Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1994, Blaðsíða 22
34
FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1994
Afmæli_________________
Benedikt Gröndal
Benedikt Gröndal, fyrrv. forsætis-
ráðherra, Hjallalandi 26, Reykjavík,
ersjötugurídag.
Starfsferill
Benedikt fæddist að Hvilft við
Önundarfjörð en ólst upp i Reykja-
vík. Hanri lauk stúdentsprófi frá
MR1943, BA-prófi í sagnfræði frá
Harvard í Bandaríkjunum 1946 og
stundaði framhaldsnám í Oxford á
Englandi 1947.
Benedikt var blaðamaður og síðan
fréttastjóri við Alþýðublaðið 1938-59
og ritstjóri þar 1959-69, ritstjóri
Samvinnunnar 1951-58, forstjóri
Fræðslumyndasafns ríkisins
1969-78, þingmaður Alþýðuflokks-
ins 1956-82, utanríkisráðherra
1978-80, forsætisráðherra 1979-80,
sendiherra í Stokkhólmi 1982-87,
sendiherra í Austurlöndum 1987-89
og sendiherra hjá SÞ í New York
1989-91.
Benedikt sat í miðstjóm Alþýðu-
flokksins 1949-80, var varaformaður
Alþýðuflokksins 1952-54 og 1965-74
og formaður flokksins 1974-80.
Hann var formaður Útvarpsráðs
1957-71, fulltrúi á allsherjarþingum
og hafréttarráðstefnu SÞ, var for-
maður undirbúningsnefndar ís-
lensks sjónvarps, í stjórn Seðla-
banka íslands, Framkvæmdastofn-
unar og Nýbýlastjórnar, í stjórn
þingmannasambands NATO og sat
í fjölda nefnda um endurskoðun
hinna ýmsu laga.
Fjölskylda
Kona Benedikts er Heidi Jaeger
Gröndal, f. 13.4.1922, húsmóðir. Hún
er dóttir Werners Jaeger, prófessors
við Harvard, og Theodoru Jaeger
húsmóður sem bæði eru látin.
Börn Benedikts og Heidi eru Jón,
f. 26.4.1949, kennari í Grindavík,
kvæntur Dórótheu Emilsdóttur
húsmóður og eiga þau þrjú böm;
Tómas, f. 27.5.1955, lektor í Gauta-
borg, kvæntur Milví Gröndal
blómaheildsala; Einar, f. 25.6.1960,
bankastarfsmaður í Reykjavík,
kvæntur Guðrúnu Guðmundsdótt-
ur, starfsmanni hjá Securitas.
Systkini Benedikts: Sigurlaug, f.
8.5.1926, læknafulltrúi í Reykjavík;
Halldór, f. 15.10.1927, sóknarprestur
í Reykjavík; Ragnar, f. 17.7.1929,
verslunarmaður í Reykjavík; Þórir,
f. 8.5.1932, forstjóri og ræðismaður
í Flórída í Bandaríkjunum; Ragn-
heiður, f. 20.9.1934, læknafulltrúi í
Reykjavík; Gylfi, f. 17.4.1936, rithöf-
unduríKópavogi.
Foreldrar Benedikts: Siguröur
Gröndal, f. 3.11.1903, d. 6.6.1979,
rithöfundur, yfirkennari og hótel-
sjóri að Valhöll á Þingvöllum, og
Mikkelína María Sveinsdóttir, f. 9.1.
1901, húsmóðir.
Ætt
Sigurður var sonur Benedikts
Gröndal, skálds og skólastjóra, son-
ar Gunnlaugs, prests í Hvammi,
Stefánssonar, prófasts í Stafholti,
bróður Þuríðar, langömmu Vigdísar
forseta. Stefán var sonur Þorvalds,
prests og skálds í Holti, Böðvarsson-
ar, prests í Holtþingum, Högnason-
ar, prestafoður á Breiðabólstað, Sig-
urðssonar. Móðir Benedikts Grön-
dal var Valborg Elísabet, systir
Benedikts Gröndal, skálds og rithöf-
undar í Reykjavík. Hún var dóttir
Sveinbjarnar Egilssonar, skálds og
rektors.
