Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1994, Side 2
2
FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1994
Fréttir
Sýmngum á óperunni Evgení Önegín hætt eftir 9. sýningu:
Óperan á ekki fé fyrir
uppfærslu næsta haust
„Óperuáhugi er ungur á íslandi
og fólk er íhaldssamt á verkefnav-
al. Því höfum við orðið að binda
okkur mikið viö óperur sem hljóma
‘kært í eyrum og þar sem fólk þekk-
ir aríumar. Við höfum verið gagn-
rýnd fyrir að fara kannski of troðn-
ar slóðir en sem opinbert óperuhús
verðum við einnig að uppfæra
minna þekktar óperur. í fyrra voru
100 ár liðin frá láti Tsjajkovskíjs
og því fannst okkur tilvahð að ríða
á vaðið og uppfæra Evgení Ónegín,
vinsælustu rússnesku óperuna.
Virkilegir óperuunendur eru okk-
ur þakklátir en almennir áhorfend-
ur hafa farið mjög varlega. Sala
aðgöngumiða hefur gengið það
treglega að við höfum auglýst síð-
ustu sýninguna annan laugardag,"
sagði Ólöf Kolbrún Harðardóttir,
óperustjóri íslensku óperunnar,
viðDV.
Mjög treglega hefur gengið að
selja miða á óperuna Evgení Óneg-
ín í íslensku óperunni. Eftir 7 sýn-
ingar hafa 2.500 manns séð sýning-
una sem þýðir að einungis 6,7 millj-
ónir hafa skilað sér í kassann.
Níunda sýningin, annan laugar-
dag, verður sú síðasta. Eftir hana
má áætla að rúmar 8 milljónir hafi
komið í kassann.
Að sögn Ólafar þarf fullt hús til
að standa imdir hverri sýningu á
Evgení Ónegín en hátt í 100 manns
starfa við hveija sýningu. Þegar
svo dræmlega gangi að selja miöa
borgi sig ekki að sýna oftar en einu
sinni í viku. Þá sé dýrt að Gunnar
Guðbjömsson fljúgi til landsins frá
Þýskalandi fyrir aðeins eina sýn-
ingu 1 einu.
Það kostar 18-20 milljónir að setja
upp ópem, sem er kostnaður fram
að frumsýningu, en uppfærsla Evg-
ení Ónegín er í dýrari kantinum.
íslenska óperan fær árlega 30 millj-
ónir úr ríkiskassanum en leggm1
sjálf fram 5 milljónir á móti.
„Viö tökum þátt í uppfærslu á
Niflungahring Wagners með Þjóð-
leikhúsinu, Sinfóníunni og Lista-
hátíð í vor. Þar fara síðustu pening-
amir okkar svo við stöndum uppi
peningalaus þegar nýtt sýningarár
hefst í haust. Við höfum ekki efni
á uppfærslu á ópem fyrr en eftir
áramót og verðum þá að taka fyrir
einhvem konfektmolann sem
gengur í áhorfendur."
Ólöf Kolbrún telur ekki að um
rangt verkefnaval sé að ræða.
„Viö erum mjög ánægð með upp-
færslu okkar á Evgení ðnegín, höf-
um fengið góða dóma og mikla
umflöllun. En fólk hugsar sig tvi-
svar um áður en það greiðir 2.700
krónur fyrir miða á ópemsýningu.
Nú em erfiöir tímar og svo margt
annað sem virðist hafa forgang
fram yfir óperu,“ sagði Ólöf Kol-
brún.
-hlh
Fiskveiðasjóður til
bjargar SR-mjöli
- bankastjóri Landsbankans er formaður sjóðsins
„Með lánveitingu Fiskveiðasjóðs
er í raun verið að greiða upp lán aö
sömu upphæð og Landsbankinn tók
fyrir okkar hönd. Þessar lánveiting-
ar vora á sínum tíma um milljarður
króna en síðan var borgað af þessum
lánum í desember þannig að eftir
stóðu um 850 milljónir. Með endurfj-
ármögnun Fiskveiðasjóðs er enn
ósamið um ábyrgðir upp á 300 millj-
ónir. Það á eftir að ræða betur við
Landsbankann um þessa ábyrgð,"
segir Jón Reynir Magnússon, fram-
kvæmdastjóri SR-mjöls.
