Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1994, Page 2
2
MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1994
Fréttir
Kratar hafna konunum í prófkjöri 1 Hafnarfirði:
Aðeins ein kona í
átta efstu sætum
- Ómar Smári náði fimmta sætinu með örlitlum mun
Allir fjórir bæjarfulltrúar Alþýðu-
flokksins í Hafnarfirði sem gáfu kost
á sér í prófkjörinu, sem fór fram um
helgina, hlutu afgerandi kosningu í
fjögur efstu sæti listans.
Samkvæmt úrslitum prófkjörsins,
sem voru ljós á sjötta tímanum í
morgun, skipar Ingvar Viktorsson
bæjarstjóri fyrsta sætið með 83 pró-
sent greiddra atkvæða. Valgerður
M. Guðmundsdóttir skipar annað
sætið með 36 prósent atkvæði á bak
við sig. Þriðja sætið skipar Tryggvi
Harðarson með 37 prósent atkvæða
í það sæti og Ámi Hjörleifsson skipar
fjórða sætið með 31 prósent atkvæða
í það sæti.
Allt frá fyrstu tölum mátti ljóst
vera að röðun í fjögur efstu sæti yrði
þessi enda var kosningavaka krata
með daprara móti. Einungis örfáir
fylgdust með fram til klukkan rúm-
lega tvö þegar búið var að telja rúm-
lega tvö þúsund atkvæði.
Hart barist um fimmta sætið
Hins vegar var hörð barátta þar til
talningu lauk um hverjir myndu
skipa fimmta til sjöunda sæti hstans.
Skiptust Ómar Smári Ármannsson
aðstóðaryfirlögregluþjónn og Eyjólf-
ur Sæmundsson verkfræðingur á að
vera í fimmta og sjötta sæti en Þórir
Jónsson deildarstjóri fylgdi þeim fast
á eftir. Það var svo ekki fyrr en loka-
tölur voru birtar að ljóst var að
Ómar skipar fimmta sætið. Þórir
skaust upp í það sjötta en Eyjólfur
féll í sjöunda sætið. Einungis skildu
39 atkvæði Ómar og Þóri að í fimmta
sætið. Munurinn var enn minni í
sjötta sætiö en þar skildu sex at-
kvæði Þóri og Eyjólf að.
Athygli vekur að þrátt fyrir að lítið
hafi borið á Ómari í kosningabarátt-
unni og lítil smölun hafi átt sér stað
af hans hálfu er hann sá maður sem
hækkar mest í efstu sætum listans.
Guðjón Sveinsson varabæjarfull-
trúi skipar áttunda sætið, Þórdís
Mósesdóttir það níunda, Anna Krist-
ín Jóhannesdóttir þaö tíunda, Helga
Spáð í nýjar tölur í prókjöri Alþýðuflokksins í Hafnarfirði í nótt. Hér ræðir Eyjólfur Sæmundsson brúnaþungur við
Guðmund Árna Stefánsson heilbrigðisráðherra og Ólaf Þ. Harðarson lektor. DV-mynd ÞÖK
Hafdís Magnúsdóttir ellefta sætið og
Kristín List Malmberg það tólfta.
Ungliði fyrst í 12. sæti
Kristín er jafnframt sá ungliði sem
náði hæst á listann en af þrjátíu þátt-
takendum í prófkjörinu voru 14 frá
félagi ungra jafnaðarmanna. Er mál
manna að slælegt gengi þeirra í próf-
kjörinu megi skýra með hve atkvæði
dreifðust á neðri sætin á listanum.
Annað sem vekur athygli er lélegur
árangur kvenna. Aðeins ein kona
skipar átta efstu sæti listans en fram-
bjóðendur í prófkjörinu skiptust til
helminga eftir kyni. Samkvæmt
heimildum manna innan kjörstjóm-
ar dreifðust atkvæöi einnig nokkuð
jafnt á konumar og vann það gegn
gengi þeirra í prófkjörinu. Önnur
skýring sem nefnd hefur verið er hve
duglegir karlamir í efstu sætunum
voru og harðir í kosningasmölun.
