Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1994, Síða 34
42
LAUGARDAGUR 22. JANUAR 1994
Iþróttir
Kolbeinn
Pálsson
„Ég byijaði að spila með meist-
araflokki KR 1962 en þá var KR
að koma inn í myndina. Ég lék
síðan með KR fram til 1978 og
varð sex sinnum íslandsmeistari,
átta sinnum bikarmeistari og
jafnoft Reykjavíkurmeistari,"
segir Kolbeinn Páísson, einn
þekktasti körfuknattleiksmaður
landsins á árum áður og eini
körfuknattleiksmaðurinn hér á
landi sem kjörinn hefur verið
íþróttamaður ársins af íþrótta-
fréttamönnum en þeim áfanga
náði Kolbeinn árið 1966, þá aðeins
21 árs að aldri.
Árið 1977 meiddist Kolbeinn
illa, sleit hásin, og þar með lauk
ferlinum. Hann reyndi að byija
aftur árið eftir og ná settu
markmiði, að spila í meistara-
flokki með syni sínum Páli Kol-
beinssyni, en það gekk ekki eftir.
Kolbeinn lék 55 landsleiki með
karlalandsliði íslands, ávallt sem
fyrirliði nema í afmælisleikjum
og er 19. leikjahæsti landsliðs-
maður íslands frá upphafi. Þá lék
Kolbeinn 4 unglingalandsleiki.
í dag er Kolbeinn formaður
Körfuknattleikssambands ís-
lands en auk þess er hann fulltrúi
hjá íþróttabandalagi Reykjavík-
ur. Hjá bandalaginu hefur Kol-
beinn með útgáfu- og útbreiðslu-
mál að gera og að auki sér hann
alfarið um úthlutun húsaleigu-
styrkja til íþróttafélaganna í höf-
uðborginni og öllum íjárveiting-
um Reykjavíkurborgar til félag-
anna. Þá er hann í ólympíunefnd
íslands og formaður Bláfjalla-
nefndar og Reykjanesfólkvangs.
„Mitt aðalstarf er hjá íþrótta-
bandalagi Reykjavíkur en ég hef
verið lánaður til Reykjavíkur-
borgar sem framkvæmdastjóri
lýðveldishátíðarnefndar Reykja-
víkur, sem ég kom reyndar ná-
lægt fyrir tuttugu árum. Þá var
ég formaður þjóðhátíöarnefndar
meðan ég var formaður í æsku-
lýðsráði. Þetta er mjög fjölþætt
starf og maður er að byggja upp
atburði allt þetta ár, ekki bara
þijá dagana í júní þegar mest
verður um að vera. Þetta er mjög
spennandi og skemmtilegt verk,“
segir Kolbeinn Pálsson.
-SK
PLÚS
Stjórn Handknattleikssam-
bands íslands með Ólaf B.
Schram formann í broddi
fylkingar fær plúsinn að
þessu sinni.
HSÍ hefur skilað 2,8 milljóna
króna hagnaði það sem af er
starfsári og líkur eru á að
hagnaðurinn verði 4 milljónir
þegar upp verður staðið í vor.
í vikunni komu einnig
spánnýjar hugmyndir frá HSÍ
fram í DV varðandi breytt fyr-
irkomulag Reykjavíkurmóts-
ins í handknattleik. Þær sýna
að hugur er í forystumönnum
Handknattleikssambandsins
og þar á bæ eru menn stöðugt
aö vinna að framgangi íþrótt-
arinnar. Mikill áhugi er fyrir
breytingum þessum á Reykja-
víkurmótinu og hafa félög
þegar lýst yfir mikilli ánaegju
sinni með hugmyndir HSÍ.
Boni bíður
örlaganna
- Jimmy Boni ákærður fyrir manndráp í í shokkíi á Ítalíu
í næsta mánuði mun ítalski ís-
knattleiksmaðurinn Jimmy Boni
koma fyrir rétt á Ítalíu þar sem
hann er sakaður um manndráp.
Boni sló til andstæðings í leik með
kylfu sinni og afleiðingamar urðu
þær að Miran Schrott stóð ekki upp
aftur og lést skömmu síðar.
Boni þarf að mæta fyrir rétt þann
16. næsta mánaðar og á hann á
hættu að verða dæmdur í 10-18 ára
fangelsi. Flestir þeir sem sáu um-
rætt atvik eru á því að Boni sé sak-
laus. Schrott hafi slegið Boni í höf-
uðið með hnefanum eftir stöðubar-
áttu þeirra á vellinum og í kjölfarið
hafi Boni slegið andstæðing sinn
með kylfunni í brjóstið.
„Atvik sem þetta gerist 10-20
sinnum í hveijum einasta leik í ís-
knattleik. Þegar einhver slær þig í
höfuðið eru fyrstu viðbrögð þín að
veija þig og bregðast við með við-
eigandi hætti,“ segir félagi Marins
Schrott sem lést. Schrott var talinn
mjög hraustur og kom andlát hans
því mörgum á óvart enda var högg-
ið frá Boni alls ekki öflugra en
gengur og gerist í ryskingum í ís-
knattleik að sögn vitna.
