Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1994, Qupperneq 17
16
FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1994
FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1994
33
íþróttir
Orebro komst
Eyjólfur HaröaiBqn, DV, Svíþjóð:
Amór Guðjohnsen og Hlynur
Stefánsson voru bestu menn
Örebro í gærkvöldi þegar liðið
sigraði Frölunda, 2-1, í sænsku
úrvalsdeildinni í knattspymu.
Sigurinn fleytti Örebro upp í ann-
að sæti deildarinnar. Önnur úr-
slit;
Gautaborg - Halmstad.......3-4
Hammarby - AIK.............1-2
Norrköping - Öster.........1-1
Helsingborg - Malmö FF.....0-0
Trelleborg - Landskrona....3-0
Hacken - Ðegerfors.........0-0
Öster er efst með 22 stig, Örebro
er með 21 og Gautaborg 19 stig.
Valsað Hlíðarenda
Knattspyrnuí'clagið Valur
gengst fyrir almenningshlaupi
sem hefst aö Hlíðarenda klukkan
14 á morgun.
Kosshættir
Norski skautahlauparinn Jo-
hann Olav Koss, sem er þrefaldur
ólympíumeistari, hefur ákveðið
að hætta að taka þátt í keppnum
á alþjóðlegum vettvangi. Ástæð-
an er sú að Koss ætlar að ein-
beita sér að námi í lyíjafræðí.
ítalska knattspymufélagið Tor-
ino keypti i gær franska lands-
liösmanninn Jocelyn Angloma
frá Marseille fyrir um 75 milljón-
ir króna..
Scalesílandsllðið
Joim Scales frá Wimbledon hef-
ur verið valinn í enska landsliðs-
hópinn í knattspyrnu, fyrir leik
gegn Noregi á sunnudag, í stað- ■
inn fyrir Gary Pallister sem er
meiddur.
ístandsmót
1. deild kvenna
Haukar - Dalvik
Ásvellir, Hafnarfirði
21. maí kl. 14.00.
Höttur - ÍA
Egilsstaðir
23. maí kl. 14.00.
UBK - KR
Kópavogsvöllur
23. maí kl. 14.00.
Valur - Stjarnan
Hlíðarendi
24. mal kl. 20.00.
Þjálfarar 1. deildar liðanna komu saman í gær og tóku þátt i spánni fyrir
sumarið. Aftari röð frá vinstri: Sigurður Lárusson (Þór), Marteinn Geirsson
(Fram), Hörður Hilmarsson (FH), Kristinn Björnsson (Valur), Ingi Björn Al-
bertsson (UBK). Fremri röð: ian Ross (ÍBK), Sigurlás Þorleifsson (Stjarn-
an), Guðjón Þórðarson (KR), Snorri Rútsson (ÍBV) og Hörður Helgason (ÍA).
DV-mynd Brynjar Gauti
KR og ÍA í sérflokki í sumar?
Þriðja KR-
spáin á
fjórum árum
„Ég tel þessa spá náttúrlega ekkert
marktæka. KR hefur verið spáð sigri
síðustu ár, kannski til þess að setja
pressu á okkur, en ég held að þetta
geri það ekki lengur," sagði Tómas
Ingi Tómasson, leikmaður með KR,
við DV í gær eftir að vesturbæjarlið-
inu hafði annað árið í röð verið spáð
sigri í 1. deildinni í knattspyrnu,
Trópídeildinni, - í hinni árlegu spá
þjálfara, forráðamanna og fyrirliða
félaganna.
Ef spáin gengur eftir mun KR hafa
betur í einvígi við ÍA um íslands-
meistaratitilinn í sumar en þessi tvö
liö fengu langflest atkvæði.
„Við höfum æft npög vel og erum
með mjög góðan hóp en síðan verð-
um við bara að sjá til. Auðvitað
stefna allir á toppinn og viö gerum
það líka. Deildin verður geystiega
erfið, Skaginn er mjög sterkur, FH
og Keflavík líka, og senntiega verða
þessi lið í efstu sætunum," sagði
Tómas Ingi.
Aðeins einu sinni
ræst á fimm árum
Tölfræðin er ekki KR í hag því spáin
um íslandsmeistara hefur aðeins
gengið upp einu sinni síöustu fimm
árin en það var þegar Fram var spáð
titlinum árið 1990. KR-ingar eru nú
settir í efsta sætið í þriðja skiptið á
Allirúr leik
Allir íslensku keppendumir féllu
strax út í sínum þyngdarflokki á
Evrópumeistaramótinu í júdói sem
hófst í Gdansk í Póllandi í gær, þar
með taldir Vernharð Þorleifsson og
Sigurður Bergmann sem þóttu lík-
legir tti afreka. Vernharð er síðasta
von íslands en hann keppir í opnum
flokki í dag.
fjórum árum og Fram var spáð sigri
1992.
