Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1994, Qupperneq 6
6
FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1994
ViðskiptL
UfSÍ á fiskm.
Xg Mi Fi Fö Má Þr Mi
Landsvísitalan
Mi Fi Fö Má Þr Mi
AlverÖ erl.
USD/i
tonn Mi Fi Fö Má Þr Mi
Álið hækkar
Kílóiö af ufsa á fiskmörkuðum
hefur verið að seijast á 43 til 49
krónur að meðaltali síðustu daga.
Litlar breytingar hafa orðið á
Landsvísitölu hlutabréfa hjá
Landsbréfum hf. Frá því á mánu-
dag hefur talan lækkað lítillega.
Staðgreiösluverð áls fór í 1248
dollara tonnið sl. þriðjudag eftir
nokkra lækkun daginn áður.
Verðhækkunin sýnir einhveija
trú á að helstu álframleiðendur
heims standi við orð sín um
minni framleiðslu.
Gengi jensins hefur hækkað um
1,6% á einni viku. í gærmorgun
var sölugengið 0,6728 krónur.
Vísitala helstu hlutabréfa í
kauphöllinni í París náði sögu-
legu hámarki í gær. Ástæðan var
einkum hækkun á gengi hluta-
bréfa í fjármála- og olíufyrirtækj-
um. -bjb
Útboö ríkisskuldabréfa í Bandaríkjunum:
Styrkir stöðu ríkisins á
erlendum lánamarkaði
- 620 milljónir af 14,6 milljarða útboöi til íslands
Ríkisskuldabréf fyrir 14,6 milljarða
króna seldust upp í útboði í Banda-
ríkjunum sl. þriðjudag. Skuldabréfin
jafngilda 200 milljónum Bandaríkja-
dala og eru til 10 ára. Þetta er í fyrsta
sinn sem ríkissjóður fer inn á banda-
rískan fjármálamarkaö. Hér er um
hagstæða erlenda lántöku að ræða
og verður % hlutum lánsins varið til
afborgana af eldri lánum ríkissjóðs.
Engu að síöur lengist skuldahalinn í
10 milljaröa ríkissjóðshalla.
Af þessum 14,6 milljörðum fóru 620
milljónir til þriggja íslenskra verð-
bréfafyrirtæKja. í gær voru þau búin
að selja skuldabréfin til innlendra
fjárfesta, aðallega lífeyrissjóða.
„Þetta gekk betur en nokkur hafði
vænst og sýnir að lánshæfni ríkis-
sjóðs er mjög góð á þessum markaði.
Utgáfa bréfanna styrkir mjög stööu
ríkissjóðs á erlendum lánamarkaði,"
sagði Friðrik Sophusson fjármála-
ráðherra í samtali við DV. Útboðið
var kynnt af bankastjórum Seðla-
bankans og fleiri fyrir væntanlegum
kaupendum og hittu þeir upp undir
100 fjárfesta í Bandaríkjunum. Láns-
hæfni ríkissjóðs var metin af þekkt-
um þar til gerðum fyrirtækjum og
var Island metið í A-flokk.
Skuldabréfin bera fasta vexti
6,125% á lánstímanum sem svarar til
ávöxtunar á sambærilegum banda-
rískum ríkisverðbréfum að viðbættu
0,57% álagi. Verðbólga í Bandaríkj-
unum er 2,5-3%. Því svarar þetta til
3,5-4% raunávöxtunar í Banda-
rikjadölum um þessar mundir. Bréf-
in greiðast upp í einu lagi við lok
lánstímans.
Eldri lán greidd niður
„Viö getum greitt niður eldri lán
og um leið aflað fjár sem ríkið þm-fti
að afla á erlendum vettvangi, m.a.
vegna þess að við viljum ekki yfir-
þrýsting á innlenda markaðnum.
Þýðingin fyrir okkur er að þetta
tryggir enn betur en áður þá vaxta-
þróun sem við höfum staðið fyrir og
hefur leitt til verulegrar lækkunar
raunvaxta," sagði Friðrik Sophus-
son.
