Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1994, Blaðsíða 30
42
FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 19941
Fólk í fréttum
Magnús Gunnarsson
Magnús Gunnarsson, aðalbókari
hjá Hval hf., Heiðvangi 72, Hafnar-
firði, varð efstur í prófkjöri sjálf-
stæðismanna í Hafnarfirði sem
fram fór nú fyrir skömmu eins og
fram hefur komið í DV-fréttum.
Starfsferill
Magnús fæddist í Hafnarfirði
29.10.1950 og ólst þar upp í foreldra-
húsum. Hann lauk verslunarprófi
frá VÍ1970.
Magnús var síðan verslunarstjóri
við matvöruverslun í Hafnarfirði í
þrjú ár, varð aðalbókari Hvals hf.
1973 og hefur star.fað þar síðan auk
þess sem hann hefur starfrækt eigin
tölvufyrirtæki, fasteignasölu og
ferðaskrifstofu ásamt öðrum.
Magnús gegndi formennsku fjár-
hagsnefndar Sjálfstæðisflokksins í
Hafnarfirði, hefur verið formaður
fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í
Hafnarfirði frá 1991 og á sæti í hafn-
arstjórn og húsnæðisnefnd Hafnar-
fjarðar. Hann tók þátt í prófkjöri
flokksins í Hafnarfirði 1989 og lenti
þáífimmta sæti.
Magnús er einn af stofnendum
Lionsklúbbsins Ásbjarnar, situr í
stjórn Öldrunarmiðstöðvarinnar
Hafnar, í stjórn Skógræktarfélags
Hafnarfjarðar og átti um tíma sæti
í körfuknattleiksdeild Hauka.
Fjölskylda
Magnús kvæntist 31.10.1970 Elísa-
betu Karlsdóttur, f. 10.8.1952, hús-
móður. Hún er dóttir Karls Finn-
bogasonar, bryta hjá Eimskip, og
ídu Nikulásdóttur sem nú er látin.
Börn Magnúsar og Elísabetar eru
Hrund, f. 15.9.1970, hjúkrunarfræði-
nemi við HÍ, en sambýlismaður
hennar er Ingi Rafn Jónsson, við-
skiptafræðinemi við HÍ; Gunnar, f.
22.11.1973, laganemi við HÍ, en unn-
usta hans er Rósa Viðarsdóttir, við
ítölskunám við HÍ; Þröstur, f. 10.2.
1979, nemi.
Systkini Magnúsar eru Ragnheið-
ur Gunnarsdóttir, f. 10.10.1945, hús-
móðir í Hafnarfirði; Sigurður Gunn-
arsson, f. 2.9.1953, póstafgreiðslu-
maðuríReykjavík.
Foreldrar Magnúsar eru Gunnar
EyjólfurMagnússon, f. 6.9.1921,
húsgagnasmiður í Hafnarfirði, og
Ásthildur Lilja Magnúsdóttir, f. 8.1.
1924, húsmóðir.
Ætt
Gunnar er sonur Magnúsar, bak-
arameistara í Hafnarfirði, Böðvars-
sonar, gestgjafa þar, bróður Þor-
valds, afa Haralds Böðvarssonar á
Akranesi. Böðvar var sonur Böðv-
ars, prófasts á Melstað, en meðal
systra hans voru Þuríður, lang-
amma Vigdísar forseta; Sigríður,
langamma Önnu, móður Matthíasar
Johannessen skálds; Hólmfríður,
amma Jóns Krabbe, afa Stens
Krabbe, stjórnarformanns Norden.
Böðvar var sonur Þorvalds, prófasts
í Holti, Böðvarssonar, prests í Holta-
þingum, Högnasonar, prestafoður,
Sigurðssonar. Móðir Böðvars glst-
gjafa var Elísabet, systir Þórunnar,
langömmu Jóhanns Hafstein for-
sætisráðherra. ÖnnursystirElísa-
betar var Guðrún, móðir Hallgríms
biskups og Elísabetar, móður Sveins
Bjömssonar forseta. Þriðja systir
Elísabetar var Sigurbjörg, móðir
Þórarins B. Þorlákssonar listmálara
og amma Jóns Þorkálssonar forsæt-
isráðherra. Elísabet var dóttir Jóns,
prófasts í Steinnesi, Péturssonar og
Elísabetar Björnsdóttur, prests á
Breiðabólstað, Jónssonar. Móðir
Magnúsar bakarameistara var
Kristín Ólafsdóttir, prests á Reyni-
völlum, Pálssonar, prests í Ásum
Ólafssonar, prests í Ásum, Pálsson-
ar. Móðir Páls á Ásum var Helga
Jónsdóttir eldprests, Steingríms-
sonar. Móðir Kristínar var Guðrún
Ólafsdóttir, Stephensen dómsmála-
ritara í Viðey, Magnússonar konfer-
ensráðs, Ólafssonar, ættfóður
Stephensenættarinnar. Móðir
Gunnars var Sigríður Eyjólfsdóttir,
ættuðúrKjósinni.
