Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1994, Blaðsíða 8
8
LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1994
Vísnaþáttur
Vísan
fögnuð
veitir þjóð
„Honum tókst aö gera mig að
gömlum vini sínum strax við fyrstu
kynni.“ Þessi tilvitnun er höfð eftir
bandaríska rithöfundinum og háð-
fuglinum Mark Twain. Þegar ég nú
reyni að riíja upp fyrstu kynni mín
af Sigurði Jónssyni frá Haukagih
finnst mér að þau hafi verið með
þeim hætti. Við urðum strax góðir
kunningjar og kunningsskapurinn
fljótlega að vináttu sem varð jafn-
vel því nánari sem nær leið ævilok-
um hans. Áhugi okkar beggja á
ljóðum og stökum treysti þau vin-
áttubönd.
Ég hef lengi haft hug á að helga
honum einn eða jafnvel fleiri vísna-
þætti því ég á í fórum mínum tals-
vert af ljóðum og lausavísum eftir
hann sjálfan, svo og stökur kveðn-
ar til hans við ýmis tækifæri. Sumt
af þessu ljóðmáh mun ekki til ann-
ars staðar því Siguröur hampaði
aldrei eigin kveðskap og éy ddi j afn-
an talinu væri hann beðinn um
hann. Nokkrar stökur komst ég þó
yfir áður en hann hvarf af vett-
vangi en talsvert aö honum látn-
um. Hvítársíðan og þá ekki síst
Haukagil átti mikil ítök í honum
og ófuhgert ljóð hans um heima-
hagana er á þessa leið:
Hugurinn leitar heim til þín
að HaukagiU,
óðal minna æskudrauma
upp við Hvítár bláu strauma.
Þar er ennþá yndi og friður
eins og forðum
sólskinsríka sumardaga
söngur fugla um gróinn haga.
LítiU drengur lék ég mér
við lækjarniðinn
Þann 15. sept. 1929 var Kvæöa-
mannafélagið Iðunn stofnað í
Reykjavík og var Kjartan Ólafs-
son kosinn fyrsti formaður þess.
Sigurður gekk fljótlega í félagið,
var formaður þess 1953-62 og
1966-67. Ekki veit ég hvenær né
hvert tilefnið var þegar Kjartan
fékk þessa kveðju frá Sigurði:
Ann þér lengi íslandssaga
að því tengjast rök.
Kunni drengur kvæðalaga
kUðmjúk strengjatök
Lyftir dagur ljóðs við heima
Ijósi er fagurt skín.
Er við Braga bjarta heima
bundin saga þín.
Vinur ljóða varstu inn slyngi,
varð ei slóðin hál.
Enn á glóð og glæsta kynngi
göfugt Óðins mál.
Kveddu lengi, kveddu meira,
kveldið gengur á.
Góða drengi er gott aö heyra
gígjustrengi slá.
Oft er bjart um óðarvefinn,
út hið svarta hrökk,
til þín, Kjartan, stuttu stefin
stefna hjartans þökk.
Það var einhverju sinni á Iðunn-
arfundi að Sigurði fannst frammi-
staða félaganna viö yrkingar ekki
tU neinnar fyrirmyndar, þar ríkti
þögnin ein. Það varð honum tilefni
til þessarar stöku:
Engan fógnuð innir fréttin,
enga sögn um réttan stig,
kynngimögnuð grá og glettin
grúfir þögnin yfir mig.
Jóhannes Benjamínsson hafði
mjög uppi munn á Iðunnarfundi.
Þá kvaö Sigurður en ekki veit tU
hvers vísunni var beint:
Vísnaþáttur
Torfi Jónsson
Öllum draugum ætti að lóga,
einkum þeim er sýna hrekki.
Stökktu vígðu vatni á Jóa,
vittu hvort hann sekkur ekki.
Hálfdán Bjamason frá Bjarghús-
um stundaði sUungsveiði í Hítar-
vatni. Sigurður orkti tU hans:
Eftir svala sumarskúr
sveif aö vitum mínum
lyngs og grasa Umur úr
óskalöndum þínum.
