Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1994, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1994, Side 13
MÁNUDAGUR 24. JANÚAR 1994 13 Fréttir Þeir sem hafa átt leið um Arnarnes og þurft að reiða sig á götuskilti hafa væntanlega orðið undrandi. Einhverjir hafa átt við að minnsta kosti tvö götunöfn og breytt þeim á þann veg að Lundanes er orðið Hundanes og Hegranes að Negranesi. Breytingarnar eru það vel gerðar að menn taka ekki eftir þeim nema beinlínis að lesa á skiltin. Ekki er vitað hverjir standa á bak við þessi strákapör. DV-mynd GVA Sex bæjarfulltrúar af níu hættir á Akranesi: Mikil upp- stokkun í bæjarstjórn Sigurður Sverrissan, DV, Akranesi: Nú er ljóst aö 6 af 9 bæjarfulltrú- um á Akranesi verða ekki í kjöri þegar gengið verður til kosninga í maí. Síðastur til að heltast úr lest- inni var Jón Hálfdánarson, Fram- sóknarflokki. Guðbjartur Hannesson, Alþýðu- bandalagi, tilkynnir á næstu dög- um að hann gefi kost á sér til áframhaldandi kjörs. Áöur hafði Ingvar Ingvarsson, Alþýðuflokki, tilkynnt að hann gæfi kosti á sér. Eini bæjarfulltrúinn sem ekki hef- ur gefið svar um áframhaldqndi þátttöku er Hervar Gunnarsson, Alþýðuflokki. Endumýjunin er alger hjá Fram- sóknarflokki og Sjálfstæðisflokki. Enginn þriggja fvúltrúa Framsókn- ar verður áfrEun með í slagnum og hvorugur fulltrúa Sjálfstæðis- flokksins. Sjálfstæðisflokkur og Alþýðu- flokkur verða með opið prófkjör en Framsókn stillir upp lista. Alþýðu- bandalag verður með uppstillingu en leitar álits bæjarbúa í könnun áður en endanleg uppröðun verður kynnt. Jóna Gróa Sigurðardóttir gefur kost á sér í 3. sætið í prófkjöri sjálfstæðismanna vegna borgarstjórnar- kosninga í Reykjavík Uppbygging, jafnvægi og festa Með því að velja Jónu Gróu í þriðja sæti á lista Sjálfstæðisfiokksins við borgarstjómarkosningamar stuðlum við að uppbyggingu, jafnvægi og festu. Þessi þrjú orð lýsa einkar vel þeim áherslum sem verið hafa í starfi meirihlutans í borgarstjóm. Þar hefur Jóna Gróa verið mikilvægur hlekkur, með víðtæka reynslu af atvinnumálum, ferðamálum, menningarmálum og húsnæðismálum aldraðra. Skrifstofa stuðningsmanna Jónu Gróu Sigurðardóttur er að Suðurlandsbraut 22, símar 880812, 880813, 880814 og 880815

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.