Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1994, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1994
9
Útlönd
Havelhveturtil
andlegrarend-
urnýjunar
Vaclav Havel,
forseti Tékk-
lands, hvatti til
andlegrar end-
urnýjunar til
að sameina
þjóðir þegar
hann tók við
Filadelfía frels-
isorðunni í Fíladelfíu í Bandaríkj-
unum á mánudag.
Havel sagði að undirstöður lýð-
ræðisins, svo sem einstaklings-
frelsi og vald sem byggðist á þjóð-
irrni sjálfri, væru einskisverðar
ef þær ættu ekki rætur sínar i
vitundinni um stöðu mannsins í
alheiminum og bæru ekki virð-
ingu fyrir kraftaverki lífsins.
Sífellt fleiri vilja
að Finnland
gangiíESB
Stuðningur við inngöngu Finn-
lands í Evrópusambandið vex
með hverjum deginum sem líður
og er hann nú meiri en nokkru
sinni áður á þessu ári.
Forskot aðildarstuðnings-
manna hefur aukist um sex pró-
sentustig frá því í janúar, sam-
kvæmt nýjustu könnun Gallups,
og eru nú 47 prósent þjóðarinnar
fylgjandi ESB, Andstæðingar að-
ildar að ESB njóta sama stuðn-
ings og áöur, eða 25 prósenta
kjósenda. Fjórðungur hefur enn
ekki gert upp hug sinn.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um að-
ild Finnlands að Evrópusam-
bandinu fer fram 16. október í
haust og þing landsins verður
einnig að samþykkja hana.
Önnur skoðanakönnun frá í
síöustu viku sýndi 53 prósenta
stuðning við aðild.
Hríðskotarifflar
áopnum mark-
aði á Grænlandi
Ungverskar efdrlíkingar af
Kalasnikov hríðskotarifflinum,
hættulegustu handbyssu sem til
er í heiminum, fundust hjá ung-
um hasssölumanni á Grænlandi
fyrir stuttu.
Hasssalinn, hinn 26 ára gamli
Thomas Kofoed, hefur þénað
næstum fimmtán milljónir is-
lenskra króna á smygli og sölu á
hassi frá árinu 1991. F vor var
hann handtekinn þegar hann
reyndi að smygla tæpum ellefu
kílórnn af hassi inn til landsins í
frystivörum.
Viö rannsókn á heimili manns-
ins fann lögreglan eftirlíkingam-
ar af hríðskotarifflunum, svo og
önnur hættuleg vopn. Kofoed
segist hafa keypt byssurnar í
verslun í Nuuk, höfuðstað Græn-
lands.
Klaus Kinkel ber
nasistaorðaf
Genscher
Klaus Kinkel,
utanríkisráö-
herra
lands,
það st
legt að ráðast á
forvera sinn,
Hans-Dietrich
Genscher,
vegna staðhæfinga um að hann
hafi verið félagi i nasistailokkin-
um.
Kinkel gerði lítið úr fregnum
fjölmiðla um að fundist hefðu
sltjöl sem sýndu aö Genscher hafi
verið í flokki Hitlers á unglings-
árum sínum þegar hann var að-
stoðarmaður í þýska flughem-
um. Reuter, FNB, Ritzau
Reynt að handtaka Paul Watson 1 morgun:
SigkH inn í
norskt varðskip
Skip bandaríska hvalverndunar-
mannsins Pauls Wartsons, Hvahr að
eilífu, sigldi í morgun inn í norska
varðskipið Andenes í Vesturfirði í
Noregi. Atburðurinn átti sér stað
þegar varðskipiö reyndi að stöðva
hvah að eilífu með þvi að leggja út
trossur. Litlar skemmdir urðu á
skipinu.
Þegar síðast fréttist var lögregla frá
Bodö á leið út í Vesturfjörð th að
handtaka Watson og færa skip hans
th hafnar.
Móttökumar sem Watson fær í
Noregi þurfa ekki að koma á óvart.
Talsmaður einnar vinnslustöðvar í
Lofoten fuhyrti í gær að ef einhver
móttökuathöfn yrði af hálfu Norð-
manna fæhst hún helst í handtöku
Paul Watson.
Watsons. Watson yrði annars sjálfur
að fanga athygli fjölmiðla.
Skip norsku strandgæslunnar hef-
ur fylgt Watson eins og skugginn.
Norðmenn hafa ekki átt von á að
hann muni finna hvalveiðibáta að
veiðum en hvalveiðarnar fara fram
á geysistóru svæði í Barentshafi og
Noregshafi.
Vegna mögulegra uppákoma í
tengslum við komu Watsons til Nor-
egs hugga Norðmenn sig við að Wat-
son virðist ekki sérlega þekktur í
Bandaríkjunum, þar sem 17 þúsund
af 25 þúsund meðhmum Sea Shep-
herd samtakanna búa. Fjörutíu
stærstu dagblöð Bandarikjanna fjöll-
uðu ekkert um Watson fyrstu sex
mánuði þessa árs enda virðist hval-
veiðimálið dautt í bandarískum
fjölmiðlum um þessar mundir.
