Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1994, Page 19
MÁNUDAGUR 11. APRÍL 1994
31
Sviðsljós
Konumar úr Hestamannafélaginu Andvara gerðu ser dagamun a fostu-
dagskvöldið þegar þær riðu til móts við konurnar úr Hestamannafélaginu
Sörla í Hafnarfirði. Reiðleiðin lá í gegnum Heiðmörkina og endaði svo í
félagsheimil Andvara þar sem veittar voru veitingar og slegið var á létta
strengi. Á myndinni sjást þær Ingibjörg Harðardóttir, Andrea Guðna-
dóttir, Inga María, Edda Erlendsdóttir, Gréta Boða Og Margrét Oðins-
dóttir. Þær eru allar í Hestamannafélaginu Andvara nema Inga María
sem er í Sörla.
Hinn vinsæli Bogomil Font er nú kominn frá Bandarikjunum þar sem
hann hefur dvalið að undanfórnu. Af því tilefni hélt hann stórdansleik í
Perlunni sl. föstudagskvöld ásamt hljómsveit sinni. Þessi skemmtilegi
tónlistarmaður olli áhorfendum ekki vonbrigðum frekar en fyrri daginn
enda engum líkur.
í hringiðu helgarinnar
Þessi myndarlegi hópur vakti mikla athygli á Laugaveginum á laugar-
daginn þegar hann kynnti atriði úr söngleiknum Cabarett. Hóurinn er
frá Söngsmiðjunni í Reykjavík sem er um þessar mundir að setja upp
sýningu með brotum úr hinum og þessum söngleikjum í Tjarnarbíói.
Þessi uppákoma var aðeins ein af mörgum sem verslunarmenn á Lauga-
veginum stóðu fyrir á svokölluðum löngum laugardegi.
Starfsmenn og aðstandendur fyrirtækisins Einars Farestveit fögnuðu 30
ára afmæli fyrirtækisins nú um helgina. Á myndinni sjást stofnandi og
stjórnarformaður fyrirtækisins Einar Farestveit, kona hans Guðrún
Farestveit, Arthur Farestveit framkvæmdastjóri, Hákon Einar Farest-
veit verslunarstjóri, Edda Farestveit snyrtifræðingur og Gerda Farest-
veit fóstra.
Menning
Juliette Binoche í hlutverki ekkjunnar ungu.
Háskólabíó -
Blár: ★ V2
Þyngra en tárum taki
Pólski kvikmyndaleikstjórinn Krzyszstof Kieslowski
er svo hrifinn af frönsku byltingunni og einkunnarorð-
um hennar um frelsi, jafnrétti og bræöralag og franska
þjóðfánanum þrílita að hann ákvað að gera þrjár kvik-
myndir sem kenndar eru við fánalitina, hinn bláa,
hinn hvíta og hinn rauða, og fjalla um fyrrnefnd ein-
kunnarorð. Háskólabíó sýnir nú þá fyrstu í röðinni,
þessa um bláa litinn og frelsið.
Blár, eins og myndin heitir, er líklega það sem Kan-
inn mundi kalla „dæmigerða evrópska mynd“, jafnvel
er hægt að ganga svo langt að segja að hún sé af þeirri
gerðinni sem kemur óorði á evópska kvikmyndagerð,
svo upphafin og tilgerðarleg er hún á allan hátt, án
þess að segja manni nokkuð nýrri eða merkilegri sann-
indi en aðrar í raun jafn ómerkilegar myndir en sem
eru þó kannski ekki í jafn miklum þykjustuleik.
Það er ekki nóg að láta aðalleikkonuna vera með
fýlusvip nánast myndina út í gegn og láta aðra leikara
tala út og suður, helst þunglyndislega og mónótónt,
til aö úr verði eitthvert listaverk. Að vísu hefur aðal-
persónan Julie (Binoche) svo sem enga ástæðu til að
vera brosmild. í upphafi myndar missir hún jú eigin-
mann sinn og fimm ára dóttur í bílslysi en kemst sjálf
að mestu heO á líkama úr brakinu. Hún ákveður að
segja skihð við fortíðina, setur sveitasetrið sitt á sölu
og flytur í litla íbúð í fjölbýlishúsi í París.
En fortíðin sækir á hana í ýmsum myndum, í líki
tónverks sem maðurinn hennar heitinn, eitthvert
mesta tónskáld sinnar kynslóðar, var að semja í tilefni
sameiningar Evrópu, í gervi þunglyndislegs aðstoðar-
manns tónskáldsins sem hefur alltaf elskað Julie á
laun. Og þar kemur að unga konan verður að takast
á við lífið, hún veröur að horfast í augu við sjálfa sig,
taka við stjórninni, sem hún og gerir. Og endir mynd-
arinnar hefði sómt sér vel í hvaða eldhúsróman sem
er eða Familie Joumal eða Hjemmet.
Kvikmyndir
Guðlaugur Bergmundsson
Víst er þetta ákaflega falleg mynd að öllu ytra útliti,
uppfull af skemmtilegum vinklum og missymbólískum
skotum og fallegri tónlist, en það vantar alla dramat-
ík, allt líf í persónurnar, einhveija spennu sem gerir
það að verkum að mann langar til að horfa á það sem
fram fer á hvíta tjaldinu. Það er hægt að ímynda sér
að þama hefði verið hægt að búa til áhugaverða mynd
en það tókst ekki, því miður. Kannski takast hinir lit-
irnir betur.
Blár (Trois Couleurs: Bleu).
Handrlt: Krzysztof Kleslowskl og Krzysztof Pieslewicz.
Leikstjóri: Krzysztof Kieslowski.
Leikendur: Juliette Binoche, Benoit Regent o.fl.
MODELSAMTOKIN
Skemmtilegt og þroskandi
námskeið fyrir ungar stúlkur
13-16 áraog 17 ára og eldri.
Sviðsframkoma, ganga, snyrting, hárgreiðsla
og framkoma.
Myndatökur- pósur.
Helgarnámskeið - kennt fjórar helgar.
í lokin verður tískusýning og afhent
viðurkenningaskjöl.
Upplýsingar í síma 643340 eða 37878
milli kl. 17-19.
Munið
gjafakortin
Unnur Arngrímsdóttir.
K L Æ Ð N I N G
MARMOROC
STEINKLÆÐNING
A L U C O L I C
ÁLKLÆÐNING
C A P E
PLÖTUKLÆÐNING
VERKVER
Síðumúla 27, 108 Reykjovik • 7T 811544 • Fox 811545
rn
-A