Ásthildur er dóttir Magnúsar,
skipstjóra í Hafnarfirði, Magnús-
sonar, b. í Skuld í Hafnarfirði, Sig-
urðssonar, b. í Tungu í Grafningi,
Sigurðssonar. Móðir Magnúsar í
Skuld var Ragnhildur Eiríksdóttir,
b. í Vetleifsholti, Steinssonar. Móðir
Magnúsar skipstjóra var Guölaug
Björnsdóttir, b. í Sölvholti í Flóa,
Jónssonar, b. á Galtafelli, Bjöms-
sonar. Móðir Guðlaugar var Sess-
elja Einarsdóttir, b. í Laxárdal í
Gnúpveijahreppi, Jónssonar. Móðir
ÁstMldar var Ragnheiður Þorkels-
dóttir, sjómanns í Reykjavík, Þor-
kelssonar, hreppstjóra á Herjólfs-
stöðum, Jónssonar, b. í Hraungerði,
Þorkelssonar.
Afmæli
Sigrún Gunnarsdóttir
Sigrún Gunnarsdóttir, starfsmaður
hjá Sjálfsbjörg, Nökkvavogi 37,
Reykjavík, er sextug í dag.
Starfsferill
Sigrún er fædd á Eiði í Eyrarsveit
og ólst þar upp. Hún lauk almennri
menntun úr farskóla sveitarinnar
og hefur lokið námskeiðum í að-
hlynningusjúkra.
Sigrún fluttist til Reykjavíkur 1950
og starfaði þar sem vinnukona í 3
ár. Hún vann hjá Fönn 1970-79 en
hóf þá störf hjá Sjálfsbjörg. Þar hef-
ur Sigrún verið varatrúnaðarmaður
og öryggistrúnaðarmaður.
Fjölskylda
Sigrún giftist 19.5.1956 Theodóri
Þorkeli Kristjánssyni, f. 19.3.1930,
d. 4.1.1979, sjómanni og síðar
starfsm. hjá Breiðholti hf. Foreldrar
hans: Kristján Erlendsson, f. 28.4.
1896, d. 22.8.1973, bóndi á Mel í Stað-
arsveit, og Guðrún Hjörleifsdóttir,
f. 20.6.1904, d. 12.10.1991, húsfreyja.
Börn Sigrúnar og Theodórs:
Bryndís, f. 19.8.1960, húsm. í Grund-
arfirði, gift Guðna E. Hallgrímssyni
rafvirkjam., þau eiga þijú börn,
Sigrúnu Hlín, Guðnýju Rut og Þor-
kel Má; Þröstur, f. 14.3.1963, stýrim.
í Grundarfirði, kvæntur Áslaugu
Ámadóttur húsm., þau eiga tvö
böm, Theodór Inga og Heiðrúnu
Lilju; Lilja, f. 26.4.1965, sjúkraliði í
Reykjavík, sambýlismaður Birgir
Guðmundsson vélvirki, þau eiga
einn son, ívar Þór; Hrönn, f. 30.8.
1967, þroskaþjálfanemi í Reykjavík;
Freyja, f. 7.11.1968, verslunarm. í
Reykjavík; Sveinn, f. 2.4.1974, húsa-
smíðanemi í Reykjavík.
Systkini Sigrúnar: Elís, f. 25.2.
1929, b. á Vatnabúðum í Eyrarsveit,
kvæntur Ragnhildi Kristjönu Gunn-
arsdóttur; Hjálmar, f. 5.3.1931, út-
gerðarm. í Grundarfirði, kvæntur
Helgu Ámadóttur; Garðar, f. 17.7.
1932, skipstjóri í Grundarfirði,
kvæntur Ólöfu Pétursdóttur; Sig-
urlín, f. 17.5.1936, húsfreyja að Þing-
völlum í Helgafellssveit, gift Hall-
verði Kristjánssyni; Helga Sofíía, f.
8.11.1937, húsfreyja að Suður-Bár í
Eyrarsveit, gift Njáli Gunnarssyni;
Jóhann Leó, f. 15.3.1941, múrari og
verslunarm. í Reykjavík, kvæntur
Svölu Svanfjörð Guðmundsdóttur;
Snorri, f. 22.9.1943, vélstjóri í Es-
bjerg í Danmörku, kvæntur Ingi-
björgu Kristinsdóttur; Þórarinn, f.
18.7.1947, skipstjóri í Grundarfirði,
kvæntur Finnbjörgu Jensen.
