Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1994, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1994, Blaðsíða 25
FÖSTUDAGUR 20. MAÍ1994 41 Afmæli ÓlöfE. Bjamadóttir Ólöf Erla Bjamadóttir, leirlistamað- ur og kennari, Hófatúni, Hvanneyri í Andakílshreppi, er fertug í dag. Starfsferill Ólöf er fædd í Reykjavík og ólst upp þar og í Kópavogi, Cambridge, París og Ósló. Hún lauk landsprófi frá Kvennaskólanum og stúdents- prófi frá MR1974. Ólöf var í Mynd- lista- og handíðaskólanum 1974-77 og 1980-82 og útskrifaðist úr keramikdeild. Hún fékk réttindi sem kennari 1991. Ólöf hefur verið leirhstamaður og kennari frá 1977. Fyrst á Grímsstöð- um á Fjöllum til 1985 en hún var einnig oddviti þar síðustu árin, þá í Borgarnesi til 1989 og svo á Hvann- eyri en Ólöf hefur ennfremur starf- að við alifuglarækt. Ólöf hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum og einnig haldið einkasýningar. Hún er ritari Leir- hstafélagsins og Ungmennafélags- ins íslendings. Ólöf stundar söng- nám við Tónhstarskóla Borgar- fjarðar en hún hefur sungið í kórum héraðsins. Fjölskylda Ólöf giftist 26.6.1976 Sigurði Axel Benediktssyni, f. 19.7.1955, rann- sóknarmanni við bútæknideild RALA. Foreldrar hans: Benedikt Sigurðsson og kona hans, Kristín Axelsdóttir, bændur á Grímsstöðum á Fjöhum. Benedikt er af Gríms- staðaætt en Kristín er frá Ási í Kelduhverfi. Böm Ólafar og Sigurðar: Benedikt Bragi, f. 11.5.1977, nemi; Kristín Erla, f. 4.6.1983. Bræður Ólafar: Jón Bragi, f. 15.8. 1948, efnafræðiprófessor, maki Guð- rún Stefánsdóttir, þau eiga þrjú böm; Guðmundur Jens, f. 4.9.1955, lyfjafræðingur, maki Guðrún Stein- arsdóttir, þau eiga tvö börn. Foreldrar Ólafar: Bjarni Bragi Jónsson, f. 8.7.1928, aðstoðarbanka- stjóri Seðlabankans, og Rósa Guð- mundsdóttir, f. 25.3.1930, kennari, þau eru búsett í Kópavogi. Ætt Bjami Bragi er sonur Jóns, sýslu- manns í Stykkishólmi, bróður Ein- varðs, starfsmannastjóra Lands- bankans, fóður Hallvarðs ríkissak- sóknara og Jóhanns alþm. Aðrir bræður Jóns voru Sigurjón skrif- stofustjóri og Jónatan hæstaréttar- dómari, faðir Halldórs, forstjóra Landsvirkjunar. Jón var sonur Hahvarðs, b. í Hítamesi, Einvarðs- sonar, b. í Skutuley, Einarssonar. Móðir Jóns var Sigríður Jónsdóttir, b. í Skiphyl, bróður Páls, langafa Megasar. Systir Jóns var Oddný, langamma Guðrúnar Helgadóttur skólastjóra og Ingvars forstjóra, fóð- ur Júlíusar Vífils óperusöngvara, og langamma Júlíu, móður Svein- björns I. Baldvinssonar dagskrár- stjóra. Móðir Bjarna Braga var Ólöf, Ólöf Erla Bjarnadóttir. dóttir Bjarna, læknis á Breiðaból- stað á Síðu, bróður Jóns yfirdóm- ara, afa Jóhannesar Nordals. Bjami var sonur Jens, rektors Sigurðsson- ar, bróður Jóns forseta. Móðir Bjarna læknis var Ólöf, dóttir Björns Gunnlaugssonar, yfirkenn- ara og stærðfræðings. Bróðir Rósu er Gunnar. Guð- mundsson, eigandi GG í Dugguvogi. Rósa er dóttir Guðmundar verk- stjóra í Reykjavlk, Matthíassonar, sjómanns í Reykjavík, Péturssonar. Móðir Guðmundar var Guðrún Sig- urðardóttir frá Hárlaugsstöðum. Móðir Rósu var Sigurrós Þorsteins- dóttir, b. á Horni, Þorsteinssonar, bróður Katrínar, ömmu Lúðvíks Jósepssonar, fv. ráðherra. Móöir Sigurrósar var Halldóra, systir Stef- áns, afa Stefáns Jónssont ithöf- undar ogalþm. Meiming Básúnuleikur í Bústaöakirkju Tónleikar voru í Bústaðakirkju í gærkvöldi. Carsten Svanberg lék á básúnu við undirleik Guðna Þ. Guð- mundssonar, orgelleikara Bústaðakirkju, ásamt kór kirkjunnar. A efnisskránni voru verk eftir J. Baptiste, Axel Madsen, Carl Maria von Weber, E.T.A. Hoffman, Gunnar Hahn, Erland von Koch, Wolfgang