Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1994, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1994, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 24. JANÚAR 1994 Spumingin Hefur þú gert góð kaup á útsölunum? Dagný Dögg Franklínsdóttir: Nei, ég á enga peninga svo ég get ekkert verslað. Bjarni Hjaltason: Nei, ég hef ekkert farið á útsölur. Dagbjörg Dagsdóttir: Já, reyndar, ég keypti eina flík. Berglind Sigurlaug Guðnadóttir: Ég hef ekki haft tíma til þess að fara á útsölur. Pétur Sigurðsson: Nei, ég hef ekki keypt neitt á útsölu. Jóhanna Kristín Björnsdóttir: Nei, ég hef ekk'ert keypt. Lesendur Evrópa á hröðu undanhaldi: ísland veðjar á rangan hest Borin von að sameinuð Evrópuriki láti stjórnast frá Briissel? Ágúst Sigurðsson skrifar: I sjónvarpsþætti um Evrópumál nýlega var rætt við innlenda menn og erlenda gesti sem hér hafa verið til fyrirlestrahalds. í þættinum var m.a. rætt við fyrr- um kanslara Vestur-Þýskaiands, svo og við blaðafulltrúa Margaret Thatc- her, forsætisráðherra Bretlands. Báðir voru mjög áheyriiegir og höfðu fastar skoðanir á málefnum Evrópu og fleiri þáttum sem tengjast beint framvindunni til sameiningar álf- unnar. Ég verð að segja aö ekki jókst mér bjartsýnin á Evrópu eftir að hafa heyrt þessa menn tala. Þeir sögðu berum orðum að hag- vöxtur í Evrópu væri á niðurleið á sama tíma og hagvöxtur væri í Am- eríku og þeim Asíulöndum sem helst eru samkeppnisfær við Vesturlönd. Hvað sameiningu Evrópu varðar taldi t.d. blaðafulltrúinn enski það borna von að álfa sem í eru hundruð milljónir manna sem tala 50 mis- munandi tungumái gæti látið stjóm- ast frá Brussel varðandi allt sem ein- kenndi sameinaða ríkjasamsteypu. Hugmyndin um sameiginlegt pen- ingakerfi væri t.d. alveg hrunin og sameiginlegur markaður með 11 gjaldmiðla væri óhugsandi. Ekki síst er höndlað með stærri vörueinignar, svo sem skip, orkuver o.s.frv. sem tekur oft tekur nokkur ár að fram- leiða. Gengisbreytingar og óstöðug- leiki settu svo strik í reikninginn í slíkum viðskiptum. Við íslendingar höfum nú veðjað meira eða minna á þessa framtíöar- ríkjaheild og munum því óhjá- kvæmilega lenda inni í því kraðaki sem verður viðloðandi á meðan Evr- ópuríkin em að reyna að koma skipulagi á sín mál en stefna í sama mund á títtnefnda „sameinaða Evr- ópu“. Framsýnir stjómmálamenn í Evrópu (t.d. Thatcher og margir aðr- ir) hafa þegar séð að sameiningin verður aldrei að veruleika. Evrópa er raunar á hröðu undanhaidi hvað varðar arðbæra milliríkjaverslun, að ekki sé talað um að hún verði stór- veldi á því sviði á komandi árum. Við íslendingar höfum því veðjaö á rangan hest eins og við gerum því miður oft þegar verslun og viðskipti eru annars vegar. Örfáir íslenskir kratar og e.t.v. fáeinir uppflosnaðir embættismenn eða afkomendur þeirra mega ekki standa í vegi fyrir öryggi og velferð íslands framtíðar- innar. - Þess vegna verðum við, ef það er ekki orðið of seint, að taka upp viðræður um fríverslunarsamn- ing við þjóðirnar vestanhafs, Banda- ríkin og Kanada sérstaklega, ásamt Mexíkó. Okkur