Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1994, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1994, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1994 Viðskipti Ýsa á fískm. kf/kg Þr Mi Fi Fö Má Þr Þingvísit. hlutabr. Hráolía f,r Mi Fi Fö Má Kauph. í New York 2960 " Jones Þr Mi Fl Fó Má Dollarstöðugur Söluverö dollars hérlendis hef- ur verið stöðugt síðustu vikuna. Söluverðið hefur verið lágt síð- ustu vikur og var í gær 69,10 krónur. Litlar breytingar hafa verið í KauphölUnni í London. FT SE100 vísitalan stóð í gær í 2970 stigum. Lítið er að gerast á íslenskum hlutabréfamarkaði nú um stund- ir. Þingvísitala hlutabréfa breyt- ist lltið mUU daga. Hún var 875,5 stig síðastUðinn mánudag. Ysuverð á fiskmörkuðum landsins hefur veriö verið óstöð- ugt að undanfórnu. í gær var meðalverðið 99,31 króna. Miðstöð fólks í atvinnuleit: Millibilsástand yf ir sumarið „Auðvitað eru fjárhagsvandræöi því að þetta er rekiö á lágmarks- kostnaði og aldrei hefur staðið til að þetta verði voðalegt batterí þó að við viljum auðvitað fá fleiri verkalýðsfé- lög inn og séum alltaf að vinna í því. Miðstööin er tilraun og mér finnst hún vel þess virði að hlúa að henni. Við höfum lagt áherslu á að vera með námskeiö fyrir atvinnulausa en í sumar erum við ekki með nám- skeiöahald. Viö byrjum aftur af full- um krafti seinni partinn í ágúst,“ segir Sigríður Kristinsdóttir, vara- formaður stjórnar Miðstöðvar fólks í atvinnuleit í Breiðholtskirkju. Blaðaskrif hafa verið um óánægju með Miðstöð fólks í atvinnuleit og hefur meðal annars komið fram að fjárskortur standi starfseminni fyrir þrifum auk þess sem miðstöðinni sé gert að greiða allt of háa húsaleigu fyrir aðstöðu sína í Breiðholtskirkju. Sigríður Kristinsdóttir hafnar þessu og segir að húsaleigan sé 20 þúsund krónur á mánuði. „Það hafa verið mannaskipti í þess- ari stjórn og því fylgir ákveðið milh- bUsástand. Verið er að undirbúa haustdagskrána fyrir næsta starfsár. Haldið verður áfram á sömu braut, skUst mér, en á síðasta ári var hér aUtaf oþin skrifstofa þó að opið hús hafi verið í minni mæh en gert hafi verið ráð fyrir. Þá var hér nám- skeiðahald tU að stappa stáli í fólk og efnt tU ráðstefnuhalds og um- ræðna um þessi málefni,“ segir Hjalti Þórisson, forstööumaður Miðstöðvar fyrir atvinnulausa í Breiðholts- kirkju. Aðstoð Samhjálpar: Atvinnulausir fá súpu, kaffi ogkex Súpugjafir tU atvinnulausra og heimiUslausra hafa löngum þótt til- heyra örbirgð í útlandinu en tímam- ir breytast og mennirnir með. Með breyttum tímum hefur atvinnuleysi, hungur og fátækt aukist hér á landi og sumir eiga sér jafnvel ekkert þak yfir höfuðið. Undanfarin ár hefur starfsfólk Samhjálpar gefið þeim sem þess þurfa matarmikla súpu og sam- lokur á virkum dögum frá klukkan 16 tU 18 í matstofu Samhjálpar viö Hverfisgötu. Ágúst Ólason hjá Sam- hjálp segir að boðið sé upp á katfi og kex í matstofunni allan daginn. Há- punktinum sé náð klukkan 16 þegar matargjöfin hefst. Aðsóknin aukist stöðugt og margir hringi til að spyrj- ast fyrir um matargjafirnar. Starisfólk Samhjálpar gefur þeim sem þess þurfa matarmikla súpu og samlokur á virkum dögum. DV-mynd ÞÖK Álverð hækkar enn Staðgreiðsluverð áls var í gær 1492 dollarar tonnið. Það er hæsta verð sem sést hefur frá