Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1994, Blaðsíða 36
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Rítstjórn - Auglýsingar - Áskrif t - Dreifing: Sími 632700
Frjálst,óháð dagblað
FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1994.
Fáskrúðsfjörður:
Byggðasjóður
eignast hótel
Ægir Kristinsson, DV, Fáskrúösfirði:
Byggðasjóður eignaðist í gær Hótel
Skálavík á Fáskrúðsfirði á nauðung-
aruppboði. Hótelið var eign Hótel
Skálavíkur hf. á Fáskrúðsfirði. Að-
eins eitt tilboð kom fram á uppboðinu
- frá Byggðasjóði - að upphæð 11
milljónir króna. Byggðasjóður hefur
nokkrar vikur til að ganga endanlega
frá kaupunum.
íbúar í Árbæ
Mikinn reyk lagði yfir hluta Árbæj-
ar og Seláss í nótt. Ástæðan var að
slökkviiiðið var við æfingar við
Rauðavatn og lagði eld að gömlu
húsi.
Eftir að kveikt hafði verið í húsinu
breyttist vindátt og lagði reyk yfir
íbúðarhúsahverfi. Fylltust íbúðir af
reyk og brá slökkvihðið á það ráð að
kynda undir bálinu til að auka hita-
uppstreymi svo reykurinn færi yfir
byggðina. íbúar í Árbæ og Selási
voru að vonum ekki ánægðir eftir
óhappið. -pp
Akureyri:
Reyntað
kveikja í skóla
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Tilraun til íkveikju var gerð í Síðu-
skóla á Akureyri í gærkvöldi. Athæf-
ið komst upp þegar reyk lagði um
skólann og kom slökkvilið strax á
vettvang.
Bekkjarkvöld fyrir 8. bekkinga var
í skólanum og hafa einhverjir lagt
leið sína að kjallara og komið fyrir
flugeldi eða einhverju þess háttar
milli stafs og hurðar. Talsverðan
reyk lagði um húsið og kjallarahurð-
in brann nokkuð.
Innbrot
í íbúðarhús
Brotist var inn í íbúðarhús í Mos-
fellsbæ í gærdag og stolið þaðan
verulegu magni af skartgripum og
heimiiistækjum.
Innbrotið uppgötvaðist þegar
heimihsfólk kom úr vinnu síðdegis í
gær. Þá höfðu þjófar látið greipar
sópa í húsinu. Samkvæmt upplýsing-
um hjá RLR sást ekki til mannaferða
við húsið en máhð er th rannsóknar.
-PP
Þarf að greiða
H ■■■■ W ■
9-2 milljónir
Yfirskattanefnd hefur úrskurðað
í máli Björns Önundarsonar, fyrr-
verandi yfirtryggingalæknis
Tryggingastofnunar ríkisins. Sam-
kvæmt heimildum DV nemur end-
urálagning yfirskattanefndar á yf-
irtryggingalæknimi fyrrverandi
um 9.2 mihjónum króna.
Mál Björns hefur verið til með-
ferðar hjá yfirskattanefnd í nokkra
mánuði eftir að Bjöm kærði úr-
skurð ríkisskattstjóra um 9.4 mihj-
óna endurálagningu.
Upphaflega voru mál flögurra
lækna send til rannsóknar hjá
rannsóknarlögreglu seinrd hluta
árs 1992. Rannsóknin náði til ár-
anna 1988 til 1991 og beindist eink-
um að þeim greiðslum sem lækn-
arnir fengu frá tryggingafélögum
vegna vinnu við gerð örorkumata
og aðra þjónustu.
Snemma á seinasta ári voru mál
læknanna send saksóknara. Máh
tveggja þeirra lauk rneð viðurlaga
ákvörðun sem áður var kallað
dómssátt en málum tveggja, Björns
og Atla Þórs Ólafssonar, fyrrver-
andi tryggingalæknis bjá VIS, er
enn ólokið. Máhn hafa verið til
meöferðar lajá rikissaksóknara í
töluverðan tíma en ekki er hægt
að ljúka meðferð þeirra þar fyrr en
skattayfirvöld hafa úrskurðað i
málunum. Þvi er nú lokið í að
minnsta kosti öðru málinu.
