Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1994, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1994, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1994 15 Hörð er stétta- baráttan KjaUaiinn Árni Bergmann rithöfundur „Úr öllum áttum - Bandaríkjunum sem Islandi - berast nefnilega þær fréttir að hæstu laun vaxa hratt á meðan meðaltekjur og lægstu laun standa í stað eða blátt áfram lækka.“ „Munurinn er barasta sá að við lifum ekki á tíma verkfalla. - Stéttabar- áttan hefur fært sig um set.“ Er maðurinn vitlaus að vera að fjasa um stéttabaráttu? Er hann út úr kú? Veit hann ekki að stéttabar- áttan er löngu dauð, rétt eins og marxisminn og sósíalisminn og allt það dót? Með öðrum orðum: Það er ófínt og óviðeigandi að tala um stétta- baráttu. Og þó stendur hún með miklum blóma. Munurinn er barasta sá að við lifum ekki á tíma verkfalla. Stéttabaráttan hefur fært sig um. set. Hún er núna fyrst og fremst háð af þeim sem betur mega sín. Þeim sem eiga hlutabréfin og fyrir- tækin og stjórna þeim. Með miklum árangri Þeir berjast hart og títt og ná miklum árangri. Alltaf er verið að létta álögum af fyrirtækjum, tryggja skattaafslátt út á fjárfest- ingar og verðbréfakaup. Þetta er gert með þeim lævísa formála að viðkomandi séu alls ekki að bæta eigin hag heldur barasta „sam- keppnisstöðu atvinnulífsins“. Um leið er þvi með öllum hugsanlegum ráðum lætt inn hjá saklausum al- menningi að það sé náttúrulögmál sem engum komi við að þeir sem mest hafa fái enn meira í sinn hlut. Úr öllum áttum - Bandaríkjunum sem íslandi - berast nefnilega þær fréttir að hæstu laun vaxa hratt á meöan meðaltekjur og lægstu laun standa í stað eða blátt áfram lækka. Og þau lækka ekki síst vegna þess aö verkalýðshreyfingin er eins og lömuð og kann engin ráð við því að atvinnuöryggi er nú úr sögunni. Þar með eru flestir dæmdir til þess að vera í grimmri samkeppni við náungann um þau takmörkuðu gæði sem pláss á vinnumarkaði eru orðin. Og þá neyddir til að bjóða niður kjörin fyrir næsta manni. Saklausir ákærðir Samt finnst þeim sem ráða um- ræðunni og fjölmiðlunum aldrei nóg að gert. Nýlegt dæmi um það eru skrif sem miða að því að kenna launafólki og samtökum þess um atvinnuleysið. Hagfræðiprófessor og dóm- kirkjuprestur taka saman höndum um þá kenningu aö vinnumarkað- urinn íslenski sé ekki nógu „sveigj- anlegur". Átt er við það að ef ekki væru í gildi kjarasamningar um lágmarkslaun fyrir tiltekin störf þá væru fleiri ráðnir í vinnu. Manni skilst á slíkum skrifum að helsta ráðið gegn atvinnuleysi sé að af- nema kjarasamninga svo að hver og einn geti boðið niður veröið á vinnuafli sínu. Þetta er lúmsk kenning og ill. Hún hefur eitthvað til síns máls eins og allar kenningar. Kannski væru fleiri ráðnir í vinnu ef allt kaup lækkaði um svo sem fimm prósent. Og á hálaunasvæðum (ís- land er reyndar ekki eitt þeirra) er svo sem ekkert að því að fólk leggi nokkuð á sig tii að fækka atvinnu- leysingjum. En hræsnin í þessari kenningu er engu að síður mikil. í fyrsta lagi: hún gleymir því að þótt menn gefi upp á bátinn heildarkjarasamn- inga þá er samt alls ekki tryggt að þaö skili sér í nýjum störfum sem svara til þeirra launagjalda sem sparast. í öðru lagi gerir slík kenn- ing alls ekki ráð fyrir því að þeir sem mestar tekjur hafa taki á sig minnstu fómir við slíka „kerfis- breytingu" - þeir eru stikkfrí í dæminu, eins og reynslan af „for- stjóragræðginni“ sannar. í þriðja lagi er hér verið að koma sök og samviskubiti á þá sem ekki hafa annað til saka unnið en að setja traust sitt á samtök sín og samn- ingsrétt - svo að ekki séu allir launamenn í eilífðarslag við alla um lágmarkskjör fyrir sitt vinnu- framlag. Árni Bergmann Þórarinn í þröngum stakki Þau tíðindi sem urðu er BSRB og ríkisvaldið gerðu með sér sam- komulag fyrir jólin virtust fara ósegjanlega í taugarnar á aðilum eins .og VSÍ. Þórarinn V. Þórarins- son framkvæmdastjóri, sem ævin- lega segir við samningagerð að samningsaðilum sé afar þröngur stakkur skorinn, gat ekki hamið beiskju sína í sjónvarpsfréttum. Hann kvað samningana ekki vera ábyrga. Þar væri BSRB að taka ávinninga frá öðrum og varpa ábyrgðinni yfir á aðra. BSRB var fyrst Framkvæmdastjórinn minntist sérstaklega á orlofsuppbótina í þessu sambandi. Rétt er að rifja upp að það var BSRB sem fyrst samdi um orlofsuppbætur í samn- ingum 1989 og aðrir tóku svo upp í sína samninga. Nú er hún orðin varanleg kjarabót. Þessi kjarabót kom til sögunnar á sama tíma og