Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1994, Blaðsíða 4
4
LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1994
Fréttir
Rangir bifreiða- og þimgaskattsreikningar sendir til 300 bíleigenda:
350 Skodar skráðir sem
rútur hjá Bifreiðaskoðun
„Þaö uröu skráningarmistök hjá
Bifreiðaskoöun íslands með marga
bíla. Þetta átti sér staö meö 20 til 30
Isuzu jeppa og pallbíla. Það var engin
þyngd skráð á þá en ég held þeir séu
að leiðrétta það núna. Þar að auki
eru það 350 Skodar sem lentu í svip-
uðu, nema hvaö þeir eru ekki með
þungaskatt. Það er lagt á þá eins og
rútur,“ segir Arthúr Sveinsson hjá
Tollstjóraembættinu í Reykjavík.
Nýverið voru sendir út bifreiða-
mistök við gagnaflutnihg segir flármálastjóri Bifreiðaskoðunar
gjalda- og þungaskattsreikningar og
hafði einn greiðandi seðlanna sam-
band við DV vegna mistaka sem áttu
sér stað með bílinn hans sem er af
Isuzugerð. Hann fékk sendan reikn-
ing frá Tollstjóraembættinu í
Reykjavík yfir þungaskatt sem hljóð-
aði upp á 71.872 krónur. Hann taldi
sig ekki þurfa að greiða þetta þar sem
Isuzuinn hans var bensínbíll og ein-
ungis þarf að greiða þungaskatt af
dísilbílum. Mistökin voru leiörétt en
í leiðinni spurði hann hve mikið
hann ætti að greiða í bifreiðagjöld.
Svarið var um 10 þúsund krónur.
Sama dag fékk hann sendan bifreiða-
gjaldareikning upp á 18.136 sem svar-
aði til bifreiðar sem var hálft þriðja
tonn að eigin þyngd en ekki hálft
annað tonn eins og hún er með réttu.
Hann hafði aftur samband við skrif-
stofu tollstjóra og fékk aftur leiðrétt-
ingu og var beðinn afsökunar.
Oskar Eyjólfsson, íjármálastjóri
Bifreiðaskoðunar Islands, sagði í
samtali við DV að hér væri sannar-
lega um mistök að ræða. Gagnaflutn-
ingur hefði átt sér stað frá tölvukerfi
Bifreiðaskoðunar íslands til Skýrslu-
véla ríkisins og við það hefðu gögn
fallið út af kerfinu. í stað eigin
þyngdar bílanna hefði komið núll.
Tölvukerfið væri hins vegar þannig
að ef eigin þyngd bílanna er núR fara
þeir sjálfkraia í hæsta þyngdarflokk.
Einnig hefðu átt sér stað svipuð mis-
tök með vélargerð nokkurra Isuzu-
bíla. Nú væri hins vegar unnið að
leiöréttingu og nokkurt starf hefur
þegar verið unnið. Bifreiðaeigendur
þyrftu ekki aö hafa áhyggjur þótt
þetta kynni aö valda þeim óþægind-
um. Vitað væri um þessi mistök og
þeir sem þegar hefðu greitt of háa
bifreiða- og þungagjaldareikninga
myndu fá mismuninn endurgreidd-
an. Hinir myndu fá senda nýja reikn-
inga. -pp
Þijú dæmd í fangelsi í fíkniefnamáli í héraðsdómi í gær:
Smygluðu, seldu og f öldu 2,6 kg af hassi
- dómurinn tók mið afþví að höfuðpaurinn, kona, hefur fyrir bömum að sjá
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi
í gær 34 ára konu í 6 mánaða fang-
elsi, þar af 3 mánuði skilorðsbundið,
fyrir að hafa flutt 2,6 kíló af hassi og
16 grömm af marijúana til landsins
í september 1992 í því skyni að selja
þaö í ágóðaskyni. Hún var jafnframt
dæmd fyrir að hafa afhent 26 ára
karlmanni 525 grömm af efninu gegn
því að greiða honum 300-400 krónur
fyrir grammið ef hann seldi efnið á
900-1000 krónur hvert gramm.
Sá maður var dæmdur í 4 mánaða
fangelsi en 2 mánuði skilorðsbundið
fyrir að hafa selt ótilgreindu fólki 525
grömm af efni konunnar en tekið við
megninu af hinu sem hún flutti inn,
1,4 kílóum, frá unnusta hennar á
meðan konan sat í gæsluvarðhaldi.
Unnustinn, sem er 27 ára, fékk 2
mánaða skilorðsbundna fangelsis-
refsingu fyrir aö hafa afhent hinum
hassið á heimih unnustu hans.
Þremenningamir viðurkenndu aU-
ir þau brot sem þeim voru gefin að
sök. Eftir að efnin voru flutt inn til
landsins var rúmt hálfl kíló selt á
um hálfa milljón króna en sölumað-
urinn fékk greitt fyrir á annað
hundrað þúsund krónur. í byrjun
nóvember 1992, þegar konan sat í
gæsluvarðhaldi, voru efnin fahn í
íbúð hennar en sölumaðurinn fékk
þau þá í sína vörslu. Lögreglan lagði
síðan hald á stærstan hluta þess sem
eftir var. Eftir að konan slapp úr
gæsluvarðhaldi fóru hún og sambýl-
ismaðurinn th lögreglunnar og
greindu frá sinni hlutdehd í málinu.