Benedikt Gröndal.
Móðir Sigurðar Gröndal var Sig-
urlaugGuðmundsdóttir, sjómanns
í Ólafsvík, Guðmundssonar og Sig-
ríöarBjarnadóttur.
Mikkelína María er dóttir Sveins,
b. í Hvilft í Önundarfirði, Árnasonar
og Rannveigar, systur Ömólfs í
Skálavík, afa Haraldar J. Hamar
ritstjóra. Rannveig er dóttir Hálf-
dáns, hreppstjóra í Meirihlíð í Bol-
ungarvík, Ömólfssonar.
Benedikt er í útlöndum um þessar
mundir.
Guðmundur Þór Pálsson
Guðmundur Þór Pálsson arkitekt,
Bjarmalandi 22, Reykjavík, er sex-
tugur í dag.
Starfsferill
Guðmundur Þór fæddist í Reykja-
vík og ólst þar upp. Hann lauk stúd- -
entsprófi frá VÍ1955, lauk brottfar-
arprófi í arkitektúr frá Chalmers
Tekniska Högskolan í Gautaborg
1961.
Á námsárunum var Guðmundur
Þór fréttaritari Morgunblaðsins í
Gautaborg og skrifaði þá fjölmargar
greinar í blaðið um hin ýmsu mál-
efni. Hann starfaði að námi loknu
hjá húsameistara ríkisins og var
síðan deildarstjóri hjá byggingar-
deild menntamálaráðuneytisins.
Guðmundur Þór hefur nú um ára-
bil rekið eigin teiknistofu í Reykja-
vík.
Guðmundur Þór sat í stjórn Is-
landsk svenska fóreningen i Gauta-
borg 1957-61, í stjórn Sænsk-
íslenska félagsins í Reykjavík
1962-68, í stjórn Arkitektafélags ís-
lands og formaður þess 1967-68, sit-
ur í stjóm Nordisk Byggedag frá
1962 og formaður samtakanna á ár-
unum 1967-70.
Fjölskylda
Guðmundur Þór kvæntist 1.1.1956
Ragnhildi Auði Vilhjálmsdóttur, f.
23.12.1935, tækniteiknara. Hún er
dóttir Vilhjálms Hallgrímssonar
rafvirkjameistara og Huldu Ragn-
heiðar Jónsdóttur húsmóður.
Börn Guðmundar Þórs og Ragn-
hildar Auðar eru Vilhjálmur, f.
11.11.1955, viðskiptafræðingur,
kvæntur Margréti Baldursdóttur
húsmóður og eiga þau fimm börn;
Páll, f. 11.7.1958, lyfjafræðingur,
kvæntur Elsu Mogensen hjúkrun-
arfræðingi og eiga þau þrjú börn;
Ragnheiður Þórann, f. 27.3.1961,
hjúkrunarfræðingur; Andri Þór, f.
24.9.1966, viðskiptafræðingur,
kvæntur Grétu Björk Guðmunds-
dóttur mannfræðingi.
Uppeldissystir Guðmundar Þórs
er Hrafnhildur Valgarðsdóttir, f.
11.1.1948, rithöfundur ogskóla-
stjóri, og á hún fjögur böm.
Foreldrar Guðmundar Þórs vora
Páll Jakob Blöndal Guðjónsson, f.
22.11.1904, húsasmíðameistari í
Reykjavík, og Þórunn Theodóra Sig-
urjónsdóttir, f. 1.11,1908, húsmóðir.
Guðmundur Þór og Ragnhildur
Auður dvelja á hótel Almirante, Via
Laietana 42, Barcelona, á afmælis-
daginn.
Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir
Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir, inn-
kaupastjóri Lýsis hf., Granaskjóli
18, Reykjavík, er fertug í dag.
Starfsferill
Sigrún fæddist í Vestmannaeyjum
og átti þar heima þar til hún lauk
stúdentsprófi frá MR1973.
Hún vann hjá ísfélagi Vestmanna-
eyja með skóla, starfaði hjá Viðlaga-
sjóði í Vestmannaeyjum 1973, hjá
IBM1974, stundaði skrifstofustörf
hjá Vífilfelli 1982-86, starfaði við
launabókhald hjá Plastosi hf.
1986-88 og hefur verið innkaupa-
stjóri hjá Lýsi hf. frá 1988.
Sigrún hefur starfað með Junior
Chamber-hreyfingunni frá 1981 og
gegnt þar ýmsum trúnaðarstörfum,
þ.á m. verið landsforseti 1991-92. Þá
hefur hún sótt fjölda erlendra þinga
á vegum hreyfingarinnar.
Fjölskylda
Sigrún giftist 30.3.1974 Gunnari
K. Gunnarssyni, f. 21.2.1950, íjár-
málastjóra hjá Eldhaka hf. Hann er
sonur Gunnars Kristinssonar, skrif-
stofumanns í Reykjavík, og Maríu
Tryggvadóttur tannsmiðs.
Böm Sigrúnar og Gunnars eru
María Kristín Gunnarsdóttir, f. 28.8.
1974, nemi við HÍ; Gunnar Geir
Gunnarsson, f. 18.8.1976, nemi við
MR; Inga Lilý Gunnarsdóttir, f. 7.9.
1977, nemi við MR.
Systkini Sigrúnar eru Guðlaugur
- Sigurgeirsson, f. 16.7.1956, raf-
magnsverkfræðingur í Los Angeles
og starfsmaður Ratsjárstofnunar
íslands, kvæntur Sædísi Maríu
Hilmarsdóttur húsmóður og eiga
þau þijú böm; Guðrún Kristín Sig-
urgeirsdóttir, f. 16.7.1965, matvæla-
fræðingur í Vestmannaeyjum og
starfsmaður hjá Rannsóknarstofn-
un fiskiðnaðarins, gift Berki Gríms-
syni viðskiptafræðingi og eiga þau
tvöbörn.
Foreldrar Sigrúnar eru Sigurgeir
Jónasson, f. 19.9.1934, ljósmyndari
í Vestmannaeyjum, og Jakobína
Guðlaugsdóttir, f. 30.3.1936, hús-
móðir og golfleikari í Vestmanna-
eyjum.
Ætt
Sigurgeir er sonur Jónasar, frá
Helluvaði i Landeyjum, Sigurðsson-
ar, frá Heiði á Rangárvöllum, Odds-
sonar. Móðir Jónasar var Ingunn
Jónasdóttir frá Helluvaði. Móðir
Sigurgeirs er Guðrún Kristín Ing-
varsdóttir frá Reykjavík.
Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir.
Jakobína er dóttir Guðlaugs,
fyrrv. alþm. í Eyjum, Gíslasonar,
útvegsb. á Stafnesi, Geirmundsson-
ar. Móðir Guðlaugs var Þórunn Jak-
obína Hafliöadóttir, systir Jóns, fóð-
ur Borgþórs veðurfræðings. Systir
Þórunnar Jakobínu var Guðlaug,
móðir Dalselsbræðra. Móðir Jakob-
ínu Guðlaugsdóttur er Sigurlaug
Jónsdóttir, kaupfélagsstjóra í Vest-
mannaeyjum, Hinrikssonar og Ingi-
bjargar Theodórsdóttur Mathiesen.
Sigrún heldur upp á afmælið í
kaffiteríu ÍSÍ í Laugardal í dag milli
kl. 17.00 og 20.00.
Guðmundur Dagsson
Guðmundur Dagsson.
