Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1994, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1994, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 24. JANÚAR 1994 Útlönd vcrstu nátturu- Pete Wilson, ríkisstjóri í Kali- forníu, sagði i gaír að jarðskjálft- inn í Uos Angeles á dögunum hefði skotið feliibylnum Andrési ref fyrir rass og væri nú verstu náttúruhamfarir í sögu Banda- ríkjanna. Tjón afvöldum Andrés- ar nam rúmum tvö þúsund millj- öröum króna. ; Wilson sagöi að eyðileggingin ætti sér ekkert fordæmi. Hrað- brautakerfið við borgina er illa fariö og tala látinna af völdum skjálftans er komin í 57. HelmutKohl heimtil sín Helmut Kohl Þýskalands- kanslari hefur enn á ný boðið leiðtoga vina- þjóðar inn á hcimili sitt í Oggershcim, einu úthverfa borgarinnar Ludwigshafen. í þetta sinn var það Edouard Balladur, :; forsætisráðherra Frakklands, sem varö heiðursins aðnjótandi. Balladur fetar í fótspor manna eins og Míkhaíls Gorbatsjovs, Georges Bush, Als Gores og fleiri. Einn leiðtogi kom þó aldrei í heimsókn, Margaret Thatcher. Embættismenn vildu ekki skýra frá hvað Kohl og Bailadur fór í milh, sögðu að ura einkaheim- sókn hetöi verið að ræða, Háskólibýður gráðuíkapp- reiðafræðum Háskólinn í Bristol á Bretlandi hefur ákveðið aö bjóða nemend- um upp á gráðu í kappreiðum, fyrstur allra skóla. Námið felst m.a. í ferðalögum á breska kapp- reiðavelli þarsemraat verðurvið aUa helstu þjálfara landsins og eigendur hestanna. Keuter Austurríkismenn enn á ný í alvarlegum vanda vegna þjóðhöföingjans: Forsetinn fann sér viðhald í ráðuneyti - forsetafrúin er flutt að heiman og forsetinn vill hafa sitt einkalíf í friði „Eg á mín vandamál eins og allir aðrir. Ég er bara maður með eðhleg- ar tilfmningar og venjulega veik- leika,“ sagði Thomas Klestil, forseti Austurríkis, þegar hann viður- kenndi opinberlega um helgina að hann ætti í ástarsambandi við Mar- got LöfHer, 39 ára gamla konu sem starfar í utanríkisráðuneyti lands- ins. Forestafrúin, Edith, er ílutt að heiman vegna framhjáhalds manns síns en neitar að fallast á skilnað. „Ég slæ ekki striki yfir 40 ára hjónaband í einu vetfangi," sagði frúin viö fjöl- miðla um helgina. Eþíópískurflug- ræningi biður umhæliíRóm Eþíópískur flugræningi vopn- aöur hnífi gafst upp fyrir yfir- völdum í Róm í morgun og baö um pólitískt hæli. Maðurinn haföi rænt flugvél frá eþíópíska flugfélaginu þar sem hún var á flugi yfir Vestur-Afríku. Sendiherra Eþíópíu sagöi að flugræninginn, sem er 25 ára, hefði sagst vera fyrrum liðsfor- ingi í eþíópíska hemum. Maðurinn rændi vélinni, sem var af gerðinni Boeing 757, skömmu eftir flugtak í Dakar í Senegal í gærkvöldi á leið til Ad- dis Ababa, með viðkomu í Mcdí og Níger. - í flugvéhnni voru 32 farþegar og ellefu manna áhöfn og varð enginn þeirra fyrir meiöslum. „Mér sýndist hann vera frá- vita,“ sagöi sendiherrann. Reuter 1 yj 4-- o>%“V Forsetinn, viðhaldið og dóttirin. Foretinn er 62 ára gamall. Hann á eftir að sitja fimm ár 1 embætti ef þjóðin og ríkisstjómin sætta sig við að þjóðhöfðinginn búi hjá viðhaldi sínu í óvígðri sambúð meðan forseta- frúin er úti í kuldanum. Frúin segir að maður hennar hafi lagt á það ríka áherslu í kosningabar- áttunni árið 1992 að hann væri traustur fjölskyldumaður. Hún segir að þar hafi hann logið að þjóðinni því hjónabandið hafi þá þegar verið í molum. Gagnrýnendur forsetans segja að honum beri skylda til að leysa hor- mónavandamál sín í einrúmi án þess að varpa skugga á virðulegt embætti forsetans. Klestil segir aftur á móti að ástarmál sín hafi engin áhrif á embættisverkin. Þegar em komnar fram háværar kröfur um afsögn forsetans og blöð í Austurríki hafa gert sér mikinn mat út framhjáhaldi hans. Ríkis- stjórnin hefur enn ekki látið máhö til sín taka. Samúð almennings er öll með for- setafrúnni sem segist vita það eitt um framhjáhald manns sín að það hafi staðið of lengi. Ritzau John Wayne Bobbitt var til í aö gantast með útvarpsmönnum í heimabænum Manassas eftir að kona hans var sýknuð af ákæru um limiestingar. Honum voru fengin skæri í hendur til að fremja hliðstæða aðgerð og Lorena kona hans framdi á honum sjálfum. Johns bíða nú málaferli vegna lausaleiksbarns. Símamynd Reuter Ný réttarhöld bíða Johns Bobbitts en Lorena er sýkn saka: Á ársgamalt barn í lausaleik John Wayne Bobbitt verður að mæta í réttarsalinn enn á ný á næstu dögum vegna þess að tvítug kona að nafni Beatrice Wilhams segir að hann hafi barnað sig árið 1992 og nú vill hún sanna faðerni sonar síns með dómi. Bobbitt vfil ekkert um máhð segja og hefur tvívegis neitað að fara í erföarannsókn til að hægt verði að taka af öll tvímæh um faðemi drengsins. Beatrice segir að hún hafi lengi leit- að Bobbitts og fyrst fundið hann eftir að hann varð færgur fyrir að missa getnaðarhminn í viðskiptum við konu sína, Lorenu. Dómur er fallinn í máli Lorenu vegna hmskurðarins og taldist hún sýkn saka vegna stundarbrjálæðis. Skuldinni var því aö hluta skellt á John því geðtruflunin var rakin til ofbeldis af hans hálfu. Sýknudómurinn hefur mælst mis- jafnlega fyrir og hafa virtir lögmenn lýst honum sem skrípaleik eins og raunar öllum réttarhöldunum. Þess- ir menn segja að Lorena sé augljós- lega sek en kviðdómur hafi sýknað hana af einskærri meðaumkun. Aðrir telja niðurstöðuna réttláta því John hafi áður verið sýknaður af ákæru um nauðgun. Eina réttláta niðurstaðan hafi verið að sýkna bæði hjónin af ákærum um misgjörðir í garðhins. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.