Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1993, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1993
11
Ef ég vil
hafa bæði Stöð 2
og Fjölvarp
Aðrar almennar upplýsingar
0 Þótt Fjölvarp sé farið í loftið
verður Stöð 2 send út á sama hátt og áður. Þeir sem EKKI kaupa áskrift
að Fjölvarpi þurfa ENGU að breyta hjá sér núna, hvorki myndlykli né
loftneti. Þeir einfaldlega halda áfram að njóta dagskrár Stöðvar 2 eins
og ekkert hafi í skorist.
^ Fjölvarp er sent út á örbylgju og þess
vegna er nýtt loftnet nauósynlegt. Mikilvægt er að þeir sem ætla aó gerast
áskrifendur að Fjölvarpi láti mæla útsendingarstyrk á móttökustað. Upplýsingar um
viðurkennda þjónustuaðila, sem sinna þessum mælingum, fást hjá íslenska
útvarpsfélaginu hf. í síma 91-688100. Það er mjög hentugt fyrir íbúa í fjölbýlis- og
raðhúsum að sameinast um loftnet.
® Myndlyklaskiptin, eða hin svokölluðu
„Stóru myndlyklaskipti", koma ekki til framkvæmda fyrr en á næsta ári. Þau tengjast
Fjölvarpinu ekki neitt og verður áskrifendum Stöðvar 2 kynnt málið ítarlega þegar þar
að kemur. Þegar „stóru myndlyklaskiptin" fara fram þurfa þeir, sem eru og verða
eingöngu áskrifendur Stöðvar 2, EKKI að skipta um loftnet.
£ Einungis þeir sem kaupa áskrift að
Fjölvarpi þurfa nýja myndlykla. Þeir sem eru áskrifendur að Stöð 2 eingöngu þurfa því
hvorki að skipta um myndlykil né loftnet þótt Fjölvarpið sé farið í loftið. Hægt er að nota
gamla lyktlinn sem greiðslu fyrir þriggja mánaóa áskrift að Fjölvarpi. Þeir sem vilja geta
að sjálfsögðu átt myndlyklana sína áfram en útsendingar Fjölvarps nást ekki í gegnum
þá. Nýju myndlyklarnir eru tæknilega mun fullkomnari en gömlu lyklarnir og koma í veg
fyrir þjófnaði í kerfinu, sem bitna á heiðarlegum áskrifendum. Auk þess hefur verið mikið
um kostnaðarsamar bilanir í gömlu lyklunum, sem áskrifendur hafa þurft að bera sjálfir,
en meö nýju myndlyklunum er það einnig úr sögunni, áskrifendum til góða. íslenska
útvarpsfélagið hf. sér um viðhald og viðgerðir á öllum myndlyklum í eigu félagsins.
^ íslenska útvarpsfélagið hf. kappkostar
að veita viðskiptavinum sínum ávallt góða og fjölbreytta þjónustu. Markmió félagsins er
að vera vakandi yfir nýjungum á sviði sjónvarps og sjónvarpstækni þannig að
viðskiptavinirnir njóti þess besta sem völ er á hverju sinni.
Ef þú viltfá nánari upplýsingar um Stöð 2 og Fjölvarp skaltu hringja
í síma 91-688100 milli kl. 09 og 17 alla virka daga.
ÍSLENSKA ÚTVARPSFÉLAGIÐ HF.
GOTT FÓLK / S (A