Almenningur í heimabæ Bonis
hefur þegar dæmt hann sekan. Eig-
inkona Bonis yfirgaf hann með tvö
böm þeirra skömmu eftir atvikið
og í dag óttast Boni það mest að fá
ekki að sjá börnin næstu árin. Þrátt
fyrir að tvö ár séu liðin frá því að
Schrutt lést vaknar Boni enn upp
á hverri nóttu með slæmar mar-
traðir. Hann verður enn að bíða í
einhveijar vikur eftir dómsniöur-
stöðu. ísknattleiksmenn á Ítalíu
hafa sagt að verði Boni dæmdur
sekur verði það um leið endalok
ísknattleiks á Ítalíu.
-SK
Boni kann að verða settur bak við
rimlana í næsta mánuði.
Það sem Boni óttast mest er að fá ekki að sjá börnin sín næstu 10-18 árin.
Lillehammer
Helsinki
Osló'j
Stokkhólmur
J Kaupmannahöfn
Hamborg
Diisseldorf j
Olympí
jAþeria
q Stuttgart
/ ,'OQp.
Lillehammer ’94
tfjall
Háafjall
Hundafoss
Lillehammer
Hamar
Gjovík
lTV*ri
ÓL í Noregi:
Eldurinn
á leiðinni
För ólympíueldsins frá Grikklandi
til keppnisstaðar hverju sinni á
Ólympíuleikum er mikil athöfn og
þessa dagana er eldurinn á leiöinni
til Lillehammer í Noregi en vetrar-
leikarnir hefjast sem kunnugt er þar
í næsta mánuði.
Eins og sést á kortinu hér til hliðar
er fór eldsins löng og viðkomustaðir
margir. Þegar þetta er skrifað er eld-
urinn í Þýskalandi en þar verður
hlaupið með hann um 13 borgir:
Stuttgart, Karlsruhe, Lindesburg,
Esslingen, Dusseldorf, Winterburg,
Dortmund, Duisburg, Herne, Graf-
rath, Essen, Köln og Hamburg. Eftir
þessa löngu för um Þýskaland verður
farið með eldinn fil Kaupmanna-
hafnar og á meðal þeirra sem hlaupa
með eldinn þar verður Friðrik krón-
prins Dana. Frá Kaupmannahöfn
verður ferðinni heitið til Helsingfors
í Finnlandi og loks verður farið með
eldinn til Stokkhólms. Þar verður
Viktoría krónprinsessa Svíþjóðar á
meðal þeirra sem hlaupa með eldinn.
Frá Stokkhólmi fer eldurinn til Ósló-
ar og þaðan til Lillehammer.
-SK
íþróttamaður vikuimar
Sigurður Sveinsson
Sigurður Valur Sveinsson lék
hreint stórkostlega með landslið-
inu gegn Finnum um síðustu helgi.
„Eg veit ekki hvort ég er á toppn-
um núna hvað landsliðið varðar en
það var mikið af þessum leik gegn
Finnlandi og ég náði mér vel á
strik. Það er ákveðin leikgleði í
þessu núna sem hefur kannski ekki
verið á síðustu árum,“ segir Sig-
urður Valur Sveinsson en hann er
íþróttamaður vikunnar að þessu
sinni.
Sigurður hefur leikið 213 lands-
leiki fyrir ísland í handboltanum
og að sögn fróðra manna hefur
hann aldrei leikið betur í landsliðs-
búningnum en einmitt um þessar
mundir. Siggi lék frábærlega í
leiknum gegn Finnum um síðustu
helgi og átti þátt í 19 mörkum ís-
lenska liðsins. Hreint frábærar
línusendingar hans yljuðu mönn-
um um hjartarætur og það er
greinilegt að Sigurður er langt frá
því að vera „útbrunninn" með
landshðinu.
„Það var gaman að geta komið
boltanum svona oft inn á línuna
og þessar sendingar í gegrium klof-
ið út á hornamanninn hafa lengi
verið til á lager hjá mér. Ég hef
hins vegar ekki notað þær fyrr en
nú og ef ég hefði vogað mér að gera
þessa hluti þegar Bogdan var með
liðið hefði það jafnast á við sjálfs-
morð. Það er mun skemmtilegra
að vera með landsliðinu í dag en
hér á árum áður og siggið á aftur-
endanum er á hröðu undanhaldi,"
segir Sigurður.
- Næsta stórmót hjá landsliðinu
er heimsmeistaramótið hér heima.
Veröur þú með landsliðinu þá?
„Það er of snemmt að segja til um
það. Maður er farinn að eldast og
ég verð orðinn 36 ára gamall þegar
HM fer fram hér á landi. Ég á eftir
að sjá hvemig lokaundirbúningn-
um verður háttað en við skulum
ekki útiloka neitt í þessum efnum.
Ég hef alltaf verið að hætta og svo
byijað aftur. Þetta kemur allt í ljós
þegar þar að kemur,“ sagði stór-
skyttan Sigurður Sveinsson.
-SK