Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1994, Page 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
3.000 krónur.
Rftstjórn - Ayglýsíngar - Áskrift - Ðreifing:s Sími 63 27 00
Frjálst,óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1994.
EllertEiríksson:
Ánægjuleg
vísbending
„Þetta er ánægjuleg vísbending um
afstöðu kjósenda til starfs Sjálfstæð-
isflokksins í bæjarstjómum Kefla-
víkur, Njarðvíkur og Hafna á yfir-
standandi kjörtímabili. Þetta er einn-
ig traustsyfirlýsing til þeirra fram-
bjóðenda sem núna bjóða sig fram í
hinu nýja sveitarfélagi," segir Ellert
Eiríksson, bæjarstjóri í Keflavík, um
niðurstöður skoðanakönnunar DV
sem birt er í dag.
„Þetta kemur á óvart. Fyrir okkar
hönd fagna ég þessari niðurstöðu.
Mér sýnist að það sé sóknarfæri fyr-
ir okkur. Vegna þeirrar óvissu sem
ríkjandi er sýnir þetta líka að það er
viss hætta á að Sjálfstæðisflokkurinn
geti náð hreinum meirihluta. Ég vara
auðvitað við þeirri hættu því það
væri ekki gott við mótun nýs sveitar-
félags," segir Jóhann Geirdal, 1. mað-
ur á lista Alþýðubandalagsins í Suð-
urnesjabæ.
„Þaö er greinilegt að við erum að
bæta við okkur, þetta er betri niður-
staða en í síðustu kosningum bæði í
Keflavík og Njarðvík. Við emm ekki
búin að dreifa stefnuskrá okkar enn-
þá og aðalbaráttan er framundan,"
sagði Drífa Sigfúsdóttir, efsti maður
á B-lista í Suðurnesjabæ.
„Ég get nú ekki neitað því að þetta
kemur mér á óvart, ég hélt við vær-
um nær sjálfstæðismönnum. Þetta
segir okkur bara að við þurfum að
spýta í lófana og taka á þessu,“ sagði
Kristján Gunnarsson, þriðji maður á
lista Alþýðuflokks í Suðumesjabæ.
„Kosningabaráttan fór seint og illa
af stað og ég trúi því að við eigum
eftir að sækja á. Við höfum fengið
góð viðbrögð við stefnuskrá okkar
og mannavali."
Flogiðeftir
sjómönnum
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti
sjómann sem hafði slasast á fingrum
um 145 mílur suðvestur af Reykja-
nesi í gær. Það var klukkan 9.35 að
beiðni um aðstoð kom frá togaranum
Sigh frá Siglufirði. Sigldi hann þá í
átt að landi þar sem flugdrægi þyrlu
Gæslunnar var ekki nægilegt.
Klukkan 18.05 var þyrlan svo yfir
Sigli og lenti hún við Borgarspítala
klukkan 19.25. Maðurinn gekkst svo
undir aðgerð í nótt þar sem gert var
að sámm hans.
Þá var farið í annað sjúkraflug í
morgun. Skipverji um borð í togar-
anum Dagrúnu slasaðist þegar vír
slóst í hann þegar skipið var á grá-
lúðuveiðum um 80 mílur út af Látra-
bjargi. Þyrlan lenti svo upp úr klukk-
an 9 við Borgarspítalann.
LOKI
Sýnilega Sýnarbrot þetta!
„Þetta var skýlaust brot á samn- mæltuþingmennþegarogíkjölfar- vonandi seinkar okkm- ekki frek- við eigendur Sýnar.
ingum viö Alþingi að rjúfa útsend- ið var ákveðið að slita þingfundi. ar.“ Að sögn Páls var ákvörðun um
ingu Sýnar í gærkvöldi. Sam- Önnur umræða mndeilds frum- Páll Magnússon sjónvarpsstjóri tímasetningu kosningaþáttarins
kvæmt samningi, sem ég og PálJ varps um Þróunarsjóðinn var ný- segir að ákveðið hafi verið að rjúfa tekin í ijósi yíirlýsinga Alþingis
Magnússon undirrituðum, á að hafin en frestast til dagsins í dag. útsendingar frá Alþingi til aö sjálfs um að þingið myndi í síðasta
sýna órofna dagskrá frá þinginu. Salome segist árangurslaust hafa hleypa kosningaþættinum að í fjósí lagi Ijúka störfum í Iiðinni viku.
