Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1994, Side 12
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1994
r7
12
Spumingin
Hefur þú farið í
litgreiningu?
Lára Valdimarsdóttir: Nei.
Sigrún Eva Ármannsdóttir: Nei, ég
er bara í svörtu.
Ásthildur Lóa Þórsdóttir: Já, svona
óformlega í heimahúsi.
Einar Guðmundsson: Nei, það hef ég
ekki gert en á það kannski eftir.
Bryndís Valdimarsdóttir: Nei, égþarf
þess ekki.
Lesendur
Vestfirðingar þurf a
meiri fjármuni
M.L. skrifar:
Guðmundur nokkur Sigurðsson,
sem titlar sig bílstjóra, skrifar kjall-
aragrein í blaðiö 30. júní sem hann
nefnir „Burðarásar með bethstaf1.
Ekki þekki ég nefndan Guðmund en
í myndatexta, sem fylgir grein hans,
kemur fram að hann skrifar vestan
af ijörðum. Mér finnst málflutningur
af því tagi sem kemur fram þama
vera fyrir neðan allar hellur. Vest-
firðingar eiga að fá sem nemur 300
milljónum til að reisa við vestfirskt
atvinnulíf. Sú upphæð hrekkur auð-
vitað hvergi nærri svo að gagn megi
gera og er nánast til skammar þeim
stjórnvöldum sem að þessu standa.
Vestfirðir hafa um aldir staðiö undir
þjóðarbúinu með framleiðslu sinni.
Hin síðari ár hafa traustir menn á
borð við Einar Odd haldið styrkri
hönd um framleiðslutækin í fjórð-
ungnum. Ytri aðstæður, svo sem
óhagstæð gengisskráning, helstefna
í fiskveiðum og önnur óáran af
mannavöldum, hafa stuðlað að því
að hin styrka hönd hefur ekki náð
að halda kúrsi og nú liggja fyrirtæk-
in undir áfóllum.
Að tala um ölmusur eins og grein-
arhöfundur gerir lýsir auðvitað ekki
öðru en skorti á veruleikaskyni. Þaö
er auðvitað öllum ljóst að sé ein-
hveijum treystandi til að endurreisa
vestfirskt atvinnulíf þá er það þeim
sem hafa reynslu og áratugaþekk-
ingu á atvinnulífinu vestra. Ábyrgö
þjóðfélagsins á ógöngum fyrirtækj-
anna er algjör og þess vegna engin
spurning að þarna verða að koma til
Einar Oddur Kristjánsson hefur haldið styrkri hönd um framleiðslutæki á
Vestfjörðum. - Hér er Einar Oddur á fundi með ráðherrum forsætis- og fjár-
mála.
fjármunir úr ríkissjóði. 300 milljón-
imar hrökkva hvergi nærri til í þeim
efnum og væri nær að tala um 3
milljarða til að byrja með sem eins-
konar skyndihjálp. í framhaldi af
þeirri endurgreiðslu samfélagsins
yrðu stjórnvöld síðan að marka
stefnu tÚ frekari fjárveitinga sem á
endanum myndu gera þessi fyrirtæki
sjálíbær. Að loknu þessu endurreisn-
arstarfi þarf enginn að velkjast í vafa
um að um þjóðhagslega hagkvæma
aðgerð var aö ræða. Enduríjármögn-
unin mun gera fyrirtækjunum kleift
að aðlagast kvótakeríinu og styrkur
þeirra mun verða þjóðfélaginu í heild
til hagsbóta.
Skrif Guðmundar um hina vest-
íirsku burðarása eiga engan rétt á
sér og koma eins og köld vatnsgusa
í andlit vestfirsks almennings. Það
er ráðlegging mín til hans að telji
hann þörf á tiltekt í þjóðfélaginu þá
beini hann spjótum sínum eitthvaö
annað, t.d. á suðvesturhornið þar
sem óráðsían er shk að engu tali tek-
ur.
Olvun á unglingunum okkar
Steinunn hringdi:
Mig langar til þess að leggja orð í
belg vegna áfengisneysluhátta ungl-
inganna okkar. I nýlegri könnun sem
gerð var fyrir Áfengisvamaráð mátti
lesa ýmislegt jákvætt út úr niður-
stöðum. Mér finnst hins vegar að
ekki sé ástæða til þess að vera alltof
himinlifandi vegna þessara mála.
Ástæðan fyrir þessum skrifum er
það hvernig unglingarnir okkar fara
með áfengi. Dæmi um það sjást um
hveria helgi niðri í bæ, hér í Reykja-
vík, og svo má sjá enn svartari hlið
þessa málaflokks á útihátíðum sem
efnt er til eins og um liðna helgi. í
fréttum í sjónvarpinu mátti sjá hóp
af mjög drukknum krökkum, krökk-
um sem vissu vart hvað þeir hétu.
Þeir slöguðu út og suður og gerðu
þarfir sínar þar sem þeir stóðu. Þetta
fmnst mér alltafjafn grátlegt að sjá.
Spurning er hvort ekki sé ástæða
til þess að kenna þessu fólki að nota
áfengi í stað þess aö vera sífellt að
tala um að það ætti ekki að nota það.
Kannski væri þót rétt, í sumum til-
fellum að minnsta kosti, að stíga
skrefiö til fulls og fjalla meira um
forvarnir. Sá þáttur hefur að mínu
mati alveg gleymst síðustu árin.
Maður heyrir ekki eitt orð um það.
Sömu sögu má segja af reykingum.
Þar hafa forvarnir alveg dottið nið-
ur. Af hverju er það sem það gerist?
Er það vegna þess að þeir sem að
þeim standa fá ekki nægilegt fjár-
magn? Slæmt er ef svo er.
