Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1994, Síða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1994, Síða 37
LAUGARDAGUR 22. JANUAR 1994 45 Mosfellsbær: „Viö vorum búin að vera hús- næöislaus í nokkurn tíma. Áður höfðu leiksýningar veriö í Hlégarði en sá staöur hentaði okkur ekki lengur. Reksturinn þar var kominn meira út í veislur og fundahöld. Þess vegna höföum viö verið að leita að nýju húsnæði. Undir það síðasta vorum við með sviðsmynd- ina í eftirdragi út um alla sveit, leitandi að stað til að æfa,“ segir ' Jón Sævar Baldvinsson, formaður Leikfélagsins í Mosfellsbæ. Leikfélagiö opnaði í byrjun jan- úar nýtt leikhús í bænum og hóf sýningar á nýju íslensku leikriti, Þetta reddast, eftir Jón S. Krist- jánsson. Mikill kraftur hefur verið í leikfélaginu í Mosfelisbæ en þar hafa verið settar upp tvær til þrjár sýningar á ári. Leikfélagið var end- urvakið eftir nokkurt hlé fyrir sautján árum og síðan hafa á bilinu íjörutíu til fimmtíu manns starfað þar af fullum krafti. Jón Sævar segir að leikfélagið hafi gert tilboð í hús hjá Byggða- stofnun sem var í eigu Álafoss. Aldrei fékkst svar um það en þegar áhaldahús bæjarins fluttist í nýtt húsnæði var bænum skrifað bréf og óskað eftir gamla húsinu. „Viö fengum jákvætt svar mjög fljótlega og hófumst handa 1. maí en við fáum húsið leigulaust. Við vorum mjög heppin," segir Jón Sævar. Nýja leikhúsið í Mosfellsbæ er til húsa í gömlu áhaldahúsi bæjarins. Mikið starf við endurbætur Þó að húsið væri komið var mik- ið starf óunnið. Áhugafólk leik- hússins vann hörðum höndum í sjálfboðavinnu við aö endurgera húsnæðið. „Við byrjuöum á að gera húsiö fokhelt þar sem mikilla breytinga var þörf. Leggja þurfti fleiri pípulagnir, palla fyrir áhorf- endur, byggðir voru nýir veggir og loft var hækkað, ný raflögn var sett í húsið, málað og margt fleira. Allt yantaði, svo sem stóla. Við vorum svo heppin að Reykjavíkur- borg gaf okkur stóla sem átti að fleygja úr Tjarnarbíói og Álftárós gaf okkur áklæði á stólana. Þeir eru nú eins og nýir. „Við höfum unnið viö húsið í sjö mánuði og þótt það sé ekki ennþá búið er það komið vel á veg,“ segir Jón Sævar. Áhugahópur leikfélagsins fjár- magnaði sjálfur breytingarnar þangað til í desember en þá fékkst lán til að klára. „Ef við hefðum Ahugahópur lelkfélagsins hefur unnið mikið starf á sjö mánuðum við að koma nýja leikhúsinu á laggirnar með góöum árangri. DV-myndir HMR þurft að kaupa allt efni og vinnu hefði þetta verið dæmi upp á tíu milljónir króna." Leikfélagið í Mosfellsbæ fékk óvænta auglýsingu á leikrit sitt og nýtt leikrit er kraftlyftingamaður- inn ívar Hauksson ætlaði að kæra leikfélagið fyrir að nota nafn sitt í sýningunni. Handrukkari leikrits- ins var nefndur ívar hnúajárn og það líkaði ívari Haukssyni illa. Jón Sævar segir að komin sé sátt í það mál; nafni persónunnar var breytt í Sigurð skuldabana og ívar hafi fallið frá kæru. Leikritið er ádeila á íslenskt þjóðfélag. Þegar er byrjað að selja á sýningar leikfélagsins fram í miðjan febrúar. „Áhorfend- ur hafa tekið leikritinu mjög vel og ekki síður leikhúsinu. Við fáum gesti jafnt hér úr sveitinni sem frá öðrum stöðum. Við erum mjög ánægð með árangurinn," segir Jón Sævar. Ekki hefur enn verið ákveö- ið hvaða stykki leikfélagið muni taka til sýningar næst enda verður Þetta reddast á fjölunum fram eftir vetri. Bridge Bridgehátíð 1994 Skráning stendur nú yfir í tvímenningi og sveitakeppni Bridgehátíðar 1994. Skráð er á skrifstofu Bridgesambands íslands í síma 91-619360. Skráningar- ffestur