Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1994, Qupperneq 5
MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1994
5
Fréttir
ÓDÝRI SKÓMARKAÐURINN
ByggingafulHrúi
kannar fasteignamat
Bygginganefnd Reykjavíkur hefur
frestaö tillögu Gunnars Gunnarsson-
ar, Nýjum vettvangi, um að Eim-
skipafélagi íslands verði gert að
sækja um tilskilin leyfi fyrir tvö hús
sem standa á lóð félagsins við Sunda-
höfn og falið byggingafulltrúanum í
Reykjavík að kanna málið.
„Á undanfórnum árum hafa verið
að uppgötvast byggingar í borginni
sem ekki hafa farið í fasteignamat.
Samkvæmt mínum gögnum hafa
þessar byggingar Eimskipafélagsins
ekki farið í fasteignamat og ekki ver-
ið greidd fasteignagjöld af þeim. Það
má búast við að borgin hafi orðið af
hálfri milljón króna á ári síðustu
þrjú árin í tekjur vegna þessa,“ segir
Gunnar.
„Þessu hefur verið haldið fram og
það verður rannsakað milli bygg-
inganefndarfunda. Við íórum í það í
vikunni. Nefndinni verður gert grein
fyrir niðurstööuniú og hún ákveður
svo framhaldið," segir Magnús Sæ-
dal byggingafulltrúi.
-GHS
Opið mánud.-föstud. 12-18
Frábært verð - Góðir skór
SKÓMARKAÐUR
RR skór JL
EURO SKO
Skemmuvegi 32 - s. 75777
Skagaflörður:
Tvöföldun á
heimildum til
rækjuveiða
Þórhallur Asmundsson, DV, Sauöárkróki:
Hafrannsóknastofnun hefur mælt
með að heimildir til rækjuveiða í
Skagafirði verði tvöfaldaðar frá leyf-
isveitingu i haust eða úr 200 tonnum
í 400. Það er svipuð veiði og leyfð
hefur verið í firðinum undanfarin ár.
Aflinn hefur verið milli 4 og 500 tonn,
mestur -1992.
Þegar rannsóknaskipið Dröfn var
í firðinum í haust var lítið um rækju
og heimild þá skorin niður. Þegar
veiðar hófust eftir áramótin að nýju
hafði mikil aukning orðið á rækju í
firðinum. Veiði hefur verið mjög góð
að undanfórnu. Fjórir bátar stunda
veiðarnar - þrír frá Sauðárkróki og
einn frá Hofsósi.
Fáskrúðsfjörður:
Fimmtilboð
í hótelið
Ægir Kristinsson, DV, Fáskrúðsfirði:
Fimm tilboð bárust Byggðastofnun
í Hótel Skálavík á Fáskrúðsfirði.
Samkvæmt heimildum DV í Byggða-
stofnun eru tilboð frá heimamönnum
- einnig fleiri aðilum. Þau eru í skoð-
un hjá stofnuninni en ákvörðun hgg-
ur ekki fyrir hverju þeirra verður
tekiö. Ekki fékkst heldur uppgefið
um hvaða upphæðir er að ræða.
Byggðasjóður eignaðist hótelið á
nauðungaruppboði fyrir skömmu.
Ólafsíjörður:
Bílastyrkir
afnumdir
Helgi Jónsson, DV, Ólafsfirði:
Bæjarráð Ólafsfjarðar hefur sagt
upp bílastyrkjum sem starfsmenn á
bæjarstjórnarskrifstofunum hafa
fengið vegna aksturs eigin bíla. Hér
er um talsverðan sparnað að ræða
ár hvert. Á síðasta ári fengu starfs-
menn rúma hálfa milljón króna í
beinan bílastyrk.
Þá hefur verið samþykkt aö kaupa
tvo ódýra bíla - Lada hefur verið
nefnd - sem starfsmenn eiga að nota
í starfi.
Eskiijörður:
Listi sjálf-
stæðismanna
Sjálfstæðismenn á Eskifirði hafa
tilkynnt framboðslista sinn fyrir
bæjarstjórnarkosningarnar í vor.
Efstu sæti listans skipa:
1. Hrafnkell A. Jónsson, formaður
Verkamannafélagsins Árvakurs. 2.
Andrés Elísson verkstjóri. 3. Friðrik
Á. Þorvaldsson kennari. 5. Árni
Helgason framkvæmdastjóri. 6.
Benedikt Jóhannsson verkstjóri.
-hlh
/
Macintosh Quadra
með PowerPC
Nú styttist óðum í að Apple komi með á markaðinn Macintosh-tölvur með PowerPC-örgjörva.
í tilefni þess heíúr Apple-umboðið ákveðið að bjóða örfáar Quadia-tölvur á sérstöku tilboðsverði.
Innifalið í verði tölvanna er sérstakt PowerPC-hröðunarspjald *) sem gerir tölvurnar allt frá
200% til 1000% hraðvirkari þegar notuð eru forrit skrifuð fyrir þann örgjörva.
‘) Spjaldið verður afhent í apríl næstkomandi.
Macintosh Quadra 610
frá 299.000,- kr. (m. vsk.)
í tilboðinu er uni að ræða tölvu með 8 Mb innra minni,
230 Mb harðdiski, geisladrifi, 14" litaskjá og litlu hnappa-
borði. Einnig er hægt að fá tölvuna með 16" litaskjá og
stóru hnappaborði, en þá kostar hún 355.000,- kr.
Með PowerPC-spjaldinu breytist Quadra 610 úr 25 megariða
68040-tölvu í 50 megariða PowerPC-tölvu.
Macintosh Quadra 650
frá 339.000,- kr. (m. vsk.)
í tilboðinu er um að ræða tölvu með 8 Mb innra minni,
230 Mb harðdiski, geisladrifi, 14" litaskjá og litlu hnappa-
borði. Einnig er hægt að fá tölvuna með 16" litaskjá og
stóru hnappaborði, en þá kostar hún 395.000,- kr.
Með PowerPC-spjaldinu breytist Quadra 650 úr 33 megariða
68040-tölvu í 66 megariða PowerPC-tölvu.
Umboðsmenn:
Haítækni, Akureyri
Póllinn, ísafirði
Apple-umboðið
Skipholti 21, sími: (91) 624800