Niðurstöðumar í spánni urðu þess-
ar:
1. KR.......................283
2. Akranes..................273
3. FH.......................196
4. Keflavík.................191
5. Valur....................175
6. Stjaman..................128
7. Fram.....................126
8. Þór......................119
9. Breiðablik...............102
10. ÍBV.......,.............. 57
ÍBV spáð botnsætinu
annað árlð í röð
ÍBV er spáð botnsætinu annað árið
í röö en það hefur aðeins einu sinni
gerst síðustu fjögur árin að botnliðið
í spánni hafi fallið, þannig að Eyja-
menn geta huggað sig við það.
„Þetta er bara fastur liður eins og
venjulega en við skulum spyrja að
leikslokum. Við komum óhræddir tti
leiks, emm vel undirbúnir fyrir
tímabtiið, og munum standa vel sam-
an í sumar. Okkar markmið hefur
verið að ná upp í miðja detid og svo
verður þetta að koma í ljós. Ég spái
jafnri deild þar sem liðin reyta stigin
hvert af öðru en ætli ÍA, KR og Valur
verði ekki ofarlega," sagði Snorri
Rútsson, þjálfari Eyjamanna.
Breíðholtshlaup 1994
21. mai 1994
Hlaupið hefst kl. 14.00 við íþróttahúsíð Austurbergi
og er hægt að velja um þrjár vegalengdir: 2 km,
5 km og 10 km.
Vegleg verðlaun eru fyrír 1. sæti i 5 og 10 km.
Þátttökugjald er 500 krónur og hefst sala í hlaupið
kl. 11.00 í iþróttahúsinu við Austurberg.
Hlauparar fá að loknu hlaupi frítt
í sundlaug Breiðholts.
Island (i) i
Bólivla 1-0 Þorvaldur Lið íslands: Bii Rúnar Kristinssc ilsson 87.), Sigui Krislján Jónssot (0)0 jrlygsson (43.) kir Kristinsson - n (Þormóður Eg- rsteinn Gíslason, Daði Dervic -
Amar Grétarssoi son 84.), Sigurðt valdur Örlygssoi laugsson, Eyjó Haraldurlngólfe laugsson 69.) Líð Bólivíu: \ (Hiltnar Björas- n- Jónsson, Þor- í - Amar Gunn- ifur Sverrisson, 5on(tíjarkiGunn- Rojas - Sourco,
Cristaldo, Juan Chavez (Ramallo ar, Pinedo - Aiv (CastiHo 78.) Markskot: íslai Homspymur:) Aúkaspymur: ísiand. Pena, Rimba - 58.), Soria, Melg- ara Pena, Ramos id 8, Bólivía 9. siand3, Bólivíal. 16 á Bóliviu, 13 á
Rangstöður: 4 Gulspjöld: Rúr Milton Melgar. Dómari: Lars mörku, ákveðinr stnu. Áhorfendur: 2 gang. Skilyröi: 4-5 stí ur, Laúgardalsi ósléttur og skellí i hvort lið. ar Kristinsson og Gemer frá Dan- og komst vel frá .707 greiddu að- ga hiti og næðing- röllurinn frekar útm-.
Af sökunin sem stóðst ekki
Antonio Lopez,
bólii'íska landsliösins, sem stýrði því
í leíknum i gærkvöldi, hafði ýmsar
skýringar á tapinu gegn íslandi. Þaö
var kalt, völlurinn lélegur og hentaði
islenska liðinu betur og dómarinn
hélt þeim aigeriega niðri, sagði hann
við DV eftir leikinn.
Svo sagði hann: „Aö auki vorum
við aöeíns með jjrjá leikmenn sem
léku með okkur i undankeppni
heimsmeistaramótsins.“ Þar gekk
Lopez fuliiangt f afsökununum, því
DV kannaði hvernig bólivíska liöið
var skipaö í undankeppninni og í ljós
kom að 9 af þeim 13 sem tóku þáít í
Ieiknum í gærkvöldi léku með liðinu
„Þaö hefur verið mikið af leikjum
hjá okkur að undanfömu, nokkrir
ieikmenn eiga við meiðsli að stríða
ög þurftu hvíld. Með fullskipuðu liði
tel ég að við eigum aö komast í 2.
umferð á HM í Bandaríkjunum,"
sagði Lopez.
