Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1993, Blaðsíða 2
2
FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1993
Fréttir
Fékk þríggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir stórfellda likamsárás:
Nef- og kinnbeins-
braut lögreglumann
- refsilækkandi áhrif að lögreglan framdi húsbrot við handtöku
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt tæplega fertugan Reykvíking
í þriggja mánaða fangelsi skilorðs-
bundið fyrir að hafa slegiö lögreglu-
mann hnefahöggi í andlit með þeim
aíleiðingum að h'ann nef- og kinn-
beinsbrotnaði og hlaut varanlega
örorku af þeim sökum. Einnar millj-
ónar króna skaðabótakröfu, sem lögð
var fram af lögmanni lögreglu-
mannsins, var vísað frá dómi að
miklu leyti á þeim forsendum að hún
var rökstudd á þann hátt að fórnar-
lambiö hefði þríkjálkabrotnað -
krafan væri því beinlínis röng.
Að morgni 23. mars fóru 4 lögreglu-
menn á tveimur bifreiðum til að
handtaka umræddanmann á heimili
hans við Meistaravelli. Hann bjó hjá
foreldrum sínum og leigði þar eitt
herbergi. Ástæða fyrirhugaðrar
handtöku var sú að maðurinn hafði
ekki sinnt boðun um að koma til
skýrslutöku í opinberu máli. Hand-
tökuskipun dómara var ekki höfð
meðferðis.
Þegar lögreglumenn komu að
heimilinu kom faðir mannsins til
dyra. Hann greindi syni sínum, sem
var inni í herbergi sínu, frá erindinu
en hann vildi ekkert sinna því. Eftir
þetta fóru lögreglumennimir inn í
herbergið án leyfis mannsins og kom
til verulegra átaka sem enduðu með
því að maðurinn var járnaður. Einn
lögreglumannanna beinbrotnaði
eins og fyrr greinir en heimilismað-
urinn bar því við að hann hefði verið
að afstýra húsbroti.
Ríkissaksóknari ákærði manninn
bæði fyrir líkamsárás og brot á opin-
berum embættismanni í starfi. í
dómi Péturs Guðgeirssonar héraðs-
dómara kemur fram að ljóst sé að
með aðför lögreglunnar hafi verið
brotið gegn heimilisfriöi ákærða sem
tryggður sé með 66. grein stjómar-
skrárinnar. Hann var því sýknaður
af broti á opinberum embættis-
manni. Hann var hins vegar fundinn
sekur um stórfellda líkamsárás og
þótti rétt að fresta framkvæmd
þriggja mánaða fangelsisrefsingar í
þrjú ár.
-Ótt
Hæstaréttardómur yfir 72 ára manni:
Sýknaður af að skjóta hund
Hæstiréttur sýknaði í gær 72 ára
mann sem dæmdur hafði verið til að
greiða 50 þúsund króna sekt fyrir
Héraðsdómi Norðurlands vestra fyrr
á þessu ári fyrir að skjóta hund af
írsku setter kyni.
Málsatvik em þau að hundurinn
gerði usla í fé mannsins. Maðurinn
tók haglabyssu úr bíl sínum og skaut
hundinn tveimur skotum á um það
bil 30 metra færi. Hundurinn drapst
ekki við fyrra skotið og skaut ákærði
því aftur.
Dómurinn féllst á það mat héraðs-
dómara að maðurinn hefði ekki nýtt
öll tiltæk úrræði til þess að stugga
hundinum burtu og verja þannig fé
sitt áður en hann greip til þess ör-
þrifaráðs að skjóta hann með hagla-
byssu sinni. Hins vegar er það metið
til refsilækkunar að hundsins var
illa gætt af eiganda sínum sem lét
hann hlaupa lausan um á almanna-
færi þar sem lausaganga hunda er
bönnuð. Þar er einnig höfð hliðsjón
af því að um var að ræöa veiðihund
sem fór laus um afgirt tún mannsins
þar sem ær hans voru á sauðburðar-
tíma með nýbomum lömbum.
Því þótti Hæstarétti rétt að fella
niður refsingu mannsins en hins veg-
ar var haglabyssa hans gerð upptæk
þar sem hann hafði ekki tilskiliö leyfi
til byssunnar og hleypti auk þess af
, skotum á almannafæri. Auk þess var
manninum gert að greiða áfrýjunar-
kostnað málsins.
-PP
mmm
Hæstiréttur dæmdi í gær 22 ára
konu í eins árs fangelsi fyrir
tékkafals.
Konan var fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur fyrr á árinu dæmd
í 15 mánaða fangelsi, þar af 3
mánuði skilorðsbundið. Hún
hafði áður hlotið 4 skilorðs-
bundna refsidóma fyrir tékkafals
að upphæö tæplega 600 þúsund.
í þessu máli liins vegar hefur hún
falsað tékka að fiárhæð tæplega
200 þúsund. Hefur hún því á ár-
unum 1991 og 1992 misfarið með
tékka að fiárhæð næstum 800
þúsund krónur.
Konunni var jafnframt gert að
greiða áfrýjunarkostnað, sak-
sóknaralaunog málsvarnarlaun.
-PP
Tvö íslensk
aðveiðum
Tvö íslensk skip, frystitogarinn
Otto Wathne og Stakfellið, eru nú
í Smugunni Veiði hefur verið
fremur treg að undanförnu.