Úrskurður vfirskattanefndar
hefur samkvæmt heimildum DV
ekki enn borist saksóknara sem
líklega gefur út ákæru á næstu
dögum í máli Björns en ekki er vit-
aðumstöðumálsAtla. -pp
Það hefur mikið gengið á undanfarið vegna frumvarps til breytinga á búvörulögunum. Frumvarpið kom svo fram
seint í gærdag eftir að framsóknarmenn höfðu i tvígang hótað að krefjast þess að þeirra frumvarp um breytingar
á búvörulögunum yrði tekið fyrir á Alþingi. Davíð Oddsson var ekki beint bliður i augunum þegar hann ræddi
við Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra um frumvarpið rétt áður en það var lagt fram. DV-mynd GVA
Ammoníakslekinn:
Ábyrgðar-
hluti af
hálfu SS
- segir Hjörleifur Kvaran
Töluvert magn af ammoníaki fór
út í andrúmsloftið þegar unnið var
að því að hreinsa út úr frystiklefum
í gömlum byggingum Sláturfélags
Suðurlands, SS, við Skúlagötu í gær-
kvöld.
Lögregla gekk í nærliggjandi hús
og hvatti fólk til að loka gluggum
híbýla sinna en að öðru leyti reynd-
ist ekki veruleg hætta á ferðum.
Húsið og lóðirnar eru eign Reykja-
víkurborgar og segir Hjörleifur
Kvaran, framkvæmdastjóri lögfræði-
og sljómsýsludeildar Reykjavíkur-
borgar, að það hafi komið sér mjög
á óvart að talsmaður Sláturfélagsins
hafi reynt að þvo hendur sínar af
þessu máh. „Við nánast gengum út
frá þvi að við gætum gengið hreint
til verks. Það er ábyrgðarhluti af
hálfu Sláturfélagsins að skilja eftir
slík eiturefni.“
Steinþór Skúlason, forstjóri SS,
segir að kælivélar hafi verið fjar-
lægðar úr húsinu fyrir tæplega ári.
Leiðslumar hafi staðið opnar síðan
og menn tahð sig hafa tæmt allt
ammoníak af kerfinu. Hann hafi far-
ið yfir þetta með sínum tæknifræð-
ingum í gærkvöld og þeir hafi hallast
að þeirri niðurstöðu að olíustífla hafi
verið í kerfinu. Það hafi orsakað
þettaóhapp. -pp
Selfoss:
Sigurður stef nir
áefstasætið
„Ég gef kost á mér til forystu fyrir
flokkinn í kosningunum," sagði Sig-
urður Jónsson, kennari á Selfossi,
við DV í morgun en hann stefnir á
1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokks-
ins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar
á Selfossi í vor. Sigurður haföi ákveð-
ið að hætta en eftir áskoranir flokks-
systkina sinna snerist honum hugur.
Bryndís Brynjólfsdóttir, sem hefur
leitt flokkinn undanfarin ár, gefur
ekki kost á sér í prófkjörinu. Þetta
var niðurstaðan eftir mikil funda-
höld á Selfossi í gær.
„Ástæðan fyrir þessum sinnaskipt-
um er að ég vissi ekki af því fyrr en
seint að Bryndís hygðist hætta. Ég
hafði ekki ætlað mér í neinn próf-
kjörsslag. Síðan tók ég þá ákvörðun
að gefa kost á mér eftir áskoranir frá
fomstumönnum flokksins, flokks-
mönnum og vinum. Fólki þótti slæmt
að báðir forystumenn flokksins
skylduhætta,“sagðiSigurður. -bjb
LOKI
Það er munur að hafa bæði
bruna- og slökkvilið!
Veðriö á morgun:
Hiti um
frostmark
Á morgun verður suðaustlæg
átt og sums staðar strekkingur.
Dáhtil slydda verður öðm hverju
á Suðaustur- og Austurlandi,
smáél suðvestanlands en aftur á
móti þurrt og bjart norðanlands.
Á Vesturlandi og Vestfjörðum
rofar til síðdegis. Sums staðar
verður dáhtið frost í innsveitum
fyrir norðan en annars verður
hiti um frostmark.
Veörið í dag er á bls. 44
NSK
KÚLULEGUR
Pottlgeit
SuAuriandsbraut 10. S. 686499.
ÞREFALDUR1. vinningur