Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1994, Side 31
LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 1994
43
Atvinnuleysi
og atvinnu-
missir
Vinnan tekur hlutfaUslega mfestan
tíma ævinnar. Hún mótar einstakl-
inginn, göfgar hann eða spilhr hon-
um. HoUvinur mannkynsins Sig-
mund Freud sagði á 4ða áratug ald-
arinnar að ekkert hefði eins mik-
inn mátt og vinnan tíl að treysta
samband mannsins við veruleik-
ann. Hann lét svo um mælt að ást-
in og vinnan væru athafnir sem
gerðu manninn að heilsteyptum
einstaklingi og kæmi þar ástin á
undan vinnunni. Ýmsar eiginkon-
ur vinnusamra manna á öUum
aldri efast þó um þessa niðurröðun.
Þær segja að vinnan komi á undan
ástinni og heimUinu.
Um iangt skeið var næga vinnu
að hafa á Islandi enda var mikU
þensla í efnahagslífinu. Menn gátu
farið á sjó, í byggingavinnu eða
aðra verkamannavinnu fyrirhafn-
arlítið en nú er öldin önnur. At-
vinnuleysi hefur haldið innreið
sína með tilheyrandi eymd og ör-
yggisleysi. Háir sem lágir missa
vinnu sína vegna flöldauppsagna,
lokana, gjaldþrota og endurha-
græðingar. í nágrannalöndum okk-
ar ríkir svipað ástand sem útilokar
utanferðir og flótta tU fjarlægra
landa. Fjölmargar rannsóknir sýna
að atvinnuleysi hefur skaðleg áhrif
á líf fólks. Dagarnir glata tilgangi
sínum, tUbreytingarleysi tílver-
unnar verður yfirþyrmandi og at-
vinnulausir virðast glata sjálfs-
virðingu sinni. Þessu fólki finnst
það vera fyrir í samfélaginu, hafa
misst öll áhrif og margir eru þeir
sem gefast upp í lífsbaráttunni og
telja sig best komna á opinberu
framfæri. Þetta ástand hefur í for
með sér aukna tíðni þunglyndis,
hjónaskUnaði og alvarlega upp-
lausn ífjölskyldum. Margir at-
vinnulausir leita sér huggunar í
áfengi eða öðrum vímugjöfum,
leggjast í spUafíkn eða velja sér ein-
hverja aðra flóttaleið frá veruleik-
anum. Skaðleg áhrif á sáhna auk-
ast eftir því sem atvinnuleysið
stendur lengur. Fólk fyUist heift og
reiði og vonleysi sem oft bitnar á
öðrum í fjölskyldunni; maka, börn-
um, foreldrum eða öðrum nákomn-
umættingjum.
Eins og ástvina-
missir
Þessi dapurlega upptalning skýr-
ir vel að margir hræðast atvinnu-
leysi meira en nokkuð annað. Fólk
viUaUttU þess vinna að hafa eitt-
hvert starf og rígheldur sér í skófl-
una sína, lyklaborð tölvunnar eða
stýrið á bUnum sínum og grátbiður
um að fá að halda vinnunni sinni.
Þessi ótti gerir atvinnuleysi að
ágætu stjórntæki í höndum ráð-
andi afla í þjóðfélaginu. ÖU verka-
lýðsbarátta verður mun erfiðari í
atvinnuleysi en á öðrum tímum.
Uppsagnir á fjölmiðlum eru mönn-
um áminning um að gæta vel tungu
sinnar og penna.
SkyndUegur atvinnumissir er að
mörgu leyti eins og ástvínamissir.
Grunnur tilverunnar virðist gliðna
í sundur. Margir eru þeir sem fá
margs konar líkamleg einkenni við
þessar aðstæður; meltingartruflan-
ir, nábít, svimaköst, hjartsláttar-
köst, andarteppu og önnur streitu-
einkenni. Fólk finnur hvemig ör-
yggi þess er ógnað og bregst við því
með reiði, beiskju og ásökunum.
Lævís og nagandi tUvistarkvíði
Álæknavaktmiú
læðist eins og vofa inn í sáUna og
eyðUeggur aUa lífshamingju og
sælu. Margir missa aUa von við
þessi ótíðindi. Þeir sjá engan tU-
gang í því að fara á fætur á morgn-
ana, missa aUt frumkvæði, leggjast
í sjálfsvorkunn og reglubundið líf
leggst í rúst.
Á þessum krossgötum verður sá
atvinnulausi að endurskoða Uf sitt.