Skuldabréf rikissjóðs ruku út á Bandarikjamarkaði í fyrradag. Af 14,6 millj-
arða útboði fóru 620 milljónir til innlendra fjárfesta, eða um 4% upphæðar-
innar.
Friðrik sagðist ekki eiga von á öðru
útboði í Bandaríkjunum á þessu ári.
Hins vegar muni ríkissjóöur eiga
meira val en áður um erlend lán.
„Það kemur í ljós að við getum náð
betri kjörum með útboðum en bein-
um lántökum," sagði Friðrik.
Seðlabankinn hafði umsjón meö
útboðinu fyrir hönd ríkissjóðs. Ólaf-
ur ísleifsson, forstöðumaður alþjóða-
deildar, sagði í samtali við DV að
útboðið hefði heppnast mjög vel.
„Bandaríkin eru stærsti skulda-
bréfamarkaður i heimi og sá mark-
aður þar sem mestar kröfur eru gerð-
ar af fjárfestum til útgefenda skulda-
bréfa. Á móti kemur að þarna er
hægt að afla lánsfjár á hagstæðum
kjörum. Vextir í Bandaríkjunum eru
nálægt sögulegu lágmarki um þessar
mundir. Sömuleiðis náðist álag sem
greiðist ofan á ávöxtun bandarískra
ríkisverðbréfa og verður að telja rík-
issjóði mjög hagstætt. Gagnvart fjár-
festum eru þetta knöpp kjör en samt
sem áður var mikill áhugi fyrir
skuldabréfunum. Skilyrði voru fyrir
meiri sölu upp á mun meiri fjárhæð-
ir en hér er fyrst og fremst um að
ræða endurfjármögnun á eldri og
óhagstæðari lánum ríkissjóðs," sagði
Ólafur.
Ólafur sagöi að áhugi bandarískra
fjárfesta sýndi það mat þeirra að
þrátt
fyrir erfið ytri skilyrði hefði náðst
árangur í efnahagsmálum sem sæist
á lítilli verðbólgu, batnandi jafnvægi
í utanríkisviðskiptum og skipulags-
breytingum á hagkerfmu.
4prósenttil
innlendra fjárfesta
Skuldabréfm dreifðust niður á fjár-
festa um öll Bandaríkin og þijú ís-
lensk verðbréfafyrirtæki tóku þátt í
útboðinu; Handsal, Kaupþing og
Skandia. Hlutur þeirra af 14,6 millj-
örðunum er 4%, eða upp á 620 millj-
ónir króna. Handsal keypti mest, eöa
fyrir 365 milljónir, Kaupþing fyrir
146 milljónir og Skandia fyrir tæpar
110 milljónir.
Samkvæmt upplýsingum hjá þess-
um verðbréfafyrirtækjum í gær voru
þau búin að selja mestöll skuldabréf-
in til innlendra fjárfesta. Eftir því
sem DV kemst næst voru það einkum
lífeyrissjóðir sem urðu sér úti um
þessi ríkisskuldabréf. -bjb
Vöruverð á erlendum mörkuðum:
Hráolían hækkar í verði
Vetrarhörkur í Bandaríkjunum
hafa gert það að verkum að hráoha
hefur lítillega verið að hækka í veröi.
Á þriðjudag seldist tunnan á 14,26
dollara að meðaltah og frekari hækk-
unum er spáð. Hins vegar hefur
bensínverð ýmist staðið í stað eða
lækkað á milli vikna.
Gasoha og svartolía hækkaði í
verði í síðustu viku en eftir helgi
hefur lækkun átt sér stað. í raun má
segja að eftir áramót hafi óverulegar
verðbreytingar átt sér stað á bensíni
og olíu á erlendum mörkuðum.
