Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1994, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1994, Blaðsíða 26
FÖSTUDAGUE 20. MAÍ1994 42 Afmæli Hrefna Kristmannsdóttir Hrefna Kristmannsdóttir, yfirdeild- arstjóri á Orkustofnun, til heimiiis að Látraströnd 30, Seltjamarnesi, erfimmtugídag. Starfsferill Hrefna fæddist í Hveragerði. Hún ólst upp í Reykjavík frá tveggja ára aldri hjá móður sinni og síðar móð- urafa. Hrefna lauk stúdentsprófi frá MR 1963, lauk cand mag-prófi í jarð- fræði, efnafræði og eðlisfræði frá háskólanum í Ósló 1967, cand real- prófi í jarðefnafræði frá sama skóla 1970 og hafði síðan rannsóknarað- stöðu við háskólann í Ósló um eins ársskeið. Hrefna var stundakennari við HÍ 1971-73. Hún hóf störf við Jarðhita- deild Orkustofnunar 1971 og hefur verið þar yfirdeildarstjóri jarðefna- fræðisviðs frá 1979. Hrefna var gistikennari við há- skólann í Bristol á Englandi í eitt ár og dvaldi í Japan í nokkra mán- uði við rannsóknir og fyrirlestra- hald í boði japanskra samtaka um eflingu vísinda og alþjóðlegs sam- starfs. Hún hefur stjómað fjölda þverfaglegra verkefna um jarðhita- nýtingar, vinnueftirht og umhverf- ismál, haldið fjölda fyrirlesta er- lendis og skrifað tugi fræðigreina í erlendfagtímarit. Hrefna er kjörfélagi í Vísindafé- lagi íslendinga, hefur setið í stjórn og verið formaður Félags íslenskra náttúrufræðinga og Jarðfræðafé- lags íslands, hefur tekið þátt í er- lendu - einkum norrænu - sam- starfi og verið um árabil í stjóm og um skeið formaður Nordisk Lerfór- ening. Fjölskylda Hrefna giftist 4.1.1964 Helga Björnssyni, f. 6.12.1942, jarðeðlis- fræðingi. Þau skildu. Börn Hrefnu og Helga eru Svan- hildur Helgadóttir, f. 5.1.1971, nemi; Bjöm Helgason, f. 18.9.1974, nemi; Ásdís Helgadóttir, f. 5.1.1982, nemi. SambýUsmaður Hrefnu er Axel Björnsson, f. 25.9.1942, jarðeðUs- fræðingur og framkvæmdastjóri Vísindaráðs, sonur Björns E. Kristj- ánssonar, fyrrv. lögregluvarðstjóra, og konu hans, Auðar Axelsdóttur húsmóður. Systur Hrefnu, samfeðra, eru Randi SeUevold, f. 26.9.1926, d. 17.10. 1985, húsmóðir; VUdís, f. 14.9.1938, verslunarmaður í Reykjavík; Ninja, f. 17.9.1950, einkaritari í New Jers- ey; Ingilín, f. 30.4.1973, nemi; Kaðl- ín, f. 2.2.1976, nemi. Foreldrar Hrefnu vom Kristmann Guðmundsson, f. 23.10.1901, d. 20.11. 1983, rithöfundur, og kona hans, Svanhildur Steinþórsdóttir, f. 7.8. 