Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1994, Síða 6
6
FIMMT'UDAGUR 2. JÚNÍ 1994
Viðskipti
Karfi á fiskm.
Xg Mi Fi Fö Má Þr M1
Hiutabr. Eimskips
Mi Ft Fö Má Þr
Svartolía
Þýska markið
Mi F1 Fö Má Þr M!
Kauph. í Frankfurt
Karfihækkar
Karfinn hefur að meöaltali selst
á hærra verði í þessari viku en
þeirri síðustu. Meðalverðið í gær-
morgun var tæpar 49 krónur kíló-
ið hjá Reiknistofu fiskmarkaða.
Nokkur viðskipti hafa verið
með hiutabréf Eimskips aö und-
anfómu. Á þriðjudag seldust bréf
á genginu 4,30 fyrir rúmar 2 millj-
ónir.
Efitir að olíuviðskipti hófust eft-
ir langa fríhelgi á erlendum
mörkuðum hækkaði svartofían
enn frekar og nálgast aftur 100
dollara tonnið.
Þýska markið virðist á uppleið.
í þessari viku hefur sölugengið
ætíð verið yfir 43 krónum, var
43,06 krónur í skráningu Seðla-
bankans í gær.
Frá því um helgi hafa hluta-
bréfaviðskipti í Frankfurt tekið
örlítið við sér. DAX-30 hlutabréfa-
vísitalan stóð í 2129 stigum um
miðjan dag í gær.
Landsbanka bjargað með Iðnþróunarsjóði?
Lágkúruleqt
Til að bjarga slæmri stöðu Lands-
bankans og auka eigið fé eru uppi
hugmyndir innan ríkisstjórnarinn-
ar, Seðlabankans og Landsbankans
um að setja Iðnþróunarsjóð inn í
bankann á næsta ári. Þetta kom fram
í Viðskiptablaðinu í gær. Að sögn
blaðsins gæti þetta orðið að veraleika
á næsta ári þegar sjóðurinn verður
alfarið í eigu íslendinga.
Formaður Samtaka iðnaðarins,
Haraldur Sumarliðason, sagði við
DV að það væri lágkúrulegt og jafn-
framt dapurlegur endir ef stuðning-
ur Norðurlanda við íslenskan iðnað
endaði í stærsta ríkisbanka landsins,
Landsbankanum. Haraldur sagðist
skilja málið svo að Samtök iðnaðar-
ins hefðu komist að samkomulagi við
ríkisstjómina um að Iðnlánasjóður
og Iðnþróunarsjóður yrðu sameinað-
ir í íslenska íjárfestingarbankann en
fyrrum viðskiptaráðherra, Jón Sig-
urðsson, lagði slíkt frumvarp fram á
Ajþingi.
I samtali við DV sagðist Sighvatur
Björgvinsson viðskiptaráðherra ekki
kannast við þessar hugmyndir og
sagði þær ekki í vinnslu í viðskipta-
- segir formaður Samtaka iðnaðarins
ráðuneytinu en ráðimeytið fer méð
öll bankamál í landinu. Sighvati leist
ekki vel á þessa hugmynd og sagðist
heldur hallast að hugmyndum sem
Jón Sigurðsson kynnti á sínum tíma
um íslenska ijárfestingarbankann
með því að sameina Iðnlánasjóð og
Iðnþróunarsjóð.
Sighvatur gegn hugmyndinni
„Iðnþróunarsjóður hefur haft
ákveðnu hlutverki að gegna gagn-
vart íslenskum iðnaði. Eg tel að það
eigi að varðveita það markmið. Að
láta Iðnþróunarsjóð inn í Lands-
bankann er andstætt mínum hug-
myndum," sagði Sighvatur.
Landsbankann vantar 3 milljarða
til að uppfylla alþjóðlegar kröfur um
eiginfjárhlutfall en eigið fé Iðnþróun-
arsjóðs var rúmir 2 milljarðar um
síðustu áramót þegar framlag hinna
Norðurlandaþjóðanna hefur verið
dregið frá. Hins vegar varð í fyrsta
sinn tap á rekstri sjóðsins á síðasta
ári upp á 167 milljónir króna.
