Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1994, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1994, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1994 Fréttir Bnminn við Holtsgötu í Reykjavík: Eina hugsunin var að komast út með börnin segir Halldóra Valgarðsdóttir sem vaknaði við reykskynjarann „Viö höfðum sofnað út frá sjón- varpinu þegar ég vaknaði við reyk- skynjarann. Ég hafði svo miklar áhyggjur af bömunum að mér datt ekki í hug að fara upp og athuga aðstæður. Við fórum bara beint út, það komst ekki önnur hugsun að,“ sagði Halldóra Valgarðsdóttir í sam- tali við DV en hún var ein ásamt tveimur sonum sínum í húsinu að Holtsgötu 9 í Reykjavík þegar eldur kom þar upp á laugardagskvöldið. Halldóra var ásamt 4 ára syni sín- um að horfa á sjónvarpið á neðri hæðinni og 11 mánaða sonur hennar var sofandi á sömu hæð. Eiginmaður HaUdóra og 13 ára sonur þeirra voru ekki heima. Eldurinn kom upp í eld- húsi á efri hæðinni og átti Halldóra greiða leið út um dyr á neðri hæð- inni. Hún lét nágranna vita sem síð- an hringdu á slökkviliöið. „Þegar ég kom út sá ég að allt var svart á efri hæðinni og kominn mik- ill reykur. Ég fékk inni með strákana hjá nágrönnum og fyrst þorði ég ekki A brunastað. Reykkafarar voru sendir inn i húsið. DV-mynd ÞÖK að kíkja út á húsið. Tjónið er tilfmn- anlegt en það er ljóst að reykskynjar- inn hefur bjargað miklu,“ sagði Hall- dóra. Miklar reyk- og vatnsskemmdir urðu á húsinu, sem er 70 ára gamalt steinhús, kjaUari, hæð og ris, en slökkvUiðinu tókst að koma í veg fyrir frekari skemmdir. Eldurinn virðist hafa komið upp í eldhúsinu þar sem mestar skemmdir urðu þar. En ekki er nánar vitað um eldsupp- tök. Gefast ekki upp Eiginmaður Halldóru, Sæmundur Aðalsteinsson, var að vinna þegar eldurinn kom upp. í samtaU við DV í gær sagði hann mikiö starf fram undan aö gera við húsið en það ásamt innbúi var aUt tryggt. Búið var aö gera nokkrar endur- bætur á húsinu að innan síðustu ár en sú vinna er farin forgörðum. En fjölskyldan ætlar ekki að gefast upp. „Það veröur bara að hefja uppbygg- ingarstarfíð aftur,“ sögðu Sæmund- ur og HaUdóra viö DV í gær þegar þau könnuðu aðstæður á heimiU sínu. -bjb Fjármálaráðherra staðfestir afturköllim tollstjóra á innflutningsleyfi: Kalla þetta valdníðslu - segir Haukur Hjaltason hjá Dreifingu sf. sem undirbýr málshöfðun „Ég hyggst leita til færastu lög- manna. Mér sýnist í stöðunni að það verði því miður dómstólarnir sem verði að hnekkja þessu hjá ráðherr- anum,“ segir Haukur Hjaltason, framkvæmdastjóri Dreifingar sf. Fjármálaráðherra staðfesti á föstu- dag afturköllun toUstjóra á innflutn- ingsleyfi, Dreifmgu sf. til handa, á tæpum 200 kílóum af kjúkUngabring- um sem Haukur flutti til landsins fyrr í þessum mánuði. Haukur segir að í bréfi fjármála- ráðherra til Dreifmgar komi meðal annars fram að fjármálaráðherra vUji ekki taka afstöðu tU lögmætis yfirlýsingar yfirdýralæknis að hann sé með lögin á bak viö sig. „í upphaflegu leyfi toUstjórans í Reykjavík kemur fram að úrskurðin- um veröi ekki hnekkt nema af æðra stjórnvaldi. Það æðra stjómvald hafði ekki