Guðmundur Dagsson, Hnífsdals-
vegi 8, ísafirði, er áttræður í dag.
Starfsferill
Guðmundur fæddist að Víðidalsá
í Staðarsveit en var á fyrsta ári er
faðir hans lést og ólst Guðmundur
því upp ásamt frændsystkinum sín-
um hjá móðurforeldrum að Kaldbak
í Kaldrananeshreppi. Þar átti hann
heima og stundaöi öll almenn bú-
störf til 1966 er hann fluttist til Isa-
fjarðar þar sem hann hefur átt
heimasíðan.
Systkini hans era Njóla Dagsdótt-
ir, búsett í Keflavík, og Sigvaldi
Dagsson sem nú dveiur á Elliheimil-
inu Grand í Reykjavík.
Foreldrar Guðmundar vora Dag-
ur Guðmundsson verkamaður og
Guðrún Guðjónsdóttir verkakona.
afmælið
90 ára
Guðrún Helgadóttir,
Hringbraut 50, Reykjavík.
85 ára
Höskuldur
Egilsson,
fyrrv. verslun-
armaöur,
Hvassaleiti56,
Reykjavík.
50ára____________________
Elínborg Ásmundsdóttir,
Vallholti 32, Selfossi.
EmiiÁgústsson,
Leynisbraut 5, Grindavík,
Einar Bjarnason,
Hásteinsvegi27, Stokkseyri.
Halldóra Júiíusdóttir,
Kvíholti 10, Hafnarfirði.
Hulda Gunnlaugsdóttir,
Stekkholti 20, SelfossL
Marta Sigríður Bjarnadóttir,
Öldugötu 18, Reykjavík.
Þorvaidur Guðnason,
Krummcdiólum 8, Reykjavík.
Ingunn Áskelsdóttir,
Selási, Reykdælahreppi.
80 ára
Unnur Guðmundsdóttir,
Stað I, ReykhólahreppL
Unnur er að heiman.
70 ára
TómasTómasson,
Langholti 14, Keflavík.
60 ára
Hreinn Jónasson,
Álfaskeiði 74, Hafnarfirði.
Sigurjón Jónsson,
Álfaskeiði96, Hafnarfirði.
Jóhanna Kristjánsdóttir,
Roðhóli, Hofshreppi.
Ingveldur Ásta Hjartardóttir,
Aðalstræti97,
Patreksfirði.
Húnogeigin-
maðurhennar,
SigurðurSig-
urðsson, taka á
mótigestumí
Félagsheimiii
Patreksfjarðar
laugardaginn 9.7. eftir kl. 20.00.
Valdis Jónsdóttir,
Túngötu21, ísafirði.
Sif Edith S, Jóhannesdóttir,
Illugagötu 5, Vestmannaejjum.
40ára
Svandís Ósk Óskarsdóttir,
Fannafold 9, Reykjavík.
Katrín Arnbj örg Magnúsdóttir,
Álfheimum 14, Reykjavík.
Ólafía Bjarnadóttir,
Hraunbæ 134, Reykjavík.
Hrafn Jónasson,
Melum II, Bæjarhreppi.
ólafur Stefán Þorbergsson,
Eskihlíö 5, Sauöárkróki.
Erla Gunnarsdóttir
verslunarmað-
ur, Eyjahrauni
15,Þorláks-
höfn.
Eiginmaður
hennarerSig-
urðurGarðars-
sonverk-
smiðjustjóri.
Þau hjónin taka á móti gestum i
Kiwanis-húsinu, fóstudaginn 8.7.
eftirkl. 20.00.
Sabina Jónsdóttir,
Hávegi 1, Kópavogi.
Sigurður Gunnar Sveinsson,
Hafnarbraut 20, Hólmavík.
Þóra Guðný Gunnarsdóttir,
Hlégerði2, Kópavogi.
Eggert Þór Andrésson,
Norðurtúni 5, Sandgerði.