í grein Viðskiptablaðsins kemur
jafnframt fram að miðað við aíkomu
bankans það sem af er árinu sé eig-
infjárhlutfallið samkvæmt alþjóðleg-
um BlS-reglum 7% en lágmarkið er
8%. Þessu vill Sighvatur ekki trúa
og sagðist treysta útreikningum
bankaeftirlits Seðlabankans betur
sem sýndu hlutfallið yfir 8 prósent.
Forráðamenn Landsbankans
hyggjast skila skýrslu til bankaeftir-
litsins á næstu dögum og eftir það
veröur endanlega ákveðið hvernig
bankanum verður komið til bjargar.
Frá áramótum hafa verið lagðar um
200 milljónir króna á mánuði í af-
skriftareikning og stefnir í stórtap á
þessu ári.
Aðspurður um hvort stjórnvöld
kæmu Landsbankanum til hjálpar
líkt og á síðasta ári þegar bankinn
fékk ríflega 1 milljarð frá ríkinu sem
víkjandi lán sagðist Sighvatur ekki
vilja útiloka neitt.
„Ef setja á Iðnþróunarsjóð inn í
Landsbankann þá er auðvitað um
aðstoð ríkisins að ræða ef ríkið á að
gefa bankanum sjóð sem hefur verið
ætlaður til að standa undir iðnþróun
á íslandi. Það er bara annað orð yfir
ríkisstyrk," sagði Sighvatur við DV.
Vöruskiptajöfnuður:
Jókst um 5
milljarða
Viðskiptajöfnuður við útlönd, þ.e.
vöruskiptajöfnuður og þjónustujöfn-
uður samanlagðir, var hagstæður
um 5 milljarða fyrsta fjórðung þessa
árs. Á sama tíma í fyrra varö halli
upp á 2,2 milljarða reiknað á gengi
ársins í ár. Ástæðan er fyrst og
fremst óhagstæður þjónustujöfnuð-
ur.
Sé aðeins litið á vöruskiptajöfnuð
fyrsta ársfjórðunginn þá jókst hann
um 5 milljarða frá því í fyrra. Sam-
dráttur hefur orðið í innflutningi en
veruleg aukning í útflutningi. Á með-
fylgjandi grafi má nánar sjá þróun-
ina síðustu þrjú ár miöað við fyrsta
ársíjórðung.
Frá 1992 hefur vöruskiptajöfnuður-
Vöruskiptajöfnuður við útlönd
9000 millj."
8000
7000
6000
5000
4000
3000
2000
1000
8605
1 milljónum króna
; •: ■
„ wpp
.
3332 \ w, , ,
r M
'91 92 93 '94 —ír^
Egra
inn aukist um ríflega 300 prósent
miðað við fyrsta ársfjórðung. Allt
árið 1991 voru vöruskiptin óhagstæð
um 3,2 milljarða en voru hagstæð á
síðasta ári um 12 milljarða. Á tveim-
ur árum er sveiflan því 15 milljarðar.
Sumarsveif lan að koma
Arleg sumarsveifla á olíuverði er-
lendis virðist á leiðinni þótt verð
hafi ekki breyst mikið frá síðustu
viku. Einkabílanotkun í Evrópu er
óðum að aukast og því fer eftirspum-
in upp úr öflu valdi. Bensíntegundir
eru núna seldar á 170 dollara tonnið
að meðaltali í Rotterdam. Næstu vik-
ur er reiknað með að verðið nálgist
190 dollara.
- og enn hækkar kaffið
Olíufélögin hér heima eru að ná í
nýja farma til landsins. Þessa dagana
er Olíufélagið að taka á móti farmi í
Örfirisey og Hafnarfirði og Olís og
Skeljungur eiga sameiginlega von á
farmi um miðjan júnímánuð. Tals-
menn oflufélaganna reikna ekki meö
að þurfa að hækka bensínverð til
neytenda í sumar nema ef það rýkur
upp úr öllu valdi.
Um aðrar vörutegundir er það að
segja að kaffi heldur áfram að hækka
í verði. Reyndar kom örlítið bakslag
í síðustu viku en eftir helgi hefur
verðið farið upp á ný. í síðustu viku
var 7 ára sölumet slegið en sérfræð-
ingar spá frekara metaregni á næst-
unni.
