Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1994, Síða 33
' LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1994
41
Þrátt fyrir vaxandi vinsældir Clintons Bandaríkjaforseta vofa hneykslismál yfir honum:
Svartur sauður í
fríðiun hópi vina
- bæði Bill og Hillary Clinton verða í miklum vanda falli úrskurður um lögbrot þeirra
„Eg vil bara fá friö til aö sinna
mínu starfi,“ sagöi Bill Clintón
Bandaríkjaforseti í sjónvarpsvið-
tali í gær eftir aö Janet Reno dóms-
málaráöherra haföi skipað sér-
stakan saksóknara í svokölluöu
Whitewater-hneyksh.
Fyrir valinu varö pólitískur and-
stæöingur, Robert Fiske. Skipun
hans á að tryggja aö niðurstaðan
veröi ekki vefengd. Nú á endanlega
að komast til botns í málinu.
Clinton lofar þvi að vera sam-
vinnuþýður og svara öllum spum-
ingum Fiske hvenær sem hann vill.
Hillary forsetafrú þarf líka aö
svara ýmsum spurningum varð-
andi hneykslið. Hún var lögmaður
höfuðpaursins.
Vinskapur
við svikahrapp
Öll vandræði forsetahjónanna
vegna Whitewater-málsins stafa af
vináttu þeirra við svikahrappinn
James McDougal, fyrrum spari-
sjóðsstjóra og jaröabraskara. Hann
fékk þau til að kaupa með sér land
til að reisa þar á draumabyggðina
Whitewater og hann tók að sér að
safna fyrir skuldum sem Chnton
hafði steypt sér í við framboð til
embættis ríkisstjóra í Arkansas.
Ein spurningin sem saksóknari í
málinu vih fá svar við er hvort
bæði Bih og Hillary gerðu McDou-
gal greiða að launum fyrir að rétta
kosningasjóðinn viö. Þar kom
nefnhega að sparisjóðsstjóranum
McDougal var fjár vant. Hann seldi
hlutabréf í gjaldþrota sjóöi með
aðstoð ríkisstjórans Bhls Clintons
og lögmannsins Hihary Clinton.
Farvegur Whitewater
Svik og prettir eða óstaðfestur grunur?
Vafasöm viðskipti bandarísku forsetahjónanna með lóðir í Arkansas fyrir meira en áratug vaipa nú skugga
Hvíta húsinu. Gmnur leikur á að Bill Clinton hafi tekið við ólöglegum greiðslum í kosningasjóð sinn meðan
berjast til áhrifa heima í Little Rock.
á störf þeirra í
hann var að
H Fjárfestingin:
“ James McDougal,
vinur Bills og Hillary
Clinton, bauö (3eim
áriö 1979 að kaupa
50% hlut í
fasteignatyrirtæki, sem
áttiaöstanda tyrir
byggirwu húsa við
White River.
0 Uppbygging
við ána:
McÐougal stofnaði
Whitewater
byggihgafyrirtækið,
sem keypti 93 hektara
lands við White River
fyrir203þúsunddali.
Landinu var skipt í 44
lóöir.
|!1 Á eigin spýtur: McDougal
“ fékk embætti hjá Clinton, þá
ríkisstjóra Arkansas, en árið
1982 sneri hann sér eingöngu
að rekstri sparisjóðs, sem hann
keypti fyrir arð af lóðunum við
WhiteRiver. Reksturinn gekk
mjögvel. McDougalvarð
auðugur maöur og fertugfaldaði
eignir sfnar á árati
BÓsannindi?
I baráttunni fyrir
forsetakosningamar árið 1992
sögðust Clinton -hjónin hafa
tapaö stórfé á
Whitewater-ævintýrinu.
Efasemdir hafa vaknað um að
þetta sé rétt. Þau seldu þá hlut
sinn í fyrirtækinu ánft
K3H Sérstök
rannsókn:
Nú íjanúarvar
sérstakur
rannóknardómar
skipaður til að rannsaka
þátt Bills og Hillai
Clintons í braski
McDougals.
B Undir eftirtiti:
Bankaeftiriitið komst að því árið 1984 að sitt
hvað væri athugavert við rekstur sparisjóðsins.
Utlán væru langt umfram eignir og að McDougal
hefði lánað ættingjum og vinum mikið fé.
n
13 Kosningasjóöur: Þrátt fyrir
allar athugasemdir yfirvalda tók
McDougal að sér ao safna fé í
kosningasjóð Clintons fyrir
ríkisstjorakjörið árið 1985.
Söfnunarféð var m.a. notaðtil
að greiða lán sem Clinton hafði
tekið fyrir kosningamar á
undan. Fátt er nú til af skjölum
kosningasjóðsins. Við
rannsókn hefur þó komið í Ijós
megnið af söfnunarfénu
kom frá McDougal sjálfum og
fyrirtækjum hans.
0 Gjaldþrot:
w Vorið1989varð
sparisjóöur
McDougals
gjaldþrota.
Innstæðumar vonj
ríkistryggðar og
kostaðt gjaldþrotið
íbúa Arkansas 60„
milljónir dala eða ‘
jafnvirði ríflega '
fjögurra milljarða
fslenskra króna.
0 Nýir peníngar.
McDougal var i raun
gjaldþrota þegar hann ákvað
að selja ný hlutabréf í
sparisjóðnum.
Embættismaður, skipaður af
Clinton, samþykkti jsá
ráðstöfun enda hafði álits
lögfræðings verið leitað.
Lögfræöingurinn var Hillary
Clinton.
