Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1994, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1994, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1994 Stuttar fréttir Breskir ráöherrar hafa nefnt sjö menn sem koma til greina sem forsetar Evrópusambandsins. Financial Times heldur því fram að Bretar, sem hafa einir tafið kosningu forsetans, vilji ítalska forsætisráðherrann, Giuliano, í embættið. ÚtmeðRússa Leiðtogar Eystrasalts- landanna von- ast eftir stuðn- ingi Bills Clint- ons Bandríkja- forseta, sem er Litháen í dag, i tilraun simii til að losna við rússneskar hersveit- ir úr löndunum fyrir ágústlok. Um eitt þúsund mótmælendur gerðu í gær aðsúg að sendiráði Bandaríkjamanna í Rígu. Tilnefnaforseta Talsmaður uppreisnarmanna í Rúanda sagði að flokkur hans, RPF, myndi tilnefna hófsaman mann af hútúættbálki til að leíða nýja ríkisstjórn landsins. BaristíBosníu Serbneskar og múslímskar her- sveitir áttu í kröftugum bardög- um í Bosníu í morgun. Á meðan skipulögðu vestrænir og rúss- neskir diplómatar fund með leið- togura hinna striðandi fylkinga í von um vopnahié. Gegn mafíunni Fulltrúar bandarísku alríkis- lögeglunnar og rússneskir lög- regluforingjar undirrituðu í gær sáttmála um að berjast saman gegn hinum nýja alþjóðega óvini, mafíunni. Gerðimistök Kravtsjúk, forseti Úkra- ínu, viður- kennir að hafa gert. mistök í staríi sínu en bendir kjós- endum á aö þeir megi ekki eiga von á meiriháttar breyting- um verði hann endurkjörinn um næstu helgi. VatntilAden Norður-Jemenar sögðust í gær hafa sent 50 tankbíla með vatn til Aden, í Suöur-Jemen, en um hálf milljón manna hefur þjáðst af vatnsskorti í borginni. Enn logará Spáni Heitt og þurrt veður heldur áfram að gera slökkviliðsmönn- um á Spáni lífíð leitt i báráttu þeirra gegn skógareldum sem hafa orðið 11 manns að bana og eyðilagt 90 þúsund hektara lands. Bauluðuog bönkuðu Um 500 þing- menn á ráð- stefnu RÖSE í Austurríki bauluðu og börðu í borð þegar rúss- neski þjóðern- issinninn Zhír- ínovskí hélt þvi fram í ræðu að Rússar myndu vinna þriðju heimsstyrjöldina. Ekkiíátök FYakkar segjast hafa minnkað Iilmmar á átökum við uppreisn- armenn i Rúanda cn leiðtogar uppreisnarmanna hafí hjálpa þeim aö gera öryggissvæði fyrir iiundruð þúsunda flóttamanna. Utlönd Kosningar í Færeyjum á morgun: Þriðjungur kjósenda ekki búinn að ákveða sig Eiiíkiir Þorvaldsson, DV, Færeyjum; Nær þriðjungur færeyskra kjós- enda hafði í gær enn ekki gert upp hug sinn fyrir kosningarnar sem fram fara á morgun. Samkvæmt skoðanakönnun færeyska sjón- varpsins voru 27,9 prósent af þúsund manna úrtaki óákveðin. 10 prósent kváðust ekki ætla að kjósa og 4,2 prósent ætluðu að skila auðu. Niðurstaða könnunarinnar er sú að gömlu flokkarnir, þeir stærri, fá á baukinn. Almenningur treystir þeim ekki lengur og snýr sér að litlu flokkunum, bæði þeim gömlu og hluta þeirra nýju og lætur þannig í ljós óánægju sína. Af þeim sem eru ákveðnir ætla 15,6 prósent að kjósa Jafnaðarflokk Mar- itu Petersen en í kosningunum 1990 hlaut flokkurinn 27,5 prósent at- kvæða. Fólkaflokkurinn fengi 16,2 prósent atkvæða en hlaut 21,9 pró- sent síðast. Flest atkvæði fengi Sam- bandsflokkurinn, 23,5 prósent. í síð- ustu kosningum fékk flokkurinn 18,9 prósent atkvæða. Sjálfstýriflokkur- inn fengi 4,9 prósent atkvæða, fékk - gömlu flokkamir fá á baukinn Gömlu flokkarnir fá á baukinn samkvæmt nýrri skoðanakönnun og er Jafnað- arflokki Maritu Petersen lögmanns spáð miklu tapi. áður 8,8 prósent, og Þjóðveldisflokk- urinn 13,3 prósent en fékk áður 14,7 prósent. Núverandi stjórnarflokkar eru Jafnaðarflokkurinn, Sjálfstýri- flokkurinn og Þjóðveldisflokkurinn. Talið er að ef Sambandsflokkurinn, sem er borgaraflokkur, reyni stjórn- armyndun verði það helst með öðr- um borgaraflokkum, það er Fólka- flokknum, Kristilega Fólkaflokknum og Miðflokknum. í gærkvöldi fóru fram kappræður í sjónvarpi og útvarpi sem fulltrúar allra flokka tóku þátt í. Helst hita- málið er hvernig