„Viö áttum í erfiðleikum með að
laga okkur að aðstæðum í fyrri hálf-
leik, en stjórnuðum forðinni 1 þeim
síðari. Mér fannst numer 10 (Eyjólf-
ur) og númer 8 (Þorvaldur) vera
bestu menn ísiands og leikur liðsins
byggðist mikið á þeim,“ sagði Lopez.
Hafði nægan tima
„Erfiðasti hlutinn er að koma boltan-
um yfir línuna. Siggi vippaði yfir
markvörðinn. Ég hélt að hann myndi
spila strax á mig en hann átti góöan
séns á að vippa þegar ég sá boltann
lenda í stönginni var ég fjjótur að
átta mig. Ég hafði nægan tima til að
snúa mér og koma tuörunni í netið,“
sagði Þorvaidur Örlygsson við DV.
„Ég var búinn aö fá mjög góð færi
áður í leiknum og ég hafói alltaf þá
trú á aö ég myndi skora. í heildina
séð þá var ég ánægður með leik okk-
ar. Við náðum að loka svæðinu sem
við ætluðum að gera og komast fyrir
aftan þá upp í homin."
Ágætt á köflum
„Við nýttum kannski ekki tækifærin
nógu vei og upphiaupin okkar en í
hetidina séð sptiuðum við ágætlega á
köflum. Við gátum mjögauðveldlega
fengið á okkur jöfnunarmark í lokin.
Mér fannst strákamir leggja sig
virktiega vel fram og i iokin sá mað
ur þreytumerki á þcim,“ sagði Ásgeir
Eliasson, landsliðsþjálfari Islands.
Taktíkin gekk upp
„Þeir spiluðu rangstöðutaktik sem
kiikkaði. Eg kom úr djúpri stööu og
Rúnar tók eftir mér. Ég sá markvörð-
imi koma út á móti mér og reyndi
að vippa og jþað var mesta mildi að
boltinn fór ekki fram hjá heldur fór
hann í stöngina og þaðan tti Todda,“ :
sagði Siguröur Jónsson, fyrirliði ís-
lands í gær,
.JÉgvarmjögánægöurmeðleikiim.
Ég held að allir haíl lagt sig vel fram
og taktikin sem Ásgeir setti upp, það
er að pressa þá framarlega, hafi
gengið upp. Þð komu kaflar sem viö
duttum aðeins niður en við áttum
margar mjög góðar sóknir og vorum
óheppnir að skora ekki fleiri mörk."
Þorvaldur Örlygsson þrumar boltanum rétt yfir mark Bólivíu i fyrri háifleiknum
mark íslands.
gærkvöldi. Þetta var þriðja góða færið hans og úr því fjórða skoraði hann sigur-
DV-mynd Brynjar Gauti
HM-lið Bóliviu mátti sætta sig við ósigur á LaugardalsveUinum 1 gærkvöldi:
Dansinn íslenskur
- sigurmark frá Þorvaldi, 1-0, og góð byrjun á knattspyrnusumrinu
Víðir SSguiðssan skrifer:
Það sást lítið af samba-töktum hjá
fyrsta suöur-ameríska knattspymuiið
inu sem leikur á Laugardalsvelli - leik-
ur Bólivíumanna í gærkvöldi minnti
frekar á hliðar-saman-hliöar en fyrr-
nefnda dansinn sem kenndur er við
hina frægu nágranna þeirra. Það var
frekar að þaö vottaði fyrir mjúkum
danstöktum hjá íslensku leikmönnun-
um sem unnu verðskuldaðan sigur, 1-0,
og miðað við það sem Bólivíumennimir
sýndu eiga þeir ekki mikið erindi í
þýsku heimsmeistarana í opnunarleik
HM í Chicago þann 17. júní.
Hitt er annað mál að enginn leikur
betur en mótherjinn leyfir og íslensku
leikmennimir eiga hrós sktiið fyrir
frammistöðu sína í gærkvöldi. Þeir
vora betri aðtiinn lengst af og það var
verðskuldað þegar Þorvaldur Örlygs-
son skoraði rétt fyrir hlé - sendi boltann
í tómt markið eftir að Sigurður Jónsson
hafði fengið boltann inn fyrir vömina
frá Rúnari Kristinssyni og lyft honum
skemmttiega yfir Rojas, hinn „sókn-
djarfa" markvörð Bólivíu, og í stöngina.
