Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1994, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1994, Blaðsíða 16
16 MÁNUDAGUR 24. JANÚAR 1994 INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 Sími 25800 ||| Útboð F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum í lóðarlögun við leikskólann við Vesturhlíð. Helstu magntölur eru: Hellulagnir: 600 m2 Grassvæði: 700 m2 Gróðurbeð: 500 m2 Malarsvæði: 750 m2 Útboðsgögn verða afhent á Innkaupastofnun Reykjavíkur- borgar, Fríkirkjuvegi 3, gegn kr. 10.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 2. febrú- ar 1994, kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800 Lokað í dag Utboð F.h. Hitaveitu Reykjavikur er óskað eftir tilboðum í einangr- aðar pípur, Preinsulated Steel Pipes. Um er að ræða um 2.500 m af pipum og tengistykkjum í stærðunum DN 200 til DN 700 mm. Pípurnar skal afgreiða eigi siðar en í maí 1994. Útboðsgögn verða afhent á Innkaúpastofnun Reykjavíkur- borgar, Fríkirkjuvegi 3. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 22. febrú- ar 1994, kl. 11.00. Bimex vörulistinn með ótrúlegt vöruúrval Sexý nærfatnaður, titrarar, dúkkur, kitlusmokkar og margt fl. íslenskur verðlistí, mjög gott verð. Verð á vörulista 700 kr. + póst- burðargjald, endurgreiðist við fyrstu pöntun. Pantanir í síma 91-870850 eða sendist í pósthólf 8263, 128 Rvk. nóg að senda nafn og heimilisfang. Menning Ast og dauði í Andalúsíu Blóðbrullaup er harmleikur, hlaðinn mögnuðum seiði og spænskri dulúð. Textinn er til skiptis blíður og stríður, ólgandi af blóðhita og dökkum tilfinningum. Þar takast á frum- kenndir mannsins, ást, hatur og hefndarþorsti og það liðna er geymt en ekki gleymt. Móðirin tregar eiginmann og son sem féllu í ótíma- bærum átökum. Henni stendur ógn af hnífum og hún ber 1 brjósti einhvem óskilgreindan beyg um líf sonar- ins sem eftir lifir. Og sá ótti er ekki ástæðulaus, því að á brúðkaupsdegi hans, þegar gleðin stendur sem hæst, hleypst brúðurin á brott ásamt fyrrverandi heitmanni sínum sem nú er eiginmaður frænku hennar. Harmleikurinn verður ekki umflúinn Þórunn Sigurðardóttir leikstjóri hefur aðlagað verk- ið aðstæðum á Smíðaverkstæðinu. Yfirbragðið er spænskt, sýningin er seiðmögnuð og sterk, sérstaklega Leiklist Auður Eydal framan af, þrungin vissunni um yfirvofandi vá. Sólar- hitinn verður þjakandi og ástríðumar skrúfast upp. Svalandi vatn úr brunni eða kaldur drykkur nægja ekki til að sefa ólgu blóðsins. Þegar dregur að uppgjörinu og eftir það linast tökin og mér fannst harmrænn lokakaflinn ekki ná þeirri dýpt sem vænta hefði mátt, eftir það sem á undan var gengið. Hnitmiðuð lýsing er mjög vel unnin og stemningar- full bakgrunnstónlist Hilmars Amar Hilmarssonar magnar upp hið ósagða. Pétur Jónasson leikur spænska tónlist á gítar af alkunnri list og það gefur sýningunni lifandi yfirbragð, þó að ekki tækist alltaf nógu vel að láta innkomur og staðsetningar hans falla inn í framvinduna, eins og virtist þó vera ætlunin. Úrvinnslan ber annars vott um góða heildarsýn ásamt tilfinningu fyrir spænskri menningu og suðræn- um skaphita. Þetta kemur sannarlega ekki á óvart eftir minnisstæða uppsetningu á Húsi Bemörðu Alba á Akureyri 1989 sem Þórunn leikstýrði einnig. Mér fannst þó misráðið og truflandi í þessari sýn- ingu að láta þær Ragnheiði Steindórsdóttur og Vigdísi Gunnarsdóttur, sem léku áberandi hlutverk, koma auðþekkjanlegar fram sem skuggaverur í skógi, í stað þess að fela það aukaleikurum. Dansar og hreyfingar em óvenjulega vel æfð og höfðu þegar best lét ekta spænskt yfirbragð. Leikend- um hefur tekist mætavel að tileinka sér það sambland af þótta, stolti og þokka, sem oft einkennir hreyfingar og framgöngu þarlendra, enda nutu þau tilsagnar Gabrielu Gutarra í danslistinni. Elín Edda Ámadóttir hannar leikmyndina í Blóð- bruilaupi