Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1994, Síða 20
32
FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1994
fþróttir
Dallas sigraði
- Indiana lagði vængbrotið lið Charlotte Homets
Patrick Ewing átti góðan leik fyrir
New York Knicks gegn Washington
Bullets i NBA í nótt. Ewing var stiga-
hæstur hjá Knicks og skoraði alls
30 stig.
Dominique Wilkins skoraði 26 stig
fyrir Atlanta gegn Orlando Magic í
bandaríska körfuboltanum í nótt.
Leikurinn var i öruggum höndum
Atlanta allan tímann en Kevin Willis
kom næstur Wilkins í stigaskorun-
inni með 18 stig. Hjá Orlando skoraði
Shaquille O’Neal 22 stig.
Patrick Ewing skoraði 30 stig fyrir
New York í sigrinum gegn Washing-
ton. Charles Oakley skoraði 18 stig
og tók 12 fráköst. Tom Gugliotta
skoraði 18 stig fyrir Washington og
Rúmeninn Gheorghe Muresan 15 stig
en kappinn er 2,31 m á hæð.
Þjóðveijinn Detlef Schrempf skor-
aði 21 stig fyrir Seattle gegn Boston
í Boston Garden. Sam Perkins kom
næstur með 1-7 stig. Dee Brown skor-
aði 26 stig fyrir Boston og Rick Fox
17 stig. Þetta var annar ósigur Boston
í röð eftir sjö sigra í röð á undan.
Dallas gerði góða ferð til Minnesota
og sigraði í jöfnum leik. Jim Jackson
kom sigrinum í örugga höfn með
þriggja stiga körfu 20 sekúndum fyr-
ir leikslok. Jamal Mashbum gerði
26 stig fyrir Dallas og Jackson 19 stig.
Isaiah Rider skoraði 22 stig fyrir
Minnesota sem tapaði þriðja leiknum
í röð.
Nýliðarnir Allan Houston og
Lindsey Hunter voru í sviðsljósinu
hjá Detroit gegn Milwaukee. Houston
skoraði 28 stig og Hunter 19 stig og
tíu stoðsendingar. Eric Murdock
gerði 24 stig fyrir Milwaukee.
Philadelphia tapaði heima fyrir
sterku liði Cleveland. Gerald WOkins
skoraði stig fyrir Cleveland og Brad
Daugherty 18 stig og tíu fráköst. Clar-
ence Weatherspoon skoraði 31 stig
fyrir 76’ers.
Indiana sigraði Charlotte á útivelli
þar sem Reggie Miller gerði 25 stig
fyrir Indiana en Eddie Johnson skor-
aði 32 stig fyrir Charlotte. Larry
Johnson, Alonzo Mourning og Scott
Burrell léku ekki með Charlotte
vegna meiðsla.
Chris Mullen skoraði 22 stig og
Latrell Sprewell 21 fyrir Golden State
gegn Denver. LaPhonso Elhs gerði
18 stig fyrir Denver.
ÚrsUt leikja í nótt:
Boston - Seattle.............84-97
76’ers - Cleveland..........97-105
Washington - New York........80-85
Charlotte - Indiana...........112-124
Atlanta - Orlando...........118-99
Detroit - Milwaukee.........104-90
Minnesota - DaUas............88-92
Golden State - Denver........97-84
-JKS
Broddi íþrótta-
maður Reykjavíkur
Broddi Kristjánsson, badminton-
maður úr Tennis- og Badmintonfé-
lagi Reykjavíkur, var í gær útnefnd-
_ ur íþróttamaður Reykjavikur fyrir
árið 1993. Það er Framkvæmdanefnd
íþróttabandalags Reykjavíkur sem
stendur að valinu og tUkynnti það í
í hófi í Höfða í gær. Þetta er í 15. sinn
sem íþróttamaður Reykjavíkur er
valinn en hlutgengir eru íþrótta-
menn og íþróttakonur sem átt hafa
-*lögheimUi í Reykjavík síðastliðin 5
ár og jafnfram keppt með íþróttafé-
lagi innan ÍBR.
I ræðu Ara Guðmundssonar, for-
manns íþróttabandalags Reykjavík-
ur, þegar valið var tilkynnt kom fram
meðal annars: „Broddi hóf 7 ára að
iðka badminton hjá TBR og varð árið
1978 unghngameistari í öUum þrem-
ur greinum í badminton, einliöaleik,
tvUiðaleik og tvenndarkeppni og árið
eftir lék hann sinn fyrsta landsleik
sem síðan eru orðnir 114.
