Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1994, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1994, Page 29
28 LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1994 Ég vil ekki líta á mig sem útrætt mál - segir Karl Guðmundsson leikari sem minnist 40 ára leikafmælis hjá LRum þessar mundir „Eg varð var við svo mikinn hlý- leika og elskulegheit af hálfu sam- starfsfólks míns vegna þessara tíma- móta, ég átti bara ekki von á þessu,“ segir Karl Guðmundsson leikari sem minnist merkra tímamóta um þessar mundir því um 40 ár eru hðin frá því að hann hóf að leika hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Við lok 35. sýningar á Spanskflugunni um síðustu helgi fór fram athöfn þar sem þessa var minnst. Margt hefur drifið á daga þessa vinsæla leikara sem hefur komið íslenskum leikhúsgestum til að gráta af hlátri í gegnum-tíðina. „I upphafi var ég svolítið laus í rásinni og leitandi," segir hann þegar viö höfum komið okkur fyrir til spjalls í búningsherbergi hans í Borgarleikhúsinu. „Það tók mig þó- nokkurn tíma að komast að því hvað ég vildi hafa að ævistarfi. En það tókst, eins og hjá flestum." Hermikráka Karl Jóhann fæddist í Reykjavík, nánar tiltekið að Grundarstíg 5b, 28. ágúst 1924. Foreldrar hans voru Guð- mundur S. Guðmundsson, vélstjóri og lengi verkstjóri í Héðni. Hann stofnaði Hampiðjuna 1934, ásamt fleirum og var fyrsti forsljóri henn- ar. Móðir Karls, Lára Jóhannesdótt- ir, var fædd í Stykkishólmi. Karl á tvær systur, Soffiu Emelíu tónhstar- kennara og Sigríði Láru bókavörð. „Ég varð snemma hermikráka og var næmur á að taka upp eftir fólki,“ segir Karl, þegar talið berst að hon- um sem polla. „Ég var voðalega hrif- inn af plötu Bjarna Björnssonar þar sem hann hermdi e'ftir Vestur-íslend- ingum. Þessi plata var til heima. Svo fluttum við að Bergstaðastræti 50b. Þetta var gamalt timburhús sem Poulsen kaupmaður hafði átt við Klapparstíginn en faðir minn keypt af honum. Pabbi lét flytja húsiö yfir að Bergstaðastræti. Þar byggði hann undir það gnmn og lengdi það svoht- ið. Bergur Jónsson býr þar núna og hann hefur varðveitt herbergi afa og ömmu, eins og það var.“ Karl segist hafa verið „gæflynt" bam. „Ég var dálítiö heilsuveih. Ég frétti það eftir Þóm frænku minni Ámadóttur fyrir nokkrum ámm, dóttur séra Áma Þórarinssonar, að ég heföi verið rétt dáinn úr lungna- bólgu þegar ég var á fyrsta ári. „Þú varst einu sinni nærri farinn, Kalh,“ sagði hún. „Manstu eftir því?“ Eg hafði víst kraflað mig út úr þess- um veikindum og aldrei verið sagt frá þeim eftir á. En það var afskap- lega mikil hræðsla við berkla á þess- um tíma og maður var oft dáhtið mikið dúðaður. Ég var oft veikur þegar ég var 6-9 ára og lá heilu vet- uma. Veikindin urðu þó ekki til að gera mig að bókaormi því ég varð „Ég varð snemma hermikráka ... “ seint læs og hef verið dáhtið hræddur við að mislesa texta í gegnum tíð- ina.“ Amma Karls, Katrín, og séra Ami vora systkinabörn. Kennimaðurinn nafntogaði kom því oft i heimsókn á bernskuheimih Karls. „Hann hafði alveg rosalega mikil áhrif á mig. Ég var svo hrifinn af þvi að hlusta á hann. Hann var góður vinur, ræktar- samur og heimsótti ömmu oft. Hann var ahtaf aö segja sögur og alltaf hneykslaðist hún. Hann spurði hana til að mynda einu sinni: „Veistu hvað var stærst í séra Magnúsi?" Nei, það vissi amma ekki. „Það var núllið," sagði séra Ámi þá. Eg naut þess að horfa á hann og herma eftir honum með sjálfum mér.