og hún nýtist sýningunni prýðilega. Ríkj- andi litur er svartur og hægra megin er bogadreginn stigi með smíðajámshandriði. Vinstra megin eru breiöar tröppur og á milli þeirra að ofanverðu er pall- ur. Örfáir sviðsmunir undirstrika umhverfið hveiju sinni og þessi stílhreina lausn gefur færi á mikilli hreyfingu og flæði í sýningunni. Ingvar E. Sigurösson og Steinunn Olína Þorsteinsdótt- ir i hlutverkum sínum. DV-mynd BG Búningar vom einnig verk Elínar Eddu og mjög vel við hæfi að undantekinni útfærslunni á Mánanum og Dauðanum sem Hjalti Rögnvaldsson og Guðrún S. Gísladóttir léku. Þau fluttu textann vel en gervi þeirra beggja var alveg misheppnað að mínu mati og veikti veigamikil hlutverk þeirra. Bríet Héðinsdóttir túlkar hina stórlátu móður af- burðavel á breiðum skala í burðarhlutverki sýningar- innar og gerir hana í senn mannlega og heiftrækna, milda og grimma. Sonur hennar er leikinn af Baltasar Kormáki sem vantar ákveðnari tök í hlutverkinu, sér- staklega framan af. Sonurinn verður einum of bljúgur og „mjúkur" í meðforum hans. Hins vegar hristir hann af sér slenið í seinni hlutanum og leikur átakatriðið af öryggi og krafti. Ingvar Sigurðsson er líka dálítið einlitur og vantar þegar upp er staðið fleiri blæbrigði í leik hans í hlut- verki elskhugans, Leonardos, þó að hann leggi persón- una ágætlega upp og njóti sín vel í átakameiri atrið- um. Steinunn ÓÚna Þorsteinsdóttir leikur brúðina sem allt snýst um og gerir það um margt prýðilega þó að henni takist ekki til fullnustu að tjá dýpt örvæntingar- innar og þær heitu ástríður sem reka hana til þess að hlaupast burt úr sínu eigin brúðkaupi. Aðrir leikendur féllu vel inn í heildarmyndina. Þar bar af leikur Ragnheiðar Steindórsdóttur sem lék hreint frábærlega vel. í hlutverki þjónustustúlkunnar kristallaðist ótrúlega mikið af andrúmi og fyrirboöum verksins. Persónan verður Ijóslifandi löngu eftir að sýningu lýkur. Þjóðlelkhúslö sýnir á Smíöaverkstæðinu: Blóöbrullaup Höfundur: Federico García Lorca. Þýölng: Hannes Sigfússon. Þýöing Vögguþulu: Magnús Ásgeirsson. Hljóömynd: Hilmar örn Hilmarsson. Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson. Dansar: Gabriela Gutarra og Juan Povillio. Leikmynd og búnlngar: Elin Edda Árnadóttir. Leikstjóri: Þórunn Sigurðardóttir. Kammertónlist í Bústaðakirkju Tónleikar voru í Bústaðakirkju í gærkvöldi á vegum Kammermúsikklúbbsins. Flutt voru verk fyrir strengi og klarínett. Flytjendur voru Zheng-Rong Wang, fiðla, Zbigniew Dubik, fiðla, Helga Þórarinsdóttir, lágfiðla, Richard Talkofsky, selló, og Einar Jóhannesson, klarí- nett. Tónleikamir hófust á Kvartett fyrir klarínettu og strengjatríó í Es dúr eftir Bemhard Henrik Cmsell. Hann var uppi um aldamótin 1800 og verkið ber skýr einkenni klassíska stílsins. Klarínettparturinn er mjög glæsilegur enda mun höfundurinn hafa leikið á klarí- nett sjálfur. Verkið er vel samið en skortir persónuleg sérkenni. Af þeim er hins vegar nóg í Tríói Beetho- vens í c moll sem kom næst á efnisskránni. Virkni og skýrleiki hugmynda er frábær í þessu verki og notkun hljóðfæra fmmleg og snjöll. Vísar þar sumt til þess sem síðar kom í strengjakvartettum Beethovens. Eftir hlé var komið að Mozart. Fluttur var hinn gull- fallegi og vinsæli Kvintett fyrir klarínettu og strengja- kvartett í A dúr. Þetta verk er sennilega meðal mest Tónlist Finnur Torfi Stefánsson fluttu kammerverka hér á landi og er yfirfljótandi af þeim yndisþokka sem nafnið Mozart er eins konar vörumerki fyrir. Spilamennska á þessum tónleikum var fyrst flokks og greinilegt að imdirbúningur hafði verið vandaður. Mjög reyndi á klarínettuleik Einars Jóhannessonar sem hann skilaði með glæsibrag. Strengjaleikaramir áttu einnig góðan dag og léku með skemmtilegri snerpu og vel útfærðum blæbrigðum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.