Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1994, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1994
3
Fréttir
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra um svarta skýrslu um nýtingu þorskstofna:
Aðeins verið að benda
á hagkvæmustu leiðirnar
„Menn mega ekM misskilja þessa
skýrslu. í henni er fyrst ög fremst
verið að meta það hvaða leiðir eru
hagkvæmastar til að byggja þorsk-
stofninn upp og ná úr honum mest-
um arði. Hún felur ekki í sér neina
langtímaspá um þróun þorskstofns-
ins. Hún er fyrst og fremst vísbend-
ing um efnahagslegan mismun að
óhkum leiðum við nýtingarákvarð-
anir. Það er hins vegar alveg ljóst að
þorskstofninn getur stækkað hægar
eða hraðar en þarna er gert ráð fyr-
ir. Þannig er það ljóst að þetta er
ekki langtímaspá um.stærð stofnsins
heldur vísbending um efnahagslegan
mismun á því hversu langt menn
fara í að skera veiöarnar niður,“ seg-
ir Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra um skýrslu þá er fulltrúar
Hafrannsóknastofnunar og Þjóð-
hagsstofnunar skiluðu á dögunum.
í skýrslunni er lagt til að ekki verði
leyft að veiða meira en 175 þúsund
lestir af þorski á næstu árum og helst
ekki meira en 125 þúsund lestir. Þá
er miðað við að ná hrygningar- og
veiðistofninum upp í ákveðið magn.
Þorsteinn Pálssonar segir það ekkert
nýtt að bent sé á ákveðin hættumörk
viö 175 þúsund lesta veiði.
„Það hefur komið fram hjá Haf-
rannsóknastofnun að þar séu hættu-
mörk og bent á að þar sé 7 prósenta
hætta á algeru hruni stofnsins," seg-
ir Þorsteinn.
Hann var spurður hvað hann teldi
hægt að fara langt niður í þorskveið-
um miðaö við efnahagsafkomu þjóö-
arbúsins?
Hann vildi ekki nefna tölu í því
sambandi en sagði:
„Þaö kemur fram í þessari skýrslu
að það er ekki bara hreinn módel-
eða líkanaútreikningur á því hvaða
veiði gefi mestan arð, menn þurfa
hka að taka tilht til þess hvað hægt
sé að skera veiðamar niður. Það
verður að skoða hvaða áhrif niður-
skurður hefur á markaði okkar og
annað og taka tillit til þeirra þátta. A
þessi atriði öll er bent á í skýrsl-
unni,“ sagði Þorsteinn.
Þess má geta að í fyrra lagði Haf-
rannsóknastofnun til aö ekki yrðu
veiddar nema 150 þúsund lestir af
þorski á þessu veiðiári. Ljóst er að
þorskveiðin fer í um 225 þúsund lest-
ir. Von er á skýrslu Hafrannsókna-
stofnunar um ástand nytjastofna í
byrjun júní. Þeir sem DV hefur rætt
við um málið telja víst að lagt verði
tíi að minna verði veitt af þorski á
næsta veiðiári en gert var í fyrra.
Jafnvel að lagt verði til að veiöa ekki
meira en 135 þúsund lestir.
8 mánuðir fyrir kynferðisbrot gegn 6 ára
36 ára Reykvikingur hefur verið
dæmdur í 8 mánaða fangelsi fyrir að
hafa leitað kynferðislega á 6 ára
frænku sína um haustið 1991. Fang-
elsisrefsingin er óskilorðsbundin.
Atburðurinn átti sér stað á heimili
stúlkunnar. Maðurinn var þar gest-
komandi. Eftir verknaðinn kom
stúlkan inn til móður sinnar og
greindi henni frá því sem gerst hafði.
Maðurinn hafði farið höndum um
líkama hennar og sýnt af sér aðra
kynferðislega tilburði. Máhð fór til
félagsmálayfirvalda og var síðan
kært til Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins.
Samkvæmt áhti starfsmanns
bamavemdarnefndar Reykjavíkur
hefur atburðurinn íþyngt stúlkunni
- þó ekki í sama mæh og áður. Starfs-
maðurinn kvaðst fyrir dómi telja að
henni þurfi að veita stuðning. Þegar
maðurinn kom fyrir dóm bar honum
í meginatriðum saman við það sem
stúlkan bar að gerst hefði.
Héraðsdómur Reykjavíkur taldi
ekkert í málinu „veikja játningu
ákærða“ og væri hún í samræmi við
annað sem fram hefði komið í mál-
inu. Við ákvörðun refsingar var tekið
miö af því að á árunum 1979-1991 var
sakbomingurinn fimm sinnum sekt-
aður fyrir brot á fikninefnalögum.
Tilht var tekið tíl þess að maðurinn
viðurkenndi brot sitt greiðlega og aö
tæp þrjú ár em hðin frá því atburð-
urinn átti sér stað. Manninum er
gert að greiða 20 þúsund krónur í
saksóknaralaun og 35 þúsund krón-
ur í málsvamarlaun. Pétur Guð-
geirsson héraðsdómari kvað upp
dóminn.
SCOUPE TURBO
...og gamanið hefstfyrir alvöru
Hyundai Scoupe er hannaður fyrir þá sem hafa
yndi af akstri og þora að vekja athygli. Útlitið er
ferskt og sportlegt og þýður akstur bílsins í
samræmi við mjúkar bogadregnar línur hans.
HYunoni
...til framtíðar
Láttu drauminn rætast -fáðu þér fallegan sportbíl
og njóttu þess að vera úti að aka.
• Álfelgur
• Vindskeið með bremsuljósum
• Útvarp, segulband og 4 hátalarar
• Leðurklætt stýri
• 1500 cc
• 116 hestöfl
ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 68 12 00
Verð frá 1.397.000 kr.