Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1994, Blaðsíða 8
8
FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1994
Stjómmál
Spurt á Eskifirði:
Hver verða úrslit
kosninganna?
Guðrún Rögnvarsdóttir: Ég vona að
kratar vinni sem flesta menn í þess-
um bæjarstjórnarkosningum.
Þorsteinn Joensen: Kratar fá tvo
menn í bæjarstjórn.
Eiríkur Friðriksson: Eg býst við sigri
framsóknarmanna og vona að þeir
nái hreinum meirihluta í bæjar-
stjóm.
Jón Þór Björnsson: Ég býst við því
að flokkamir haldi sínu. E-listinn
fær eitthvað af atkvæðum en í mesta
lagi einn mann kjörinn.
Laufey Oddsdóttir: Þaö verður eng-
inn einn framboðslisti sem vinnur í
þessum kosningum. Flokkarnir fá
sitt htið af hverju.
Hallur Guðmundsson: Ætii E-hstinn,
G-hstinn og A-hstinn fái ekki tvo
menn hver og Sjálfstæðisflokkurinn
einn mann. Framsóknarmenn vil ég
ekki sjá í bæjarstjóm.
I>V
Eskiflörður:
Fimm listar í framboði
Fimm listar eru í framboði á Eski-
firði að þessu sinni í stað fjögurra í
kosningunum 1990: A-listi Alþýðu-
flokks, B-hsti Framsóknarflokks, D-
listi Sjálfstæðisflokks, G-hsti Al-
þýðubandalags og E-listi Eskfirð-
inga. E-listinn bauð ekki fram í síð-
ustu kosningum en í forsvari fyrir
framboðið er fyrrverandi formaður
Framsóknarfélagsins á Eskifirði.
Þetta kjörtímabil hefur verið meiri-
hlutasamstarf milli A-hsta, B-hsta og
Frá Eskifirði
Emil Thorarensen, E-lista:
Nýtt og óvænt af I í bænum
„E-listinn er
nýtt og óvænt
afl í bæjarmál-
um hérna.
Skuldir bæjar-
félagsins era
um 157,5 millj-
ónir eða um 150
þúsund á hvern
íbúa. Stór hluti tekna bæjarsjóðs fer
því í fjármagnskostnað. Því þarf að
ná skuldunum niður,“ segir Emil
Thorarensen, efsti maður E-listans á
Eskifirði.
Að sögn Emils var ákveðið að bjóða
fram E-listann eftir að uppstilhngar-
nefnd Framsóknarfélagsins á Eski-
firði hafnaði prófkjöri og útilokaði
sig frá einu af þremur efstu sætum
B-listans. Ástæðan hafi verið sú að
menn óttuðust að ítök Hraðfrysti-
húss Eskifjarðar, og þar með Alla
ríka, yrðu of mikil þar sem Emil
væri útgerðarstjóri hjá fyrirtækinu.
í þessu sambandi undirstrikar Emil
að fjöldi aðila úr ólíkum áttum standi
að E-listanum.
„Atvinnumáhn eru í nokkuð góði
horfi hér miðað við það sem gengur
og gerist, enda er hér eitt öflugasta
sjávarútvegsfyrirtæki landsins. Það
er hins vegar grátlegt að sjá á eftir
störfum upp á Hérað sem ekki lúta
að sjávarútvegi."
Auðbergur Jónsson, G-lista:
Verðum að hlúa að vaxtarbroddum
„Atvinnumálin
eru okkar
helsta áhyggju-
efni hér á Eski-
firði. Við höfum
kynnst at-
vinnuleysinu
nú síðustu ár
en höfum áður
getað.státað af óvenjulega blómlegu
atvinnulífi aht frá síldarárunum ná-
lægt 1960. Meginorsök hnignandi at-
vinnuástands er ríkisstjórnarstefnan
enda er atvinnuleysi eitt af hag-
stjómartækjum ríkisstjórna. Og ein-
hæft atvinnuhf í fiskibæjum er vitan-
lega afar brothætt á þessum kvóta-
skerðingartímum. Við verðum því
að hlúa að öllum vaxtabroddum í
atvinnulífinu. Hvert einasta nýtt
starf skiptir máh,“ segir Auðbergur
Jónsson, efsti maður á G-hsta Al-
þýðubandalagsins.