Dómurinn tók mið af því við refsi-
ákvörðun, svo og því að konan hefur
fyrir tveimur bömum að sjá, báðum
yngri en 10 ára. Vegna þessa máls
em rúm tvö kíló af hassi og 15,3
grömm af marijúana dæmd upptæk
th ríkissjóðs.
-Ótt
Margir hafa lent i erfiöleikum á Hellisheiði i ófærðinni siðustu tvo sólarhringa. Áætlunarbillinn á myndinni hreinlega fauk út af veginum á heiöinni.
Lögreglan kom og bjargaði fólki. Meðal þeirra sem fengu far með löggunni var Björgvin Heiðar og hann fékk meira aö segja lögguhúfuna lánaða.
DV-mynd Sigrún Lovísa
Fryst loðna til Japans:
Frysti-
togarar
vilja leyfi
til loðnu-
veiða
Fimm sjávarútvegsfyrirtæki í
Reykiavík, Hafnarfirði og á Akra-
nesi hafa sótt um leyfi th sjávar-
útvegsráðuneytisins th að senda
frystitogara á loönuveiðar og
hafa önnur fyrirtæki sýnt málinu
áhuga. Umsóknirnar voru til
umfjöllunar i ráðuneytinu og hjá
hagsmunaaöilum i gær en búist
er við að Þorsteinn Pálsson sjáv-
arútvegsráðherra gefi endanlegt
svar um helgina.
Haraldur Sturlaugsson, fram-
kvæmdastjóri Haraldar Böðvars-
sonar hf. á Akranesi, segir að fyr-
irtækið hafi ákveðið að sækja um
Jeyfi th að gera tilraun með
loðnuveiðar á Höfrungi m. Þann-
ig aukist verkefnin og möguleiki
gefist th aö flytja kvótann yfir á
ferskfisktogarana auk þess sem
vinna aukist i landi. HB vhji bæði
flokka ailann og heilfrysta Iiann
ófiokkaðan og senda frysta loðnu
á Japansmarkað þar sem sam-
keppnin við Norðmenn og
Kanadamenn sé í lágmarki.
„Reynsla undanfarinna ára hef-
ur sýnt aö eftir að loðnan fer að
veíðast hafa menn ekki nema
rúma 50 daga th að veiða hana.
Undanfarin ár hefur ekki náðst
að veiða allan kvótann. Sá hluti
aflans sem færi í sjóinn ef leyfi
fengist fyrir þessum veiöum yröi
aðeins brot af því sem fer f sjóinn
af öhum flotanum," segir Harald-
ur Sturlaugsson.
-GHS
Steingrímur Hermannsson íhugar að gerast bankastjóri í Seðlabankanum:
Eftirsóknarverð staða og ef nahagsleg áhrif
- ÁgústEinarsson ogBjörgvmViImundarsonorðaðirviðhinabankastjórastöðuna
„Ég hef verið formaður Framsókn-
arflokksins í 15 ár og verið með
flokkinn hehsteyptan að baki mér.
Það hefur verið minn stóri styrkur.
Það segja sumir, sem er alveg rétt,
að það sé best að skhja við starf þeg-
ar hápunkti er náð - þegar vel geng-
ur og menn eru sáttir. Það væri leið-
inlegra aö skhja viö flokkinn ef hann
væri oröinn hálfklofinn og orðinn
leiöur á mér,“ segir Steingrímur Her-
mannsson, formaður Framóknar-
flokksins.
Steingrímur segist ekki hafa tekiö
endanlega afstöðu th þess hvort hann
hafnar eða tekur við bankastjóra-
stöðu í Seðlabankanum. Tvær
bankastjórastöður hafa nú verið aug-
lýstar lausar th umsóknar, stöður
Jóns Sigurðssonar og Tómasar
Ámasonar.
Samkvæmt heimhdum DV mun
Davíð Oddsson forsætisráðherra
hafa boðið Steingrími stöðuna á
fimdi sem þeir áttu í lok síðasta árs.
Óvíst er hver tekur við stöðu Jóns
Sigurðssonar, en Ágúst Einarsson,
formaður bankaráös Seðlabankans,
og Björgvi'n Vilmundarson, banka-
stjóri Landsbankans, hafa verið orð-
aðir í því sambandi. En hefur Stein-
grímur áhuga?
„Ég tel þessa stöðu sannarlega eft-
irsókncirverða og í henni má hafa
mikh áhrif á efnahagsmál. Að mínu
mati á Seðlabankinn að vinna langt-
um ákveðnara með ríkisstjóminni
að stjóm efhahagsmála í landinnu
en verið hefur,“segir Steingrímur.
-kaa