afskipti af þessu máli á réttum tíma, eða áður en varan var leyst út. Aftur á móti hafði deUdar- sfjóri 1 tolUnum símasamband við okkur og sagði að yfirdýralæknir krefðist vottorða. Embætti yfirdýra- læknis er jafnsett embætti toUstjóra en ekki æðra stjómvald. Mér finnst þetta skelfilegt í raun og vera. Það er margbúiö aö benda þessum aðUum á að þama sé farið offari í að bijóta lög. Hæstiréttur er búinn að dæma hvað varðar Hag- kaupsskinkuna. Engin lög hafa verið sett síðan sem ganga gegn dómi Hæstaréttar. Það er hreint og klárt verið að berjast gegn ákveðnum inn- fiutningsmálum langt umfram það sem menn hafa heimUd tíl. Þetta kalla ég valdníðslu," segir Haukur. -pp „Veiöín á Ólafsfjarðarvatni var feUcnagóð i dag og fjöldinn var ótrúlegur þegar mest var, rétt kringum 200 manns á öllum aldri. Veðrið var líka ákaflega gott og það vora sUungar og kolar sem veiddist mest af en það fengust 5 laxar líka,“ sagöi Bjöm G. Sig- urðsson, formaður Dorgveiðifé- lags islands, í gærkvöld, en góð veiði hefur verið á vatninu síð- ustu vikurnar og veiðidagur fjöl- skyldunnar var í gærdag á Ólafs- fjaröarvatni í Ólafsfirði. „í yngri flokknum vann Bragi Óskarsson og fékk hann veglegan bikar tU eignar. En í eldri flokkn- um vami Rúnar Þór Bjömsson og vann hann líka bikar tU eign- ar. Mér sýnist að það hafi veiöst vel yfir 180 fiskar og laxarnir voru þeír stærstu. Ólafsfiarðar- vatn er topp dorgveiðivafn og það verður ekki mikUl vandi að halda heimsmeistaramótið á því 1997,“ sagði Björn G. í lokin. -G.Bender Háaleitisbraut: nr_____m m ■ mmm hirtu stuðarann „Dóttir mín ætlaði í skólann einn morguninn og settist inn í bilinn en fannst svo eitthvað hafa vantað á hann. Þegar hún athug- aði málið betur sá hún að stuðar- inn haföi veriö skrúfaöur af bíln- um og honum stolið. Númersplat- an er áföst stuðaranum og hafði henni verið stolið líka,“ segir móðir stúlku sem varð fyrir því um daginn að bíræfnir þjófar stálu stuðara af bíl hennar. Stúlkan býr við Háaleitisbraut og var bílnum lagt fyrir utan blokk sem hún býr í, hreinlega fyrir utan svefnherbergisglugga hennar. Þjófarnir létu stuðarann ekki nægja heldur stálu líka bensíni af bíl stúlkunnar. Þjófnaðurinn var kærður til RLR. Samkvæmt upplýsingum DV var bensíni stolið af fleiri bíl- umínágrenninu. -pp í dag mælir Dagfari Haft er eftir einum þingmanni stjómarliðsins að ríkisstjómin sé eins og heiladauð manneskja í önd- unarvél. Þetta er hnyttilega mælt. Það er kannski ekki rétt að ríkis- stjórin sé heiladauð og heldur ekki að hún sé eins og manneskja en hún er örugglega í öndunarvél til að halda í sér lífinu. Meðan ríkisstjómin er í öndunar- vél er ekkert að óttast. Hún mun ekki deyja og þótt dagar hennar séu hugsanlega taldir hvað varðar ákvarðanir og samstarf liggur það samkomulag fyrir milli formanna stjómarflokkanna að ríkisstjórnin muni ekki springa á landbúnaöar- málinu. Þar af leiðandi munu þeir sitja í ríkisstjórninni áfram enda þótt þeir séu hættir að tala saman og enda þótt þeir nái ekki sam- komulagi í landbúnaðarmálinu. Aðalatriðið í þessu máli er að hafa ríkistjórn. Minna máli