Hverfandi likur
Vöku-Helgafells
ábókaklúbbiAB
Að sögn Ólafs Ragnarssonar hjá
Vöku-Helgafefli eru hverfandi
líkur á að bókaforlagið kaupi
bókaklúbb Almenna bókafélags-
ins hf. Eins og DV greindi frá sl.
laugardag hafa viöræður þess
efnis staðið yfir milli forráða-
manna fyrirtækjanna. AB á í
miklum rekstrarerfiðleikum og
skuldar á annað hundrað millj-
ónir króna. Ekki náðist í Friðrik
Friðriksson, framkvæmdastjóra
AB, í gær þar sem hann var
staddur erlendis.
Ólafur vildi ekkert gefa upp um
verðhugmyndir á bókaklúbbnum
en samkvæmt heimildum DV
hafa AB-menn viljað fá í kringum
30 milljónir fyrir söluna á honum.
Ef ekkert verður af kaupum
Vöku-Helgafefls er óvíst hvað
verður um klúbbinn eða AB al-
mennt. Kunnugir segja að ekkert
annað blasi við en gjaldþrot.
Vegna íréttar DV sl. laugardag
um slæma stöðu íslenskrar bóka-
útgáfu vill Jóhann Páll Valdi-
marsson, formaður bókaútgef-
enda, sérstaklega taka fram að
þær upplýsingar voru ekki frá
honum komnar þegar sagt var
að aðeins tvær útgáfur í landinu
væru reknai- réttu megin við núll-
ið. Af því tilefni vill DV taka fram
að Jóhann hefur fuflkomlega rétt
fyrír sér. Þær upplýsingar eru
koranar annars staðar frá.
Húsnæðisbréf
fyrir 337 millj-
ónirkróna
Útboð á húsnæðisbréfum fór
fram hjá Húsnæðisstofnun á
þriðjudag. Aö þessu sinni voru
þrír flokkar í boðí: 10 ára, 15 ára
og 20 ára bréf. Alls bárust 27 tilboð
frá 6 aðiium að nafnvirði 476 millj-
ónir króna. Tekin tilboð voru 20 að
nafnvirði 337 milljóna króna með
meðalávöxtuninni 4,96%.
Sex tilboðum var tekið í 20 ára
bréfin að nafnvirði 86 mifljóna og
meðalávöxtunin var 4,97%. Sex
tilboðum var einnig tekiö í 15 ára
bréfin að nafnvirði 68 milljóna
með meðalávöxtuninni 4,96%. í
10 ára bréfin var tekið átta tilboð-
um að nafnvirði 183 milljóna þar
sem meðalávöxtun var 4,95%.
HýsljórnVSÍ
Ný framkvæmdastjóm Vinnu-
veitendasambands íslands var
kjörin á aðalfundi sl. þriðjudag.
Magnús Gunnarsson var endur-
kjörinn formaður og sömuleiðis
Kristinn Bjömsson sem vara-
formaður.
Aðrir í stjórn VSÍ eru Arnar
Sigurmundsson, Bjarnar Ingi-
marsson, Bjarni Finnsson, Einar
Sveinsson, Geir Gunnarsson,
Gisli Þór Gíslason, Gunnar Svav-
arsson, Kolbeinn Kristinsson,
Konráð Guðmundsson, Ólafur B.
Ólafsson, Sigurður Helgason, Sig-
urður Gísli Pálmason, Sturlaug-
ur Sturlaugsson, Sveinn Hjörtur
Hjartarson, Víglundur Þorsteins-
son, Þórður Magnússon, Ævar
Guðmundsson, Öra Jóhannsson
og Öm Kjæmested.
Greiðsluáskorun
fyrirengaskuld
Ein lögfræöiskrifstofa boðsendi
greiðsluáskorun með hraði frá
Pósti og síma til símnotanda í
borginm á dögunum. Þegar um-
slagið var opnað kom í Ijós að
krafan hljóðaði upp á 0 krónur.
Símnotandanum var gert að
greiða skuldina innan 15 daga,
annars yrði krafist aðfarar án
fyrirvara.
Svona getur töluvtæknin klikk-
að í verstu tilfellum!