Foreldrar Sigrúnar: Gunnar Jó-
hann Stefánsson, f. 22.11.1903 í Efri-
Hlíð í Helgafellssveit, d. 23.7.1980,
bóndi á Eiði og harðfiskframleíð-
andi, og Lilja Elísdóttir, f. 24.7.1907
í Oddsbúð í Eyrarsveit, d. 31.5.1964,
húsfreyja. Þau bjuggu á Eiði í Eyr-
arsveit 1928-61 og í Grundarfirði
eftirþað.
Ætt
Gunnar var sonur Stefáns, b. í
Efri-Hlíð, Jóhannessonar, b. í
Drápuhlíð, Jónssonar. Móðir Stef-
áns og konu Jóhannesar var Hólm-
fríður Jónsdóttir. Móðir Gunnars
var Hjálmrós Ólafía, lengi húsfreyja
í Stykkishólmi, Ólafsdóttir, b. á
Hamri í Hörðudal í Dölum, Jónsson-
ar. Móðir Hjálmrósar var Svein-
gerður Sveinbjömsdóttir, b. á Vala-
björgum, Jónssonar.
Lilja var systir Gísla, foður Hólm-
fríðar, formanns Ættfræðifélagsins.
Lilja var dóttir Elísar, b. á Vatna-
búðum í Eyrarsveit, Gíslasonar, b.
Sigrún Gunnarsdóttir.
og sjómanns á Vatnabúðum, Guð-
mundssonar, b. og sjómanns á
Naustum, Guðmundssonar. Móðir
Guðmundar var Guðríður Hannes-
dóttir Bjamasonar og konu hans,
Guðrúnar Grímsdóttur. Móðir Guð-
rúnar var Oddný, systir Magnúsar,
sýslumanns í Búðardal. Oddný var
dóttir Ketils, prests í Húsavík, Jóns-
sonar og konu hans, Guðrúnar
Magnúsdóttur, systur Skúla fógeta.
Móðir Elísar var Katrín Helga-
dóttir, b. á Hrafnkelsstöðum í Eyr-
arsveit, Jóhannessonar og konu
hans, Sesselju Björnsdóttur, b. á
Mánaskála á Skaga, Bjömssonar.
Kristinn Sigtryggsson
Kristinn Sigtryggsson fram-
kvæmdastjóri, Keilufelli 9, Reykja-
vík, varð fimmtugur í gær.
Starfsferill
Kristinn er fæddur á Alviðm í
Dýrafirði. Hann varð löggiltur end-
urskoðandi árið 1970.
Kristinn vann við endurskoðun
hjá N. Mancher og Co. 1963-70 og
var framkvæmdastjóri Endurskoð-
unarmiðstöövarinnar hf. - N.
Manscher 1970-86. Hann var fram-
kvæmdastjóri Arnarflugs hf.
1987-90 og hjá Skífunni hf. - Bíó hf.
1991 um tíma. Kristinn starfar nú
við eigið fyrirtæki, Kontrapunkt hf.
Kristinn var formaður Félags
löggiltra endurskoðenda 1979-81.
Fjölskylda
Kona Kristins var Ingunn Ragn-
arsdóttir, f. 14.11.1944, verslunar-
maður. Þauskildu.
Böm Kristins og Ingunnar: Sigrún
Sif, f. 28.4.1971, verslunarstjóri; Sig-
tryggur Ragnar, f. 24.9.1974; Gunnar
Gils, f. 4.7.1981. Dóttir Kristins og
Sigríðar H. Ottósdóttur er Bergdís
Lilja, f. 15.8.1966.
Bræður Kristins: Gunnar Jón, f.
3.2.1928, trésmíðameistari; Kristján,
f. 8.6.1931, skólastjóri; Ólafur Hörð-
ur, f. 17.3.1934,framkvæmdastjóri.
Foreldrar Kristins: Sigtryggur
Kristinsson, f. 18.11.1896 á Núpi í
Dýrafirði, d. 1972, bóndi, ogKrist-
jana V. Jónsdóttir, f. 23.11.1904 í
Dýrafirði, d. 1984.
Ætt
Sigtryggur var sonur Kristins, b.
á Núpi í Dýrafirði, bróður Sig-
tryggs, prests á Núpi, fóöur Hlyns
veðurstofustjóra og Þrastar skip-
herra. Systir Kristins á Núpi var
Friðdóra, móðir Finns Sigmunds-
sonar landsbókavarðar. Kristinn
var sonur Guðlaugs, b. á Þröm í
Garðsárdal, Jóhannessonar, bróöur
Bjama, fræðimanns á Sellandi,
langafa Ingva, fóður Maríu, form-
anns Hvatar. Móðir Kristins var
Guðný Jónasdóttir, b. á Veturliða-
stöðum í Fnjóskadal, Bjamasonar,
systir Guðrúnar, konu Bjarna á Sel-
landi. Móðir Sigtryggs var Rakel
Jónasdóttir, b. á Ingveldarstöðum í
Hjaltadal, Jónassonar, bróður Elísa-
betar, móður Símonar Dalaskálds.