Það var búið að hafa samband við reynt að ná i Pál Magnússon i nótt þess að Sjálfstæðisflokkurinn hafi Því hefðu menn ekki átt von á skör-
forsvarsmenn Sýnar fyrir kvó’.dið vegna þessa máls. Skilaboöum á verið búinn að leggja í rnikinn aug- un á borð við þá sem varð í gær-
svoleiðis að þetta átti ekki aö ger- símsvara haíi heldm- ekki verið lýsingakostnað vegna hans. í stað kvöldi. „Ádauðamínumáttiégvon
ast,“ segir Salome Þorkelsdóttir, sinnt. Hún kveðst eiga von á skrif- þess að sýna þáttinn þrisvar hafi en ekki þeim viðbrögðum Alþingis
forseti Alþingis. legri skýringu frá Sýn í dag. Iiann hins vegar einungis verið aö láta fundartíma sinn stjórnast
Sýn rauf útsendingu frá Alþingi „Það er krafa okkar að staðið sýndur einu sinni. Hann segir ekki af útsendingum Sýnar. Eg skil
í gærkvöldi til að koma að 20 mín- verði við gerðan samning. Það er liggja Ijóst fyrir hvernig útsending- þetta ekki. Menn liljóta að vera eitt-
útnakosningaþættifráSjálfstæiðis- þeirra skylda. Þaö er stefnt að því um verði hagað í kvöld og segir hvað vansvefta og taugaveiklaðir,"
flokknum i Reykjavík. Þessu mót- að halda fund í þinginu i kvöld og ákvörðun um það tekna i samráði segir Páll.
•v
Sjúkraflutningamenn hraða sér með skipverjann af Sigli á Borgarspitalann í gær. Skipverjinn gekkst undir aðgerð
í nótt. DV-mynd
Húsbmni á Drangsnesi:
Hjón með
fjögur börn
björguðust
„Sjómenn vöktu okkur kiukkan
þrjú. Þá var kominn þónokkur reyk-
ur hérna inn í húsið. Við hlupum öll
út og þá var töluverður eldur í ytra
byrði hússins og logaði upp eftir
veggjunum," sagði Sigrún Jónsdótt-
ir, íbúi á Drangsnesi í mynni Stein-
grímsfjarðar.
Eldur kom upp í íbúðarhúsi Sig-
rúnar, þar sem hún býr ásamt manni
sínum og fjórum börnum á aldrinum
5 til 16 ára, aðfaranótt mánudags.
Þau björguðust öll úr eldinum sem
kviknaði út frá kolum sem eldað
hafði verið við fyrr um köldið. Um
miðnætti á sunnudag höfðu þau tekið
kolin og sett þau í rushð.
Menn, sem voru á leið á sjó um
nóttina, urðu eldsins varir, vöktu
fólkið og slökktu eldinn.
Litiar skemmdir urðu af völdum
eldsins innandyra en töluverðar
reyk- og sótskemmdir. Hins vegar er
húsið nokkuð brunnið að utan.
Sigrún segist hafa verið með reyk-
skynjara og hann hafi ekki farið í
gang. Samt hafi reykur verið mjög
mikill, til dæmis hafi hún þurft að
gera þrjár tilraunir til að fara inn
eftir fatnaði á sig en þurft frá að
hverfa í tvö skipti vegna reyksins.
Veðriðámorgun:
Skýjað
enþurrt
Á morgun verður austiæg átt, víð
ast kaldi. Rigning sunnanlands o|
þokubakkar með Norður- og Austm:-
ströndinni en annars yfirleitt skýjaf
en þurrt. Hiti 5-12 stig.
Veðrið í dag er á bls. 28
Flexello
Vagn- og húsgagnahjól
M\Þuls€*n
Suöurtandsbraut 10. S. 686489.
t
\
\
\
\
\
\
\
í
\
\
\
\
\
\
\
\
\
\
\
\
\
\
\
\
\
\
\
\
\
i