“ Puttalaginn og listrænn Þessar heimaæfingar Karls í leik- hstinni áttu ekki eftir að skila sér á sviði fyrr en síðar. „Þegar ég fór upp í Menntaskólann í Reykjavík var ég orðinn þannig stemmdur að mig langað til að vera með í leikhstinni þar. En það varð nú ekkert af því þá þótt vinir mínir væra við þetta. Ég skemmti þó innan þrengri hópa, hermdi eftir kennur- imum og fleira í þeim dúr. Svo var ég svolítiö að teikna á þessum tíma. Ég held ég hafi þótt puttalaginn og hstrænn og teiknaði því meðal ann- ars í skólablaðið." Þegar tahð berst að árunum í MR kemur í ljós að Karl minnist einnig merkra tímamóta á þeim vettvangi því hann verður 50 ára stúdent í sum- ar. í fyrsta sinn á sviði Karl steig í fyrsta skipti á svið 1948. Þá lék hann í Meðan við bíðum, und- ir stjóm Indriða Waage, sem einnig lék aðalhlutverkið. Indriði hafði heyrt Karl flytja eftirhermur í út- varpi og vildi fá hann í hlutverk. „Það var sko glötun,“ segir Karl, „þegar ég fór í þessar helvítis eftir- hermur. Ég kom fram í þætti, sem hét Lög og létt hjal. Ég flutti þarna einhvem samsetning og brá upp nokkram frægum röddum. Það var hættulegt að frægja sig sem eftir- hermu og það háði mér lengi á eftir. Ég hafði að vísu góða textahöfunda og naut þess, fyrst Tómas Guð- mundsson og síðan Bjarna Guð- mundsson. Því miður lenti ég síðar í leiðindum vegna texta því ég gerði mér ekki grein fyrir hve meinlegir þeir vora. En Indriði var víst eitt- hvað hrifinn af eftirhermunum og út frá því kynntist ég honum. Hann tók mig nokkuð að sér og það skrif- ast kannski svolítið á hans reikning að ég skyldi fara út í leikhstina. En þetta var voða skemmtilegt, góður félagsskapur og gaman að vera til. Ég minnist til dæmis Blástjömunn- ar, kabaretts sem fluttur var í Sjálf- stæðishúsinu og naut vinsælda. Uppistaðan í honum voru þeir Har- aldur Á. og Alfreð Andrésson.“ í heimspeki og viðskiptafræði Karl reyndi fyrir sér á ýmsum stöð- um áður en hann hélt til leikhst- amáms til London. Hann hóf nám í svokölluðum forspjallsvísindum hér heima og einnig í viðskiptafræði. Síð- „Eitt árið stökk ég út undan mér... “ an hélt hann í tækninám til Belfast. „Ég dugði nú ekki í því, stæröfræði- þekkingin var eki nógu mikil og áhuginn kannski ekki heldur." Næst lá leiðin í Handíðaskólann og jafnframt stundaði Karl nám hjá Ævari Kvaran. „Hann var mjög góð- ur kennari, fínn í framsögn, hafði skemmtilegt „tempó“ og það var gott að njóta handleiðslu hans. Námið í Handíðaskólanum gerði mér mjög gott og ég hef búið að því æ síðan. Ég nýtti mér það til kennslu síðar þegar ég tók kennarapróf í kringum 1960. Ég kenndi bömum og unghng- um í nokkur ár og nýtti myndhstina sem kennslutæki. En ég hætti að sjá dúfur þegar ég hafði lært um skeið í Handíðaskólan- um. Mér fannst ég ekki vera nógu skapandi og hafa nóg í það að verða myndlistarmaður. Þá var afstrakt- hstin ahsráðandi en ég hef líklega verið meiri reahsti. Mér fannst af- straktið ekki nógu hehlandi th þess að vinna við það.“ Nú var komið að þáttaskhum í lífi Karls. Hann hélt út th Englands th tveggja ára leiklistamáms í RADA (Royal Akademy of Dramatic Art). Að námi loknu kom hann aftur heim og þá bauð Haraldur Bjömsson hon- um hlutverk í Skugga-Sveini. Þetta var árið 1952. Nokkra síðar bauðst honum hlutverk hjá LR í Iðnó. En hann var þá þegar búinn að ráða sig sem leikstjóra norður á Siglufjörð. Þetta var árið 1953 og skyldi hann setja upp Logann helga eftir Maug- ham. „Það var ljúf og skemmtileg reynsla," segir Karl og brosir við endurminninguna. Þegar hann kom th baka, í ársbyrjun 1954, sté hann á svið í Iðnó í Músum og mönnum og þar með var brautin mörkuð, hann er enn hjá Leikfélagi Reykjavikur. Karl segist ekki hafa minnstu hug- mynd um hve mörg hlutverk hann hafi leikið hjá Iðnó frá þessum tíma th dagsins í dag. Th að byija með var hann í ýmsu öðru með leiklistinni. Hann kenndi, var í byggingarvinnu, skrifstofuvinnu, var eftirsóttur skemmtikraftur og eftirherma, Karl hefur hlotið einróma lof fyrir túlkun sína á hlutverki Maddömunn- ar í Evu Lunu. Hér er hann ásamt Agli Ólafssyni. DV-mynd BG „... th þess að geta látið endana ná saman.