Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1994, Page 9
FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1994
9
Bill Clinton Bandaríkjaforseti var kátur er hann fékk saxófón að gjöf frá
Lech Walesa, forseta Póllands, i forsetahöllinni I Varsjá I gærkvöldi. Clinton
vildi þó ekki tjá sig um hvort hann ætlaði að spila fyrir Walesa. Áður en
Clinton kom í opinbera heimsókn til Póllands var hann í Lettlandi þar sem
hann sagðist hafna þeirri kröfu Borísar Jeltsíns Rússlandsforseta að brott-
fiutningur rússneskra hermanna frá Eystrasaltsríkjunum yrði háður réttind-
um rússneska minnihlutans í löndunum. Símamynd Reuter
Watson á leiö til Hjaltlandseyja:
Varðskipið hætt eftirför
Norska varðskipið Andenes sneri
aftur til Noregs þegar ljóst var að
hvalvemdarsinninn Paui Watson
stefndi rakleiðis til Hjaltlandseyja á
skipi sínu Whales forever eða Hvalir
að eilífu um hálfþrjúleytið í nótt.
Skip Watsons hafði skemmst þegar
það, að sögn norsku strandgæslunn-
ar, sigldi inn í varðskipið á Vestur-
firði. Watson heldur þvi hins vegar
statt og stöðugt fram að varðskipið
hafi siglt í veg fyrir sig. Hann hefur
engu að síður verið ákærður fyrir
skemmdarverk og að hafa siglt inn
fyrir fjögurra mílna landhelgi Nor-
egs í óleyfi.
Norska strandgæslan hafði fyrir-
mæh um að handataka Watson og
færa skip hans til hafnar í Bodö en
ekkert varö af því. Norðmenn túlka
aðgerðir sínar þó sem sigur þar sem
tekist hafi að vemda norska hval-
veiðibáta fyrir aðgerðum Watsons.
Watson hefur áfrýjað dómi sem
hann fékk fyrir tilraun til að sökkva
norskum hvalveiðibát í júh 1992. En
ef hæstiréttur Noregs staðfestir dóm-
inn munu norsk stjómvöld krefjast
þess að Watsons verði framseldur.
Engir framsalssamningar em í gildi
milh Noregs og Bandaríkjanna en
framsalskrafa mundi gera Watson
mjög erfitt fyrir í Evrópu.
Eigendur sextán norskra hval-
veiðibáta hafa keypt sérstaka
stríðsskaðatryggingu á báta sína af
ótta við aðgerðir Watsons en venju-
leg kaskótrygging nær ekki yfir
skemmdarverk. Er iðgjöldunum
stiht í hóf vegna áherslu norskra
stjórnvalda á að vemda hvalveiði-
bátana.
Verjandi O. J. Simpsons:
Lögreglan braut á
réttindum Simspons
Lögreglumennimir sem fóru inn á
lóð mðningshetjunnar O.J. Simp-
sons stuttu efir að fyrrverandi eigin-
kona hans og ástmaður hennar höfðu
verið stungin til bana bmtu á stjórn-
arskrárvernduðum réttindum hans.
Þetta fuhyrti veijandi Simpsons í
réttinum í gær. Þá var hann að færa
rök fyrir því að óghda ætti sönnunar-
gögn sem fundust á lóð Simpsons;
blóðugan hanska á gangstétt á bak
við húsið, blóðbletti í innkeyrslunni
og blóðbletti á hurð Broncojeppa í
eigu Simpsons en honum var lagt í
nokkurri fjarlægð frá húsinu.
Lögreglumennimir, sem eru í sér-
þjálfaðri sveit sem annast mál tengd
þekktu fólki, héldu því fram í yfir-
heyrslum að þeir hefðu óttast að
annað morð hefði verið framið heima
hjá Simpson en hann býr rétt hjá
morðstaðnum. Þess vegna hefðu þeir
ákveðið að fara inn á lóðina án leitar-
heimildar.
Simpson neitar staöfastlega sakar-
giftum um að hafa orðið fyrrum eig-
inkonu sinni og ástmannni að bana.
Hann heldur því fram að hann hafi
verið heima þegar atvikið gerðist en
vitni sem sáu mann hlaupa á lóðinni
og inn í húsið um það leyti sem morð-
in voru framin þykja veikja þá fuh-
yrðingu hans, auk þess sem hann
svaraði ekki hringingu í innanhúss-
kallkerfi um svipað leyti.