Strandgæslumenn við björgunarstörf undan strönd Haítí þar sem bát með flóttamönnum hvolfdi. Nær tvö hundruð
flóttamenn hafa drukknað að undanförnu á flótta til Bandaríkjanna. Stjórnvöld i Panama hafa samþykkt að taka
við allt að tíu þúsund flóttamönnum frá Haítí í eitt ár að beiðni Clintons Bandaríkjaforseta og Sameinuðu þjóðanna.
í gær sendu Bandarikjamenn fjögur herskip áleiðis til Haítí. Símamvnd Reuter
Viðskipti Frakka
ogKínverjaorð-
Gérard
Longuet, viö-
skiptaráöherra
Frakklands,
skýrði frá því í
gær að frönsk
fyrirtæki hefðu
gert samninga
við Kínverja
upp á sjötíu milljarða íslenskra
króna og viðskipti landanna
væru komin í eðlilegt horf.
Longuet var i heimsókn í Pek-
ing þar sem hann ræddi viö leið-
toga landsins í tvo daga, þar á
meðal viö forsetann Jiang Zemin.
Kínverjar settu upp á sig snúð
eftir að Frakkar seldu Taívönum
orrustuþotur árið 1992 en þíða
komst á samskiptin í janúar á
þessu ári þegar Frakkar lofuðu
að hætta seija vopn th Taívans.
Borgarstjóri
Dyflinnarferð-
astáreiðhjóli
íbúar Dyfiinnar, höfuðborgar
írlands, hafa nú fengiö grænan
borgarstjóra sem ætlar að leggja
límúsínu embættisins og ferðast
í staðinn um á reiðhjóll Þá ætlar
hann að láta bera fram grænmet-
isrétti viö hátíðlegar athafnir.
John Gormley heitir þessi mað-
ur og fékk hann flest atkvæði
þegar borgarstjórnin kaus sér
borgarstjóra á mánudagskvöld.
Gormley er 35 ára gamall, kenn-
ari að mennt.
Velgengni hans þykir endur-
spegla vaxandi áhyggjur manna
af umhverfinu og mengun þess.
Vinstrisinnar
skutu sendi-
mannTyrklands
Vinstrisinnaðir grískir skæru-
liðar lýstu í gær ábyrgð á hendur
sér fyrir morðið á háttsettum
tyrkneskum stjórnarerindreka í
Aþenu og sögðust ætla að halda
áfram á sömu braut. Skærulið-
arnir voru að mótmæla þvi sem
þeir köhuðu glæpi Tyrkja gegn
Kýpverjum og Kúrdum.
Skæruliðahópurinn sem kennir
sig við 17. nóvember sendi fjög-
urra síðna yfirlýsingu til einka-
rekinnar sjónvarpsstöðvar á
mánudagskvöld og var hún birt
í griskum dagblöðum í gær.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
nóvembermenn ráðst gegn tyrk-
neskum sendimönnum því að-
stoðarblaðafuhtrúi tyrkneska
sendiráðsins var drepinn áriö
1991 og annar starfsmaður var
særður hættulega i sprengjutil-
ræði sama ár.
Arafat og Rabin til Parísar:
Ræða næstu skref
sjálfstjórnar
Yasser Arafat, leiðtogi Frelsissam-
taka Palestínu, hélt til Egyptalands í
morgun þaðan sem hann heldur th
Parísar th viðræðna við Yitzhak Rab-
in, forsætisráðherra ísraels. Þar
ræða þeir næstu skref sjálfstjómar á
Vesturbakkanum og fjárhagslega
aðstoð.
Embættismenn í Frelsissamtökum
Palestínu, PLO, telja að Arafat muni
leggja hart að Rabin að kaha heim
ísraelska hermenn frá öðrum borg-
um á Vesturbakkanum. Viðræðum-
ar í París verða fyrsti alvarlegi fund-
urinn sem aðhamir eiga með sér síð-
an skrifað var undir samkomulagið
um Gazasvæðið og Jeríkó í Kaíró í
maí síðasthðnum.
í sögulegri heimsókn sinni th Jer-
íkó á Vesturbakkanum í gær sór
Arafat embættiseið sem leiðtogi
heimastjórnarinnar á Gazasvæðinu
og í Jeríkó. Hét hann því í ræðu að
sjálfstjómarsvæðið í Jeríkó yrði að-
eins upphaf stærra ríkis Paiestínu-
manna með Austur-Jerúsalem sem
höfuöborg.
Færri fögnuðu Arafat við komuna
th Jeríkó en gert hafði verið ráð fyrir
og er tahð að það geti stafað af miklum
hitaíborginni. Reuter
HM-TILBOÐ
Eldsmiðjunnar að Bragagötu 38A
16" eldbökuð pizza með 3
áleggstegundum og 2 lítr-
ar af kók f ylgja f rítt með.
ENGRI LÍK
Frí heimsending
sími 62 38 38
Eldsmiðjan er einungis að Bragagötu 38A og hvergi
annars staðar.