skiptir hvort þeir í ríkisstjórninni tali saman. Hvað eiga þeir svo sem að vera að tala um? Veðrið? Egil? Ef þeir eiga að tala saman um landbúnaðarmálin þá liggur það fyrir að það er ekkert um að tala. Jón Baldvin hefur margsagt að Al- þýðuflokkurinn vilji það eitt að staðið verði við samkomulagið sem frekar. Svo má einnig halda því fram að pólitíkin sé þannig að menn geta ekki alltaf verið sammála og þá er óþarfi að eyða orðum að því eða sífellt að vera ræða það að menn séu ósammála. Ef menn eru sam- mála um að sitja í ríkisstjóm sam- an þá gerir það ekki svo mikið til þótt þeir séu ekki sammála um alla skapaða hluti í pólitíkinni, svo lengi sem þeir sitja í ríkisstjórn. Fólkið í landinu þarf ríkisstjóm og ráðherrarnir hafa gaman og gagn af því að sitja í ríkisstjóm. Hvort þeir leysi mál eða standi við sam- komulag eða túlki orðalag á sama hátt er allt annaö mál og kemur ríkisstjómarsamstarfinu ekkert við. Þar að auki geta menn verið sam- mála um að vera ósammála og það þarf engar viðræður um það. Sem sagt, ráðherrar eiga ekki að þurfa að tala saman eftir að þeir era búnir að tala sig saman um myndun ríkissfiórnar. Þess vegna tala þeir saman í lágmarki, þeir Davið og Jón Baldvin. Það er þá ekki ósamkomulag á meðan. Þann- ig lifa þeir góðu lífi í öndunarvél- inni. Dagfari í öndunarvél gert var milli sfiómarflokkanna og þaö er alveg skýrt af hans hálfu. Davíð segir að frumvarpið um landbúnaöarmálin sé alveg skýrt og í fuUu samræmi við samkomu- lagið sem gert var milli sfiórnar- flokkanna. Þannig era þeir báðir formenn- imir algjörlega klárir á því um hvað var samið og enda þótt það sé mismunandi túlkun þá er þetta svo ljóst að menn þurfa ekki að eyða orðum að því. Þetta getur kannske verið spuming um orða- lag þegar menn gera samkomulag, en það má leysa án þess að menn séu sífellt að tala saman og raunar getur það beinlínis verið til baga ef þeir ráðherramir og formenn- imir tala saman. Ef þeir tala saman á annaö borð þarf jú að nota orð og orðalag. Ekki nota þeir búktal eða táknmál og kunna sjálfsagt hvorugt, nema þá þegar þeir gretta sig eða brosa í sjönvarpinu, en því látbragði er ekki að treysta. Eftir því sem menn brosa meira framan í sjónvarpsvélamar því lieitara er þeim í hamsi. Brosið á Davíð hefur til að mynda breikkað og stækkað eftir því sem hann hefur haft meira amstur og áhyggjur af landbúnað- ardeilunni, sem hann segir að sér stormur í vatnsglasi. Nei, formennimir þurfa ekki að tala saman og era hættir að tala saman. Það er varúðarráðstöfun vegna misskilnigs á orðalagi, sem getur einungis orðið til að flækja málið enn meir, ef Davíð segir eitt- hvað sem Jón Baldvin misskilur og Jón Baldvin hefur orð á ein- hverju sem Davíð skilur öðravísi heldur en það er meint. Ríkisstjómarsamstarfið byggist einmitt á gagnkvæmu trausti á því aö samkomulag blífi og stjómar- samstarfið lifi og meðan stjómin lifir þurfa ráðher-rar ekki að vera skiptast á skoöunum til að hafa skiptar skoðanir þegar þeir eru sammála um að þeir hafi gert sam- komulag sem þarf ekki að ræða

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.