Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1994, Side 10
10
MÁNUDAGUR 11. APRÍL 1994
fFrá grunnskólum
Reykjavíkur
Innritun sex ára barna (þ.e. barna sem fædd eru á
árinu 1988) fer fram í skólum borgarinnar miðviku-
daginn 13. og fimmtudaginn 14. apríl 1994, kl.
15-17 báða dagana.
Það er mjög áríðandi að foreldrar láti innrita börnin
á þessum tilgreinda tíma vegna nauðsynlegrar skipu-
lagningar og undirbúningsvinnu í skólunum.
Utlönd
Herteknu svæðin lokuð áfram:
Sextíu þúsundum
haldið frá vinnu
Qkuskóli
Islands
Námskeið til undirbúnings auknum ökuréttindum
hefjast 14. apríl.
Innritun stendur yfir.
Ökuskóli íslands M.
Dugguvogi 2 - s. 683841
Geymið auglýsinguna
Frá Skólaskrifstofu
Reykjavíkur
Staða svæðisfulltrúa í umferðarfræðslu
Laust er til umsóknar starf svæðisfulltrúa í umferðar-
fræðslu við grunnskóla Reykjavíkur.
Leitað er eftir reyndum kennara í 50% starf sem á
að hafa umsjón með umferðarfræðslu í grunnskólum,
skipuleggja fundi með kennurum, foreldrum o.fl. og
vinna að öðrum sérstökum viðfangsefnum sem lúta
að því að efla umferðarfræðslu í skólum.
Frekari upplýsingar um starfið veitir forstöðumaður
kennslumáladeildar.
Umsóknum skal skilað á Skólaskrifstofu Reykjavík-
ur, Tjarnargötu 12, fyrir 20. apríl næstkomandi.
BÍLAR
fSSÆSÆSÆÆSÆSSMSÆÆSSÆÆSSSSSSSJ
Aukablað
BÍLAR 1994
Miðvikudaginn 20. apríl mun aukablað um
bíla fylgja DV.
í þessu aukablaði verður fjallað um nýja
bíla af árgerð 1994 sem bílaumboðin koma
til með að bjóða upp á.
Þeir auglýsendur sem hafa áhuga á að aug-
lýsa í þessu aukablaði vinsamlega hafi sam-
band við Björk Brynjólfsdóttur, auglýsinga-
deild DV, hið fyrsta í síma 63 27 23.
Vinsamlegast athugið að síðasti skiladagur
auglýsinga er fimmtudagurinn 14. apríl.
ATH.I Bréfasími okkar er 63 27 27.
Þverholti 11 105 Reykjavík
Sími 91 632700 Símhréf 91 -632727
Hægrisinnaðir Israelsmenn mótmæla fyrir utan bústað Rabins forsætisráð-
herra friðarviðræðum ísraelskra yfirvalda og PLO. Símamynd Reuter
ísraelska stjómin ákvað í gær að
halda herteknu svæðunum, Vestur-
bakkanum og Gazasvæðinu, lokuð-
um í viku. Ýmislegt þykir benda til
að það geti oröið lengi og að yfirvöld
í ísrael stefni aö því að útiloka þá 60
þúsund Palestínumenn, sem sækja
vinnu í ísrael, smátt og smátt. Ráða-
menn í ísrael íhuga að ráða 20 þús-
und erlenda verkamenn til vinnu í
stað Palestínumannanna.
ísraelsk yfirvöld lokuðu herteknu
svæðunum á fimmtudaginn vegna
óeirða þar. Bannið nær einnig til
þeirra íbúa austurhluta Jerúsalem.
Samgönguráðherra ísraels, Shul-
amit Aloni, krafðist þess í gær að
banninu yrði aflétt því annars gæti
það leitt til hungursneyðar meðal
Palestínumanna. „Við berum ábyrgð
á efnahagsástandinu á herteknu
svæðunum," sagði ráöherrann.
Forsætisráðherra ísraels, Yitzhak
Rabin, kvaðst í gær ekki telja að lok-
unin hefði áhrif á friðarviðræðurnar
í Kaíró. ísraelskir fjölmiðlar sögðu
að vel miðaði í viðræðunum en óvist
að samkomulag yrði í höfn 13. apríl
einsogstefntværiað. Reuter
Deilt um
eftirmann
Hosokawa
Samsteypustjórnin í Japan hóf í
morgun viðræður á ný um væntan-
legan eftirmann Morihiro Hosokawa
forsætisráðherra sem sagði af sér
embætti á fóstudaginn. Valdabarátta
er nú hafin milii stjómarflokkanna
átta.
Tsutomu Hata utanríkisráöherra
er talinn líklegur eförmaður Ho-
sokawa en hann nýtur stuðnings
tveggja flokka auk eigin flokks, Shin-
seitoflokksins. Andstæðingar Hata
óttast að leiðtogi Shinseitoflokksins,
Ichiro Ozawa, noti tækifærið til að
ná yfirráðum í stjóminni með því að
mynda stóran íhaldsflokk.
Ozawa átti stóran þátt í myndun
samsteypustjómarinnar í ágúst síð-
astliðnum. Ásamt Hata stóð hann
fyrir uppreisn í Frjálslynda demó-
krataflokknum eftir að flokksleiðtogi
þeirra flæktist í fiármálahneyksli.
Þeir stofnuðu Shinseitoflokkinn sem
nú er valdamestur í samsteypu-
Stjórninni. Reuter
Shanghai:
Andófsmaður
beittw ofbeldi
Franskir stjórnmálamenn hafa
gagnrýnt Balladur forsætisráðherra
fyrir að sýna ekki hörð viðbrögð við
handtökum andófsmanna á meðan
á heimsókn hans stóð í Shanghai.
Simamynd Reuter
Edouard Balladur, forsætisráö-
herra Frakklands, sætti í gær gagn-
rýni franskra stjómmálamanna
vegna linkindar hans í sambandi við
handtöku kínverskra andófsmanna
á meðan heimsókn hans í Kína stóð
yfir. Balladur tjáði fréttamönnum á
leið heim í gærkvöldi að frönsk yfir-
völd gætu ekki látið deilur um mann-
réttindi hafa áhrif á stefnu sína í ut-
anríkismálum. Sagði forsætisráð-
herrann að Frakkland yrði að taka
upp samskipti við stærsta land í
heimi.
Þekktur andófsmaður í Shanghai,
Wang Fuchen, sem lögreglan hand-
tók um helgina, greindi frá því í
morgun að hann hefði orðið fyrir
árás þriggja manna í gær sem hefðu
bariö hann og reynt að kyrkja hann.
Annar andófsmaður í Shanghai,
Bao Ge, sem einnig var handtekinn
á meðan Balladur var í heimsókn,
sagði í morgun að hann ætlaði að
mynda ný mannréttindasamtök. Eitt
af fyrstu málum samtakanna yrði að
mótmæla ofbeldinu gegn Wang.
Balladur bað um skýringu á hand-
tökum Wangs og Baos og kvaðst
ánægður með það svar sem hann
fékk, nefnilega að ekki væri um
formlega handtöku að ræða. Andófs-
mönnunum var báöum sleppt eftir
aöBalladurfórfráShanghai. Reuter