Hér er grasið grænt í kring,
gróskuvölva að seiði.
Hólmar, klappir, laut og lyng,
lækjarós - og veiði.
Þarna vorið byrjar brag,
birtu og lífi þrungið.
Þarna ymur íslands lag
ótal röddum sungið.
Vorið ungt með unað sinn
enn mun þráð og fengið.
Þarna hefir Hálfdán min
að hálfu í klettinn gengið.
Þegar sól um breiða byggð
bjartast nær að skína
þig mun Hítar tröUatryggð
taka á arma sína.
Á heimleið í sumarferð Iðunnar
var farið um Uxahryggi. Þegar
komið var á Þingvöll kvaö Sigurð-'
ur:
Þokumóðu lagði á leið
- Ustin góð þó vaki,
áfram slóð er ekin greið,
auðnin hljóð að baki.
í ferðalok kvaö Sigurður:
Vísan fognuð veitir þjóð,
víða að brögnum streymir.
Snjalla sögn og yndisóð
aldrei þögnin geymir.
Heimkomunni höldar fagna
- hýra í auga og bros á vör.
Góðar vættir söngs og sagna
signað hafa okkar fór.
Þegar Björn Friðriksson, einn af
stofnendum Iðunnar, lést kvað Sig-
urður:
Gleðin var þér víst að hæfi,
vel þig geymi feðramoldin.
Nú er lokið langri ævi,
lífsins skuld að fuUu goldin
Og að lokum kveðja frá Sigurði
til einhvers ónafngreinds aðUa:
Óskir þrjár ef ætti tU
yrði létt um sporið.
Sendi ég tíl þín sumaryl,
sólskin og vorið.
Torfi Jónsson
Matgædingur vikuimar
Kanína og hörpu-
skelfiskréttur
„Mig langar að gefa uppskrift að kanínu enda fáum
við aUtaf kaninukjöt hér í kaupfélaginu annaö slagið,
t.d. ávaUt fyrir jólin," segir Anna Kristín Gunnarsdótt-
ir, matgæðingur vikunnar og skrifstofustúlka á Sauð-
árkróki. „Þetta er kanína í sinnepssósu sem hefur
verið mjög vinsæl á mínu heimUi, allavega hjá fuU-
orðna fólkinu, og helmingnum af bömunum," segir
Anna Kristín. „Það er kannski ekki auðvelt alls staðar
að útvega sér kanínu en á þó að vera hægt. Á flestum
stöðum eru kanínubú og það má boröa þær,“ segir hún.
Kanínan er skorin í hæfilega bita. Kjötið er steikt í
blöndu af olíu og smjörlíki og kryddaö með salti og
pipar. Þá er allt sett í pott og bætt úti 2 matskeiðum
af Dijon sinnepi og hálfum htra af mysu. Þá er kanín-
an soöin í u.þ.b. 45 mínútur. Oft flýtur mysan ekki
alveg yfir kjötið og er þvi þá snúið við á meðan á suðu
stendur. Eftir að suðutíma er lokið er einum pela að
ijóma bætt út í og allt látið sjóða niður. Anna Kristín
segist stundum hafa meira en hálfan lítra af mysu en
sýður þá soðið því meira niður. Hægt er að þykkja
sósuna meö sósujafnara eða láta hana sjóða niður þar
til hún þykknar. Með þessum rétti eru bomar fram
soðnar kartöflur. „Ég er viss um að þetta er hoUur
réttur enda er kjötið magurt," segir Anna Kristín.
Hún segist gera þennan rétt iðulega um jólaleytið
eða á afmæli sínu sem er í byrjun ársins. „Það eru
margar aðrar aðferðir viö að elda kanínu. Bæði hef
ég prófað hana griUaða og einnig með beikoni og svepp-
um. Hún er aUtaf mjög góð.“
Hörpuskelfiskréttur
Anna Kristín gefur okkur einnig uppskrift að einföld-
um hörpuskelfiskrétti sem notaöur er í forrétt.