“ Hann tók sér ýmislegt fleira fyrir hendur, starfaði m.a. með leik- félögum úti á landsbyggðinni og ein- stökum leikhópum í Reykjavík. „Eitt árið stökk ég út undan mér og fór með Eyvindi Erlendssyni í Leiksmiðjuna. Eyvindur var þá ný- lega kominn heim aftur eftir 5 ára leikstjóranám í Moskvu. í Leiksmiðj- unni var valinn hópur fólks, Arnar og Þórhildur, Margrét Helga, Edda Þórarins, Níels Óskarsson, Sólveig Hauks, Sigmundur Örn, Kethl Lars- en og Bjami Steingrímsson. Sett voru upp tvö verk, Galdra-Loftur og Litii prinsinn, sem farið var með um landið. Þá sýndum við Frísir kalla í Lindarbæ. Þetta var magnþranginn tími, þessi vetur. Þetta var skáld- skaparins leikhús, hreyfinganna og myndrænna töfra.“ Á seinni áram hefur Karl átt hlut að fjölmörgum útvarpsþáttum. Þá hefur hann fengist í æ ríkari mæli við þýöingar, bæöi á leikverkum og ljóðum. Hann hefur aðahega þýtt úr ensku, en einnig úr Norðurlanda- málum, frönsku, spænsku og þýsku. Hann hefur þýtt eftir Aristófanes, Bemard Shaw, Moliére, T.S. EUot svo dæmi séu nefnd. Karl segist Uk- lega hafa þýtt um 30 verk en ná- kvæma tölu hafi hann ekki. LR nýtur ekki bara góðs af frábærri íslensku- fæmi hans hvað varðar þýðingar því hann hefur lengi verið helsti sér- fræðingur leikfélagsins í bragmennt. „Viö erum hólsjúkir, leikarar." LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1994 Karl Guðmundsson leikari. DV-mynd GVA „Ég er nostrari við texta og hef gaman af máU. Hrynjandin orkar svo mikið í setningum, þannig að hún er aukamerking í þeim. Þegar fólk talar eðlhega leggur það áherslu á það sem skiptir máU. Það er gaman að geta gert setningar sem standa vel og eru vel flytjanlegar." Leikhúsið hefurbreyst Karl segir að leikhúsið hafi tekið töluverðum breytingum á þeim tima sem hann hefur starfaö við það. „Það var stífara, en er nú orðið margbreythegra í vinnubrögðum, fjölbreyttara og sveigjanlegra. En hvert tímabh hefur sína kosti og galla. MáUð hefur breyst dáUtið, málvöndunin er minni en áður var, það er minna lagt upp úr orðinu en athöfninni. Leikhúsið er farið að draga meiri dám af kvikmyndinni en áður var. Stundum saknar maður meira innihalds og dramatískra átaka. Ég held að leikhúsáhugi á íslandi sé framhald af bókaáhuganum. Við erum frásagnarþjóð og íslendingar gefa mikið fyrir söguna, fyrir það sem sagt er. Þeir spyrja: „Hvað sagði mannhelvítið?" Sérstaklega karl- menn, þeir taka leikhús þannig. Kvenfólkið tekur aftur á móti eftir fínlegum hlutum því það er svo vant að fást við böm og þeirra tjáning er meira í hreyfingum og hljóðum held- ur en í orðum. Þess vegna eru konur gegnumsneitt betri áhorfendur." Karl segist ekki sjá eftir þeim tíma sem hann hefur eytt á sviði. En hann segir það ekki fuhvíst að hann myndi feta braut leikhstarinnar ef hann gæti spólað th baka. „Hefði faðir minn lifað lengur en th 46 ára aldurs hefði ég senrdlega farið út í lögfræði eða tæknifræði. Hefði ég veriö góður í stærðfræði og slíkum greinum hefði ég kannski oröið verkfræðingur. Ég hefði kannski haft góðar tekjur sem ég hef ekki haft. Ég hef svona flotið á mihi en aldrei þurft aö vera hræddur um afkomu mína og aldrei verið það. Það hefur bjargast því konan mín, Guð- rún Ámundadóttir, hefur unnið líka og við höfum sparað. En ef ég hefði orðið ríkur hefði ég borist á, orðiö hégómlegm-, sem ég er reyndar. Ég heföi kannski orðið