Stakfellið hélt rakleitt í Smug-
una frá Svalbarða en hin íslensku
skipin sem voru þar, Snæfuglinn
og Skúmur, eru á heimleið. -IBS
Akureyrl:
Hafasafnaðá
6. þúsundskóm
Gylfi Kristjárvsson, DV, Akuxeyri:
Skósöfnun, sem staðið hefur
yfir að undanförnu á vegum
Vöruiiúss KEA, er nú á lokastigi
en safnað verður til mánaðamóta.
Skórnir, sem safnast, verða
sendir til þróunarlanda. Nú þegar
hafa safnast á 6. þúsund skópör
á Akureyri, eða um hálfur gám-
ur. Það takmark hefur verið sett
að safha öðru eins og fylla gám-
inn sem er í göngugötunni við
Vöruhús KEA og þangað geta
Akureyringar og aðrir komið
meö skó i söfnunina.
Gottaðfákaffi
ibúðarápinu
Regina Thorarensen, DV, Sdfossl
Jólalegt er orðið hjá Kaupfélagi
Árnesinga og hjá fleiri verslun-
um á Selfossi. Mikiö er verslað
alls staðar þrátt fyrir að verslun-
um fjölgi og einnig kaffihúsum.
Fólld finnst gott að geta brugðið
sér á kaffihús og fengið sér kaffi
í búðarápinu. Þetta þekktist ekki
hér áður fyrr á Selfossi nema á
hótelinu og það var sjaldnast opið
um miðjan dag fyrir slika þjón-
ustu fyrir 10-12 árum.
Akureyri:
Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri:
Raimsóknarlögreglan á Akur-
eyri leitar nú að bifreið sem stol-
ið var frá endurvarpsstööinni í
Skjaldarvík, skammt utan Akur-
eyrar.
Bifreiðin er af geröinni Toyota
Lite-Ace, rauð aö lit með skrán-
ingamúmerið R-66278. Þeir sem
hafa orðið varir viö bifreíöina síö-
ustu daga eru beönir urn að hafa
samband við rannsóknarlögregl-
una á Akureyri.
Stuttar fréttir
Vinnuslys varð í gær við Þorragötu í Skerjafirði þar sem verið er að byggja nýja stúdentagarða. Starfsmaður
verktaka, sem vinnur að byggingunni, féll úr vinnupöllum og niður á steypt gólf inni í byggingunni og slasaðist
nokkuð. Erfitt var að komast með börur inn i bygginguna og var því brugðið á það ráð að hífa þær inn og út.
Maðurinn reyndist ekki jafn slasaður og óttast var í fyrstu. DV-mynd Sveinn
Biluð miðbæjarstöð
Bilun varð i núðbæjarstöð Pósts
og síma í gær og uröu um 17 þús-
und símanúmer óvirk í um 20
minútur. Bilanir eru mjög tíðar í
stöðinni.
Fleiri hjálparþurfi
Helmingi fleiri í slendingar
báðu Hjálparstofnun kirkjunnai-
um aðstoð á síðasta ári en áriö
áöur. RÚV greindi frá þessu.
Hlutabréf hækka
Viðskipti á Verðbréfaþingi ís-
lands eru orðin tifalt meiri á
þessu ári en allt síðasta ár. RÚV
segir hlutabréf hafa hækkað ört
í verði að undanförnu.
Kvótakerfiö er svo glæpsamlegt
að helmingur af öllum fiski sem
veiðist á Snæfellsnesi er fiskaður "
i ánauðasamningum og fluttur til
vinnslu i farlægum byggðarlög-
um. Þetta sagði Jóhann Ársæls-
son á Alþingi í gær.
MátUausirskHffinnar
Ólafur Ragnar Grímsson gagn-
rýndi verkalýðsforystuna harð-
lega við setningu Landsfundar
Alþýðubandalagsins í gær. Áöur
hafi hreyfingin veriö vettvangur
harðra átaka um kaup og lifs-
skoðun en tetli nú fram skrif-
stofusveít úr sérfræðiskólum.
Háskóli í áliti
Mikill meirihluti þjóðarinnar
hefur jákvætt viöhorf til Háskóla
íslands samkvæmt skoðana-
könnun Félgasvisindastofhunar.
Einungis 3% þjóöarinnar hafa
neikvæð viðhorf tii skólans.
Morgunblaðið skýrði frá þes3u.
Þrírmilljarðarí
atvinnuleysisbætur
Atvinnuleysísbætur gætu orðiö
þrír milljarðar í ár en voru 1,8
milljaröar í fyrra. Framlög tilat ;
vinnuleysis opinberra starfs-
manna hafa meira en tvöfaldast
milli ára. í næsta mánuði verða
atvinnulausum greiddar allt að
18 þúsund krónur í láglaunaupp-
bót. Mbl. skýrði frá þessu.
Med regi^ilff á þlngi
Guðmundur Hallvarðsson
spennti upp regnhlíf í ræðustól á
Álþíngi í gær. Þingmaðurinn
geröi þetta til áhersluauka í um-
ræöum um notkuit islenska fán-
ans. Regnhlifin var skreytt fán-
um Norðuríandanna. -kaa