„Hörpuskelfiskurinn er steiktur eða velt á pönnu í
smjöri í ca tvær mínútur. Smjörið á að vera vel heitt
en má ekki ofhitna. Kryddað með þremur hvítlauksrif-
um og salti og pipar. Þegar hörpuskehn er tekin af
pönnunni er soðiö sem eftir situr kryddað enn frekar
með hvítlauksdufd, sett yfir fiskinn og rétturinn bor-
inn fram með nýju brauði. Gott er að bleyta brauðið
með soðinu af fiskinum. Bæta má rækjum við réttinn
og eru þær þá settar alveg síðast og látnar hitna í gegn.
Anna Kristín Gunnarsdóttir, matgæðingur vikunnar.
Anna Kristín segir að hæfiiegt magn af hörpuskelfiski
sé um sex til sjö stykki á mann.
Enn heldur matgæðingurinn sig við Sauðárkrók því
Anna ætlar að skora á Ólaf Ambjömsson, aðstoðar-
skólameistara i Fjölbrautaskólanum á Króknum, að
vera næsti matgæöingur. „Hann er mjög góður kokkur
sem farið hefur víða og prófað rnargt."
Hinhliðin._
Áhugamálin
• •
eru morg
- segir Jóhannes Viðar Bjamason veitingamaður
„Ahugamáhn eru svo mörg, en
þau verða að bíða betri tíma,“ segir
Jóhannes Viöar Bjarnason, veit-
ingamaður á Fjörukránni og Fjöm-
garðinum í Hafnarfirði. Jóhannes
hefur í ýmsu aö snúast þessa dag-
ana því nú er þorrinn genginn í
garð, með öhu því sem honum til-
heyrir. „Við gefum okkur út fyrir
að vera með einn þjóðlegasta veit-
ingastað á landinu og fórum af stað
með þorramatinn um helgina,"
sagði Jóhannes. Hann sýnir á sér
hina hhðina í helgarblaðinu að
þessu sinni.
Fullt nafn: Jóhannes Viöar Bjama-
son.
Fæðingardagur og ár: 9.8. ’55.
Maki: Karen Björnsdóttir.
Börn Fjögur.
Bifreið: Golf, Cherokee Jeep.
Starf: Veitingamaður.
Laun: Sæmileg.
Áhugamál: Þau era svo mörg, en
verða að bíða betri tíma.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? SpUa ekki í happ-
drætti eða lottói.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Vera með fjölskyldunni.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Umgangast neikvætt fólk.
Uppáhaldsmatur: Pylsa með öUu
Jóhannes Viðar Bjarnason veit-
ingamaður.
nema remúlaði.
Uppáhaldsdrykkur: Kaffi.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? Siggi Sveins.
Uppáhaldstímarit: Mannlíf.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan maka? Dætur
mínar.
Ertu hlynntur eða andvigur ríkis-
stjórninni? Hlutlaus.
Hvaða persónu langar þig mest til
að hitta? BiU Clinton.
Uppáhaldsleikari: Laddi.
Uppáhaldsleikkona: Meryl Streep.
Uppáhaldssöngvari: Elton John og
gengUbeinumar mínar syngjandi,
þær Ingveldur G. Ólafsdóttir og
Sólveig Birgisdóttir.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Eng-
inn, ég er svo ópólitískur.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Engin.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Fréttir og
dýralífsmyndir.
Ertu hlynntur eða andvígur veru
varnarliðsins hér á landi? Hlynnt-
ur.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Bylgjan.
Uppáhaldsútvarpsmaður: HaU-
grímur Thorsteinsson.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Ég horfi lítið á sjón-
varp, en þó meira á Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður?
Hemmi Gunn. og Eiríkur Jónsson.
Uppáhaldsskemmtistaður: Fjöra-
garðurinn.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Þróttur.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtiðinni? Að standa og faUa með
því sem ég er að gera.
Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí-
inu? Fara með fjölskylduna tfl sól-
arlanda.