Amadeus Mozart og Alexandre Guhmant. Carsten Svanberg er fæddur í Danmörku og dvelur sem gestur hér á landi um þessar mundir. Efnisskráin var blanda verka þar sem básúna var í sólóhlutverki og verka þar sem kórinn fékk að spreyta sig. Fyrst var sónata eftir Baptiste, hpurlega samið barokkverk, sem fékk ágætan flutning þama. Lag við 121. Davíðs- sálm eftir Madsen hljómaöi einkar fahega. Þar komu kvennaraddimar einar við sögu og var það hreinn og góður söngur. Romance eftir von Weber var heldur þunnur þrettándi enda þótt það væri prýðhega flutt og svipað má segja um canzonettur Hoffmanns. Það er erfitt að skhja hvers vegna menn em að teygja sig aftur í aldir eftir tónhst af þessu tagi. Samtímatónhst kann að vera umdehd um margt en ahir hljóta að vera sammála um að léttmeti á hann í yfirfljótandi magni og við allra hæfi. Himmelriket liknas eftir Hahn hljómaði eins og tilbrigði við gamalt sálmalag. Verkið er einfalt en býr yfir látlausum þokka sem komst vel til skha þarna. Svipað má segja um verk von Kochs fyrir einleiksbásúnu. Nokkuö skorti á skýrleika th Tónlist Finnur Torfi Stefánsson þess að Latate dominum Mozarts nyti sín og Marceau Symphonique eftir Guilmant komst ekki almennilega á flug og virtist það verkinu sjálfu að kenna. Það fer ekki milh mála að Svanberg er básúnuleik- ari í fremstu röð. Leikur hans var sérlega hlýr og tón- elskur auk þess að vera tæknhega óaðfinnanlegur. Það er alltaf gaman að heyra hve málmblásturshljóðfæri eins og básúna, getur búið yfir mikhh mýkt og bhðu þegar vel er leikið. Kórinn ásamt stjómanda sínum og orgeheikara gerði margt fallegt þótt snurður væru finnanlegar á stöku stað. I hehd tókust þessir tónleik- ar ágætlega. Fréttir Höfn: Bæjarfélagið nýtti sér forkaupsréttinn Júlía Imsland, DV, Höfh: Nýstofnað fyrirtæki, Fiskhóll hf. hér á Höfn, hefur keypt fiskiskipið Hrísey. Bæjarfélagið á Höfn nýtti forkaupsrétt sinn á skipinu þegar stóð að selja það úr byggðarlaginu. Skipið hefur fengið nafnið Silfur- nes SF 99. Silfumesið fer á humarveiðar og verður með tvö troll. Grétar Vil- bergsson, einn eigenda, er skip- stjóri en hann var áður með Frey SF og fylgdi öh áhöfnin honum yfir á nýja skipið. ' Tilkynningar Lýðveldishátíð í Breiðholti í dag, 20. maí, munu nemendur allra grunnskólanna í Breiðholti hittast kl. 13.30 á mótum Yrsufells og Suðurfells til þátttöku í sameiginlegri skrúðgöngu og verður gengiö inn á Leiknisvöll. Þar mun fara fram fjöldasöngur, skemmtanir og uppákomur. Félag eldri borgara í Reykjavík og nágr. Félagsvist í Risinu kl. 14 í dag. Margrét Thoroddsen er til viðtals um trygginga- mál nk. þriðjudag. Panta þarf tíma í s. 28812. Ath. Síðasta viðtal fyrir sumar- leyfi. Félag eldri borgara Kópavogi Spiluð verður félagsvist og dansað í Fé- lagsheimili Kópavogs, 2. hæð, í kvöld kl. 20.30. Húsið er öllum opið. ÞJÓÐLEIKHÚSID Sími 11200 Stóra sviðið kl. 20.00 GAURAGANGUR eftir Ólaf Hauk Símonarson Laud 28/5, uppselt. föd 3/6, nokkur sætl laus, sud. 5/6, nokkur sæti laus, föd. 10/6, laud. 11/6, mvd. 15/6, fid. 16/6. Síðustu sýningar i vor. Ósóttar pantanir seldar daglega. Litla sviðið kl. 20.30 KÆRA JELENA eftir Ljúdmilu Razúmovskaju í kvöld, uppselt, þrd. 31/5, uppselt, fid. 2/6, Id. 4/6, mvd. 8/6, næstsíðasta sýning, sud. 12/6, siðasta sýning. Ath. aöeins örfáar sýningar. Miðasala Þjóðlelkhússins er opin alla daga nema mánudaga frá 13.00-18.00 og fram að sýnlngu sýningardaga. Tekið á móti simapöntunum virka daga frákl.10. Laugardag fyrir hvitasunnu er opið frá kl. 13-18. Lokað er á hvitasunnudag. Annan dag hvitasunnu er simaþjónusta frákl. 