Broddi hefur næstum haft einkaá-
skrift að íslandsmeistaratithnum í
einliðaleik síðan 1980, en alls hefur
hann orðið íslandsmeistari í einliða-
leik 11 sinnum, tvUiðaleik 11 sinnum
og tvenndarkeppni 6 sinnum. Broddi
er nú íslandsmeistari í einliðaleik og
tvíliðaleik."
-GH
Eldurinn í Finnlandi
Ólympíueldurinn kom tíl Finnlands 1 fyrradag á leiðinni til vetrar-
ólympíuleikanna í norska bænum LiUehammer en þeir hefjast 12. febrú-
ar. Eldurinn var fluttur flugleiðis frá Kaupmannahöfn, en þar hafði hann
verið frá því á laugardag. Hann var tendraður í Ólympíu í Grikklandi
þann 16. janúar.
Þegar eldurinn berst til LUIehammer verður búið að tlytja hann hlaup-
andi, akandi og fljúgandi 6.500 kilómetra leiö, frá Grikklandi um Þýska-
land, Danmörku, Finnland, Sviþjóð og Noreg.
-VS
Bandarískur sigur í bruni
’ Bandaríska stúlkan Hilary Lindh sigraði i bruni í heimsbikarkeppninni í
Sierra Nevada á Spáni í gær. Þetta var fyrsti sigur Lindh i heimsbikar-
keppni en hún vann til bronsverðlauna á síðustu ólympíuleikum. Melanie
Suchet frá Frakklandi varö önnur og italska stúlkan Isolde Kostner þriðja.
Margar af bestu brunkonum heims kepptu ekki á þessu móti vegna bana-
slyss austurrísku stúlkunnar Ulrike Maier um síðustu helgi. Pernilla Wiberg
frá Svíþjóð er efst að stigum í samanlögöum greinum HM. Hún hefur hlot-
ið 1029 stig, Vreni Schneider, Sviss, er önnur með 1010 og Anita Wachter
frá Austurríki þriðja með 898 stig. GH/Símamynd Reuter1
Broddi Kristjánsson, íþróttamaður Reykjavikur 1993, með verðlaunagripinn
veglega sem fylgir útnefningunni. DV-mynd Brynjar Gauti
Ferguson reiður út í fréttamenn BBC:
Bíða spenntir eft-
ir að við töpum
Alex Ferguson, framkvæmdastjóri
Manchester United, er ævareiður
þessa dagana eftir ummæli frétta-
manna á bresku útvarpsstöðinni
BBC á leik Norwich og Manchester
United í bikarkeppninni sl. sunnu-
dag. Ferguson vandar þeim BBC-
mönnum ekki kveðjumar eins og
fram kemur hér að neðan og hann
sakar BBC um að vinna á móti sínu
liði.
Upphaf málsins er að Eric Cantona
braut illa af sér í leiknum gegn
Norwich og fékk að líta gula spjaldið.
Menn vom á einu máh um að brotið
hefði verið gróft er Cantona braut á
John Polston og jafnvel hefði verið
ástæða fyrir dómarann að reka Can-
tona af leikvelli.
Jimmy Hill, einn af íþróttafrétta-
mönnum BBC, lýsti leiknum og var
ekki að spara stóm orðin. Hann sagði
brotiö auvirðilegt og í raun glæpsam-
legt. Eftir leikinn sagði Hill: „Can-
tona er frábær leikmaður en hann
gerði öll hrósyrði að engu er hann
sparkaði á glæpsamlegan hátt í Pols-
ton og dómarinn sá það ekki. Þetta
var forkastanlegt brot. Og það er
synd að svona snjall leikmaður skuli
þurfa að haga sér svona. Þorpara er
þörf í leikhúsi en við þurfum þá ekki
á knattspymuvellinum.“
Ferguson alveg bálreiður
Ferguson frétti af þessum ummælum
fréttamannsins og varð vægast sagt
bálrpiður: „Ef það er slúður eða
svindl í gangi í þessum heimi þá er
Hill slúðrarinn eða svindlarinn. Ég
hef ekki áhuga á mönnum eins og
Jimmy Hill. Fyrir þremur árum af-
skrifaði hann mitt hð þegar við urð-
um bikarmeistarar. Það sýnir hvað
hann veit um knattspymu. Alhr
íþróttafréttamennirnir á BBC em
aðdáendur Liverpool og þeir bíða
spenntir eftir því að við töpum. Þessi
skrhl, Jimmy Hhl, Alan Hansen og
Barry Davies, mun verða á öllum
okkar leikjum í bikamum og bíða
eftir því að við töpum leik.“
-SK
FH-ingarmeð
hópferðáSelfoss
FH-ingar verða með aðgöngu-
miða í forsölu á undanúrshtaleik-
inn gegn Selfossi á laugardaginn
kemur. Forsala er í Sjónarhóli,
Kaplakrika, frá kl. 16 fram að
leikdegi - 200 kr. fyrir börn, 700
fyrir fuhorðna. FH-ingar bjóða
upp á rútuferð á leikdag og verð-
ur lagt upp kl. 14.45. Verð er 300
kr. fram og th baka.