Auðbergur segir fjárhagsstöðu
Eskifjarðar hafa stórbatnað á kjör-
tímabilinu undir stjórn núverandi
vinstri meirihiuta. Brýnt sé að áfram
verði fylgt ábyrgri stefnu enda fái
fjárvana bæjarsjóður engu áorkað.
„G-hstafólk leggur hér sem annars
staðar megináherslu á að efla og
bæta félagslega þjónustu, velferðar-
mál ungra og aldraðra."
Hrafnkell A. Jónsson, D-lista:
Atvinnumálin í brennidepli
„Sjálfstæðis-
menn á Eski-
flrði vekja at-
hygh á skulda-
stöðu bæjarins
nú í lok þessa
kjörtímabús
þar sem Sjálf-
stæðisflokkur-
inn hefur verið einn flokka í minni-
hluta. Fyrir síðustu kosnmgar var
gerö mikil atlaga að okkur út af
slæmri fjárhagsstöðu bæjarins. Þaö
vekur athygli þegar fjárhagsstaðan
er skoðuð nú við lok þessa kjörtíma-
bils að heildarskuldir bæjarins hafa
nær ekkert lækkað," segir Hrafkell
A. Jónsson, efsti maður D-listans á
Eskifirði.
Hrafnkell bendir á að heildarskuld-
ir bæjarins í árslok 1990 hafi verið
158,4 mihjómr. Það ár sé síðasta árið
sem fyrri meirihluti bar ábyrgð á. í
lok síðast árs hafl skuldimar verið
157,5 milljómr. Þó skuldir hafi lækk-
að um 856 þúsund sé skýringin sú
að þær hafi verið færðar af bæjar-
sjóði yfir að aðrar stofnanir.
„Forgangsverkefni okkar sjálf-
stæðismanna á næsta kjörtímabili
em atvinnumál, umhverfismál
ásamt íþrótta- og tómstundamálum.
Atvinnumáhn eru í brennidepli. Á
síðasta kjörtímabih hefur atvinnu-
leysið orðið viðvarandi og þeirri þró-
un ætlum við að snúa við.“
Sigurður Hólm Freysson, B-lista:
Fjánnálastjórnun og framkvæmdir
„Hjá okkur
framsóknar-
mönnum eru
ahir málaflokk-
ar undir. Það
sem við teljum
hins vegar
brýnast er
ábyrg fjármála-
stjómun og markvissar fram-
kvæmdir í umhverfismálum og
gatnagerð. Einnig er mikUvægt að
fylgjast grannt með atvinnulífinu,
þannig að hægt verði að grípa inn í
án þess að taka beinan þátt í rekstri
fyrirtækja," segir Sigurður Hólm
Freysson, efsti maöur B-listans á
Eskifirði.
Ásbjöm Guðjónsson, A-lista:
Meiri fjölbreytni í atvinnulíf ið
„Þau mál sem
koma til með að
vera mest í um-
ræðunni em at-
vinnu- og um-
hverfismál.
Þótt atvinnu-
ástandið sé í
betra lagi mið-
að við marga aðra staði þá vantar
okkur meiri fjölbreytni í atvinnulíf-
ið. í því sambandi má nefna uppbygg-
ingu tengda ferðamálum, hvers kon-
ar handverk og smáiðnað, einnig
fiUlvinnslu sjávarafurða," segir Ás-
björn Guðjónsson, efsti maður A-
Ustans á Eskifirði.
Ásbjöm segir að núverandi meiri-
hluta hafi tekist aö laga fjárhags-
stöðu bæjarins tU muna. Halda þurfi
Sigurður segir afar erfitt að átta sig
á úrslitum kosninganna í lok næstu
viku. Hins vegar segir hann að standi
vUji kjósenda á Eskifirði til að auka
hlut kvenna í stjómun bæjarins sé
rétta leiðin að kjósa B-Ustann.