fyrir tvímenninginn rennur út miðvikudaginn 2. febrúar og verður valið úr umsækjendum. í Vetrar-Mitchell fostudagskvöldið 4. febrúar verður síðan spilað um 6 síðustu sætin í tvímenninginn. Skráningarfrestur fyrir sveitakeppnina miöast við fjölda og er hámarkið 70 sveitir og nú þegar hafa 30 sveitir skráð sig til keppni. Keppnisgjald er óbreytt frá fyrra ári, 10.000 krónur á par í tvímenninginn og 16.000 á sveit í sveitakeppnina. Fyrirkomulagið er óbreytt frá síðastu Bridgehátíðum en tímasetningu er örlítið breytt. Tvímenningurinn með þátttöku 48 para byijar klukkan 19 föstu- dagskvöldið 11. febrúar og verður spilað til klukkan 00.40. Á laugardagsmorg- un verður byijað aftur klukkan 11 og tvímenningnum lýkur um klukkan 20. Sveitakeppni Bridgehátíðar hefst klukkan 13 sunnudaginn 13. febrúar og verða spilaðar 6 umferðir á sunnudaginn, þrjár umferðir fyrir kvöldmat og þrjár eftir kvöldmat. Mánudaginn 14. febrúar hefst keppnin klukkan 13 og spilaðar 4 umferðir og að þeim loknum verður verðlaunaafhending fyrir báðar keppnimar og hátíðinni slitið. íslandsmót kvenna í sveitakeppni íslandsmót kvenna í sveitakeppni, undanúrslit verða haldin í Sigtúni 9, helg- ina 29.30. janúar. Skráning er á skrifstofu BSÍ. Spilað verður í riðlum eins og tvö undanfarin ár og verður raðað í riðlana eftir stigastyrkleika sveit- anna. Spiluð verða um 100 spil og verður byijað á laugardagsmorguninn 29. janúar klukkan 11. Skráningarfrestur er til þriðjudagsins 25. janúar. Keppnis- gjald er 10 þúsund krónur á sveit og spilað er um gullstig í hveijum leik. Keppnisstjóri er Kristján Hauksson. Núverandi íslandsmeistarar er sveit Þriggja Frakka; Esther Jakobsdóttir, Valgerður Kristjónsdóttir, Hjördís Ey- þórsdóttir, Líósbrá Baldursdóttir og Anna Þóra Jónsdóttir. Bridgedeild Barðstrendinga Eftir 6 umferöir í aðalsveitakeppni félagsins er staða efstu sveita þannig: 1. Þórarinn Ámason 141 2. Leifur K. Jóhannesson 127 3. Óskar Karlsson 120 Bridgefélag Hafnarfjarðar Síðasta mánudag, 17. janúar voru spilaðar tvær umferðir í sveitákeppni fé- lagsins og staðan eftir 9 umferðir þannig: 1. Kristófer Magnússon 181 2. Dröfn Guðmundsdóttir 167 2. Sævar Magnússon 167 4. Vinir Konna 157 ■ Hvaö eru raunvextir? ■ Hvað eru verðbréf? H Hvemigget églátið peningana endast betur? Ókeypis fjármálanámskeid fyrir unglinga Nœstu námskeiö veröa haldin 25- janúar jyrir unglinga 12-13 ára og 27. janúarfyrir unglinga 14 ára og eldri. Námskeiðin hefjast klukkan 15:30 og eru haldin í Búnaðarbankanum Austurstræti 5, (aðalbanka), 3. hæð. Innritun og nánari upplýsingar eru í síma 603267 (fræðsludeild). Takmarkaður fjöldi er á námskeiðið. Hægt er að panta tíma fyrir nemendahópa. Upplýsingar um námskeið fyrir unglinga utan Reykjavíkur veita útibú Búnaðarbankans á viðkomandi stöðum. Þátttakendur fá fjármálahandbók og viöurkenningarskjal. Boðið er upp á veitingar og bankinn skoðaður. Norðurlandsmót í tvímenningi Norðurlandsmót vestra í tvímenningi var spilað að Hvammstanga laugardag- inn 15. janúar. Sautján pör spiluðu barómeter, 3 spil á milli para. Mótsstjóri og reiknimeistari var Björk Jónsdótir frá Siglufirði. Sigurvegarar unnu sér rétt til að spila í úrshtum á íslandsmótinu í tvímenningi seinna í vetur. Úrsht á mótinu voru þessi: 1. Ólafur Jónsson-Jón Sigurbjömsson 77 2. Sigríður Gestsdóttir-Sólveig Róarsdóttir 31 3.1ngvar Jónsson-KristjánBlöndal21 -ÍS Námskeiðin eru ókeypis og opin öllum unglingum. BÚNAÐARBANKINN - Traustur banki 3

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.