0 Grunsemdir:
Embættismenn grunar að
McDougal hafi látið skrá
söfnunarféð I sjóð Clintons á
nöfn manna sem hvergi komu
nærri söfnuninni. Það er
ólöglegt og viðkomandi menn
hafa staðfest við yfirheyrslur
að hafa ekkert látið af hendi
rakna í sjóðinn.
Heimild: Gannett News Service
Sparisjóðurinn varð gjaldþrota og
ríkissjóður Arkansas, sem Clinton
réð fyrir, varð að greiða sparifjár-
eigendum milljónir dala í bætur.
Saksóknari vill líka fá að vita
hvort McDougal greiddi kosninga-
skuld Clintons úr eigin vasa og
náði þannig tökum á honum.
Hrappurinn lét líta svo út sem fjöldi
fólks hefði gefið fé í sjóð Clintons
en allt bendir til að hann hafi falsað
gögn um gjafimar. Bókhaldið er
nú hvergi finnanlegt og fyrrum líf-
verðir Chntons halda því fram aö
hann hafi sjálfur eyðilagt það.
Dómur yrði
alvarlegt áfall
Mál þetta er fyrst og fremst alvar-
legt vegna þess að maður, sem nú
fer með æðstu völd í landinu, á í
hlut. Chnton hagnaöist örugglega
ekki á vinskapnum viö McDougal.
Hann segist reyndar hafa tapað
stórfé á lóðabraskinu.
Vandi forsetans og konu hans er
í því fólginn að þau kunna að hafa
gerst sek um lögbrot með því að
halda McDougal á floti eftir að
sparisjóður hans var í raun gjald-
þrota.
Fahi dómur á endanum þeim
hjónum í óhag er vandséð hvernig
þau ætla að halda stöðu sinni í
Hvíta húsinu. Því tala menn um
Whitewatergate og rifja upp örlög
Richards M. Nixons.
Ronald Reagan og George Bush
em flæktir í íran-Contra-hneykshð
og það dregur athyglina að nokkra
frá vanda CUntons en bjargar hon-
um ekki.
-GK
Bill Clinton Bandaríkjaforseti á stöðugt í erfiðleikum vegna kvennamála:
Kvennafar forseta er ekki lögbrot
Kvennafar er ekki lögbrot og ekki
heldur kvennafar forseta. Forsetinn
á hins vegar aö vera til fyrirmyndar
í góðum siðum og það hefur BUl Clin-
ton Bandaríkjaforseti tæpast verið á
Uðnum árum.
Þegar í upphafi baráttunnar fyrir
forsetakosningarnar árið 1992 varð
hann að viðurkenna framhjáhald
með Jennifer Flowers, konu sem
vann á skrifstofu ríkisstjóra í Ar-
kansas.
Að vísu greindi þau á um hversu
lengi samband þeirra hefði staðið en
CUnton játaði að hafa verið í ástar-
sambandi við Flowers um tíma og
HiUary sagðist hafa fyrirgefið honum
hjúskaparbrotiö.
Þar með var sá vandi úr sögunni
og framhjáhaldið hafði engin áhrif á
kjörfylgi CUntons þegar kjósendur
völdu milU hans og George Bush.
Sögur um marglyndi Clintons í
kvennamálum liíðu þó áfram.
Rithöfundar úr
stétt lífvarða
í haust komust þær á ný í hámæU
eftir að tveir fyrram lífverðir CUn-
tons frá ríkisstjóratímanum í Ar-
kansas sögðust hafa haft þann starfa
að útvega húsbónda sínum vændis-
konur. Skrifuðu þeir bók um þessi
störf sín og fleiri fyrir CUnton.
HiUary forsetafrú tjáði sig fyrst um
meint kvennafar BUls í Arkansas.
Hluttekning með þjóðinni skiptir miklu fyrir vinsældir forseta. Clinton fór strax á jarðskjálftasvæðið við Los Angel-
es. George Bush var aftur á móti legið á hálsi fyrir að koma seint og um síðir að heimsækja þá sem urðu illa úti
i fellibyljunum miklu i Flórída. Sfmamynd Reuter
Hún varði mann sinn og sagði að
sögur lifvarðanna væra rannar und-
an rifjum póUtískra andstæðinga
þeirra.
Andstæðingamir hafa vissulega
ekki harmað að lífverðirnir skyldu
láta reyna á rithöfundahæfileika
sína en þaö breytir engu um að CUn-
ton hefur ekki getað hrakið kvenna-
farssögurnar. Hann hefur meira að
segja viðurkennt að einkalífið hafi
ekki verið tíl fyrirmyndar fyrstu ár
sín í embætti ríkisstjóra.
Clinton er
alltfyrirgefið
Bandaríkjamenn eru margir Utt
gefnir fyrir að æðstu menn þjóðar-
innar misvirði helgi hjónabandsins,
eða svo hefur það verið tíl skamms
tíma að minnsta kosti. Nú virðist þó
sem kvennafarssögumar hafi lítil
sem engin áhrif á vinsældir Clintons
sem forseta. Hann þykir gegna emb-
ætti sínu vel og fólk óttast ekki að
vixlsporin hafi áhrif á störfin í Hvíta
húsinu.
Þannig virðist CUnton ætla að
komast upp með það fyrstur Banda-
ríkjaforseta að sitja óhaggaður í emb-
ætti þótt fjaUaö sé opinberlega um
framhjáhald. TU þessa hafa Banda-
ríkjamenn ekki gengið lengra en að
slúðra sín í mUU um einkalíf forseta
sinna.
-GK