Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1994, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1994, Blaðsíða 24
40 FÖSTUDAGUR 20. MAÍ1994 Ný ÚRVALSBÓK - eins og þær gerast BESTAR Síminn er (91)63 27 00 Fréttir Fyrrverandi aöstoöarútsölustjóri ÁTVR: 2 ára f angelsi og 23 milljónir í bætur Hæstiréttur dæmdi í gær Þorkel Einarson, fyrrum aðstoðarútsölu- stjóra í verslun ÁTVR við Lindar- götu, í 2 ára fangelsi fyrir stórfelldan fjárdrátt í starfi sínu á árunum 1986- 1991. Auk refsingarinnar var Þorkell dæmdur til að greiða ÁTVR rúmlega 23 mUljónir í skaðabætur. Hæstiréttur staðfesti með þessu dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá í apríl 1993. Hjörtur Torfason, einn af fimm hæstaréttardómurum í mál- inu, skiiaði sératkvæði. Hann taldi refsinguna hæfilega en taldi að Þor- kell ætti að greiða 16,5 milljónir króna í skaðabæturr - ekki heíði tek- ist að sýna fram á með óyggjandi hætti að hann hefði dregið sér hærri fjárhæð. Þegar eftirlitsmenn komu að telja birgðir og fara yfir sjóði ÁTVR við Lándargötu í október 1991 kom í ljós að 216 tómir áfengiskassar voru í stæðum vörulagersins. Aðstoðarút- sölustjórinn viðurkenndi fljótlega að hafa stundað að draga sér svonefnda veisluvínstékka úr kassa vínbúðar- innar og að hafa leynt íjárdrættinum með því að setja tóma kassa inn í stæðumar. Eftir því sem á leið voru tölur í talningaskýrslum lagfærðar. Þorkell kvaðst hafa haldið bók yfir fjárdrátt sinn í upphafí en hætt því árið 1980. Hann taldi fiárdráttinn ekki hafa náð 23 milljónum eins og hann var ákærður fyrir. Maðurinn sagðist hafa notað þá peninga sem hann dró sér í neyslu og til að losa sig út úr fjárhagsvandræðum. Hann hafi ætlað að greiða peningana til baka - en síðan hafi þetta undið upp á sig. Dómurinn tók mið af því að ekkert hefur verið greitt til baka af peningunum. Það voru nemendur i Hlíðaskóla sem hlutu hjólreiðabikar lögreglunnar. Við skoðun á hjólum grunnskólanemenda kom í Ijós að öryggisútbúnaður hjóla nemenda í Hliðaskóla var með ágætum, auk þess sem þaðan tók stór hópur þátt í hjólreiðadeginum. DV-mynd S Frjáls fjölmiðlun sýknuö: Uppsögn dæmd lögmæt Hæstiréttur sýknaði í gær Frjálsa fjölmiðlun hf. af kröfum blaðamanns sem sagt var upp störfum árið 1987. Forsaga málsins er sú að blaða- maður DV, sem gefið er út af Frjálsri fjölmiðlun, var í orlofi frá í júlí 1987 þar til í október sama ár að hann átti að heíja störf á ný. í lok september sendi blaðamaður- inn bréf til Frjálsrar fjölmiðlunar þar sem hann óskaði eftir launalausu leyfi til áramóta og skriflegu svari við þeirri ósk. Fram kemur í dómn- um að blaðamaðurinn kannaði ekki undirtektir við beiðni sinni með við- hlítandi hætti, mætti ekki til vinnu og boðaði ekki forföll. í framhaldi af því var honum sagt upp störfum. í dómnum kemur fram að ósannað sé að blaðamaðurinn hafi gert vinnu- veitanda sínum grein fyrir veikind- um sem hann átti við að striða og ekki sé sannað að uppsögnin hafi byggst á því. Hins vegar hafi vinnu- veitanda aö einhveiju leyti verið kunnugt um að blaðamaöurinn var ekki heill heilsu. í ljósi þess að blaðamaöurinn van- efndi vinnuskyldu sína í uppsagnar- fresti getur hann ekki átt kröfu til launa eða annarra greiðslna úr hendi Frjálsrar fjölmiðlunnar fyrir þann tíma, segir í dómnum. í ljósi þessa sýknaði Hæstiréttur Fijálsa fjölmiðlun og hnekkti þannig dómi sem kveðinn var upp fyrir Bæjarþingi Reykjavíkur. Júlíus skipaður tryggingayfirlæknir Júlíus Valsson hefur verið skipað- ur tryggingayfirlæknir Trygginga- stofnunar ríkisins af heilbrigðis- og tryggingaráðherra frá 1. júní. Tryggingarráð greiddi atkvæði um hæfi 18 umsækjenda um stöðuna og fékk Vilhjálmur Rafnsson tvö at- kvæði og annar umsækjandi, sem óskaði nafnleyndar, tvö atkvæði og Júlíus Valsson eitt atkvæði. Karl Steinar Guðnason, forstjóri Tryggingastofnunar, gerði tfilögu um að Júlíus Valsson yrði skipaður og í ljósi þess og niðurstöðu Trygg- ingarráðs skipaði heilbrigðisráð- herra Júiíus í stöðuna. Júlíus hefur starfað sem trygginga- læknir frá júlí 1990 og var settur tryggingayfirlæknir í lok síðasta árs þegar Björn Önundarson sagði starfi sínu lausu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.