Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1994, Side 6
6
LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1994
Stuttar fréttir
Breíarkyssa betur
ítalskt bókasafn frá Ravenna
sendi beiöni til bresks bókasafns
i Yorkshire og baö um aö fá lán-
aöar bækur um listina aö kyssa.
Aö sögn ftalanna er hvergi slíkar
bækur að finna á Ítalíu, iandi
rómantíkur og ásta.
Fituhlassí bjargað
Björgunarsveitir í Ástralíu
uröu að kalla ut Herkúlesþyrlu
til að flytja 220 kg þungan mann
á spítala sem átti viö öndunarerf-
iöleika að striða. Björgunarþyrla
af venjulegri stærð réö ekki við
þungann.
Blómafram-
leiðsla í Hol-
landi jókst um
7% á síðasta ári
og útflutnings-
verðmæti
þeirra er meira
en 100 milljarð-
aráári hverju.
Kynhvetjandi ilmvatn
Japanskt ilmvatnsfyrirtæki til-
kynnti um áform sín að setja á
markaðinn ilmvatn sem hefði
örvandi áhrif á heilastöðvar karl-
manna og örvaöi kynhvöt þeirra.
Snákalnnrás
Mikil hitabylgja í Rúmeníu hef-
ur í for meö sér þær óþægilegu
hliöarverkanir aö hættulegum
snákum hefur míög fjölgað í suð-
austurhluta landsins og lands-
menn eru lítt hrifnir af þeirri
þróun.
40drukknuðu
Bátur meö 41 manni, sem var
siglt frá Gíneu áleiðis til Sierra
Leone, strandaöi á skeri meö
þeim afleiðingum aö 40 drukkn-
uðu og einn komst lífs af.
Fylgiðhraparenn
Fylgi breska íhaldsflokksins
hrapar enn og er komiö niður í
26,5% samkvæmt skoðanakönn-
un Daily Telegraph. Verka-
mannaflokkurinn mælist með
51% fylgi og Frjálslyndir meö
17,5%.
Gísifærfrelsí
Sómalskir mannræningjar létu
lausa bandaríska blaðakonu sem
rænt var í Mogadishu fyrir 20
dögum. Hún var við góöa heilsu.
Bannað að dansa
írösk stjórnvöld tilkynntu í gær
aö öllum dansstöðum, diskótek-
um og næturklúbbum yrðí lokað
í landinu innan 15 daga og jafn-
framt yrði öll áfengissala á hótel-
um bönnuð.
Vöruverð erlendis:
Enn hækkar
kaffið
Kafli á erlendum mörkuðum held-
ur áfram að hækka í verði og er að
nálgast hæsta verð í 10 ár. í vikunni
átti þó sér stað lítils háttar lækkun
þegar fregnaðist að brasilískir fram-
leiöendur ætluðu sér að selja fimm
milljónir kaffisekkja frá sér í einu.
Eftir nokkra hækkun í síðustu viku
hefur hráolía á markaði í London
lækkað í þessari viku. Tunnan var i
17,20 dollurum á fimmtudag. Áfram
er spáð háu veröi vegna mikillar eft-
irspumar í Bandaríkjunum.
Hlutabréfaverö í helstu kauphöll-
um heims helst áfram í lægri kantin-
um. Þannig náði CAC-40 hlutabréfa-
vísitalan í París sínu lægsta á þessu
ári sl. mánudag þótt ekki megi sjá
það hér til hliðar. Tölur á meðfylgj-
andi grafi eru frá því á fimmtudag.
-Reuter
Útlönd
Oplnber heimsókn Bandaríkjaforseta í Póllandi:
Clinton gef ur þjóðum
Austur-Evrópu von
um inngöngu í NATO
Clinton gaf þjóðum Austur-Evrópu
von um inngöngu í NATO þegar
hann ávarpaði pólska þingið í stuttri
heimsókn til landsins á leið sinni á
fund helstu iðnríkja heims í Napolí.
í ræðu sinni gaf hann skýr merki um
það að innganga þjóða í Austur-
Evrópu í NATO væri raunverulegur
draumur sem vel gæti ræst.
Nokkra óánægju vakti þó að hann
nefndi engar dagsetningar eöa gaf
neinar tryggingar fyrir því að svo
gæti orðið. Hann lofaði því þó á fund-
inum aö land eins og Pólland yrði
ekki skilið eftir á „gráu svæði“ á
milh Moskvu og vestursins og lýsti
því yfir að hann léti Rússa ekki koma
í veg fyrir að aðrar þjóðir gengju inn
í NATO.
Pólski utanríkisráðherrann,
Andrzej Olechowski, lýsti því yfir í
lok heimsóknarinnar . að honum
fyndist að þessi mál mættu ganga
hraðar fyrir sig,“ enda eru Pólverjar
áhugasamir um inngöngu í NATO
vegna ótta við veldi Rússa. „Vestræn
lönd eru treg til að breyta til en ég
tel þó aö mál séu að þróast í jákvæða
átt,“ sagði Olechowski. Lech Walesa
áréttaði einnig á fundinum nauðsyn
þess að tryggja öryggi Austur-Evr-
ópulanda.
Clinton lofaði Pólverjum jafnframt
fjárhagsaðstoð til hernaðar- og efna-
hagsmála fyrir að minnsta kostijafn-
virði 15 milljarða íslenskra króna.
Stór hluti þeirrar upphæðar verður
útvegaður í samvinnu viö alþjóðleg-
ar stofnanir.