fylhbytta, mér þykir gott vín. En leik- hstin heldur manni frá slarki, svo merkilegt sem það er. Þaö er ekki hægt að vinna í þessu ef maöur suh- ar, það gengur ekki. Ég er miklu hehsubetri nú en ég var fyrr á ævinni. Ég er ekki eins stressaður núna. Fólk hefur verið ósköp gott við mig og hefur ekki ætl- að mér of mikið. Ég er ekki látinn í annað en það sem haldið er að ég klári. En ég gæti tekið miklu meira að mér. Og það væri gaman að prófa það. Ég vh ekki hta á mig sem út- rætt mál. Ég nýt virðingar félaga minna, aö þvi ég held, og ýmiss góðs fólks.“ Tahð berst nú að leikhúsgestum og Karl segir að það sé merkhegur „sans“ að finna það á sér hvemig þeir séu stemmdir. „Maður telur sig skynja en auðvit- að er þetta yfirborðslegur dómur. Við erum hólsjúkir, leikarar. Við vhjum standa okkur og láta líka vel við okk- ur. Það er voða gaman þegar eitthvað tekst, aö við teljum. Maður getur markað úti í sal á einhveijum við- brögðum á vissum stöðum ef maður hittir. Það þarf ekki nema einn eða tvo sem kveikja á einhveiju, sérstak- lega ef það er eitthvað sem hggur ekki alveg ljóst fyrir. Ef einhver nær því þá getur maður hugsað sem svo: „Jú, þetta er dálítið góður salur." En svo eru önnur kvöld þegar aht virðist geiga. Maður heldur að nú komi smehurinn - en það gerist ekk- ert. Svo er verið að dæma blessað fólkið út frá því. En það getur bara notið þess alveg eins vel og hinir. Það er bara ekkert að láta eins og asnar. „Eins og maður kunni ekki að hegða sér í leikhúsi," sögðu þeir í Norður- Þingeyjarsýslu þegar verið var að tala um að sýningin hefði ekki gert lukku hjá þeim. Þeir sátu grafalvar- legir í stað þess að skeha upp úr eins og einhverjir dónar. En svo segja þeir frá bröndurunum, læra þetta aht utan bókar innan í sér eins og börnin. Miskunnsamir gagnrýnendur Karl segist ahtaf vera spenntur fyrir framsýningar og segist ekki vera „frumsýningamaður“. „Fram- sýning er kannski svohtið annarleg en ahtaf hátíðleg, hvernig sem hún fer. Ef th vhl ætti ekki að dæma sýn- ingar fyrr en búið er að leika þær nokkrum sinnum. Annars hef ég gaman af öhum gagnrýnendum því ég er svo gagnrýninn sjálfur. Þeir hafa nú verið miskunnsamir við mig, blessaðir. Það er sjaldan sem ég hef Á námsárunum i London. verið skammaður hla. Mér finnst áhugavert, þegar fundið er að við menn, að reyna að lesa í ástæðuna fyrir því að þetta og þetta er sagt. Gagnrýnendur era líka hstamenn því gagnrýni er hst út af fyrir sig. Yfirleitt er þetta fólk sem hefur mætur á leikhst og vhl henni vel. En leikurum finnst slæmt ef sagt er eitt- hvað leiðinlegt og niðrandi um þá, þannig aö um sé að ræða eitthvað sem þeir ráða ekki við. Það var th dæmis ahtaf verið að tala um röddina í Haraldi Bjömssyni sem þótti ekki nógu faheg þótt hann hefði mikið tempó og thbreytingu. Það var ahtaf verið aö nudda honum upp úr því. En þetta hefur breyst og nú þarf leik- ari ekkert endhega að vera snoppu- fríður og hávaxinn.“ Svolítið skrýtinn Karl hækkar róminn til áherslu þegar hann segir að þau hlutverk sem hann hafi fengiö í gegnum tíðina hafi ætíð „legið vel í“ leikritunum. Ekki þurfi nema nokkur skemmtileg thsvör sem geti verið gaman að leika sér með og nota ýmis tónbrigði. „Mín persóna virkar kannski eitt- hvað kitiandi, ég er svolítið skrýtinn. Það er náttúrlega viss feimni sem kemur fram. Ég er mjög feiminn að eðhsfari og inn í mig. Það er svolítið skrýtið að ég skuh vera að leika, vegna þess að ég er frekar dundsam- ur og dálítill grúskari í mér. En þetta er andstæðan í þessu, einhver spenn- ingur að herða sig upp í að standa frammi fyrir fólki.“ -JSS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.