-JKS
Fjölnisstúlkur
fáliðsstyrk
Meistaraflokkur kvennahðs
Fjölnis í Grafarvogi hyggur á
stóra hluti í 2. deildinni í knatt-
spyrnu í sumar. Á síðustu dögum
hefur hðiö fengið öhugan og góð-
an liðsstyrk og alls hafa bæst við
niu leikmenn.
Þar ber fyrst að telja Margréti
Sigurðardóttur sem leikið hefur
með Breiðabliki og á að baki 10
A-landsleiki. Hinar eru: Heiða
Ingimundardóttir og Heiða Har-
aldsdóttir úr Reyní, S, Guðbjörg
Ósk Ragnarsdóttir frá Val, Berg-
lind Jónsdóttir, Olga Stefánsdótt-
ir, Ásta Pétursdóttir og Jóna Sig-
urðardóttir, allar úr Fram, og
Valdís Rögnvaldsdóttir úr KR.
-GH
Unglingaliðið
leikuráSpáni
Nú er nokkuö Ijóst að unghnga-
landsliðið í knattspyrnu, undir
18 ára, leikur vináttuleik gegn
Spánverjum ytra þann 11. maí i
vor. Leikurinn verður á mhh við-
ureignanna tveggja við Portúgah
í 16-hða úrshtum Evrópukeppn-
innar en þeir leikir verða á ís-
landi 8. maí og í Portúgal 15. maí.
-VS
Drengjaliðið
ieikuráMöltu
Drengjalandshðið i knatt-
spyrau, undir 16 ára, tekur þátt
í móti á Möltu um páskana. Mót-
hetjar þar veröa Malta, Rússland
og Austurríkí. Liöið fer síðan í
úrshtakeppni Evrópukeppninnar
á írlandi í lok apríl og þar er ís-
land í riðh með Úkraínu, Tyrk-
landi og Belgíu.
-VS
Lee-Gartnerekki
til Lillehammer?
Kanadíska skiðakonan Kerrin
Lee-Gartner sem varð ólympíu-
meistari í bruni á síðustu ólymp-
íuleikum er mjög efins um að
keppa í Lhlehammer. Lee-Gartn-
er var góð vinkona Ulrike Maier
en eins og komið hefur fram lést
í hún sviplegu slysi í brunkeppni
heimsbikarkeppninnar um síð-
ustu helgi. Lee-Gartner keppti
ekki í bruni á Spáni í gær eins
og margar aðrar brunkonur
vegna slyssins.
-GH
Meistararnir
hikstuðu
Nýkrýndir bikarmeistarar ÍBK
í körfuknattleik kvenna hikstuðu
aðeins í gærkvöldi þegar þeir
sóttu Valheim í l. deild. Keflavík-
urstúlkumar komust að vísu í
0-13, en Valur sneri dæminu við
og var yfir í hálfleik, 35-34. ÍBK
sigraði þó að lokum, 63-70.
Jenny Anderson, sænsk stúlka
sem er fyrir stuttu komin til Vals,
var stigahæst hjá Hhðarendahð-
inu með 14 stig. Linda Stefáns-
dóttir skoraði 11 og Ingibjörg
Magnúsdóttir 8. Elínborg Her-
bertsdóttir skoraöi 22 stig fyrir
Keflavik, Anna María Sveinsdótt-
irl6ogÓlgaFærsethl4. -ih