Mikii þátttaka var í prófkjörinu en
alls kusu 3157 og voru 3084 atkvæð-
anna gild. Er þaö 63 prósent fjölgun
frá árinu 1990 þegar rúmlega 2000
kusu. Vert er að geta þess að árið
1990 kusu rétt yfir 4000 manns A-
listann.
Segja gárungamir að ef þátttaka í
prófkjörinu 1990, fjöldi þeirra sem
kusu listann og þátttaka í prófkjör-
inu nú sé sett í þríliðu megi ætla að
kratar nái sjö mönnum inn í næstu
kosningum en ekki sex eins og sein-
ast. -PP
Mikil þátttaka í prófkjöri Alþýðuflokksins í Kópavogi:
Kristján hirti
annað sætið
- Sigríður Einarsdóttir féll 1 flórða sæti
Stuttar fréttir
Hvaleyrinminitkar
Hvaleyrin og golfvöllur Hafh-
firðinga eru í hættu. Samkvæmt
Sjónvarpinu verða um 80 sentí-
metrar af strandlengjunni sjáv-
aröflunum að bráö á ári hverju.
Norðlægurstyrkur
Félag íslendinga á norðurslóð-
um, SIDS, veitti nýverið 11 aöil-
um styrk að upphæð samtals eiri
milljón. Hæstan styrk hlaut leik-
hópurinn Sleggjan sem vinnur að
hátíðardagskrá i tilefni lýöveldis-
hátíðarinnar.
Sérnám fyrir fóstrur
Fósturskólinn mun á næsta
skólaári bjóða fóstram upp á eins
árs framhaldsdeild. Meginvið-
fangsefni námsins verður börn
með sérþarfir. Námið er viður-
kennt sem eitt námsár við Sér-
kennaraháskólann í Ósló.
Vorboðamirljúfu
Til lóu sást í Grímsey í gær og
lundi gerði vart við sig í Vest-
mannaeyjum um helgina. RÚV
sagði frá þessum fyrstu vorboð-
umársins. -kaa
„Flokkurinn er í sókn. Liggur það
ekki beinast við. Menn hafa orðið
fyrir miklum vonbrigðum með nú-
verandi meirihluta. Svo uppskera
menn sem þeir sá,“ sagði Guðmund-
ur Oddsson, oddviti lista Alþýðu-
flokksins í komandi bæjarstjórnar-
kosningumí Kópavogi, eftir að ljóst
var að 989 manns höfðu tekið þátt í
prófkjöri alþýöuflokksmanna í
Kópavogi. Er það rúmlega 60 pró-
senta aukning frá því seinast þegar
618 manns tóku þátt.
í síðustu kosningum kusu rúmlega
þrefalt fleiri flokkinn en tóku þátt í
prófkjöri. „Ef það má leyfa sér það
að vera með líkindareikning þá sýn-
ist mér með svipaðri aukningu og við
fengum í þessu prófkjöri að við fáum
liðlega þrjú þúsund atkvæði í vor og
það þýöir fjórir menn,“ sagði Guð-
mundur. Kratar fengu þrjá bæjar-
fulltrúa síðast.
Eins og fyrr sagði skipar Guð-
mundur Oddsson skólastjóri fyrsta
sæti hstans. Hann hlaut 514 atkvæði
í fyrsta sæti eða 841 atkvæði alls.
Kristján Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri kom nýr inn á listann
og skaust í annað sætið með 537 at-
kvæði eða 793 atkvæði alls. Þriðja
sætið skipar Helga E. Jónsdóttir
fóstra meö 457 atkvæði. Helga skip-
aði þriðja sætið í síðustu kosningum
og heldur því sínu sæti. Hún hlaut
225 atkvæði í annað sætið. Sigríður
Einarsdóttir myndmenntakennari,
sem var í öðru sæti í síðustu kosning-
um, féfl hins vegar í fjórða sætið og
fékk 417 atkvæði í það sæti. Ingibjörg
Hinriksdóttir lenti í fimmta sæti list-
ans og Margrét B. Eiríksdóttir í því
sjötta. Þau hlutu öll bindandi kosn-
ingu í prófkjörinu.