„Það má geta þess að þessa dagana
er verið að hefja mikið átak til að
bæta ástand frárennslis frá bænum
og eins em miklar framkvæmdir við
íþróttasvæði bæjarins. Þessum verk-
efnum munum við halda áfram.“
áfram á þeirri braut því bættur fjár-
hagur gefi svigrúm tU meiri fram-
kvæmda.
„í umhverfismálum má nefna frá-
gang smábátahafnar, ýmis opin
svæði í bænum, fullnaðarfrágang
gatna og gangstíga, íþróttavellina
ásamt frjálsíþróttaaðstöðunni. Eins
er brýn þörf á að koma holræsalögn-
um í viðunandi horf.“
G-hsta. Ekkert hefur verið gefið út
um framhald hstasamstarfs á Eski-
firði og öhum leiðum haldið opnum.
LUdegt þykir þó að E-listi og D-listi
myndi nýjan meirihluta fái þeir til
þess fylgi.
Eins og á öðrum útgerðar- og fisk-
vinnslustöðum hefur atvinnuleysi
gert vart við sig á Eskifirði undanfar-
in misseri. IUa hefur gengið að koma
fótum undir nýja atvinnustarfsemi
og á kjörtímabUinu flutti Bifreiða-
skoðun íslands upp á Hérað ásamt
dómaraembættinu. Störfum hefur
þvi fækkað umfram þau sem rekja
má til samdráttar í sjávarútvegi.
Á Eskifirði búa rúmlega þúsund
manns og miðað við þjóðskrá hefur
íbúm fækkað um 5 frá því í árslok
1990. Á kjörskrá núna em 723 en
voru 745 fyrir fjórum ámm. Bæjar-
stjóri Eskfirðinga er Arngrímur
Blöndal.
Melrlhlutasamst. A + B + G
Úrslitin 1990:
Fjórir hstar buðu fram í kosningun-
um 1990. A-hsti Alþýðuflokks fékk 84
atkvæði og einn mann kjörinn, B-listi
Framsóknarflokks 249 atkvæði og
þijá menn kjöma, D-hsti Sjálfstæðis-
flokks 200 atkvæði og tvo menn
kjöma og G-hsti Alþýðubandalags 72
atkvæði og einn mann kjörinn.
Þessi vom kjörin í bæjarstjóm:
Guðmundur Þ. Svavarsson (A), Gísh
Benediktsson (B), Sigurður Hólm
Freysson (B), Jón Ingi Einarsson (B),
Skúh Sigurðsson (D), Hansína Hall-
dórsdóttir (D) og Hjalti Sigurðsson
(G).
Framboðslist-
A-listi Alþýðuflokks:
1. Ásbjörn Guðjónsson.
2. Katrín Guðmundsdóttir.
3. Jósep Snæbjörnsson.
4. Grétar Rögnvarsson.
5. Bjamrún Haraldsdóttir.
B-listi Framsóknarflokks:
1. Sigurður Hólm Freysson.
2. Unnar Björgólfsson.
3. Friðgerður Maríasdóttir.
4. Alrún Kristmannsdóttir.
5. Sigurjón Kristjánsson.
D-listi Sjálfstæðisflokks:
1. Hrafnkel! A. Jónsson.
2. Andrés Elísson.
3. Skúli Sigurðsson.
4. Friðrik Á. Þorvaldsson.
5. Árni Helgason,
E-listi Eskfirðinga:
1. Emil Thorarensen.
2. Þorbergur Hauksson.
3. Haukur Bjömsson.
4. Guðni Þór Elísson.
5. Anna Jóna Pálmadóttir.
G-listi Alþýðubandalags:
1. Auðbergur Jónsson.
2. Guðrún Margrét Óladóttir.
3. Gísh Arnar Gíslason.
4. Jórunn Bjarnadóttir.
5. Bragi Þórhahsson.