Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1994, Qupperneq 24
24
LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1994
Björk Guðmimdsdóttir hefur áhrif á tískuútlitið:
Kynbomban með
bamslega andlitið
Björk Guðmundsdóttir söngkona er
þessa dagana á tónleikaferðalagi um
Ástralíu og Japan. Á meðan hafa
gerst þau tíðindi í Bretlandi að plata
hennar hefur aftur rokið upp vin-
sældahsta og nýjustu fréttir herma
að hún hafi fengið tvær tilnefningar
British Awards sem er tónhstarverð-
launahátíð svipuð og Grammy í
Bandaríkjunum. Þar er Björk til-
nefnd sem besta söngkonan og besti
nýhðinn á síðasta ári. Aðrar sem eru
tilnefndar í flokki bestu söngkvenna
eru m.a. Tina Turner, Mariah Carey
og Janet Jackson.
Síðasta ár var mikhl uppgangstími
fyrir Björk Guðmundsdóttur. Árið
1992 flutti hún tíl London þar sem
umboðsmaður hennar er og þaðan
er tónleikahaldi stjórnað. Bretar
hafa verið sérlega hrifnir af Björk
og bæði tónhstartímarit og dagblað
kusu hana mann ársins í Bretlandi
um áramótin.
Björk á hús í London þar sem hún
býr með kærasta sínum, Bretanum
Dominic, og syninum Sindra, sem er
sjö ára. Dominic starfar sém plötu-
snúður en þau kynntust í Los Ange-
les. Sindri er sagður mjög líkur móð-
ur sinni, ekki einvörðungu í úthti,
heldur er hcmn skarpgreindur eins
og hún. Hann dúxar 1 skólanum og
hefur m.a. lært frönsku reiprenn-
andi. Hálfsystir Bjarkar er au pair
hjá henni og gætir Sindra þegar hún
ferðast og hann fer ekki meö.
Sjálfsagt hefðu ekki margir trúað
því þegar Björk söng með Kuklinu
aö þarna væri thvonandi stjarna á
ferð. Vegna óvepjulegrar framkomu
hneykslaði hún fólk. „Björk var ut-
angarðsbam og leit á sig sem slíka.
Hún ól sig sjálf upp,“ segir góður
vinur Bjarkar. „Foreldrar hennar
bjuggu aldrei saman og móðir henn-
ar lét hana vera nokkuð frjálsa," seg-
ir hann. „Björk er bráðgáfuð en gekk
ekki menntaveginn. Hún helgaði sig
tónlistinni strax að loknum grunn-
skóla.“
Sjö ára kynbomba
í nýlegu viðtah við breska blaðið
Melody Maker er Björk spurð hvort
hún vonist th aö verða öðrum konum
innblástur. Björk svarar því th aö
ahir eigi að fara eftir rödd hjartans,
sama hvort þeir séu konur eða karl-
ar. Hún gerir ekki greinarmun á
kynjunum. „Konur eru of uppteknar
af að hugsa um sig sem konur,“ seg-
ir hún.
Nýlega var sagt um Björk í bresku
blaði að hún væri eins og sjö ára
kynbomba. Líklegt þykir að útht
hennar muni verða th þess að ungar
konur geri sig barnslegar. En Björk
gerir sig ekki bamslega. Hún er
náttúrubam af guðs gjöf og setur
ekki upp neins konar grímu í fjöl-
miðlum. „Björk er alveg nákvæm-
lega eins og hún kemur fyrir í fjöl-
miðlum," segir vinur hennar. „Hún
er ekki að gera sér neitt upp. Þetta
er hennar eðh.“ Hið bamslega útht
Bjarkar hefur vakið mikla athygli.
Hún er nefnd í sömu andrá og hin
bamslega súperfyrirsæta Kate Moss.
Þessar tvær konur eiga væntanlega
eftir að hafa mun meiri áhrif með
úthti sínu en þær gera sér grein fyrir.
Sonurinn dúxar
- velgengni söngkonunnar eykst sífellt víða rnn heim
BJÖRK - íslenska prinsessan - sem vakið hefur athygli um heim allan fyrir sérstæða og einlæga framkomu.
Hljómsveitin Kuklið var undanfari hinna frægu Sykurmola. Björk kom til íslands í september í haust til að taka á móti gullplötu úr
hendi Ásmundar Jónssonar.