hægt verði að greiða erlendar skuldir og hvernig stöðva eigi fólksflóttann. Einn nýju flokkanna, Færeyski flokkurinn, vill ganga svo langt að leggja heimastjórnarlögin á hilluna í nokkur ár og láta Dani fara með almenn mái til ársins 2000. Frelsis- fylkingin, sem einnig er nýr flokkur, vill hins vegar stofna lýðveldi. AUs bjóða tíu flokkar fram til kosn- inganna og fá nýju flokkarnir frá rúmum sjö prósentum atkvæða nið- ur í tæp tvö prósent. Haraldur Noregskonungur og Sonja drottning aka um götur Edinborgar þar sem þau eru í opinberri heimsókn. Heimsókn þeirra vekur ekki minni athygli í Cambridge því drottningin lýsti því yfir i blaðaviðtali að hún hefði verið barþjónn þar sumarið 1958 eftir að hafa lokið námskeiði í ensku. Simamynd Reuter Ovænt tíðindi í Simpsons-málinu: Saksóknari styðst ekki við blóðug sönnunargögn Réttarhöldin yfir ruðningskappan- um og leikaranum O. J. Simpson tóku óvænta stefnu í gær þegar saksókn- arinn ákvað að styðjast ekki við blóö- ug sönnunargögn sem fundust á heimili Simpsons. Simpson er ákæröur fyrir morðið á fyrrum eig- inkonu sinni og ástmanni hennar en neitar sakargiftum. Lögreglan lagði hald á 34 hluti frá heimili Sipmpsons og bíl og voru þeir lagðir fram sem sönnungargögn í málinu. Voru margir hlutanna með blóðblettum. Verjandi Simpsons taldi sönnunargögnin ógild þar sem lög- reglan hafði farið inn á heimilið án heimildar strax eftir morðið og skað- að sönnunargögn. Þá hafi lögreglan seinna fengið húsleitarheimild á fölskum forsendum. Saksóknarinn kom flestum á óvart þegar hann ákvað að styðjast ekki við framlögð sönnunargögn. Lög- menn sem fylgjast með réttarhaldinu túlkuðu þá ákvörðun sem ótta við að tapa málinu en vöktu um leið at- hygli á að saksóknarinn hefði alls ekki lagt öll sín spfl á borðið ennþá. Veijandi Simpsons var aðgangs- harður við einkabílstjórann sem kom að sækja Simpson kvöldið sem morðin voru framin en Simpson æti- aði með flugi til Chicago um nóttina. Sá sagðist hafa hringt eftir Simpson á innanhúskallkerflnu en enginn heföi svarað. Skömmu síðar sagðist hann hafa séð manneskju hlaupa yfir lóðina og inn i húsið. Strax á eftir hefði maður svarað í kallkerfið og sagst vera að koma. Trúi kvið- dómurinn að mannveran á ióðinni hafi verið Simpson fellur fjarvistar- sönnun hans. En bílstjórinn bætti við að Simpson hafi virkað mjög rólegur og afslappaður í bílnum, ólíkt manni sem hefði nýlokið við að skera fyrr- um eiginkonu á háls, eyrna á milli. Sjökomatil greinahjáBret- um Felipe Gonz- ales, forsætis- ráðherra Spán- f ar, var í gær útilokaður sem næsti forseti framkvæmda- </. - 's sijómar íÉ Evropusam bandsins af Helmut Kohl, kansl- ljóst að Gonzales sér í embættið. Br hafa nefnt sjö n þykja koma til gr< aðþvier Financi; fro i rnnrcrmi T?vrr’ gæfi ekki kost á eskir ráðherrar lenn sem þeim nna i embættið, ú Times greinir -*-i cx i niv'i r yx fyrrum forsætisr Giuliano Amato einnigsætt sigvié fráfarandi forsæt lands, Hans van d í>iur er neinaur áðherra Ítalíu, . Bretar geta 1 Ruud Lubbers, isráðherra Hol- en Broek, utan- rikisviðskiptafulli sambandsins, Rt frá Ítalíu, Poul Si forsætisráðherra írúa Evrópu- mate Ruggiero ihlúter. fyrrura Danmerkur, Uffe Ellemann-Jensen, fyrrum utanríkisráðherra Danmerkur, og Pedro Solbes, fiármálaráð- herra Spánar. Mengunvið hættumörk vegnahitabylgju Borgarstjórinn í Róm hvatti í gær aldraða, iasburða og börn til að dveija innandyra síðdegis vegna mikiilar mengunar sem fylgdi hitabylgju í borginm. Að minnsta kosti fjórir hafa látist í hitanum sem farið hefur upp i 38 gráður en það er átta gráðum meira en venjulega á þessum árs- tíma. Heilbrigðisráðherrann hvatti almenning til að snæða ávexti og grænmeti og sagði að sérfræðingar heföu bent á að forðast ætti áfengi, feitan mat og iskalda drykki í hitanum. í Brussel, London og Aþenu hefur einnig mælst mikil mengun að undanfömu í hitabylgjunni sem gengið hefur yfir Vestur- Evrópu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.