ber að taka mark á málsmetandi mönnum í Evrópu sem sjá hættuna frá nálægum sjónarhóli. Af peningakeðjubréf um Jón Stefánsson skrifar: Sl. vor kom hér á markað peninga- keðjubréf, „Joker ’88“, starfrækt af löglegu þýsku fyrirtæki, KWO Dat- enverwaltung. Hlutverk fyrirtækis- ins er að sjá til þess að allir fái sitt, og að koma í veg fyrir svik. Nokkur umfjöllun hefur orðiö um þessi bréf. Jafnvel hafa verið fengnir menn til að reikna út hvernig þau margfaldast og hvað þarf mörg bréf til að fylla markaðinn innanlands. En dæmiö er ekki svona einfalt. Frá upphafi var reynt að fá kaup- endur til að selja sem flest bréf er- lendis aftur til að seinka dreifingu þeirra innanlands og auka mögu- leika kaupenda hér á landi. Talsvert af bréfum hefur farið til útlanda. Var það tekið með í dæmið hversu mörg bréf íslendingar gætu selt erlendis? í annan stað er dæmið reiknað þann- ig að allar greiðslur hafi borist efsta manni á hsta áður en sá næsti fær nokkuð. - Staðreyndin er nefnilega sú að gangur bréfanna er mjög mis- munandi. Sum bréfanna ganga mjög hratt fyrir sig, svo að nöfnin hrein- lega þjóta upp listann, allt niður í að þau mjakast áfram. - Á þessu má sjá að það er vart gerlegt að reikna dæm- ið til enda. Eins og allir vita er það lenska hér að alhr vilja græða á því sama. Nú spretta upp eins og gorkúlur íslensk keðjubréf. Mest áberandi keðjan núna er með 10 nöfnum. Með henni er ekkert eftirht svo hægt er að svíkja og svindla á henni á allan mögulegan hátt. - Hægt er t.d. að skipta alveg um nöfn á bréfinu, taka út nöfn á hstanum og setja þau sem þú kýst í staðinn. Einnig er hægt að gera eins mörg eintök af hstanum og þú kýst að selja. Semja við þann sem þú selur bréfið, t.d. ættingja, að senda ekki efsta nafni á hsta ávísunina. Mér er kunnugt um fjölda manna sem hafa tekið þátt, komist í efsta sætiö og dottið þaðan út án þess að fá nokk- uð. Því eru þær ekki samanburðar- hæfar, íslenska keðjan og sú þýska. Ætla þeir að selja Ráðhúsið? Víðir skrifar: Mig minnir að ég hafi lesið í DV smápistil um að hugsanlega myndu frambjóðendur og væntanlegir borg- arfulltrúar minnihlutans, sem nú bjóða sig fram til borgarstjómar, og verða væntanlega orðnir að meiri- hluta í vor, ekki vilja nota Ráðhúsið sem borgarstjómarskrifstofur eftir kosningar. Þetta væri þá bara í takt við það sem þessir minnihlutafuhtrúar hafa haldið fram um byggingu Ráðhúss- ins allt frá byrjun. Þeir hafa óskað þeirri byggingu alls hins versta og einhver helsti mótmælandinn lét þau orð faha, að best væri húsið komið á botni Tjamarinnar! - Það yrði a.m.k. ekki mikið mark tekið á minnihluta- fuUtrúunum ef þeir settust svo í Ráð- húsið - og kynnu bara vel viö sig þar. Kannski leigja þeir húsið einhveij- um sem getur greitt vel fyrir? Þeir gætu þá flutt starfsemi borgarinnar, Sest ný borgarstjórn vinstri manna í Ráðhúsið eftir allt saman? sem nú fer fram í Ráðhúsinu, upp í Perlu eða í- eitthvert stórhýsið í mið- borginni sem stendur þar autt. Nóg er framboðið. Minnihlutaflokkamir ætla kannski að gera hlutafélagsvæðingu SVR að