1919, d. 24.4.1981, ritari í Reykjavík. /Ett Hálfbróðir Kristmanns er JúUus, faðir Einars eðUsfræðings. Annar hálfbróðir Kristmanns er Guðröður kaupfélagsstjóri, faðir Friðjóns, sýslumanns á HeUu. Kristmann var sonur Guðmundar, sjómanns á Helgastöðum í Skuggahverfi í Reykjavík, Jónssonar, b. í Hæk- ingsdal, Jörundssonar. Móðir Guð- mundar var Gunnhildur Sigurðar- dóttir, b. í Káranesi í Kjós, Bjarna- sonar. Móðir Kristmanns var Guð- laug Björnsdóttir, b. á ÞverfelU, Sveinbjörnssonar, b. á Oddsstöðum, Árnasonar. Móðir Bjöms á ÞverfelU var Guðlaug Kristjánsdóttir, systir Salvarar, langömmu Björns Th. Bjömssonar. Móðir Guðlaugar Björnsdóttur var Ásrún Friðriks- dóttir, b. á Vífllsstöðum í Garða- hreppi, Sæmundssonar, b. á Sel- skarði á Álftanesi, Friðrikssonar, prests á Borg á Mýrum, Guðmunds- sonar. Móðir Ástrúnar var Þóra Einarsdóttir. Bróðir SvanhUdar er Haraldur, fyrrv. framkvæmdastjóri BSRB. Svanhildur var dóttir Steinþórs, guðfræðings og kennara Guð- mundssonar, b. í Krossadal, Egg- Hrefna Kristmannsdóttir. ertssonar, vinnumanns á Bæ á Rauðasandi, Magnússonar. Móðir Steinþórs var Helga Helgadóttir, b. á Fífustöðum, Jónssonar. Móðir Svanhildar var Ingibjörg, kennari og skáldkona, Benedikts- dóttir, b. á Bergsstöðum, Sigmunds- sonar, b. í Örlygsstaðaseli, Jónsson- ar. Móðir Ingibjargar var Ásta Þor- leifsdóttir, b. í Harastaðakoti, Þor- leifssonar. Hrefna tekur á móti gestum að heimih sínu á afmælisdaginn miUi kl. 16 og 18. Ketill Högnason KetUl Högnason tannlæknir, Mel- gerði 12, Kópavogi, er fimmtugur í dag. Starfsferill KetiU fæddist í Reykjavík og ólst þar upp til fjögurra ára aldurs en í Kópavogi eftir það. Hann lauk prófi frá Gagnfræðaskóla Kópavogs 1959, landsprófi ári síðar frá Gagnfræða- skóla Vesturbæjar við Vonarstræti og stúdentsprófi frá MR1964. KetUl lauk cand.odont-prófi frá HÍ1972, stundaði sérfræðinám í tannrétting- um í Osló 1982-84 og fékk réttindi meistara í tannsmíðum 1989. Hann vann sem skólatannlæknir í Reykjavík, sem almennur tann- læknir á ísafirði 1973-75, Selfossi 1975-82 en hefur unnið í Reykjavík frá 1984 og einnig á Egilsstöðum frá 1991. KetUl var formaður Félags tann- læknanema og ritstjóri Harðjaxls í HÍ. Hann var stundakennari við Oslóar-háskóla í tannréttingum vet- urinn 1983-84 og stundakennari við tannlæknadeild HÍ1989-90. Fjölskylda KetUl kvæntist 26.12.1964 HUdi- gunni Davíðsdóttur, f. 27.1.1943. Foreldrar hennar: Davíð Áskelsson, f. 10.4.1919, d. 14.7.1979, kennari, ogGuðbjörgKristjánsdóttir, f. 7.11. 1918, d. 30.11.1972. Böm Ketils og HUdigunnar: Helgi, f. 27.5.1965, húsasmíðanemi, kvænt- ur Guðrúnu Jóhönnu Sveinsdóttur, þau eiga eina dóttur, Kötlu Dóm, f. 1993, Helgi á einn son með Auði S. Jónasdóttur, Amar Frey, f. 1987; Davíð, f. 14.12.1969, íþróttakennari og húsgagnasmiður; Guðbjörg, f. 8.4. 1973, unnusti hennar er Svend Mikael Sigursteinsson, húsasmíða- Ketill Högnason. nemi, Guðbjörg útskrifast sem stúd- entfráMKídag. Systkin Ketils: Guðrún, f. 18,12. 