launafólk hefur þurft að taka á sig margs konar þrengingar og sam- drátt t.d. í kaupi. Það er því með öllu ástæðulaus viðkvæmni hjá Þórarni að sjá ofsjónum yfir þess- um ávinningi verkalýðshreyfing- ar. En það er líka full ástæða til að Kjallariim Ragnhildur Guðmundsdóttir varaform. BSRB og form. FÍS, Félags ísl. símamanna staldra við hugtakið ábyrgð í munni framkvæmdastjóra VSÍ. VSÍ rekur ákveðna póhtík. Stærstu fyrirtækin ráða VSI og eins og al- þjóð er kunnugt eru forstöðumenn slíkra fyrirtækja afar meðvitaðir um hina miklu hagsmuni. Þeir nota sitt samband, sem er hagsmuna- samband og hefur mikil ítök í ríkis- valdinu. Ekki síst í gegnum þann stjórnmálaflokk sem mestu ræður í efnahags- og stjórnmálalífi þjóð- arinnar. VSÍ rekur þannig séð póli- tík sem er ábyrg gagnvart eigend- um sínum - en þar við situr. Auk þess má ekki gleyma að Þór- arinn V. Þórarinsson hefur líklega aldrei gert samninga sem ekki eru ábyrgðarlausir gagnvart opinber- um starfsmönnum. Allir vita að mörg ár eru síðan VSÍ hefur samið um kaup og kjör upp á eigin reikn- ing, samningar vinnuveitenda snú- ast orðið alltaf um það að ríkissjóð- ur borgi og eru því ábyrgðarlausir gagnvart alþýðu manna. Góður árangur við erfiðar aðstæður Samningarnir sem BSRB og að- ildasamtök þess geröu fela að vísu ekki í sér miklar kauphækkanir en tækifæriö er notað til að auka rétt- indi og áhrif fólksins á framvindu þjóðfélagsins á viðsjárverðum tím- um. Við, opinberir starfsmenn, get- um verið stoltir af samtökum okk- ar og því að hafa náð árangri við erfiðar aöstæður. Þórarinn hins vegar getur verið áfram í sínum þrönga stakki - en vonandi er samt pláss þar til aö skipta um skoðun á hugtakinu ábyrgð. Ragnhildur Guðmundsdóttir „Framkvæmdastjórinn minntist sér- staklega á orlofsuppbótina 1 þessu sam- bandi. Rétt er aö riíja upp að þaö var BSRB sem fyrst samdi um orlofsupp- bætur í samningum 1989 og aðrir tóku svo upp í sína samninga.“ Meðog ámóti Flutningur Landmælinga íslands gegnflutningi „Ég er hlynnt þvi að flytja ríkis- stofnanir úl á land til þess að styrkja þar búsetu og efia atvinnulíf. Það er mjög slæmt ef öll starfsemi sem krefst sér- ur' menntunar er á einum stað á landinu. Þaö hefur meðal annars í fór með sér verulega skerðingu á rétti fólks til að velja sér stað til að bua á. Ungt fólk, sem er alið upp úti á landi og vill búa þar áfram, verð- ur að velja á milh þess og að fá að vinna viö störf sem það hefur menntað sig til. Flutningur á rík- isstofnunum hefur óneitanlega einhverja timabundna röskun á starfsemi í fór með sér en það þarf ekki að vera slæmt. Tæki- færi gefast þá til aö endurskoða starfsemina og færa hana til betri vegar. Eg sé fátt sem mælir gegn því að flytja Landmælingar íslands út á land. Þetta er ekki stjórn- sýslustofnun og þess vegna engin nauðsyn að hafa hana þar sem flest fólkið býr. Verkefni stofnun- arinnar eru þess eðhs að það skiptir ekki miklu máh hvar á landinu þau eru unnin." Mikill kostnaður „Við flutn- ing á Land- mæhngum ís- lands út á land er veriö að fiyfja þekkingu, starfsmenn Og gögn. Kdstján Guðjóns- Nauösynlegt son.skrifstotustjóri er að skoða Landmaeilnga ís- flutning lands- stofnunarinnar i því Ijósi. Mikih kostnaður fylgir flutn- ingi. Varlega áætlað gæti sú upp- hæö oltið á hundruðum milljóna. Má þar nefna kostnað tengdan nýju húsnæði, flutningi á búnaöi eða kaup á nýjum. Þá þarf að þjálfa nýja starfsmenn. Gera má fastlega ráð fyrir minni framleiðnihjá starfsmönn- um vegna röskunar á högum þeirra og lækkun sértekna til langs tíma. Flutningi fylgir einnig dýrari rekstur, aukin fjarlægð frá viðskiptavinum og birgjum, meiri fjarlægð frá flugvehi en Landmælingarnar sjá um reglu- bundið loftmyndaflug á hverju ári. Dýrara verður að dreifa vör- um og afhenda þær. Hluti starfsmanna mun hætta strax og aðrir siðar. Þeirra vandi verður að útvega sér aðra vinnu á því sviði sem þeir eru menntað- ir til. Þeir sem gætu hugsað sér að sækja vinnu daglega af höfuö- borgarsvæðinu verða í meiri fjar- lægð frá vinnustað sinum en áð- ur. Þvi fylgir aukinn kostnaður og aukiö álag. Ábyrgð maka vegna reksturs heimhis eykst. Hinir sem flyfja vegna vinnunnar þurfa að rífa sig upp með fjöl- skyldu sína og selja eignir. Maki þarf vinnu sem yfirleitt er ekki til staöar. í miklum samdrætti á þjóðartekjum eru ókostirnir aug- ljósir. Á ári fjölskyldunnar eru þeirennmeiraáberandi." .ifnn Margrét Frfmanns- dóttir alþingismaó-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.