SVARTISVANURINN
Laugavegi 118
Sumarverð á ís
Barnaís
60 kr.
Venjulegur
80 kr.
Hvítur-Bleikur-Brúnn
Útlönd
Svört skýrsla Amnesty Intemational:
Pyntingar í Evrópulöndum
Pyntingar og ofbeldi áttu sér stað
á lögreglustöðvum og í fangelsum 26
Evrópulanda í fyrra, að því er fram
kemur í ársskýrslu mannréttinda-
samtakanna Amnesty Intemational.
í Tyrklandi vora 24 aöilar pyntaðir
tfi dauða af hemum og lögreglunni.
Danmörk og Svíþjóð eru meðal
þeirra Evrópulanda sem eru nefnd
vegna ofbeldis lögreglu. Enn fremur
Bretland, Frakkland, Ítalía, Spánn
og Portúgal. Þýsk yfirvöld eru gagn-
rýnd fyrir meðferð sína á útlending-
um. í mörgum löndum fyrrum Sovét-
ríkjanna eru pólitísk morð og
mannshvörf daglegt brauð. Stjómar-
andstæðingar em þar fangelsaðir án
dóms og laga.
Amnesty bendir á að evrópsk yfir-
völd hafi lítið gert til að lina þrautir
stríðshijáðra flóttamanna. Fyrrum
Júgóslavía er efst á listanum yfir
átakasvæði þar sem brotið hefur ver-
ið á mannréttindum. Að minnsta
kosti 15 þúsund manns hefur verið
haldið í fangabúðum, oft við hörmu-
legar aðstæður. Allir stríðsaðilarnir
þrír í Bosníu-Hersegóvínu hafa gerst
sekir um morð á hundruðum
óbreyttra borgara, körlum, konum
og börnum.
Sameinuðu þjóðirnar sæta einnig
gagnrýni í árskýrslu Amnesty Int-
emational. Gæsluliðar SÞ í Sómalíu
og bandarískir hermenn í landinu
gerðust sekir um dráp á konum og
bömum. Nákvæm rannsókn á dráp-
unum hefur ekki fárið fram. Gæslu-
liðar SÞ leyfðu ekki stríðsföngum að
hitta ættingja sína né lögfræðinga og
brýtur það í bága við Genfar-sam-
þykktina. Með þessu skapa Samein-
uðu þjóðimar slæmt fordæmi, að
mati Amnesty.
Alls greina samtökin frá mannrétt-
indabrotum í 151 landi. Yfir 100 þús-
und pólitískir fangar í 53 löndum
sitja nú inni án þess að réttað hafi
verið í máli þeirra. í 61 landi voru
framin póhtisk morð með þátttöku
yfirvalda. í 112 löndum voru fangar
pyntaðir eða sættu illri meðferð.
Reuter, NTB
nú er lag!
Handhafar Eurcard-kreditkorta eiga kost á ótrúlegri sólskins- og
tónleikaferð til Benidorm og Barcelona á enn ótrúlegra verði.
Gist verður í þægilegum íbúðum og hótelum
á Benidorm en þar ríkir gleðin nær óslitið
allan sólarhringinn. Skoðunarferðir
eru í boði og dagskrá fararstjóra
SL er rómuð.
27. júlí bregðum við okkur
til Barcelona á tónleika
með Pink Floyd:
Seiðandi tónfall,
hnitmiðaðar laglínur,
rammgöldrótt sóló
og kraftmikill flutningur!
Síðan er haldið aftur til
Benidorm og sólin sleikt
nokkra daga í viðbót.
Hljómleikar, ferðir, gisting,
fararstjórn, allir skattar
og gjöld aðeins:
53.040 kr. á mann miðað við 4 í íbúð
58.040 kr. á mann miðað við 3 í íbúð
62.040 kr. á mann miðað við 2 í íbúð
58.040 kr. á mann miðað við 2 á hóteli,
Ef þú ert handhafi ATLAS- eða gullkorts frá
Eurocard færðu þar að auki 4000 kr. afslátt því
afsláttarávísunin gildir einnig fyrir þessa ferð.
Nú er rótti tíminn til að fá sór
Eurocard!
4000 kr. afsláttarávisun
fylgir hverju ATIAS- og gullkorti.
Samviiuiiiíerúir
Lanisjn
SÍMI: 91-69 10 10