1941, d. 1969, Guðrún eignaðist einn son, Amar Þórsson, d. 1968; HUdur, f. 9.12.1946, bankastarfsmaður, HUdur á þijárdætur, Kristínu Völ- undardóttur, Önnu Guðrún Gylfa- dóttur og ÞórhUdi Gylfadóttur; Haukur, f. 1.8.1950, vélvirki, kvænt- ur Helgu Mörtu Hauksdóttur sjúkraliða, þau eiga þrjá syni, Stein- grím Davíð, Arnar og Högna Snæ. Foreldrar KetUs: Högni Helgason, f. 26.9.1916, d. 14.4.1990, frá Odda, ísafirði, og Kristín HaUdórsdóttir, f. 3.7.1920, þau bjuggu í Kópavogi frá 1948 og þar býr Kristín enn. Ætt Högni var sonur Helga KetUsson- ar vélstjóra, Odda, ísafirði, og konu hans, Lám Tómasdóttur. Kristín er dóttir Halldórs Þor- grímssonar og Guðrúnar Jósefs- dóttur. KetUl, HUdigunnur og Guðbjörg, dóttir þeirra, taka á móti gestum í Lionsheimilinu að Auðbrekku 25 í Kópavogi frá kl. 20-22. Gullbrúðkaup Garðar Þormar, fyrrverandi bifreiðarstjóri hjá Norðurleið og starfsmað- ur Landsvirkjunar, og Ingunn Þormar húsmóðir, Háaleitishraut 38, Reykjavík, eiga guUbrúðkaup í dag. Til hamingju með afmælið 20. maí Ouðrún Jóniidóttir, Lágafelii, Hveragerð). (iuðrún Jónsdóttir, ; Túngötu 18, Grenirik. Alfreú Jónsson, Eyrarvegi 21, Ákureyri. Elínborg Sigurðardóttjr, Ilólavangi 1, Bellu. Svava Jóhannesdóttir, Kleppsvegi 96, Reykjavík. Anna Metúsalemsdóttir, Hleskogum 10, Kgiisstöðum. Kristján Ebenezersson, Borgarholtsbraut 29, Kópavogi. Hann er að heiman. Jónína Björg Helgadóttir, Aöaigötu 8, Arskógshreppi. María Pálsdóttir, Ofanleiti 17, Reykjavik. Inga Hálfdánardóttir, Kirldubraut 12, Höfn í Hornaflrði. María Amgrimsdóttir, : Hreiðarsstaðakoti, Svarfaðardals hreppi. Bergþóra Þorgrimsdóttir, Laugarnesvegi 40, Reykjavík. Pálnti Viðar Samúelsson, Reynihvammi 27, Kópavogi. Sigurgeir Magmisson, Vigdísarstöðura, Kirkjubvararas- hreppi. Jón ÓU Gíslason, Haukshólum 4, Reykjavík. Jón Þórðarson, Hraunsvegi 17, Njarðvik. Elsa Unnur Guðmundsdóttir, Lyngmóum 4, Garðabæ. Guðmundur (íuðmundsson, Hringbraut 67, Keflavík. Asiaug Árnadóttir, Ejarðaígötu 10, Mngeyri. Pétur Gestsson, Spóahólum 4, Reykjavik. Bjöm Björnsson, Birkihhö 38, Reykjavík : : Sigurður Ólafsson, : Sævangi 5, Hafnarfirði. Oddur H. Oddsson, Samtúni 24, Reykjavík. Hjörtur Jakobsson, Hraunbæ 150,: Reykjavík. Andlát Armann Kristinsson Armann Kristinsson, fyrrv. saka- dómari, til heimilis að Sunnuflöt 44, Garðabæ, lést á uppstigningardag, 12.5. sl. Útfór hans fer fram frá Dóm- kirkjunni í dag kl. 10.30. Starfsferill Ármann fæddist í Reykjavík 21.11. 