíð 21, Reykjavík.
Guðrún Bjðrk Tómasdóttir,
Laugateigi 37, Reykjavík.
Helga Erlendsdóttir,
Skipasundi 28, Reykjavík.
Friðrik Ingvar Oddsson,
Hólabraut 3, Hafharfirði.
Edda Sigurrós Sverrisdóttir,
Laugarvegi 126, Reykjavík.
Hanna Sigurjónsdóttir,
Bakkavegi 27, Hnífsdal,
Bridget McEvoy,
Heiðmörk 60, Hverageröi.
Sigríður Ágústa Ingólfsdóttir,
Fjarðarseli 16, Reykjavík.