Móðir Jónasar var Hólmfríður Þor-
láksdóttir, móðir Sigríðar,
langömmu Margrétar, ömmu Héð-
ins Steingrímssonar, sem var
heimsmeistari unglinga í skák tólf
ára og yngri. Móðir Rakelar var
Margrét, systir Sigurðar, langafa
Páls Péturssonar alþingismanns.
Margrét var dóttir Halls, b. á Skúfs-
stöðum í Hjaltadal, Jónssonar, bróð-
ir Guðmundar, langafa Önnu, móð-
ur Matthíasar Johannessen skálds.
Kristjana var dóttir Jóns Ólafs,
skipstjóra á Flateyri, Kristjánsson,
b. á Alviðru í Dýrafirði, Jónssonar,
b. í AMöru, bróður Guðrúnar,
langömmu Jensínu, móður Gunn-
ars Ásgeirssonar forstjóra. Jón var
sonur Magnúsar, b. á Gerðhömrum
í Dýrafirði, Jónssonar, bróður Guð-
rúnar, langömmu Kristjáns, föður
Þorvalds Garðars, fyrrverandi al-
þingismanns, og langömmu Járn-
gerðar, ömmu Bernharðs, fréttafull-
Kristinn Sigtryggsson.
trúa þjóðkirkjunnar, og Kristjáns,
fyrrverandi bæjarstjóra í Kópavogi,
Guðmundssona. Móöir Kristjáns
var Borgný Guðmundsdóttir, b. á
Brekku, Hákonarsonar, bróður
Brynjólfs, langafa Maríu, ömmu
Guðmundar G. Hagalíns, rithöfund-
ar. Móðir Kristjönu var Guðrún,
systir Guðnýjar, móður Guðmund-
ar Gilssonar tónlistamanns. Guð-
rún var dóttir Gils, b. í Arnarnesi í
Dýrafirði, Þórarinssonar og konu
hans, Guðrúnar Gísladóttur.
Magnús Gunnarsson.
Til hamingju
með afmælið
3. febrúar
Kristín Berjgþóra Loftsdóttir,
Framnesi, Asahreppi.
Steinunn Jónsdóttir,
Hverfisgötu99a, Reykjavík.
Guðbjörg Árnadóttir,
Hringbraut 50, Reykjavik.
Alda J. Sigurjónsdóttir,
Hraunbæ 103, Reykjavik.
Sigurrós Þórðardóttir,
Hafnarbraut 31, Hólmavik.
Reynir Jónsson,
Smáragrund7, Ytri-Torfustaða-
hreppi.
GuðbjörgSv. Eysteinsdóttir,
Broddadalsá 2, Broddaneshreppi.
Einar Jóhannsson'vélstjóri
(áafmæli4.2),
Krummahólum 10,
Reykjavík.
Hanntekurá
mótigestumá
afmælisdaginn
í Risinu, Hverf-
isgötu 105 í
Reykjavík,frá
kl.20.
Emilia Jónsdóttir,
Jörundarholti 131, Akranesi.
Louise Anna Schilt,
Bugðutanga40, Mosfellsbæ.
Húneraðheiman.
Guðrún Eyjólfsdóttir,
Krossholti 12, Keflavik.
Ragnar Kristjánsson,
Mýrarkoti 6, Bessastaðahreppi.
Jóhanna H. Scheving,
Torfufelli 31, Reykjavík.
Guðrún Helgadóttir,
Lerkilundi 18, Akureyri.
Sonj a Nanna Sigurðardóttir,
Yrsufelli 1, Reykjavík.
Hreinn Gunnarsson,
Þórarinsstöðum, Hrunamanna-
hreppi.
40 ára
Sigurður Valur Hálldórsson,
Espigerði4, Reykjavík.
Ólafur Sigurðsson,
Svínafelli 1, Suðurbæ, Hofshreppi.
Ingunn Ólafsdóttir,
Hringbraut 74, Reykjavik.
Sigriður S. Rögnvaldsdóttir,
Mímisvegi 17, Dalvík.
Stefanía Þórný Þórðardóttir,
Sléttahrauni 17, Hafnarfirði.
Sigurður Ásgeirsson,
Urðarvegi 45, ísafirði.
Sveinn Jóhannsson,
Miðvangi 92, Hafnarfirði.
Sveinbjörn Valgeir Egilsson,
Fljótaseli 4, Reykjatlk.