Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1994, Qupperneq 3
ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1994
------- D
Fréttir g
Nærri þriggja klukkustunda karp og þref um réttarfarsleg atriöi í gær:
Fréttabann í stóra
fíkniefnamálinu
Ír
Matstofa
Smiöjuvcgi 14 (rauð gata) • 200 Kópavogur
Sími: 68 68 80
FJOLMENNIÐ
og takið með ykkur gesti...
...í tvíréttaðan
LJUFFENGAN
vel útilátinn
HEIMILISMAT
á 490 kr.!
Ný og glæsileg
■
- fjötmiðlum ekki heimilt að greina efhislega frá yfirheyrslum fyrr en þeim lýkur
raatstofa Veitingamannsins
að Smiðjuvegi 14, Kópavogi,
Héraðsdómur Reykjavíkur féllst í
gær á kröfu ákæruvaldsins í stóra
fíkniefhamálinu svokallaða um að
sakbomingar fái ekki að fylgjast með
framburði hver annars við yfir-
heyrslur fyrir dómi. Dómurinn féllst
jafnframt á kröfu þess efnis að fjöl-
miðlar fengju ekki að birta framburð
sakbominganna fyrr en þeir allir og
vitni hafa verið yfirheyrð.
Réttarhöldin hófust í gær og fóm
tæpar þrjár klukkustundir í að deila
um réttarfarsleg deiluatriði. Sextán
veijendur vom viðstaddir, tveir full-
trúar ákæmvaldsins og hinn fjöl-
skipaði dómur en í honum eiga þrír
dómarar sæti.
Verjendurnir á
öndverðum meiði
Þegar dómsyfirheyrslur áttu að
hefjast skömmu fyrir hádegi í gær
var Ólafur Gunnarsson, sá fyrsti af
18 sakbprningum, leiddur í vitna-
stúku. Ákæruvaldiö lagði þá fram
framangreinda kröfu.
Örn Clausen og Haraldur Blöndal voru á meðal sextán verjenda í aðaldóm-
sal Héraðsdóms Reykjavíkur þegar réttarhöldin hófust í stóra fíkniefnamál-
inu í gær. Þó salurinn sé nokkuð rúmgóður var þröng á þingi enda þurfa
allir verjendurnir að hafa aðstöðu við borð. Búist er við að réttarhöldin
taki um tvær vikur. DV-mynd BG
Þegar dómurinn spurði verjendur
um afstöðu þeirra til kröfu ákæru-
valdsins voru lögmenn mjög á önd-
verðum meiði um hvemig staðið
skyldi að réttarhöldunum, það er
hvort þau ættu að fara fram fyrir
luktum dyrum eða ekki. Sumir
þeirra tóku undir kröfu ákæruvalds-
ins um að hafa þau lokuð og lýstu
þvi jafnvel yfir að slíkt væri skjól-
stæðingum þeirra fyrir bestu. Aðrir
mótmæltu því að umbjóðendur
þeirra fengju ekki að fylgjast með
framburði annarra sakbominga við
dómsyfirheyrslur. Þama komu fram
hin ólíkustu sjónarmið.
Studdust við dóm Hæstaréttar
Nokkur hlé voru gerð á réttarhald-
inu fyrir hádegi á meðan verið var
að ákveða framgang málsins. Laust
fyrir hádegi kom dómurinn síðan
með niðurstöðu sína. Hann vísaði í
dóm Hæstaréttar frá í aprO þar sem
hann hafnaði þvi að sakbomingar
fengju að kynna sér framburð úr lög-
Sjonvarpsauglýsingar listanna 1 Reykjavík:
Sjálfstæðisflokkur
haf nar samkomulagi
„Eg hefði talið sjalfsagt að skoða
möguleikana á samkomulagi um að
auglýsa ekki í sjónvarpi væri það lið-
ur í heildarsamkomulagi stjórnmála-
flokka vegna sveitarstjómarkosn-
inga. En það getur verið erfitt að átta
sig á hvenær shkt samkomulag held-
ur. Til dæmis auglýsti Framsóknar-
flokkurinn í sjónvarpi fyrir nokkr-
um árum þrátt fyrir að samkomulag
lægi fyrir. Nú vitum við ekki einu
sinni viö hveija ætti að semja," segir
Ámi Sigfússon borgarstjóri.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur hafn-
aö þeirri beiðni Reykjavíkurlistans
að gert verði samkomulag um að
framboðin auglýsi ekki í sjónvarpi
fyrir borgarstjómarkosningar. Slíkt
samkomulag hefur verið gert í
þrennum kosningum, síðast í alþing-
iskosningum 1991.
