Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1994, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1994, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1994 7 Fréttir Kærir rekstur happdrættisvéla Kæra hefur verið lögð fram á hendur eiganda spilastofu sem rek- ur happdrættisvélar Háskólans. Þetta fékkst staðfest hjá RLR í gær. Máhð hefur verið sent til ríkissak- sóknara. Það er Gunnar Friðjónsson sem lagöi fram kæruna en hann hafði áður kært spilakassarekstur Rauða krossins við Umferðarmiðstöðina til RLR. Það mál er nú einnig til afgreiðslu hjá ríkissaksóknara og er ekki búiö að taka ákvörðun um framhald þess. Gunnar, sem ræddi spOaflkn sína við DV á seinasta ári, telur rekstur spilakassa og happdrættisvéla vera brot á hegningarlögum. Þess má geta að á seinasta ári voru menn, sem ráku spilavíti í Reykjavík, dæmdir af Hæstarétti fyrir brot á sömu grein hegningarlaga og Gunnarvísartilíkærusinni. -pp MOULINEX gufustraujárn með krómuðum botni, skila sléttum og snyrtilegum fatnaði. MOULINEX gufustraujárn fyrir þá vandlátu. Akureyri: Skoðana- könnun hjá allaböllum Gylfi Kristjánsson, DV, Akareyii Þessa dagana stendur yflr skoðana- könnun meðal alþýðubandalagsfólks á Akureyri þar sem félagsmenn lýsa yfir viija sínum um skipan framboðs- lista flokksins við bæjarstjórnar- kosningarnar í vor. Þau s^m skipuðu fjögur efstu sætin í kosningunum fyrir íjórum árum gefa öll kost á sér að nýju. „Ég hef lýst yfir að ég sækist ekki sérstaklega eftir þessu en ég skorast ekki undan verði til mín leitað," segir Sigríður Stefánsdóttir sem skipaði efsta sæti hstans í síðustu kosningum. Þá fékk Alþýðubandalagið tvo bæjarfulltrúa kjörna. Heimir Ingimarsson var í 2. sæti, Sigrún Sveinbjömsdóttir í 3. sæti og Þröstur Ásmundsson í 4. sæti. Ekki er talið ólíklegt að niður- staðan nú verði að tefla þessum aðil- um fram í efstu sætunum að nýju. Akureyri: efstur hjá krötunum Gylfi Kristjáosson, DV, Akureyri: Gísh Bragi Hjartarson, bæjarfull- trúi Alþýðuflokksins á Akureyri, hafnaði í efsta sæti í skoðanakönnun flokksins vegna bæjarstjórarkosn- inganna í vor. Hann fékk mjög afger- andi stuðning í 1. sætið. Samkvæmt heimildum DV mun Hreinn Pálsson lögmaður hafa lent í 2. sæti í skoðanakönnuninni. Finnur Birgisson, sem á sæti í uppstihingar- nefnd flokksins, sagði að skoðana- könnunin, sem fram fór meðal fé- lagsmanna, heföi ekki veriö bindandi enda enginn sérstaklega í kjöri í könnuninni. Nefndin hefði nú sam- band við það fólk sem hefði fengið góöa útkomu í könnuninni og að því loknu yrði gengið frá hstanum. Sighvatur Björgvinsson:- Vaxtalækkun að fulluskilaðsér „Sú tveggja prósenta vaxtalækkun, sem ríkisstjórnin baröist fyrir, hefur núna að fullu skhað sér. Til þess að meiri vaxtalækkanir geti orðið þurfa vextir á ríkisbréfum að lækka enn frekar," sagði Sighvatur Björgvins- son viðskiptaráðherra í samtah við DV í thefni engra vaxtabreytinga hjá bönkum nú um mánaðamótin. Aðspurður hvort svigrúm væri fyr- ir vaxtalækkun á ríkisbréfum sagði Sighvatur að vextir hér á landi væru komnir niður fyrir flest nágranna- löndin. „Vaxtastigið á íslandi er að fuhu sambærilegt og jafnvel lægra en víða erlendis. Núna eru t.d. Bandaríkin og Japan lægri en við en Norðurlöndin ekki.“ -bjb Nú ep að hrökkva eða Ava Útsölunni lýkur á laugardag og er vissara að hafa hraðann á ef þú ætlar að kaupa geisladiska, sjónvarp, geislaspilara, myndbandstökuvél, myndbandstæki, örbylgjuofn, hljómtækjasamstæðu, bíltæki, hljómborð, ferðatæki, vasaútvarp, rakvél, Sega tölvu, myndbandsspólur o.fl. o.fl. á útsölunni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.