Únsan af guhi viröist vera á upp-
leið að nýju eftir nokkurt verðhrun
í ársbyrjun. Verð á bómull, hveiti og
kafTi hefur htið breyst milli vikna.
-bjb
Vöruverð á erlendum mörkuðuml
72 71
69 68
N D 1 F
170 160
\
140
J D J F
160 Pppp isn
ov
Vaxtalækkuná
ríkisvíxlum
Útboð á ríkisvíxlum fór fram
hjá Lánasýslu ríkisins í gær. AUs
bárust 35 tilboö upp á rúma 5
milljaröa króna en aðeins 14 til-
boðum var tekið fyrir 2,8 millj-
arða. Frá síðasta útboði varð
mest vaxtalækkun á 6 mánaða
víxlura, eða úr 5,58% í 5,34%. Til-
boðum fyrir rúman milljarð var
tekið. í 3 mánaöa víxla var tilboð-
um tekið fyrir 880 milljónir
króna, meðalávöxtunin var
5,15%.
Meðalávöxtun á 12 mánaða
víxlum var 5,70% en var 5,85% í
síöasta útboði. Tilboðumfyrir905
mihjónir var tekið.
Næröllumtil-
boðumtekiðí
húsnæðisbréf
Nær öllum tilboðum var tekið
í fyrsta uppboði ársins á hús-
næðisbréfum hjá Húsnæðisstofn-
un ríkisins sl. þriðjudag. Alls bár-
ust 15 tilboð að nafnvirði 529
milljónir króna og var 14 tilboð-
um tekið fyrir 524 miHjónir, sölu-
virði er 616,2 milljónir króna.
Meðalávöxtun tilboða var 5%,
hæsta ávöxtunarkrafa var 5,15%
og lægst 4,99%.
Sameiningá
Fáskrúðsfirði
Ægir Kristinssan, DV, Fáskrúðsfirði:
Frá og með síöustu áramótum
sameinaöist Hraðírystihús Fá-
skrúðsfjaröar hf. Kaupfélagi Fá-
skrúðsiirðinga. Hér er um forms-
atriði að ræða þvi frystihúsiö
hefur verið í eigu kaupfélagsins
meira og minna síöan 1940. Gísli
Jónatansson hefur i 18 ár gegnt
stöðu framkvæmdastjóra í báð-
um fyrirtækjunum og verður
áfram í forstöðu eftir sameiningu.
í árslok var bókfært eigið fé
fyrirtækjanna um 480 milljónir.
Frönskfyrirtæki
leita að umboðs-
mönnum
Nokkur frönsk fyrirtæki hafa
sett sig í samband við verslunar-
deild franska sendiráðsins í
Reykjavík til að leita að umboðs-
mönnum á íslandi.
Meðal fyrirtækjanna eru Inter-
prestige, sem fraraleiðir ilmvötn,
William Pitters International,
sem framleiðir áfengi, og Lucky
Street, sem framleiðir herrafatn-
aö.
Iðnaðurog
sjávarútvegur
ísamstarfi
Samstarfsvettvangur sjávarút-
vegs og iðnaðar um aukið
vinnsluviröi og tækniþróun hef-
ur veriö í gangi frá þvi í nóvem-
ber. Aðstandendur eru Samtök
iðnaðarins, Landssamband ís-
lenskra útvegsmanna, Samtök
fiskvinnslustöðva, auk ráöuneyta
sjávarútvegs, iðnaöar og mennta-
mála. Verkefnið verður í gangi
næstu tvö ár og verkefnisstjóri
hefur veriö skipaður Helgi Geir-
harðsson iðnaðarverkfræðingur.
Þingvísitölur
birtaráVerð-
bréfaþinginu
Verðbréfaþing íslands hefur
hafiö útreikninga á vísitölum fyr-
ir verðbréf með grunndeginum
1. janúar 1993. Alls er um 14 visi-
tölur að ræða. Fþótlega munu
verðbréfafyrirtæki hætta að birta
sinarvísitölur. -bjb