Önnur úrslit urðu þessi: Kristín
Jónsdóttir sjöunda sæti, Gunnar
Magnússon áttunda sæti, Hreinn
Hreinsson níunda sæti, Loftur Þ.
Pétursson tíunda sæti, Ágúst H.
Jónsson ellefta sæti og Helgi J.
Haukssontólftasæti. -pp
Ingvar Vlktorsson: Vantarkonur
a miðjuii „Það má þakka ára góðu starfi flokksins í ia ngurinn bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar. Þátttakan er framar öllum vonum og eigin- lega frábær og við treystura okk-
ur vel til þess að hald meirihluta. Það má hin segja aö það vanti kvc a okkar s vegar nfólk á
miðjuna hjá okkur. Það kannski kemur manni á óvart því að við
V UIW Uí legar konur. Kannski jc atkvæðin of mikið út á ifnuðust þær en
hann lítur út,“ segir Ingv ems og ar Vikt-
orsson. Valgerður M. Guðmi -pp mdsd.:
Kemurek áóvart :ki
„Ég þakka árangurinn fremst vel unnura stör stuðningsfólki og svo hef veríö sterk fyrir í bæjí inni,“ segir Vaigerður I fyrst og um hjá ég bara irsfjóm- v Æ Guð-
mundsdóttir. „í sjálfu sér kemur þe þátttaka í prófkjörinu mc óvart. Það eru það mar ssi góða r ekki á gir sem
taka þátt i prófkjörinu en ég held
hka að þetta veki spurnn agar um
nvuu vau ruaicu J.UILUH cuxvi au bæta við okkur fylgi á lands-
vísu,“ segirValgerður. -PP
tjuomunaur uaasson: Afskaplega
ánægðu r
„Ég er afskaplega ánæg úrslitin og sérstaklega ðurmeð þátttök-
una. Mér sýnist þetta sigur-
stranglegur listi. Eg ati i svona \hit« I7f
þessi hlutfallslega aukn: var í prófkjörinu, heldi ng, sem ar sér í
kosmngunum þá erum við nokk- uð örugg með fjóra menn,“ segir
Hann er lika mjög e nægður
með röðun kynja á listanr í. -pp
tfricfián OnAyvmrif
Áranaur okkar
„I fyrsta lagi erum við vinna mjög vel að þessu búin að sem að
þessu stöndum þannig er ekki bara minn árangi er árangur okkar aflra sí lega. Ég er náttúrleea b að þetta ir, þetta imeigin- úinn aö
vinna hér í 20 ár og annaðhvort hef ég kynnt mig vel eða illa. Þeg- ar Ijóst var að þessi flöldi tæki þátt í framboðinu þá var það hug-
ur okkar Guðmundar að stefna að því að vinna virkilega vel sam- an og það hefur tekist," segir
Kristján Guðmundsson, sem
skipar annað sæti lista krata í
Kópavogi. -pp
Sigríður Einarsdóttir: MÁWi
viðþess „Mér líst vel á þessi úr fyrir að fara niður um u slit þrátt vö sæti.
hg nt eKKi a þetta sem Við reiknuðum með því við fengum Kristján Gut son, sem er mjög vinsæ) í bænum, og ég mátti alv höfhun. eftir að imunds- 1 maður eg búast
VIO pessu. Eg DJQSt VIO t ég kæmist ekki í annað myndi ég lenda í því f ekki fimmta. Ég tel þetta þetta er baráttusætið ef um mið af þátttöku í pról >ví að ef sætið þá jórða ef gott því við tök- kjörinu.
Ég vona aö ég geti stað því,“ sagöi Sigríður Eina sem lenti i fjórða sæti í i inu. ið undir rsdöttir, >rófkjör-
-pp