1926 og ólst þar upp. Hann lauk stúd- entsprófi frá MR1946, embættis- prófi í lögfræði frá HÍ1952 og stund- aði framhaldsnám í refsirétti og rík- isrétti í Kaupmannahöfn 1952-56. Ármann starfaði við skjalarann- sóknir fyrir Reykjavíkurbæ 1956-57, var fulltrúi hjá sakadómaranum í Reykjavík frá 1957, settur sakadóm- ari hjá Sakadómaranum í Reykjavík 1%1 og skipaður sakadómari þar 1%2 en því starfi gegndi hann til 1990. Eftir það stundaði Ármann fræðistörf og ritstörf á sviði lög- fræði. Fjölskylda Eftirlifandi eiginkona Ármanns er Paula Sejr Sorensen, f. 1.5.1932, húsmóðir. Hún er dóttir Hugo Leth Sorensen, fisksala við Árósa í Dan- mörku, sem er látinn, og konu hans, Johanne Serensen húsmóður. Systkini Ármanns: Þorbjörg, f. 12.3.1925, latínukennari við MR; Árni, f. 18.2.1935, læknir í Reykja- vík; Auður Katrín, f. 8.4.1943, d. 31.1.1979. Foreldrar Ármanns voru Kristinn H. J. Ármannsson, f. 28.9.1895, d. 12.6.1966, rektor MR og dósent við HÍ, og kona hans, Þóra Árnadóttir, f. 11.6.1900, d. 23.3.1986, húsmóðir. Ætt Kristinn var bróðir Guðrúnar, móður Armanns Jakobssonar, lög- fræðings og bankastjóra við Útvegs- bankann. Kristinn var sonur Ár- manns, hreppstjóra á Saxhóh og skipasmiðs í Reykjavík, Jónssonar, b. á Hólahólum, HaUssonar. Móðir Kristins var Katrín Sveinsdóttir, b. á Þórólfsstöðum í Miðdölum, Guð- mundssonar, ogHafidóru Jónsdótt- ur, hreppstjóra á Höskuldsstöðum, bróður Margrétar, langömmu Helgu, móður Svavars Gests og langömmu Marðar Ámasonar. Jón var sonur Jóns, b. á Höskuldsstöö- um, Þórðarsonar, bróður Þórðar, langafa Kristjáns, afa Friðjóns Þórð- arsonar, fyrrv. sýslumanns og ráð- herra, og langafa Svavars Gestsson- ar, fyrrv. ráðherra. Annar bróðir Jóns var Bergþór, langafi Jóns, foð- ur Jóns, skálds á Ljárskógum. Systur Þóru voru Inga, móðir Þórs VUþjálmssonar, dómara við Mann- réttindadómstólinn í Strasborg, og Ólöf, móðir Hjördísar Hákonardótt- ur, héraðsdómara í Reykjavík. Bróðir Þóru var Gunnar, prestur í Kópavogi, faðir Auðólfs læknis, Stefáns bankastjóra og Áma, deUd- arstjóra í menntamálaráðuneytinu. Þóra var dóttir Áma, alþm. og próf- asts á Skútustöðum, bróður Sigurð- ar, ráöherra á YstafelU. Árni var sonur Jóns, b. á Skútustöðum, Ámasonar, b. á Sveinsströnd, Ara- sonar, bróður Kristjönu, móður Armann Kristinsson. Jóns Sigurðssonar á Gautlöndum, fóöur ráðherranna Kristjáns og Pét- urs og Rebekku, móður Haralds ráð- herra og langömmu Jóns Sigurðs- sonar, fyrrv. ráðherra, en Jón var einnig afi Steingríms Steinþórsson- ar forsætisráðherra. Móðir Árna á Skútustöðum var Þuríður Helga- dóttir, ættfóður Skútustaðaættar- innar, Ásmundssonar. Móðir Þóra var Auður, systir Ás- mundar, fóður Einars, hrl. og Morg- unblaðsritstjóra. Annar bróðir Auö- ar var Garðar stórkaupmaður, afi Jóns lögfræðings og Garðars húsa- meistara ríkisins, HaUdórssona og Garðars Gíslasonar hæstaréttar- dómara. Auður var dóttir Gísla, hreppstjóra að Þverá, bróður Ein- ars, alþm. í Nesi. Gísli var sonur Ásmundar, ættfróða á Þverá, Gísla- sonar. Móðir Auöar var Þorbjörg Olgeirsdóttir, b. í Garði, Ámasonar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.