byrjun árs 1991, eða í um þrjú og hálft ár. Birgðir áls, sem hafa hrannast upp síðustu ár, fara minnkandi en eru þó enn miklar. Eftirspum er mikil og má þakka það almennum upp- gangi í efnahagslífi Bandaríkjanna og Evrópu og batnandi horfum. Hækkun áls má að stórum hluta þakka veikri stöðu dollars. Mismun- andi spár em um það hvort álverð muni hækka enn frekar. Dollar er nokkuð stöðugur á al- þjóðagjaldeyrismörkuðum núna. Gengi hans gagnvart helstu gjald- miðlum heimsins er þó enn lágt. i _v ■ v j Utflutningsafurðir, gjaldmiðlar og verðbréf 1200 1492 to™ M....A.....M J 0,8 ; - 1,10 M A M J „Það er dálítið óvenjuiegt að ein og sama myndin fái öll verðlaun- in og hefur ekki gerst áður í sögu hátíðarínnar. Kvikmyndin Hin helgu vé var valin besta myndin og svo kom mjög á óvart að börn fengu verðlaun sem besti karl- leikari og besti kvenleikari. Það kom mér kannsM almest á óvart að myndin skyldi hreppa ka- þólsku verðlaunín líka því að hún fjallar um ungan strák sem upp- götvar að ákveðimi partur á lík- ama hans lýtur öðrum lögmálum en vitsmunirnir,“ segir Hrafn Gunnlaugsson leikstjóri. Eins og fram hefur komið í DV hlaut kvikm>md Hrafits, Hin helgu vé, þreim verðlaun á kvik- rayndahátíð í Troiu í Portúgal nýlega. Kvikmyndin fékk gull- hnísuna sem besta myndin og leikararnir Steinþór Matthiasson og Tinna Finnbogadóttir fengu silfurhnisuna fyrir leik sinn í myndinni. Þá fékk myndin sér- stök verðlaun kaþólsku kirkj- unnar en það eru nokkurs konar hliðarverðlaun á hátíðinni. ÞyrltipalluráHöfn Þyrlupallur við heilsugæslustöö- ina á Höfn i Hornafirði var nýlega tekinn i notkun og af því tilefni kom þyrla Landhelgísgæslunn- ar, TF SIF, og lentl á nýja pallin- um. Sturlaugur Þorsteinsson, bæjarstjóri á Höfn, bauð áhöfn þyrlunnar velkomna og þakkaði björgunarsveitinni á staðnum og Rauða kross deildinni framtak þeirra við paftinn. Fjöldi fólks var viðstaddur og notaði tækifærið til að skoða þyrluna. ÐV-mynd Júlía Imsland, DV, Höfn Akranes: Krossvíkkaupiraf Landsbankanum Siguxður Sverrisson, DV, Akranesi: Útgerðarfélagið Krossvík hf. á Akranesi, sem er í eigu Akranes- kaupstaðar, hefur keypt togar- ann Sæfara af ILandsbanka ís- lands. Bankinn leysti togarann til sín fyrir nokkru þegar rekstur Hafarnaríns stöðvaðist. Kaupverð togarans fæst ekki uppgefið en samkvæmt upplýs- ingum, sem DV hefur aflað sér, losar það 210 milljónir króna, Kaup Krossvíkur á togaranum eru fyrst og fremst vegna kvótans sem fylgir skipinu, sem eru rúm- lega 800 þorskígildistonn. Sjálfur togarinn, sem reyndist Hafemin- um mjög þungur í rekstrí á sínum tíma, veröur seldur úr landi og úreltur. Krossvík gerir i dag út togarann Höföavík og starfrækir fisk- vinnslu 'í húsum Hafarnarins. Rekstur fyrirtækisins hefur gengið vel og talsvert betur en áætlanir gerðu ráð fyrir. Blönduós: arsfjórastarfið Þórh. Áamundsson, DV, Norðurl. vestra: Umsóknarfrestur um stöðu bæjarstjóra á Blönduósi, sem ný- lega var auglýst, er runniim út. Nítján umsóknir bárust. Umsóknirnar voru kynntar bæj- arfulltrúum á bæjarstjórnarfundi nú í vikunni. Pétur A. Pétursson, forseti bæjarstjómar, segir að fjall- að verði vel um máhð og ómögulegt sé að segja til um nú hvenær nýr bæjarstjóri veröur ráðinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.