Þorvaldur var marksæknastur ís-
lendinganna og hafði átt þrjú skot, tvö
fram. hjá marki Bólivíu og eitt varið,
úr góðum færam áður en hann skor-
aði. Þar fyrir utan átti ísland fjöldann
allan af góðum sóknum, sem herslu-
muninn vantaði á að klára, Amar
Gunnlaugsson gerði usla í nánast hvert
skipti sem hann fékk boltann og Eyjólf-
ur Sverrisson hefði átt að fá vítaspyrnu
þegar honum var hrint í vítateignum
12 mínútum fyrir leikslok.
Heppnin var þó líka á bandi íslands.
Birkir varði glæstiega frá Chavez úr
dauðafæri á 17. mínútu, og á síðustu tíu
mínútunum fengu Bólivíumenn þijú
upplögð færi tti að jafna en Birkir,
stöngin og forsjónin afstýröu því. ís-
lenska vörnin var of flöt á þessum loka-
kafla, og gerði sig þá seka um einbeit-
ingaleysi sem hefði getað kostað sigur-
inn.
Liðsheild Íslands var góð, betri en
búast hefði mátt við á þessum árstíma,
og greintiegt að liðið er að slípast saman
eftir tjóra leiki við HM-lið á einum
mánUði.
Tveir sterkustu sóknarmenn Bólivíu,
Marco Echteverry og Erwin Sanchez,
léku ekki með en markakóngur þeirra
úr undankeppninni, Wtiliam Ramallo
(18), sást ekki á þeim rúma hálftima sem
hann lék.
Tveir sigrar í fiórum leikjum á þjóð-
um sem taka þátt í knattspymuveisl-
unni í Bandaríkjunum er glæstieg
frammistaða sem vonandi nýtist þegar
að alvörunni kemur í Evrópuleikjunum
í haust - og landsliöið hefur gefið tóninn
fyrir sumarið.
Frammistaða
leikmanna
Guðmundur Hilmarsson skrifar:
Birkir Kristinsson:
Bjargaði tvívegis á meistaralegan
hátt skotum Bólivíumanna úr
opnum marktækifærum. Átti að
öðru leyti frekar náðugan dag.
Daði Dervic:
Barðist vel og vann flest návígi.
Sktiaði boltanum ekki vel frá sér
og var ekki nógu djúpur í vöm-
inni í síðari hálfleik.
Kristján Jónsson:
Var ekki mikið í boltanum í sín-
um 30. landsleik en það sem hann
gerði var yfirvegað og vel hugsað.
Rúnar Kristinsson:
Var köflóttur. Hann byijaði illa
en vann sig inn í leikiim. Átti
stóran þátt 1 markinu þegar hann
sendi fallega sendingu á Sigurð.
Sigursteinn Gíslason:
Var óörugur til að byrja með en
honum óx ásmegin þegar á leik-
inn leið og sptiaði þá vel.
SigurðurJónsson:
Einn besti leikmaður vallarins í
sínum 30. landsleik. Vann flest
návígi og stjómaði leik liðsins af
festu. Þáttur hans í markinu var
stór en hann gat kláraö dæmið
sjáifur.
Þorvaldur Örlygsson:
Átti mjög góðan leik og virkar í
mjög góðu formi. Var sífellt vinn-
andi og mjög ógnandi og var
lunkinn að skapa sér færi. Var
réttur maður á réttum stað þegar
hann skoraði sigurmarkið, sitt 4.
mark fyrir íslands hönd.
Arnar Grétarsson:
Sktiaði hlutverki sínu með prýði.
Var ekki mikið í boltanum en
vann vel fyrir liðið.
Haraldur Ingólfsson:
Hefur oft leikið betur. Virkaði
frekar þungur og ekki í nægtiega
góðri leikæfingu.
Eyjólfur Sverrisson:
Duglegur að vanda og dró að sér
athygli vamarmanna Bólivíu en
náði lítið að koma sér í færi.
Arnar Gunnlaugsson:
Sýndi oft á tíðum „sambatakta"
og lék bólivisku leikmennina oft
upp úr skónum. Á það þó tti að
„klappa“ boltanum of mikið.
Bjarki Gunnlaugsson:
Var ógnandi þegar hann kom inn
á og skapaði usla í vöm Bólivíu.
Hilmar Björnsson:
Lék í 6 mínútur í sínum fyrsta
landsleik.