Fiskveiðasjóður hefur ákveðið að
veita SR-mjöh 550 milljóna króna lán.
Formlega á þó eftir að ganga frá lán-
veitingunni. Fiskveiöasjóður er í
eigu ríkisins og Uta sumir svo á að
þar með sé lánveitingin til SR-mjöls
sjálfkrafa með ríkisábyrgð. Athygli
vekur í þessu sambandi að stjómar-
formaður Fiskveiðasjóðs er Björgvin
Vilmundarson en hann er jafnframt
bankastjóri Landsbankans.
Samkvæmt heimildum DV var lán-
ið veitt vegna endurbóta á verk-
smiðju SR-mjöls á Seyðisfirði til að
uppfylla lagaskilyrði varðandi útlán
sjóðsins. í raun er hins vegar um að
ræða lán til að endurfjármagna lán
sem Landsbankinn er í ábyrgð fyrir.
Mikilar deilur urðu í kjölfar sölu
SR-mjöls um áramótin, en þá var til-
boði Haralds Haraldssonar í Andra
hafnað. Tilboð Haralds hljóðaði upp
á 801 mihjón og loforö um að tæplega
eins miUjarös skuld við Landsbank-
ann yrði greidd upp. Tilboðið sem
var tekið hljóðaði upp á 725 miUjónir
króna og gerðu kaupendur ráð fyrir
að þeir gætu yfirtekið áhvílandi lán
Landsbankans.
Á þetta sættist Landsbankinn ekki
enda vildu stjómvöld ekki kannast
við að ríkisábyrgð væri á lánunum.
í kjölfar sölunnar krafðist bankinn
að eigendur SR-mjöls settu fram
tryggingar fyrir áhvílandi lánum eða
greiddu þau upp þar sem ríkisábyrgð
væri ekld fyrir hendi. Við þessari
kröfu hefur SR-mjöl nú að hluta til
orðið með hjálp Fiskveiðasjóðs. Rík-
isábyrgðin á skuldum fyrirtækisins
hefur með öðrum orðum verið flutt
af bankanum á sjóðinn.
Samkvæmt heimildum DV þykir
lánveitingin hins vegar orka tvímæl-
is. í Lánasýslu ríkisins er verið að
kanna hvort lán Fiskveiðasjóðs njóti
ríkisábyrgðar og hvemig að lánveit-
ingunni til SR-mjöls var staðið. Lík-
legt er að ágreiningur komi upp um
máUð milU stjórnenda Fiskveiöa-
sjóðs og fuUtrúa fjármálaráðuneytis.
Hvorki stjómarmenn né starfsmenn
Fiskveiðasjóðs vilja tjá sig um máUð.
-kaa
Fréttaskýring DV í gær um væntanlegar breytingar hjá Framsóknarflokknum vakti mikla athygli meðal þing-
manna. Hér heldur Árni Ragnar Árnason á blaðinu en samþingmenn hans, Jóhannes Geir Sigurgeirsson, Ingi-
björg Pálmadóttir og Árni Mathiesen, lesa lika. DV-mynd GVA
Stuttar fréttir
Akureyri:
Jón ekki
álista
sjálfstæð-
ismanna
Gyifi Kristjánssan, DV, Akureyrú
Jón Kr. Sólnes, bæjarfuUtrúi
SjáJfstæðisflokksins á Akur-
eyri, hefur ákveðið að taka ekki
sæti. á Usta flokksins fyrir bæj-
arsljómarkosningamar í vor.
