Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1994, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1994, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1994 íþróttir Hollandskoraðisjö Hollendingar rúlluöu Ungveij- um upp í vináttulandsleik í knatt- spyrnu í Eindhoven í gærkvöldi. Lokatölur urðu 7-1. Dennis Berg- kamp og Frank Rikjard gerðu tvö mörk hvor og þeir Bryan Roy, Ronald Koeman, Gaston Tau- ment sitt markið hver. Mark Ungveija skoraði Bela Mes og var það fyrsta mark leiksins. Norðmenn unnu Dani Norðmenn unnu í gærkvöldi sigur á Dönum, 2-1, í vináttu- landsleik í knattspyrnu sem fram fór í Osló. Jahn Ivar Jakobson og Henning Berg gerðu mörk Norðmanna en Fleming Povlsen svaraði fyrir Dani. JafntefliíBúkarest Rúmenia og Slóvenía geröu markalaust jafntefli í vináttu- landsleik þjóðanna í Búkarest í gær að viðstöddum 15 þúsund áhorfendum. Schwarz til Arsenal Sænski landshðsmaðurinn Stefan Schwarz skrifaði í gær undir samning við enska úrvals- deildarhðið Arsenal. Kaupverð Schwarz, sem leikið hefur með Benfica, er 1.750 þúsund pund. Staunton og Bosnich Steve Staunton skrifaði í gær undir nýjan fjögurra ára samning við enska úrvalsdeildarhðið As- ton VMa. Þá hefur ástralski markvörðurinn Mark Bosnich, sem af mörgum er talinn einn besti markvörðurinn í ensku knattspyrnunni, gert fimm ára samning við Viha. BastenmeðáHM Eins og fram hefur komið hefur Rud Guhitt ákveðið að leika ekki með Hollendingum á HM. Dick Advocaat, þjálfari Hollendinga, sagði í gær að svo gæti farið að Marco van Basten tæki stöðu Gullits í landshðshópnum. Undirhonumkomið „Ef það kemur í ljós að hann er í nægilega góðri æfingu og hefur sjálfur áhuga á að vera með á HM verður hann valinn í hópinn,“ segir Advocaat en lokafrestur th að tilkynna landshðshópinn er á morgun. FyrstileikurAtla Atli Knútsson lék sinn fyrsta leik í 1. deild þegar hann kom í KR-markið í stað Kristjáns Finn- bogasonar. Atli, sem er 19 ára, á sæti í 21 árs landshðinu. ÞrírleikiðmeðKR Þrír leikmenn ÍBK í gærkvöldi hafa leikið með KR, þeir Gunnar Oddsson, Ragnar Margeirsson og Ólafur Gottskálksson. Sigurður Björgvinsson hefði orðið sá fjórði en var meiddur. Erum óðum að komast í gang - meistarar ÍA upp að hlið KR Sigurönr Svenissan, DV, Akranesi: „Markmiðið var að byija leikinn af krafti og sýna Stjörnumönnum að við værum á heimavelli og ætluðum ekkert að gefa eftir. Við fengum óska- byrjun og fyldum henn vel eftir. Við erum sem óðast að komast í gang eftir tvo daufa fyrstu leikina," sagði Hörður Helgason, þjálfari íslands- og bikarmeistara Skagamanna, við DV eftir 3-0 sigur þeirra á Stjörnunni í bráðfjörugum leik á Akranesi í gær- kvöldi. Allt annað var að sjá til Skaga- manna í nepjunni í gærkvöldi en í fyrsta heimaleiknum gegn FH. Liðið mætti mjög ákveðið til leiks og press- aði leikmenn Stjömunnar um allan