Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1994, Síða 13
MÁNUDAGUR 11. APRÍL 1994
13
Sviðsljós
E yfellskar fj allkonur
bjóða til sín gestum
Þau Halldóra í Selkoti og séra Halldór sóknarprestur i Holti skemmtu
sér hið besta og stilltu sér upp til myndatöku.
Jón Þórðaison, DV, Rangárþingi;
Það var líf og f]ör á Skógum undir
Eyjaíjöllum laugardagskvöld eitt
fyrir skömmu en þá hélt kvenfélag-
ið Fjallkonan í Austur-Eyjafjalla-
hreppi svokallað kvenfélagsheim-
boð í félagsheimiiinu þar. Heimboð-
in eru orðin fastur liður í skemmt-
analífi Sunnlendinga og skiptast
kvenfélögin á um að bjóða heim.
Gestir Fjailkvenna að þessu sinni
voru kvenfélagskonur úr vestan-
verðri Rangárvallasýslu, svo og
konur úr kvenfélagi Villingaholts-
hrepps í Ámessýslu og að sjálfsögðu
fengu makarnir að vera með.
Eyfellingar tóku á móti gestum
sínum með hlaðborði þar sem
ýmislegt góðgæti var á boðstólum.
Þar má nefna hrauð, sem bakað er
úr korni sem ræktað er á ökrum
eyfellskra hænda.
Skemmtiatriði sem ekki voru af
verri endanum voru heimagerð og
mátti af þeim ráða að félagslífið er
í miklum blóma undir Eyjaljöllum.
Á hreinlætisvörukynningu þar sem ýmiss konar
furðulegt dót var á boðstólum, en þetta var eitt af
skemmtiatriðunum hjá kvenfélagskonunum.
Á léttu kaffispjalli, Sævar Jónsson á Hellu, séra Sig-
urður Jónsson í Odda, Drífa Hjartardóttir á Keldum
og Ólafur Eggertsson á Þorvaldseyri.
Hobbit hjá
Fjölbrauta-
skóla
Breiöholts
Góður leikandi ríkti meðal leik-
enda Fiölbrautaskóla Breiðholts er
frumsýning á verki þeirra, Hobbit
eftir J.R.R. Tolkien, stóð yfir. Þar
mátti sjá hinar ýmsu kynjaverur,
svo sem dverga, tröll, galdrakarla,
ófreskjur og ekki má gleyma aöal-
persónunni, Bilbo Baggins. 35
manns standa að sýningunni, þar
af eru 15 leikarar: Daníel Stefáns-
son, Óh Róbert Nurdin Ómarsson,
Róbert Michael ONÞeill, Trausti
Skúlason, Sólrún Ágústsdóttir, Sól-
rún Húnfjörð Káradóttir, Ingibjörg
E. Garðarsdóttir, Lena Viderö, Að-
albjörg Helgadóttir, Bertha Kristín
Óskarsdóttir, Sandra Hauksdóttir,
Julie Victoria Castros, Ómar Örn
Hauksson, Lilja Guðmundsdóttir
og Jón Páll Jónsson.
Til sölu
þessi einstaki bíll
árg. 1992, ek. 23.000 km, rauður, vél 2,0 I cc, sjálfsk.,
sjálfvirk hraðastilling, vökvastýri, samlæsing, rafdr.
rúður, rafstillanlegir speglar, rafdrifin sóllúga, rafdr.
loftnet, útvarp og segulb. Álfelgur, ABS-bremsu-
kerfi, vetrardekk fylgja. Reyklaus bíll og einn eig-
andi. Verö kr. 1.890.000, góð kjör, greiðslusam-
komulag, skipti möguleg á ódýrari bíl. Til sýnis hjá
Brimborg hf., Faxafeni 8, sími 685870.
13 da?a aukaferð til
á staðgreiðsluverði frá
39.955 1
fyrir 2 fullorðna og 2 börn.
Vegna gífurlegrar eftirspurnar verður aukaferð til sólskinsparadísarinnar
Mallorca þann 26. maí. Verðið er mjög hagstætt. Þannig kostar aðeins
39.955 kr. fyrir 4 manna fjölskyldu til Cala d'Or. Staðgreiðsluverð þangað
fyrir 2 fullorðna í íbúð er 49.090 kr.
Innifalið I þessu verði erflug, gisting í 12 næturá Playa Ferrera, aksturtil og fráflugvelli
erlendis, íslensk fararstjórn, skattar og gjöld.
,1
SamviiiiiiilerúirLaiiás!/ii
Reykjavík: Austurstraeti 12 • S. 91 - 691010 • Innanlandsferðir S. 91 - 6910 70 • Símbróf 91 - 2 77 96 / 69 10 95 • Telex 2241 •
Hótel Sðgu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Slmbréf 91 - 62 24 60 Hafnarfjörður: Bæjarhrauni 14 • S. 91 - 65 11 55 • Símbréf 91 - 655355
Ketlavfk: Hafnargötu 35 • S. 92 -13 400 • Símbréf 92 - 13 490 Akranes: Breiðargötu 1 • S. 93 -1 33 86 • Slmbréf 93 -1 11 95
Akureyri: Ráðhústorgi 1 • S. 96 - 27200 • Símbréf 96-1 10 35 Vestmannaeyjan Vestmannabraut 38 • S. 98 -1 12 71 • Símbréf 98 -1 27 92