13-18. Græna linan 99 61 60. Greiðslukortaþjónusta. Fjölskylduskemmtun með Milljónamæringunum MiUjónamæringamir halda tónleika við Hvaleyrarvatn fyrir ofan Hafnaríjörð á laugardag, kl. 16, í tilefni þess að hafa lokið við upptöku disks sem kemur út í júni. Laugardagskaffi Reykja- víkurlistans Opið hús laugardaginn 21. maí, kl. 10-18. Gestgjafi dagsins verður Guðrún Ágústs- dóttir og dagskráin hefst kl. 14 síðdegis. Fjölskylduhátíð í Bústaðasókn í tilefni af ári fjölskyldunnar verður efnt til fjölskylduhátíðar í Bústaðakirkju ann- an dag hvítasunnu, 23. maí, undir kjör- orðinu „eflum fjölskylduna". Hátíðin fer fram á svæði Víkings við Stjömugróf og hefst kl. 13.30. Laugardagsganga Hana nú Vikuleg laugardagsganga Hana nú í Kópavogi verður á morgun og lagt af staö frá Gjábakka, Fannborg 8, kl. 10. Nýlagað molakafft. Tónleikar Skemmtitónleikar kórs Ytri-Njarðvíkurkirkju Á annan 1 hvítasunnu, 23. maí, kl. 17, mun kór Ytri-Njarðyíkurkirkju halda tónleika í kirkjunni. Á efnisskránni em eingöngu létt lög, bæði trúarleg og ver- aldleg. Með kómum koma fram hljóm- sveit og einsöngvarar. Tapadfundid Trek fjallahjól tapaðist frá Hjallavegi Hvítt Trek 800, 21 gírs fjallahjól með bleikum lás, svörtum handfóngum og hnakk tapaðist aðfaranótt mánudagsins 16. mai frá Hjallavegi. Ef einhver hefur séð hjóhð eða veit hvar það er niðurkom- iö er sá vinsamlegast beðinn að hringja í síma 681147. Leikhús LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR GLEÐIGJAFARNIR eftir Neil Simon með Árna Tryggva og Bessa Bjarna. Þýðing og staðfærsla Gisli Rúnar Jónsson. Fimmtud. 26/5, laugd. 28/5. föstud. 3/6, næstsiðasta sýning, laugard. 4/6, síðasta sýning. Stóra sviðið kl. 20. EVA LUNA . Leikrit eftir Kjartan Ragnarsson og Óskar Jónasson. Unnið upp úr bók Isa- bel Allende. Lög og textar eftir Egil Ólafsson. í kvöld, uppselt, allra siðasta sýning. Geisladiskur með lögunum úr Evu Lunu tll sölu i miðasölu. Ath.: 2 miðar og geisla- diskur aöeins kr. 5.000. Miðasala er opin kl. 13.00-20.00 alla daga nema mánudaga. Tekið á móti miðapöntunum i sima 680680 kl. 10-12 alla virka daga. Bréfasími 680383. Greiðslukortaþjónusta. Munið gjafakortin okkar. Tilvalin tækifærisgjöf. Leikfélag Reykjavíkur - Borgarleikhús. Leikfélag Akureyrar ÓPERIJ DRAlJíilJRINN eftir Ken Hill í Samkomuhúsínu kl. 20.30. Laugardag 21. mai, nokkur sæti laus, næstsiðasta sýning. Föstudag 27. mai, siðasta sýning. lar ftr eftir Jim Cartwright SÝNT í ÞORPINU, HÖFÐAHLÍÐ1 Sýningar hefjast kl. 20.30. I kvöld, mánudag 23. maí, 2. í hvitasunnu ATH. Siðustu sýningar á Akureyri. Ath. Ekki er unnt að hleypa gestum i salinn eftir að sýning er hafln. Aðalmiðasalan í Samkomuhúsinu er opin alla virka daga nema mánudaga kl. 14-18 og sýningardaga fram að sýningu. Simi 24073. Simsvari tekur við miðapöntunum ut- an afgreiðslutíma. Ósóttar pantanir að BarPari seldar í miðasölunni i Þorpinu frá kl. 19 sýn- ingardaga. Sími 21400. Greiðslukortaþjónusta. Þjóðfélag án þröskulda „Þjóðfélag án þröskulda“ -Sjálfsbjörg heldur sýningu í Perlunni Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, stendur fyrir sýn- ingu á verkum 6. bekkjar grunnskólanemenda á 4. hæð í Perlunni dagana 21 .-29. maí 1994. Verkin, bæði myndir og Ijóð, eru afrakstur hugmyndasam- keppni sem Sjálfsbjörg stóð fyrir í vetur meðal um 1700 nemenda í grunnskólum á Austurlandi og í Reykjavík, undir kjörorðinu „þjóðfélag án þrösk- ulda“. Sýningin verður opnuð kl. 14.00 laugardaginn 21. maí og þá fer einnig fram verðlaunaafhending vegna þriggja bestu verkefnanna úr Reykjavík. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.