Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1994, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1994, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 1994 Dagur í lífl Guðnýjar Guðmundsdóttur konsertmeistara: Bréfaskrif á kaffihúsi Á mánudagsmorgun var ég svo bjartsýn að ég lét vekjaraklukkuna hringja klukkan hálfsjö. Þegar ég vaknaði stillti ég hana klukkutíma seinna eða rétt fyrir klukkan hálf- átta því ég var ekki alveg tilbúin að vdcna svona snemma. Þá fór öll fjölskyldan á fætur og dóttir mín, tíu ára gömul, var drifin í skólann. Eftir að viö hjónin höfðum keyrt hana í skólann fórum við í Seltjarn- amessundlaugina eins og við ger- um yfirleitt á morgnana. Eg fór síð- an heim og fékk mér smávegjs að borða. Síðan lá leiðin vestur í Há- skólabíó en þar byrjaði klukkan hálftíu æfing með Sinfóníuhljóm- sveit íslands. Nýr gestasijómandi, Dietfried Bernet, stjómaði hljómsveitinni. Hann byrjaði á því að æfa forleik eftir Carl Maria von Weber að óper- unni Der Freischiitz fram að hléi. Eftir hlé tókum við að æfa Sinfóníu nr. 1 eftir Schumann. Æfingin stóð til klukkan korér fyrir eitt og eftir að hafa gengið frá ýmsum málum fyrir hljómsveitina fór ég beint niður í miðbæ þar sem ég þurfti að sinna ýmsum erindum. Ég þurfti að koma við í banka og fara á ferðaskrifstofu og kaupa far- seðla fyrir Trió Reykjavíkur en við erum á fórum til Danmerkur eftir helgina. Þegar erindunum var lokið skrapp ég inn á Sólon íslandus og fékk mér kakóbolla og rúnstykki. Ég náði því líka að skrifa sendibréf á kaffihúsinu áður en ég þurfti að þjóta áfram. Rúmlega hálfþijú ók ég niður að Dómkirkju þar sem ég var að fara að spila við jarðarför og lagði þar ólöglega en með samþykki lögregl- unnar. Þegar þessu verki mínu var lokið var æfing hjá Tríói Reykjavikur á dagskrá en ég freistaðist nú samt til að kíkja aöeins inn í skóverslun í fimm til tíu mínútur þar sem var útsala áður en ég hélt heim þar sem æfingin átti að vera. Þar biðu mín maðurinn minn, Gunnar Kvaran, og Halldór Haraldsson en það erum við þrjú sem myndum tríóið. Þeir voru þegar byijaðir að æfa þegar ég kom. Eg átti að taka á móti nemanda klukkan sex en hann forfallaöist þannig að við héldum æfingunni áfram til klukkan hálfsjö. Þá tók ég mér hálffima hlé, fékk mér te og las blöðin. Klukkan sjö kom til mín nemandi sem var hjá mér til klukkan átta. Þá voru maðurinn minn og dóttir mín löngu farin út að sinna eigin erindum. Þau höföu fundið sér eitt- hvað að borða í ísskápnum. Þetta hafði í raun verið minn dagur til að elda því að við skiptumst á en vegna anna hafði ég hvorki komist í búð né til að gera neitt af viti sem húsmóðir. Ég fann mér sjálf af- ganga til að borða og sat fyrir fram- an sjónvarpið þangað til maðurinn og dóttirin komu heim af fundi og kóræfingu. Ég lauk við að horfa á Já, ráð- herra og fór síöan að sinna dóttur minni og hjálpa henni í rúmið. Hún vill heyra gátur fyrir svefninn og einhvem veginn gat ég komið einni gátu frá mér sem henni líkaði. Þeg- ar dóttirin var sofnuð fór ég að taka til í skúffum og vinna í pappírum fyrir skattinn. Um hálftólfleytið gafst ég upp, reyndi að lesa svolítið en hef sennilega verið sofnuð um miðnætti. Finnur þú fnnm breytingai? 245 Myndir þú ekki vilja taka ryksuguna úr sambandi augnablik? Nafn:......... Heimilisfang: Myndimar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum hðnum birtum við nöfn sigurvegar anna. 1. verðlaun: Rummikub-spihð, eitt vinsælasta fiölskyldusph í heimi. 2 veröjaun: Fimm Úr- valsbækur. Bækumar, sem era í verðlaun, heita: Mömmu- drengur, Þrumuhjarta, Blóðr- únir, Hefia og Banvæn þrá. Bækumar em gefiiar út af Fijálsri fiölmiðlun. Merkið umslagið með lausn- inni: Finnur þú finun breytingar? 245 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík Vinningshafar fyrir tvö hundr- uð fertugustu og þriðju getraun reyndust vera: 1. Birgir Þór Þrastarson, Grænugötu 12, 600 Akureyri. 2. Arnfríður Jóhannesdóttir, Sandbakkavegi 6, 780 Höfn. Vinningamir verða sendir heim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.