Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1994, Síða 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1994
Stjórmnál
Spurt á Dalvík:
Hver verða úrslit
kosninganna?
Jón Amgrímsson verslunarmaður:
Sjálfstæðismenn og framsóknar-
menn fá þrjá menn hvorir og I-listinn
kemur einum manni að.
Friðrik Friðriksson sparisjóðsstjóri:
Sjálfstæðisflokkurinn fær fjóra
menn í bæjarstjóm, hinir skipta
þremur sætum einhvem veginn.
Hilmar Daníelsson skrifstofumaður:
Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn
fá 3 menn hvor og I-listinn einn.
Kristin Eiðsdóttir verkakona: Ég
ætla ekki að reyna að spá neinu um
það.
Valgerður Guðmundsdóttir ellilifeyr-
isþegi: I-listinn fær einn mann kos-
Birair Jónsson húsvörður: Sjálfstæð-
isflokkurinn fær fjóra menn, Fram-
sóknarflokkur 2 og I-listinn 1 mann.
DV
Dalvík:
l-listi gerir harða hríð
að meirihlutanum
Kosningabaráttan á Dalvík hefur
farið hægt af staö og þeir sem telja
sig þekkja vel til þar í bæ segja að
það sé ekki oft síðustu áratugina sem
svo dauft hafi verið yfir hinni póli-
tísku baráttu rétt fyrir kosningar.
Dalvík hefur haft þá sérstöðu,
ásamt nokkrum öðmm sveitarfélög-
um að vísu, að þar hefur atvinnu-
ástand lengst af kjörtímabilsins verið
gott, atvinnuleysi ekki teljandi þótt
vissulega hafi borið á því upp á síð-
kastið. Bærinn stendur fjárhagslega
vel og þar hefur verið blómlegt
mannlíf.
Ekki em þó allir ánægðir með
hvemig núverandi meirihluti í bæj-
arstjóm, sem er skipaður sjáifstæðis-
iiJlSII!
I-listinn:
Ástæða til bjartsýni
„Kosningabaráttan hér mun ekki
síst snúast um atvinnumálin. Það er
okkar mat að bæjaryfirvöld verði að
viðhafa öflugan stuöning við sjávar-
útvegsfyrirtækin sem eiga í tíma-
bundnum vanda vegna kvótamála -
það ástand er ekkert örðuvísi hér en
á öðrum stöðum," segir Svanfríður
Jónasdóttir sem skipar efsta sæti á
I-hsta.
„Kosningamar hér snúast líka um
stjómunarhætti, eins og þá að bæj-
arbúar geti gengið aö því sem gefnu
að málefni þeirra fái faglega og rétt-
láta umfjöllun hjá yfirvöldum og
sömuleiðis aö þeir geti átt greiðan
aðgang að upplýsingum um málefni
bæjarins og bæjarfyrirtækja. Af öðr-
um málum sem munu verða rædd í
kosningabaráttunni get ég nefnt
umhverfismál og skólamál er snerta
öll skólastig.
Ég tel að úrslit kosninganna hér á
Dalvík geti orðið mjög óvænt. Fyrir
hönd I-hstans hef ég fuha ástæðu til
bjartsýni því viðbrögð við framboði
okkar hafa farið fram úr björtustu
vonum,“ segir Svanfríður.
Svanfriður Jónasdóttir, efsti maður
l-lista. DV-mynd gk
Trausti Þorsteinsson, efsti maður á
D-lista. DV-mynd gk
D-listinn:
Áfram sókn og framþróun
„Aðalmál fyrir Dalvíkinga er að
þeirri sókn og framþróun sem verið
hefur á Dalvík verði haldið áfram og
stefnuskrá okkar sjálfstæðismanna
stefnir að því,“ segir Trausti Þor-
steinsson sem skipar efsta sætið á
lista Sjálfstæðisflokksins.
„Fólki hefur fjölgað á Dalvík um-
fram landsmeðaltal og mun meiri
fjölgun hefur verið þar en annars
staöar á Norðurlandi eystra. Hefur
verið látið að því hggja að meirihlut-
inn í bæjarstjóm Dalvíkur hafi ekki
staðið sig í atvinnumálunum sem er
rangt. Atvinnuástandið er og hefur
verið gott og það er að meginhluta
til vegna aðgerða bæjaryfirvalda.
Ég get ekki metið hvort það er
möguleiki fyrir okkur sjálfstæðis-
menn að ná meirihluta í bæjarstjóm
' en til þess þurfum við að auka vem-
lega við fylgi okkar. Valkostimir sem
kjósendur standa frammi fyrir em
hins vegar skýrir. I-hstinn hefur það
að markmiði að feha meirihlutann
og reyndi fyrst að sundra honum
með því að fá Framsóknarflokkinn
til fylgis við sig án árangurs. Kost-
imir sem bæjarbúar standa frammi
fyrir em annars vegar að kjósa yfir
sig hugsanlegan meirihluta I-lista og
Framsóknarflokks eða treysta D-
hstanum áfram til að fara með for-
ustuna í bæjarstjóminni,“ segir
Trausti.