Krakkar! Þið sem drekkið ykkur
útúrfull um helgar ættuð að hugleiða
hvemig áfengið hefur farið með
fjöldann allan af fólki. Ekki er nóg
með að það hafl eyðilagt hmi, líf er
oft lagt að veði.
Bílar bandaríska hers
ins verði tryggðir
Skarphéðinn Einarsson hringdi:
Mig langar aðeins að leggja orð •'
belg vegna þess að sá bílafloti sem
ameríski herinn er með á
urflugvelli er ótryggður af hérlend-
um tryggingafélögum og óskoðaður
að auki. Mér finnst ástæða til þess
...................þvíbanda-
er með um 600 bíla hér
landi og þeir eru á undanþágum
síðan 1988 og fullnægja ekki kröfum
öryggisbúnað. Einkabílarnir eru
Bréfritari segir bíla bandaríska hersins vera í svo slæmu ásigkomulagi að
aðeins einn af hverjum þremur myndi sleppa í gegnum skoðun.
reyndar tryggðir og skoðaðir hér. Við
númerabreytingarnar hefðu þessar
bifreiðar átt að fá s.k. d-stærð af
númerum en eins og er hafa þær litl-
ar númeraplötur eins og skellinöðr-
ur eru með. Stafirnir á þessum plöt-
um eru afar lithr og nær ólæsilegur.
í Bretlandi eru þessi mál í miklu
betra lagi. Þar eru alhr bílar skoðað-
ir og með miða eins og aðrir skoðað-
ir breskir bílar.
Bílarnir hér í Keflavík eru ekki á
skrá hjá Bifreiðaskoðun íslands en
engu að síður er þeim heimilt að
keyra um vegi landsins. Þeim er ekið
mikiö um Suðurnesin og þeir eru í
svo slæmu ásigkomulagi að ef gerð
yrði skyndiskoðun á þeim myndi
aðeins einn af hveijum þremur kom-
ast í gegnum hana.
Ég legg til að við fórum að ráði
Breta og gerum þessar bifreiðir skoð-
unarskyldar og að íslenska og banda-
ríska ríkið hætti að ábyrgjast tjón
af völdum þeirra. Þessir aðilar eiga
skilyrðislaust að tryggja sín farar-
tæki hér á landi.
Símakerfið
Kristján hringdi:
Mig langar til þess að vekja at-
hygh forsvarsmanna íslands-
banka við Suðurlandsbraut á því
aö símaþjónusta þeirra er ekki
eins góð og hún gæti verið. Þann-
ig er að ef maður hringir í bank-
ann og biður um ákveðna deild
er og þarf aö biða smástund shtn-
ar og maður þarf að hringja aft-
ur. Þetta þurfti ég að reyna fimm
sinnum í röð einn daginn og þá
þraut mig þohnmæðina. Þetta
þyrfti aö laga því hér er það inn-
anhússkerfið sem er að khkka,
ekki Póstur og sími.
Karlrem bu*
svín vik-
unnar
G.Þ.L. hringdi:
Mig langaði til þess að vekja
athygh á því að ummæli eins af
forystumönnum Kópavogsbæjar
undanfarna dag í garð Kvenna-
listans eru þess eðlis að ég legg
tii að hann verði útnefndur karl-
rembusvín liðinnar viku. Ég hef
sjaldan eða aldrei á ævimú heyrt
viðlíkan Iiroka í garð kvenna og
tel ummælin reyndar aht annaö
en sæmandi manni sem starfar
að bæjarmálum. Legg ég hér með
til að birt verði stór mynd á for-
síðu blaðanna af þessum manni
svo alþjóö viti um hvem verið er
að tala.
Nýjar hraða-
hindranir
Guðjón hringdi:
Mig langar til þess að lýsa and-
úð minni á nýjum hraðahindrun-
um sem verið er koma upp hér
og hvar á landinu. Þær eru með
þeim hætti að maöur er hræddur
um aö demparar eyðileggist
hreinlega við höggin. Um er að
ræða hvítar hnur, likastar línum
á gangbrautum, og standa þær
stutt upp úr veginum. Maður átt-
ar sig ekki strax á því hvað þarna
er á ferðinni og því keyrir maöur
hratt yfir þetta. Ég er ekkert að
mæla gegn því að hraðahindranir
verði settar upp, þær þarf bara
að kyima og merkja svo maður
viti hvað er á ferðinni.
Móðir og eiginkona hringdi:
Ég var stödd á Akureyri um
hðna helgi, strákarnir mínir, hth
og stóri, vora að keppa í fótbolta.
Sá htli var að keppa á Esso-móti
KA en hinn á Pollamóti Þórs.
Bæði eiga félögin miklar þakkir
skyldar fyrir gott skipulag og
skemmtileg mót. Veðrið setti ekki
strik i reikninginn og átti sinn
þátt í því að við fjölskyldan áttum
yndislega helgi fyrir norðan. Ef
þetta er ekki jákvætt innlegg til
eflingar og samheldni fjölskyldna
þá veit ég ekki hvað. Haflð þökk
fyrir.
Allt of heitt
Ég er einn af þessum mönnum
sem liggja sjúkir yfir sjónvarpinu
þessa dagana. Ég er í skýjunum
yfir fótboitanum og veit svo sem
að enginn hér á landi svarar fyrír
leikjaskipulagið í Bandaríkjun-
um. Mér finnst bara rangt að
hafa þessa leiki svona snemma á
daginn þegar hitinn er sem mest-
ur. Það liggur við aö verið sé aö
skemma keppnina með þessu
móti. Júní, júlí og ágúst era afar
heitir mánuðir og því gengur ekki
á láta sjónvarpið ákveða tíma-
setninguna.