Þormóður Egilsson:
Lék í 3 mínútur.
______________________________________Iþróttir
Úrslitakeppni NBA í nótt:
Indiana í úrslit
- Phoenix og Denver tryggðu sér oddaleik
Indiana tryggði sér í nótt sæti í úrslitum austurdetidarinnar í NBA
þegar liðið lagði Atlanta að velli, 98-79, og samanlagt, 4-2. í vestur-
detidinni er spennan gífurleg og í báðum viðureignunum er staðan
3-3. Denver vann þriðja leik sinn í röð gegn Utah, 94-91, og Phoenix
vann sigur á Houston, 103-89.
Rik Smits skoraði 27 stig fyrir Indiana sem leikur nú til úrslita í
austurstrandarriðlinum í fyrsta sinn. Reggie Miller var meö 18 stig
og Derric McKey 17. „Ég vti mæta New York í úrslitum frekar en
Chicago því allir spá því að New York verði meistari," sagði Reggie
Miller eftir leikinn. Mookie Blaylock skoraði 23 stig fyrir Atlanta og
Danny Manning 21.
Flestir vom búnir að afskrifa Denver eftir að hafa lent 3-0 undir
gegn Utah en með gífurlegri baráttu hefur liðinu tekist að jafna met-
in. Dikembe Mutombo skoraði 23 stig fyrir Denver og hann tryggði
liöinu sigur með tveimur vítaskotum 23 sekúndum fyrir leikslok. J
Karl Malone var með 31 stig í liði Utah og JeffHomacek 26. „Strákam-
ir gefast aldrei upp,“ sagði Dan Issel, þjálfari Denver, en þetta er í
annað sinn í sögu úrslitakeppni NBA sem lið nær að jafna metin eft-
ir að hafa veið 3-0 undir. Oddaleikur liðanna fer fram á heimavelli
Utah á laugardagskvöld.
Sigur Phoenix á Houston var öruggur og liðin mætast í oddaleik á
heimavelli Houston á laugardagskvöld. Kevin Johnson náði sér aftur
á strik og skoraði 28 stig fyrir Phoenix, A.C. Green var með 22 og
Charles Barkley 18. Hakeem Olajuwon skoraði 23 stig í liði Houston.
Adelmann rekinn frá Portland
Rick Adelmann, þjálfara Portland Tratiblazers, var í nótt vikið frá
störfum eftir fimm ára starf en liðið var slegið út í 1. umferð úrslita-
keppninnar af Houston.
Liðsauki til Fylkis 1 handboltanum:
Gylfimeðog
Haukur þjálfar
Útlit er fyrir að lið Fylkis í Árbæ
mæti sterkt tti leiks á næstu vertíð
handknattleiksmanna en liðið hafn-
aði í næstneðsta sæti 2. detidar sl.
vetur.
Nú þegar er ljóst að Gylfi Birgis-
son, sem leikið hefur með norska lið-
inu Bodö viö góðan orðstír, mun
leika með Fylki á næsta leiktímabili.
Mun hann styrkja liðið mjög mikið
enda ein öflugasta hægrihandar-
skytta landsins.
Fylkismenn hafa ráðið þjálfara fyr-
ir næsta tímabti og er það Haukur
Ottesen sem gerði garðinn frægan
með KR hér á árum áður.
Gríðarlegur hugur er í Fylkis-
mönnum í tengslum viö byggingu
íþróttahúss í hverfinu sem Árbæing-
ar sjá nú loksins htila undir. Von er
á fleiri landsþekktum leikmönnum
tti liðsins og ljóst að Fylkismenn
ætla sér stóra hiuti þegar menn fara
að henda handboltanum á mtili sín
á ný meö hausti.
Golf Golf Golf Golf Golf Golf Golf
OPNA
endurvinnslumótið
í golfi verður haldið á Strandarvelli laugardaginn
21. maí. Leikinn verður 18 holu höggleikur, með og
án forgjafar.
Ræst verður út frá kl. 8.00.
Skráning rástíma hjá Golfklúbbi Hellu
í síma 98-78208
Golf Golf Golf Golf Golf Golf Golf
Aðalfundir
Aðalfundur handknattleiksdeildar Fylkis verður haldinn í ■
félagsheimilinu við Fylkisveg 26. maí 1994 kl. 20.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál
Stjórnin
Aðalfundur íþróttafélagsins Fylkis verður haldinn í félags-
heimilinu við Fylkisveg 26. maí 1994 kl. 21.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál
Stjórnin