sínu stærsta kosningamáli? Þaö væri svo sem eftir málefnafá- tæktinni! Margir munu bíða spenntir eftir yfirlýsingu um hvort þeir ætla að nota Ráðhúsið eftir aUt sem á undan er gengið. Samviskulausir s^órnmálamenn 050556-4849 skrifar: Ég hef lengi undrast samvisku- leysi stjómmálamanna, og leyfi mér að vera sammála ágætri manneskju sem stingur upp á því i lesendabrefi nýlega að fá Hróa hött á Alþingi fyrir láglaunaí'ólk. - Hvaða vit er t.d. í því að úthluta dagpeningum iii eiginkvenna stjómmálamanna? Hjá flestum þossum góðu frúm eru bömin flogin úr hreiðrinu og farin að sjá fvrir sér sjálf. Væri ekki réttara ' að veita eigmkonum láglauna- manna sem slasast einhverja þóknun sem dugar tU að setja börnin í pössun svo að þær gætu unnið úti til að jafna skuldavog- ina? Eða oinstæöum foreldrum sem þurfa að vinna : tvöfalda vinnu til að rétta af sínar skuldir? Besturökin hjáAmal Rún Gíslí Guðmundsson skrifar: Mér heyrist, svona í fljótu bragði, að Amal Rún, som er í framboði til prófkjörs þessa dag- ana, hafi uppi einna sterkustu rökin í málflutningi af meðfram- bjóðendum sínum á lista sjálf- stæöismanna. Hún viriiist skörp í hugsun og fljót til svars til vam- ar sínum málstað. Það leikur eng- iim meðframbjóöandi hennar eft- ii’. Hún er t.d. hörð í horn að taka gagnvart Kvennalistanum um að hann sé hugsanavilla sem mis- muni fólki eftir kynferði. Sjálf- stæðismenn eru fullsæmdir af Amal Rún sem verðugum full- trúa þeirra á framboðslistanum. á greiðslukorti Eiríkur hringdi: Nú hefði borgarstjórnarmeiri- hlutinn getað slcgið sér hressi- lega upp í kosningabaráttunni hefði hann samþykkt aö dreifa fasteignagjöldunum á fleiri en þrjá gjalddaga. Að ekki sé nú tal- að um að leyfa okkur aö greiða þau með greiðslukortum eins og mörg önnur bæjarfélög hafa aug- lýst - Þetta hijóta hinir flokkarn- ir að gera um leiö og þeir komast að eins og þeir lögðu fram tillögu um í borgarstjórn, en fengu ekki samþykkta. „R“fyrirlista rasista Ingibjörg Einarsdóttir hringdi: Ekki er enn ljóst hverjir verða endanlega á hsta vinstri flokk- anna sem bjóða fram til borgar- stjórnar. Sifellt er glamrað með nöfn þeirra sem hafa verið í for- ystu flokkanna. Mér finnst þetta ekki vera spennandi nöfn. Ég vildi taka undir þá skoðun sem heyrst hefur að listinn verði að skarta nöfnum einhverra nýbúa eins og Sjálfstæðisflokkurinn. Verði ekki svo legg ég til aö flokknum verði úthlutað bók- stafnum „R" sem standifyrir lista „rasista". Svo einfalt er það nú frá mínum sjónarhóli. Síðbúnarþakkir Rannveig hringdi: Ég var að vinna allan daginn á Þorláksmessu og síðan á aðfanga- dag jóla. Ég var því of vant við látin til að ná i jólagjafir sem ég liafði hugsað mér að ná í. Ég hringdi í verslun Japis í Brautar- holtinu þar sem ég haföi séð við- komandi hluti. Sá sem fyrir svör- um varð bauðst til að taka til hlutina og senda mér á vinnustað minn sem þó er nú ekki alveg í alfaraleið. - Fyrir þetta vil ég senda verslun Japis i Brautar- holtinu mínar bestu þakkir og viðurkenningu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.