B-listinn:
Aukning atvinnu
„Mér finnst bæjaryfirvöld ekki
hafa staðiö sig sem skyldi í atvinnu-
málunum og við framsóknarmenn
leggjum á það höfuðáherslu að hér á
Dalvík veröi aukning atvinnutæki-
færa,“ segir Kristján Ólafsson, efsti
maður á B-lista Framsóknarflokks.
„Þaö er ahs ekki hægt að una því
að hér séu 30-40 manns atvinnulaus-
ir og sárahtla vinnu að hafa fyrir
skólafólk þegar þaö kemur á vinnu-
markaðinn í vor. Það hlýtur að vera
forgangsmál næstu bæjarstjómar að
vinna að þessum málum. Það þarf
að hlúa að þeim fyrirtækjum sem hér
em og stofna til nýrra. Ef við htum
yfir sviðið þá em hins vegar engin
stór átakamál í gangi hér á Dalvík
fyrir þessar kosningar.
Við framnsóknarmenn höfum sett
stefnuna á það að fá þijá menn
kjöma í bæjarstjóm og við bindum
vonir við að það gangi eftir. Að sjálf-
sögðu spái ég að svo fari og ég spái
því að hin framboðin tvö skipti jafnt
á milh sín þeim fjórum sætum sem
þá verða eftir."
Kristján Ólafsson, efsti maður B-
lista. DV-mynd gk
mönnum og einum fuhtrúa N-hsta,
hefur haldið á málum, en N-hstinn
var borinn fram 1990 sem jafnaðar-
mannahsti af Alþýðubandalagi og
Alþýðuflokki. í hópi óánægðra em
þeir sem standa að I-listanum en þeir
reyndu að fá aha andstæðinga Sjálf-
stæðisflokksins th að standa saman
að framboði. Það gekk eftir, nema
að því leyti til að framsóknarmenn
kusu að bjóða fram sinn eigin hsta.
í kosningunum 1990 fékk Sjálfstæð-
isflokkurinn 3 menn kjöma í bæjar-
stjóm, H-hstinn, sem var borinn
fram af framsóknarmönnum og öðr-
um vinstri mönnum, fékk 2 menn
kjöma, N-listi jafnaðarmanna fékk 1
mann og F-hsti fijálslyndra fékk einn
mann kjörinn. Talsverð uppstokkun
hefur orðið á þeim valkostum sem
Dalvíkingum bjóðast við kjörborðið,
hstunum hefur fækkað um einn og
þeir bera nú önnur nöfn og aöra stafi.
F
Memhlutasastarf
DogN
Framboðslist-
aráDalvík:
l-listi:
1. Svanfríður Jónasdóttir.
2. Bjami Gunnarsson.
3. Þórir V. Þórisson.
4. Þóra Rósa Geirsdóttir.
5. Gunnhhdur Ottósdóttir.
6. Viðar Valdimarsson.
7. Ásta Einarsdóttir.
8. Hjörtína Guðmundsdóttir.
9. Sverrir Sigurðsson.
10. María Gunnarsdóttir.
11. Ottó Freyr Ottósson.
12. Þuríöur Sigurðardóttir.
13. Ottó Jakobsson.
14. Kolbrún Pálsdóttir.
B-listi:
L Kristján Ólafsson.
2. Katrín Sigurjónsdóttir.
3. Stefan Gunnarsson.
4. Helga Eiríksdóttir
5. Sigurlaug Stefánsdóttir:
6. Brypjar Aðalsteinsson.
7. Ragnheiður Valdimarsdóttir.
8. Daníel Hilmarsson.
9. Valgerður Guðmundsdóttír.
10. Einar Arngrímsson.
11. Guðný Bjamadóttir.
12. Björg Ragúels.
13. Jóhannes Hafsteinsson.
14. Guðlaug Bjömsdóttir.
D-listi:
1. Trausti Þorsteinsson.
2. Svanhildur Ámadóttir.
3. Birgir Össurarson.
4. Gunnar Aöalbjömsson.
5. Dorothea Jóhannsdóttir.
6. Þorsteinn Skaptason.
7. Hjördís Jónsdóittir.
8. Friðrik Gígja.
9. Hermína Gunnþórsdóttir.
10. Hákon Stefánsson.
11. Dana Jóna Sveinsdóttir.
12. Rúnar J. Gunnarsson.
13. Bjöm Ehasson.
14. Eyvör Stefánsdóttir.