Jón tók þessa ákvöröun eftir
að hann haföi verið jafh Þórami
B. Jónssyni i 3. sæti í prófkjöri
flokksins en Þórarinn fengið
sætið á hlutkesti og Jóni gert
að vera í 5. sæti.
Jón sætti sig ekki við að missa
sætið á hlutkesti, sagöi sig af
Usta flokksins, en sagði í gær
að hann hefði ekki íhugaö sér-
framboð.
Akureyri:
Jakob bæj-
arsfjóra-
efni Fram-
sóknar
Gyifi Kris^ánæon, DV. Akureyri;
Jakob Björnsson, bæjarfuU-
trúi Framsóknarflokksins á
Akureyri, verður í 1. sæti á Usta
flokksins í kosningunum í vor,
og honum er um leið teflt fram
sem bæjargtjóraefni flokksins.
Framsóknarmenn brjóta þar
meö blað í sögunni á Akureyri,
því þar hefur til þessa ekki ver-
iö teflt fram póUtísku bæjar-
stjóraefiú.
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir,
sem verið hefur oddviti iram-
sóknarmanna í bæjarstjórn,
gefúr ekki kost á sér áfram og
Jakob tekur sæti hennar. I
næstu sætum koma: 2. Sigfríður
Þorsteinsdóttir tækniteiknari,
3. Þórarinn E. Sveinsson bæjar-
fuUtrúi, 4. Guðmundur Stefáns-
son framkvæmdastjóri, 5. Ásta
Sigurðardóttir sjúkrahöi og 16.
sæti Oddur HaUdórsson blikk-
smíðameistari. Framsóknar-
flokkurinn á þrjá fuUtrúa í bæj-
arstióm Akureyrar.
Össur braut lög þegar hann
flutti embætti veiðistjóra til Ak-
ureyrar. Þetta er mat laganefnd-
ar BHMR. RÚV greindi frá þessu.
lesbiuf gefa bióð
Lesbiur hafa iengið leyfi heU-
brigöisyfirvalda til að gefa blóð
hjá Blóðbankanum eftir langa
baráttu viö kerfið þar um. Stöð 2
greindi frá þessu.
í væntanlegu frumvarpi tU lög-
reglulaga er gert ráð fyrir emb-
ætti rikislögreglustjóra í stað
rannsóknarlögreglustjóra ríkis-
ins hjá RLR. Ríkislögreglustjóri
yrði yfirmaöur aUra lögreglu-
embætta i landinu. Þetta kom
fram á RÚV.
BSstjórar í hár saman
Sendibílstjórar og leigubílstjór-
ar em enn farnir að deila um
fiutninga á bréfum og bögglum.
Samkvæmt RÚV taka sendibíl-
sljórar upp á myndband bréfa-
Qutninga leigubílstjóra til að nota
sem sönnunargögn í væntanlegu
dómsmáli.
Beatríxiheimsókn
Beatrix Hollandsdrottning og
Klaus prins, eiginmaður hennar,
koma í sina fyrstu opinbera
heimsókn til íslands í sumar og
endurgjalda þar með nýlega
heimsókn Vigdísar til Hollands.
Skákþingi Reykjavíkur lauk í
gærkvöld meö sigri Sævars
Bjarnasonar. Sævar lilaut 9 vinn-
inga af 11 mögulegum og telst þar
með skákmeistari Reykjavíkur.
Lóraninn lagður niður
HaOdór Blöndal samgönguráö-
herra hefur ákveðiö að leggja lór-
an-ckerfiðniður sem er staðsetn-
ingarkerfi fyrir skip og flugvélar.
GPS-staðsetningarkerfið er farið
að taka við hlutverki lóransins.
Ríkissjónvarpiö greindi frá
þessu.
Borgarskjalasafn Reykjavíkur
leitar eftir gömlum einkaskjölum
á sýningu f tilefni 50 ára afinælis
lýðveldisins í sumar. Samkvæmt
Alþýöublaðinu gefst fóUti núna
tækifæri til að draga fram gömlu
ástarbréfin. _bjb