Einar Öm Stefánsson, kosninga-
stjóri Reykjavíkurlistans, segir það
sérkennilegt að Sjálfstæðisflokkur-
inn skuli hafna samkomulagi um að
auglýsa ekki í sjónvarpi. I undan-
fömum kosningum hafi sjálfstæðis-
menn haft framkvæði að gerð slíks
samkomulags. Að þeir skuh hafna
því núna beri vott um mikla örvænt-
ingu í herbúðum sjálfstæðismanna.
„Þeir ætla að nota geipilegt fjár-
magn í þessari kosningabaráttu;
mun meira en við höfum úr að spila.
Kjami málsins er hins vegar sá að
þeim verður ekki kápan úr því klæð-
inu aö vinna þessar kosningar meö
fjáraustri. Við treystum dómgreind
Reykvíkinga og að þeir sjái í gegnum
fjárausturinn."
regluskýrslum hver annars. Með
þessu var Hæstiréttur að fallast á rök
ákæruvaldsins um að það kynni að
spilla fyrir dómsrannsókn í málinu
í dómsáLnum
ef slíkt yrði heimilað - sakbomingar
kynnu að breyta framburði sínum
eftir því hvað aðrir segðu.
Að því virtu að rök Hæstaréttar-
dómsins yrðu að engu orðin ef það
yrði heimilað að leyfa óheftan að-
gang að dómsyfirheyrslu, þar með
tahö umfjöllun fjölmiðla, ákvaö hér-
aðsdómur að banna opinbera birt-
ingu á dómsyfirheyrslum í málinu,
svo og að sakborningamir fylgist
með hvað aðrir bera fyrir dóminum.
Ólafur Gunnarsson kom fyrir dóm-
inn að loknu hádegishléi í gær og
hófust þá yfirheyrslur. Ekki er unnt
að greina efnislega frá hans fram-
burði né heldiir annarra sakbom-
inga fyrr en öllum dómsyfirheyrsl-
um er lokið. Reiknað er með að rétt-
arhöldin taki um tvær vikur.
cr opin aila virka daga
ftákl. 11.00-21.00.
Hádegismatur er framreiddur
frákl. 11.30-13.30 og
kvöldmatur frá kl. 18.30-20.30.
Allar nánari uppl. í síma: 68 68 80.
VERIÐ ÖLL VELKOMIN
Í OG VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU!
25KE
5555
Nokkrar ástæður fyrir því að
ungt fólk kýs D-listann
Sumarvinna
Sjálfstæðismenn leggja metnað sinn i að námsmenn fái atvinnu á sumrin. Á síðastliðnu sumri
störfuðu 5.000 ungir Reykvíkingar hjá borginni. Sjálfstæðismenn munu sjá til þess að námsmenn
hafi atvinnu í sumar.
Vinna í framtíðinni
Framtíðarvonir ungs fólks ráðast af þeim tækifærum sem eru fyrir hendi þegar það stofnar heimili
og kemur undir sig fótunum. Til að leggja grunn að miklum fjölda betur launaðra starfa á næstu
árum hafa sjálfstæðismenn kynnt 10 lykla að nýjum tímum til að treysta undirstöður atvinnulífsins.
Hugmyndir sjálfstæðismanna eru raunhæfar enda hafa þeir reynslu af atvinnulífinu og rekstri
fyrirtækja.
Öflugt íþróttalíf
Borgarbúar þekkja þá miklu uppbyggingu íþróttamannvirkja sem studd hefur verið af
sjálfstæðismönnum í borgarstjórn á undanförnum árum. Áfram verður kröftuglega staðið að
uppbyggingu íþróttahúsa og leiksvæða. Þjónusta við skíðafólk verður aukin og byggt verður yfir
skautasvellið í Laugardal.
Hreinna umhverfi
Vegna hreinsunar strandlengjunnar sem sjálfstæðismenn hafa beitt sér fyrir verður unnt að nýta
Nauthólsvík að nýju sem útivistar- og sundstað Reykvíkinga.
Skemmtilegra mannlíf í miðbænum
Sjálfstæðismenn hafa stuðlað að frjálsari afgreiðslutíma verslana og veitingastaða. Þessir frjálsari
viðskiptahættir hafa leitt af sér byltingu í viðskipta- og menningarlífi. Kaffihúsamenning í
miðbænum hefur til dæmis aldrei verið líflegri.
Trú á einstaklinginn
Ungt fólk vill vera sjálfstætt. í þjóðfélaginu verða að rúmast ólík lífsviðhorf og ólíkir lifnaðarhættir.
Trú á einstaklingsframtakið einkennir lífsskoðanir sjálfstæðismanna, sem jafnframt hafna ofurtrú á
ríkisvaldið.
►
►
x0