Hann verður að finna að lífið sé
þess viröi að lifa því þrátt fyrir
tímabundna erfiðleika en leggjast
ekki í uppgjöf og vonleysi. Hann
þarf að átta sig á nýjum veruleika,
losa sig við það sem hann getur
verið án og endurskipuleggja fjár-
hag sinn. Á þessum tíma skiptir
miklu að fjölskyldan standi saman
og átti sig á nýjum veruleika. Menn
skUja í þessum þrengingum hverjir
eru raunverulegir vinir og hveijir
eru viðhlæjendur.
Menn þurfa að ná
áttum
Margar starfsstéttir hafa gengið
í gegnum mikla erfiðleika á Uðnum
tímum, bændur, málmiðnaðar-
menn o.fl. Það er mikUvægt að
stjórnvöld átti sig á sálrænum erf-
iðleikum atvinnulausra og hjálpi
þeim til aö ná áttum við breyttar
aðstæður á nýjan leik. Margir eru
þeir sem þarfnast mikUs stuðnings
í þessu gjömingaveðri svo að þeim
takist að ná einhveijum áttum á
nýjan leik.
Uppboð á lausafjármunum
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík, Gjaldheimtunnar I Reykjavík, skiptastjóra
dánarbúa, gjaldþrotabúa, ýmissa lögmanna, banka og stofnanna o.fl. fer
fram nauðungaruppboð laugardaginn 26. febrúar 1994 I uppboðssal toll-
stjórans I Reykjavík í tollhúsinu við Tryggvagötu, hafnarmegin, og hefst
þaðkl. 13.30.
Seldir verða eftir kröfu tollstjóra ýmsir lausafjármunir, ótollafgreiddir og
upptækir. Svo sem: Benz vörubíll, árg. 1985, 5.300 kg, Volvo 245 1979
1420 kg, Volvo vörubíll, yfirb. pallur, 1985, 7.150 kg, Suzuki mótorhjól,
alls konar varahlutir I bifreiðar, báta og skip, alls konar fatnaður á konur,
karla og börn, alls konar skófatnaður, auglýsingavörur, þakpappi, 865 kg,
veggasfalt, 705 kg, cylinderrör, ca 900 kg, kassettur, 156 kg, tölvuhlutir,
verkfæri, 8 pl. pokar, 6630 kg, öxlar, 675 kg, gólfteppi, ca 8000 kg, vefnað-
arvara, plastic items 1500 kg, sælgæti, hreinlætisvara, plötur ryðfr., rafmagns-
vörur, 16 cl dekk, ca 1680 kg, snyrtivara, linoleum, korkur, innrétting f.
verslun, marmari, fiskvél, sápur, lampaskermar, skápar, ruslafötur, gervigarn-
ir, 3 cl stál, ca 2000 kg, borð og könnur, ca 1222 kg, leirvörur, ca 950
kg, húsgögn, járnplötur, ca 2080 kg, rifill og margt fleira. \
Eftir kröfu ýmissa lögmanna, banka, sparisjóða og stofnana.
Svo sem: 6 víxlar, hver að fjárhæð kr. 220.000, útg. 11. júni 1993 af Ester
Antonsdóttur, samþ. til greiðslu af Þorbirni Pálssoni, ábektir af Karli PálsA
syni til greiðslu með mánaðar bili frá 12.10 '94-12.3 '95. Víxlar þessir eru\
óstimplaðir. Tvíþátta triflex D - ca 300 fm, triflex BT-svalagólf, 100 fm +
dúkur fyrir 400 fm, triflex, yfirborðsherðir, herðir v/þornunar, dip france
acryl þéttiefni, dip top vatnþéttiefni, ryðvarnarefni vatnafæla úr múr, bóka-
safn, ca 1500 bindi, m.m. Alls konar munir úr dánarbúum og þrotabúum,
rafsuðuvír, reiðahjólavarahlutir, 1 pl. leður, tannburstar, fatnaður, sjónvarps-
tæki, ca 50-70 stk., notuð, hljómflutningstæki, frímerki, mynt, alls konar
skrifstofubúnaður og húsbúnaður, heimilistæki og margt fleira.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki uppboðshald-
ara eða gjaldkera.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn í Reykjavík
Ef þú kauprir
nýjan eða notaðan
Skri-doo vélsleða
núna •••
færðu aukahlutri
að verðmætri
kr. 30*000«-
ókeypris!:
I^ÍSLI JÓNSSONHF
Bfldshöfða 14
112 Reykjavík
Sími686644
Tilboðið gildir eingöngu um vélsleða að verðmæti kr. 200.000,-
eða dýrari. Um uppítökur er ekki að ræða í tilboði þessu nema
að sérstaklega sé um samið. Umboðsmenn okkar eru: Bílval á
Akureyri, Nonni, Bolungarvík og Bílasalan Fell, Egilstöðum.