völl. Garðbæingar voru ekkert á því að gefa eftir og komust vel inn í leik- inn. Valdimar Kristófersson fékk kjörið tækifæri til að jafna metin á 12. mínútu en skot hans eftir snjaha stungusendingu fór framhjá. Skagamenn héldu uppteknum hætti eftir góðan kafla gestanna og fengu tvívegis kjörin marktækifæri. í því síðara átti Alexander Högnason þmmuskaha í jörðina og þaðan upp í þverslána og yfir. Sigursteinn Gíslason bjargaði síðan þrumuskoti frá Ingólfi á marklínu Skagamanna undir lok háMeiksins. Síðari háMeikur hófst eins og sá fyrri og Skagamenn sóttu grimmt með strekkinginn í bakið. Mark á 48. mínútu dró mesta máttinn úr gestun- um og um miðjan háMeikinn innsigl- uðu Skagamenn svo sigurinn. Loka- kaflinn var tíðindalítill en Þórður Þórðarson varð þó að taka á öllu sínu til að verja skot Baldurs Bjarnason- ar. Miklu munaði fyrir Skagamenn í leiknum að Sturlaugur Haraldsson og Bjarki Pétursson komu inn í hðið að nýju eftir meiðsl. Við endurkomu Sturlaugs fór Sigursteinn í sína gömlu stöðu og vann mjög vel með Haraldi Ingólfssyni á vinstri vængn- um. Þrátt fyrir tapið léku Stjömumenn lengstum prýðisgóða knattspyrnu. Leikmenn létu boltann ganga vel en gekk erfiðlega að skapa sér opin marktækifæri. Leiki hðið áfram eins og í gærkvöldi verður þess vart lengi að bíða að það innbyrði sinn fyrsta sigur í deildinni. IA-Stjaman (1-0) 3-0 £ 1- 0 Mihajlo Bibercic (3). Skoraði með skaila af stuttu færi eftir aö Sigurð- ur Guömundsson hafði variö skalla Sigurðar Jónssonar í kjölfar homspymu Haraldar Ingólfssonar. 2- 0 Sigursteinn Gíslason (48). Skoraði beint úr aukaspymu sem dænid var fyrir brot á Mihajlo Bibercic sem var kominn í gegnum vörn Stjömunnar. 3- 0 Sigurður Jónsson (69). Skoraði af stuttu færi eftir að skot Stefáns Þórð- arsonar úr teignum hafði verið varið. Lið ÍA: Þóröur Þórðarson, Sturlaugur Haraldsson, Zoran Miljkovic, Ólaf- ur Adolfsson, Sigursteinn Gíslason, Pálmi Haraldsson, Sigurður Jónsson, Alexander Högnason, Haraldur Ingólfsson ( Kári Steinn Reynisson 87), Bjarki Pétursson (Stefán Þórðarson 68), Mihajlo Bibercic. Lið Stjörnunnar: Sigurður Guðmundsson, Birgir Sigfússon, Goran Micic, Lúðvík Jónasson, Rögnvaldur Rögnvaldsson (Hermann Arason 57), Valgeir Baldursson (Bjami G. Sigurðsson 76), Ingólfur Ingólfsson, Ragnar Gíslason, Baldur Bjamason, Valdimar Kristófersson, Leifur Geir Hafsteinsson. ÍA: 17 markskot, 5 hom. 10 markskot, 12 hom. Gul spjöld: Sigurður (ÍA), Lúðvik (Stjarnan), Stefán (ÍA), Ingólfur (Stjarnan). Rautt spjald: Enginn. Dómari: Gísh Guðmundsson. Dæmdi þokkalega en naut lítihar aðstoðar línuvarða og hefði mátt taka fastar á leiknum. Yfirsást t.d. ljótt brot Bald- urs Bjamasonar á Sigurði Jónssyni. Áhorfendur:817. SkUyrði: Strekkingur af norðaustri og 5 stiga hiti. Góður grasvöllur á Jaðarsbökkum. @@ Zoran (ÍA), Ólafur (ÍA), Sigursteinn (ÍA), Haraldur (ÍA). Goran (Stjömunni), Ragnar (Stjömunni). @ Þórður (ÍA), Sturlaugur (ÍA), Sigurður (ÍA), Pálmi (ÍA), Baldur (Stjömunni), Valdimar (Stjömunni), Ingólfur (Stjömunni). Maður leikstns: Zoran Miljokovic (ÍA). Lék af griðarlegri yfirvegun i miðju varnarinnar, skilaði boltanum frábærlega og hafði mikla yfirferð. Sjá íþróttaf réttir einnig á bls. 32 Frjálsíþróttir i Æfingar frjálsíþróttadeildar Ármanns fyrir börn og unglinga eru að hefjast. Æfingarnar fara fram á Laugardals- og Val- bjarnarvelli sem hér segir í sumar. /1. DEILD KARLA Trðpí . ÍFÓTBOLTA Börn fædd 1982 og yngri. KR 3 2 1 0 8-1 7 Akranes 3 2 1 0 5-1 7 Mánudaga kl. 16.30 Keflavík 3 1 2 0 6-2 5 Miðvikudaga kl. 16.30 Valur 3 1 2 0 3-2 5 FH 3 1111-1 4 Þjálfarar: Haukur Sigurðsson og Geir Sverrisson UBK 3 1 0 2 2-9 3 Börn fædd 1981 og eldri Fram 3 0 2 1 4-5 2 Þór 3 0 2 1 3-4 2 Mánudaga kl. 17.30 ÍBV 3 0 2 1 1-3 2 Þriðjudaga kr. 17.30 Fimmtudaga kl. 17.30 Stjaman 3 0 1 2 0-5 1 Markahæstir: Þjálfari: Svanhildur Kristjónsdóttir og Kristján Harðarson. Tómas Ingi Tómasson, KR 4 Öll börn og unglingar eru hjartanlega velkomin. Óli Þór Magnússon, ÍBK 3 James Bett, KR 2 Skráning fer fram á staðnum. Verið með frá byrjun. Eiður S. Guðjohnsen, Val 2 Frjálsíþróttadeild Ármanns Mihqjlo Bibercic, ÍA 2 Óli Þór Magnússon, Keflvikingur, sækir að Kristjáni Finnbogasyni, markverði K kvöldi. Þann tima sem Kristján stóð í markinu var hann öryggið uppmálað. Stórleikur hjá Reggie Miller - þegar Indiana vann í New York í nótt Reggie MMer átti sannkahaðan stjörnuleik í nótt þegar Indiana gerði sér lítið fyrir og skehti New York í þriðja leiknum í röð í úrshtum aust- urdeildar NBA, og það í Madison Square Garden í New York, 86-93. MMer skoraði 25 stig í fjórða og síð- asta leikMuta, þar af fimm þriggja stiga körfur, og gerði ahs 39 stig í leiknum, og Indiana er komið yfir í einvíginu, 3-2, eftir að New York hafði unnið tvo fyrstu leikina. „Þetta var ótrúlegur leikur hjá MMer. Ég hef aldrei séð bakvörð fara svona á kostum gegn okkur og hann lék eins og Michael Jordan í fjórða leikhluta," sagði Pat Riley, þjálfari New York, eftir leikinn. New York var yfir, 70-58, þegar fjórði leikhluti hófst en samt mátti liðiö þola sitt fyrsta tap á heimavehi í 10 leikjum í úrshtakeppninni. Sjötti leikur hðanna fer fram í Indi- anapohs aðfaranótt laugardags og þar getur Indiana tryggt sér sigur í einvíginu og réttinn til að leika M úrshta við Houston um NBA-titMnn. Indiana hefur unnið aha 7 heimaleiki sína í úrshtakeppninni en New York aöeins einn af 7 útileikjum sínum. Antonio Davis og Haywoode Work- man komu næstir á eftir Miller í stigaskori Indiana með 12 stig. Dale Davis tók 12 fráköst og Antonio Da- vis 10. Patrick Ewing skoraði 29 stig fyrir New York og þeir John Starks og Charles Smith 16 stig hvor.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.