Clinton notaði frítímann til þess að skokka i Napólí á fundi helstu iðnríkja
heims. Fyrir fundinn fór hann í heimsókn til Póllands og ávarpaði þingið
þar. Þar gaf hann í skyn að vel kæmi til greina fyrir þjóðir Austur-Evrópu
að ganga í NATO.
Kosningar í Færeyjum:
Erfið stjórnarmyndun
framundan
Færeyingar horfa fram á erfiða
stjómarkreppu. Úrslit kosninganna
eru á þann veg að ljóst er að mjög
erfitt verður að mynda stjórn. Sigur-
vegari kosninganna er Sambands-
flokkurinn sem hefur nú 8 þingmenn
en hafði 6 áður. Þeir munu sennilega
reyna að mynda borgaralega sam-
bandsstjóm með Fólkaflokknum og
tveimur öðrum smáflokkum. Þeir
myndu sennilega leggja mesta
áherslu á grundvallarbreytingar í
atvinnulífinu.
Annar möguleiki á stjórnarmynd-
un er Sambandsflokkurinn, Jafnað-
arflokkurinn, Verkamannaflokkur-
inn og einn smáflokkur til. Sú stjórn
myndi einbeita sér að því reyna að
stemma stigu við mannflóttanum frá
eyjunum og reyna að minnka hið
gífurlega atvinnuleysi. Menn hafa
reynt að spá hverjar breytingar
verða á færeysku efnahagslífi eftir
kosningarnar. Kosningaþátttaka var
dræm og miklar breytingar á fylgi
flokkanna en það endurspeglar van-
trú kjósenda á frambjóðendum. Af
32 þingmönnum Lögþingsins eru að-
eins 18 eftir. Vegna þess að lög Fær-
eyinga krefjast þess að meirihluta-
stjórn sitji að völdum gæti stjórnar-
kreppan í Færeyjum orðið löng og
ströng því að minnst fjóra flokka
þarf til aö mynda stjórn og það gæti
reynst þrautin þyngri.
DV
GeimskufBan
Columbia í 14
dagaferð
I gær b>Tjað að var iæla í Jk
eldsneyti, á
aöra mi htra, í U lljón mka
geimskutli nn- fff i 1'
ar Colun íbiu. !"* -| I|v
Eldsneytin mun ski u itlan / \
brenna á 14
daga ferð sinni sem átti að hefiast
í gærkvöld ef veður leytði. Um
borð eru 7 geimfarar, 6 Banda-
ríkjamenn og ein japönsk kona
sem er hjartaskurðlæknir. Þau
munu sinna ýmsum vísindaverk-
efnum i geimnum, hátæknitil-
raunum, brjóta kristölluð prótín
fyrir lyQarannsóknir og gera
margs konar lyQarannsóknir á
sjálfum sér. Samtals verða gerðar
82 tilraunir á vegum 13 þátttöku-
þjóða sem standa saman aö
kostnaöinum sem nemur um 70
milljöröum króna. Talað hefur
verið um tímamót í samvinnu
þjóða um vísindatilraunir úti í
geimnum.
BBCeyðirmiiy-
örðumtilað
bætasam-
keppnisaðstöðu
Breska útvarpsstööin tilkynnti
í gær um áform sín að eyða meira
en 25 milljörðum á næstu þremur
árum til að bæta sjónvarps- og
útvarpsdagskrá sína. Ráðamenn
þar á bæ hafa þungar áhyggjur
af því að BBC standi sig sífellt
verr í samkeppninni viö aðrar
stöðvar og vilja bæta úr því með
þessu framlagi.
Á síðasta ári féll áhorf og hlust-
un á stöðina um hefl 2%. Á meðan
fiölgaði samkeppnisaðilum, bæði
stórum og smáum. Voru það 11
héraðsútvarpsstöðvar og tvær á
landsvísu og 10 sjónvarpsstöðvar.
Atvinnuleysi
óbreytthjáESB
Atvinnuleysið i Evrópusam-
bandslöndunum (ESB) helst
óbreytt í maímánuði og var þá
um 10,9% af fólki á vinnualdri,
eða um 17,7 milljónir manna. Það
er aukning ura 0,4% frá síðasta
ári. Atvinnuleysiö haföi aukist í
Belgíu, Þýskalandi, Frakklandi,
Ítalíu, Lúxemborg og Portúgal en
minnkað í Danmörku, Spáni, ír-
landi, Hollandi og Bretlandi. At-
vinnuleysið minnkaði mest í
Bretlandí, frá 10,1% í 9,7%. At-
vinnuleysi hafði hins vegar auk-
ist mest í Portúgal, í 6,4% úr 5,7%.
Sjösjómenn
skorniráháls
Sjö ítalskir sjómenn voru
skomir á háls í sveftú í höfninni
Jijel, 300 km austan við höfuð-
borgina Algeirsborg í Alsír. Talið
er að heittrúaðir múslímar séu
ábyrgir fyrir þessu ofbeldísverki.
Miklar róstur hafa verið i Alsír
síðastliöin tvö ár ffá því ofsatrú-
aðir múslímar unnu mikinn
kosningasigur í landinu og alls
hafa 42 útlendingar falliö í þess-
um átökum. Mun fleiri lands-
menn í Alsír hafa þó látið Iífið f
átökunum og er tala þeirra komin
upp í 3.700 manns. Undanfarna
daga hafa staðið yfir fundahöld
sjö helstu iðnríkja heims í Napolí
á Ítalíu í aðeins klukkustundar
flugfjarlægð frá staðnum þar sem
ítalirnir voru drepnir og hefur
þaö vakið óhug margra og vakið
upp spumingar um öryggi leið-
toganna.