Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1994, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1994, Blaðsíða 32
44 LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 1994 Sviðsljós Ljósmyndari Benetton-fyrirtækisins: Kemur boðskap á framfæri með auglýsingunum Oliviero Toscani, ljósmyndari Benet- ton-fyrirtækisins, tók fyrst myndir þriggja ára gamaU. Oliviero, sem er fæddur 1950, var táningur þegar hann fékk myndir sínar birtar í dag- blöðum. Faðir Olivieros var aðalljós- myndari helsta dagblaðs Ítalíu, Corriere della Sera. Eftir að hafa stundað ljósmynda- nám, hönnun og grafík í listaskóla í Ztirich í Sviss fór Oliviero að mynda fyrir tískublöð eins og Elle, Vogue og Harper’s Bazaar. Eiginkona hans, Kristi, sem er norsk, var fyrirsæta. Þau eiga þrjú böm en Oliviero á einnig þrjú börn frá fyrra hjóna- bandi. Áður en Ohviero fór að valda nán- ast jarðskjálfta með myndum sínum fyrir Benetton var hann búinn aö sjá um auglýsingaherferðir fyrir Esprit Jeans, Club Mediterranée, Bata sho- es, PreNatal, Nordica ski og Fi- orucci. Til Benetton kom hann 1982. Hann segist flytja heim þjóðfélags- legra vandamála inn í draumaheim auglýsinganna. Hann segir að ímyndin sé raunverulegri en sann- leikurinn. „Rithöfundar leita að sannleikanum með orðum. Listmál- arar leita einnig að sannleikanum. En ljósmyndin er raunveriUegri en raunveruleikinn. Takið eftir þvi.“ Árlega berast Benetton-fyrirtæk- inu yfir eitt þúsund bréf þar sem menn lýsa ýmist ánægju sinni eða óánægju með ljósmyndaherferðirn- ar. OUviero kveðst fremur kjósa óánægjubréfin því þau opni augu hans fyrir möguleikum sem hann hafi ekki séð. Hann segir að eyðniauglýsingarnar hafi haft þau áhrif að fólk er nú meðvitað um mál sem margir hefðu kosið að þegja yfir. Hvort sem menn hrífast af Benet- ton-auglýsingunum eða ekki þá hafa þær vakið athygli. Fluttir hafa verið fyrirlestrar um þær í háskólum í New York, London, Madrid, Frank- furt, Moskvu, Istanbul, Kaíró, Stokk- hólmi, Jóhannesarborg, NapóU, Flórens og Mílanó. Myndataka hjá Oliviero getur kost- að allt að 70 milljónir króna. En hann tekur einnig að sér að mynda fyrir ekki neitt ef honum finnst málefnið mikilvægt og þeir sem leitað hafa til hans eru féUtlir. Auglýsingin með blökkukonunni meó hvítt barn á brjósti vakti gífurlega athygli. Oliviero með þremur barna sinna, Rocco, Lola og Ali. Ætlar aldrei að giftast aftur Veronica Hamel, sem lék saksókn- sjúkrahúsi á deild fyrir böm sem Veronica Hamel í hlutverki sínu í Hill Street Blues ásamt Daniel Tra- vanti sem lék Frank Furillo. arann Joyce Davenport í sjónvarps- myndaflokknum Hill Street Blues, hefur engan áhuga á fostu sam- bandi. það eru um átta ár síðan hún skildi við leikarann Michael Irving og síðan hafa verið ýmsir menn í lífi hennar en enginn sem hún viU bursta tennur við hliðina á í baðher- berginu á morgnana. Veronica, sem er 48 ára gömul, segist hafa nógan félagsskap af síamsköttunum sínum tveimur og börnunum sem hún heimsækir á sjúkrahús. Hún starfar sem sjálfboðaUði á hafa verið misnotuð kynferðislega. Veronica kveðst sjálf hafa verið mis- notuð af skólabræðram sínum. Þeir hafi neytt hana til að afklæðast en ekki þvingað hana tU neins annars. Það hafi samt tekið hana mörg ár að jafna sig. Veronica er fædd í PhUadelphiu í Bandaríkjunum. Faðir hennar gerði við gömul húsgögn og móðir hennar sinnti húsmóðurstörfum að mestu. Fjölskyldan var ekki auðug en nú eru fjárráð Veronicu svo góð að hún þarf ekki að eltast við hlutverk. fritíma sínum starfar Veronica á deild fyrir börn sem hafa verið mis- notuð kynferðislega. Ólyginn ... að það vaeri álit lækna að það væri ekki heilsusamlegt að gera æfingar eins og Sylvester Stallone þannig að æðarnar yrðu eins og ormar utan é líkamanum. .að kvlkmyndaleikarinn Tom Cruise hefði þurft að léttast um 17 kiló vegna vamplruhlutverks. Tveir kokkar hafa séð um að elda kaloríusnauðan mat handa stjörnunni sem er orðin mögur og kinnfiskasogin. ... að Victoria Sviaprinsessa væri ekki alltaf ánægð þó hún brosti breitt opinberlega. Það er skólinn sem veldur henni áhyggjum eins og svo mörgum unglingum. Bekkjarfélögum hennar fækkar því þeir sem tii- heyra ekki kliku prinsessunnar eru óánægðir i bekknum. ...að Bill Wyman, sem nú er 57 ára, ætti von á bami með eig- inkonu sinni Suzanne sem er 34 ára. Fyrir á hann 31 árs gamlan son með fyrrverandi konu sinni sem er móðir Mandy Smith. ... að Jóakim Danaprins, sem er 24 ára, hefði sagt kærustunni sinni, Iben Detlefs, upp simleiðis en þau hafa verið saman i fimm ár. Menn velta þvi nú fyrir sér af hverju prinsinn hafi verið svo kjarklítill að nota simann við uppsögnina. að Jack Nlcholson og gamla kærastan hans, Anjelica Huston, sem hann yfirgaf endanlega fyrir nokkrum árum, hefðu sæst Þau eru sögð ætla að leika saman i kvikmynd á næstunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.